Morgunblaðið - 10.04.1969, Page 11

Morgunblaðið - 10.04.1969, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1909 11 ÚR hófi Norðuriandafélagsins í Leecls til heiðurs fsiandi. fs- lenzk-sænsk stúlka, Nanna H ermannsson afhendir borgar-1 stjóranum í Leeds blómvönd. Lengkst tii hægri er forseti fé- ( lagsins, frú Glenn-Smith. Skyr og ísL súkkuloði — í veizlu í Leeds NOKKRAR ís’lenzkar konur, búsettar í Leeds á Englandi, hafa skrifað Mbl. frásögn af vel heppnaðri árshátíð Norð- urlandafélagsins „Yorkshire Anglo Scandinavian Society", sem að þessu sinni var helg- uð íslandi. Því- miður gat sendiherra íslands í London ekki komið og voru fslend- ingarnjr vonsviknir yfir að hafa ekki heiðursgest. Árs- hátíðina sóttu 160 manns og skemmtu sér vel. Ræðu fyrir minni íslands flutti frú Dor- othy Glenn-Smith, forseti fé- lagsins. Suniginn var íslenzki þjóð- söngurinn. Og á borðum voru íslenzkir réttir, matseðillinn á íslenzku. í forrétt var ís- lenzkur raekjukokteill. Mat- seðillinn var að því leyti sér- kennilegur, að tvisvar var borinn fram eftirréttur. ,Þan.n ig stóð á því, að þar sem ekki var víst að skyrið kæmi frá íslandi í tæka tið, var gert ráð fyrir ís í eftirmat. En skyrið kom kvöldið fyrir veiziuna og var borið fram aukalega. Þótti veizlugestum það ágætt. Flugfélag íslands útvegaði skyrið, Hótel Saga sendi munnþurrkur og Linda á Akureyri sendi súkkulaði með kaffinu. Rúm 100 tonn ni þrem bótnm SKÖMMU fyrir páska átti Mbl. stutt símtal við Albert Kemp á Fáskrúðsfirði. Þann dag var mik ið um að vera þar eystra, enda þrjú gkip þá nýlega komin að með fisk til vinnslu, en bátárn- ir voru Jón Kjartansson með 50. tonn, Hoffell 30 og Anna jafn- mikið. Höfðu bátarnir verið 3 daga að veiðum austur í Meðál- landsbugt. Kringum vinnslu aflans var mikil vinna, og sagði Albért að almenningur þar hefði ekki haft svo mikið að starfa um lengri tíma, en allveruiega hefur borið þar á atvinnuleysi í vetur. Au'k þess var þá verið að vinna að loðniu-, bræðslu í síldarbræðsl- unni. Brezkir hermenn æfn d íslnndi RÍKISSTJÓRNIN hefur veitt leyfi til þess, að brezkir her- flokkar úr Third Battalion, The Royai Anglican Regiment, stundi æfingar hér á landi dagana 17.— 30. þessa mánaðar. Búnaður hermannanna verður sendur til landsins með íslenzk- um skipum, en sjálfir koma þeir með herflugvélum. Munu Bret- arnir hafa aðsetur á Keflavíkur- flugvelli og stunda æfiingar það- an á svipuðum slóðum norðan Búrfell.s og í fyrra. íslenzkir að- ilar munu sjá um að flytja her- flokkana austur til æfingasvæðis ins. Menn úr varnarliðinu á Keflavikurflugvelli munu einnig taka þátt í æfingum þessum. MIKID SPURT UM ÍSLAND Loftleiðir taka þátt í ferðakynningu í Vesfur-Berlín SUNNUDAGINN 23. marz lauk í Vestur-Berlín allþjóðlegri ferða kynningu. Þetta var í 3. skipti, sem slík kynning er haldin hérna. Að dómi forráðamanna kynningarinnar tókst hún með afbrigðum vel, og hefur þegar hlotið alþjóða viðurkenningu. Eini íslenzki aðilinn, sem tók þátt í kynningunni, var Loft- leiðir. Kynningarstúka félagsins var bráðsnotur, íslenzkt lands- lag leiftra^i af veggjum og gamlir íslenzkir munir létu fara vel um sig í glerkassa fyrir allra augum. Líkan af risafugli fé- lagsins trónaði upp á borðs- horni og auglýsing um lág far- gjöld á bakvið. Spurulir gestir létu þetta ekki heldur fram hjá sér fara. ' ; ' - 1 Smá - • • . . "l ■■ •• y v ff., 4-.V •• '< u'i’i 1 ‘Íififf! n lAiriinii.. 11 i fÍÉinrnifif'.'niiniÉ Hluti af stúku Loftleiða á kynn ngunni. Þegar við höfðum olnbogað okkur að borðinu og kvatt kon- una, sem fyrir innan stóð, kurt- eislega, og beðið um msmáviðtal, bað hún guð að hjálpa sér og sagði okkur blessuðum að koma rétt eftir lokun. Sem stæði hefði hún nóg að stússa. Við vorum varla setztir að rjúkandi kaffibollunum, þegar við veittumsd að konunni með spurningum. Hún kvaðst heita Björg Eysteinsdóttir og starfa í skrifstofu Loftleiða í Frankfurt. „Er þetta í fyrsta skrpti, sem Laftleiðir taka þátt í þessari kynningu?“ „Jú, reyndar, en ég gæti trú- að, að þetta yrði ekki í það síð- asta“. ,.Hver sá um undirbúning þessarar kynningar?" „Það var aðallega Herr Reese, forstöðumaður skrifstofu Loft- Björg Eysteinsdóttir gefur holl ráð og veitir upplýsingar. leiða í Hamborg. Hann hefur einnig tögl og hagldir hér.“ „Hvort var nú meira spurt um ferðir til íslands og landið sjálft, eða ferðir allar götur til Banda- ríkjanna?" „Það var rmikið innt eftir vest- urferðum, en tvimælalaust meira spurt um ísland. Áhugi á ís- landsferðum er mikill og virðist fara vaxandi“. „Gerðu Loftleiðir eitthvað meira til að kynna landið en það sem blasir við okkur hérna“. „Sei,sei, jú. Hérna í salnum er kvikmyndahúskríli, þar sem sýndar eru landkynningamyndir allan guðslangan daginn. Þar eru sýndar tvær kvikmyndlr um ísland, minnst einu sinni á dag — fyrir fullu hiúsi, enda aðgang- ur ókeypis“. „Hefurðu nokkra hugmynd um, hve margir hafa dokað við, spurt eða tekiið með sér pésa?“ „Nákvæma tölu veit ég ekki, en það eru vafalaust nokkrar þúsundir". „Að lokum ein bráðsnjöll spurning: Hver voru viðbrögð fagmanna, þegar spurðist, að Loftleiðir hefðu tekið við rekstri Áir Bahama?“ „Stór augu og undrun“. — Þórður Vigfússon. Dr. Thorláksson kansl- ari Manitobaháskóla Hefur varpað Ijómaá íslenzka þjóðarbrotið með afrekum sínum í lœkna- og félagsmálum BLAÐIÐ Lögbeng Heims-1 kringla í Winnipeg segir frá því | að hinn merki sikurðlæiknir og vísindamaður, dr. P. H. T. Thor- láksson hafi verið kjörinn kanzl- ari — æðsti maður í stjórn Winni- pegháskóla. Dr. Thorláksson er af íslenzkum ættum, en fæddur vestanhafs. Hann á að baiki langt stanf í þágu læknavísinda og hefur staðið framarlega í kana- Dr. Thorlákson dískum heilbriigðismálum. Dr. Thoriáksson var yfirskurðiæknir Winnipeg General Hospital og prófessor í skurðlækmnigu'm við Manitobaháskóla, þar sem hann er nú 'heiðursdoktor. Hefur oít verið til hans leitað í Kanada, þegar koma þurfti miikilvægu.m máluim fram. T. d. var hann fyrsti forseti þróunarstofnunar fyrir læknismennitun og lækna- vísindi í Manitoba. Einnig hefir hann verið forseli menntamála- ráðs Manitoba, 1952' var hann forseti krabbameinssitofnunar Kanada og hann hefur átt sæti í Sjúkraihúsnafnd Manitoba frá frá upphafi. í tilefni af kanzlaraíkjöri dr. Thorlákson víkur blaðið sérstak- Lega að þei.m málum, sem snerta íslendinga vestanihafs og dr. Thorlákson heifur veitt forustu og leitt til lykta. Segir blaðið m.a.: Það fer vel á því að hann var kjörinn .kanzlari þeirrar stofnunar, sem fyrrum nefndist Wesiey Colege, því ísiendingar komu þar mikið við sögu bæði sem afburða námsmenn og kenn- axar og er dr. Thorlákson nú leiðsögumaður við stækkun og endurnýjun þeirrar gömlu og virðulegu menntastofnunar. Þá hafði dr. Thorlákson forustu uim að sameina íslendinga til að stofnuð yrði kennsludeild í íslenzku við Manitobaháskóla og lagði þar á ráðin. Sama er að segja um Betel-elliheimilið, þar hefux dx. Thorláksson lagt fram sína skipu'lagningarhæfileika og hleypt lífi í mannskapinn, sem að því vinnur. Enn var til hans leitað á aldarafmæli Kanada til að sikipa forsæti í nefnd til að safna fé fyrir afmælisgjöf Vest- ur-íslendinga, bronzskildi með frásögninni af landnámi íslend- inga á vesturstönd Kanada í fornöld og er sá skjöldur á vegg Þj<3ðsikjalabyggingar Kanada. Þá var hann í 20 ár í útgáfunefnd Lögbergs, lengst af formaður nefndarinnar og átti hann meg- inþáttinn í að blöðin voru sam- einuð. Þegar blaðaimaður Mbl. var á ferð í Winnipeg á fyrra ári og spurði dr. Thorlákson hvernig hann færi að því að hafa tíma til alls þessa, fyrir utan starf sitt á rannsöknarstofnun sinni, svaraði hann eitthvað á þá leið, að hann væri svo heppinh að hafa aldrei þurft að sofa nema fáa 'kluikkutíma á sólarhring. Dr. P.H.T. Thorlákson er mikill íslendinigur, segir Lögberg — Heimskrin.gla, Þau hjónin haifa komið til íslands þrisvar sinnuim, fyrst 1930. Hann var sæmdur riddara- krossi Fátkaorðunnar 1951. Árið 1961 var hann gerður heiðurs- doktor við Háskóla íslands á 50 ára afmæli þeirrar stofnunar. Hann er heiðursfélagi í Þjóð- ræknisfélagi íslendinga í Vest- urheimi, Dr. P.H.T. Thorléikson hefir varpað ljóma á íslenzka þjóðarbrotið með afrefcum sín- um á læknissviðinu og í félags- málum. Laust starl Kópavogskaupstaður óskar að árða forstöðukonu að dag- heimili Kópavogs frá 1. júní n.k. Upplýsingar um startið veitir formaður leikvallanefndar frú Svandís Skúladóttir, sími 41833. Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 1. maí n.k. ásamt upp- lýsingum um fyrri störf og meðmælum. 10. apríl 1969. BÆJARSTJÓRINN I KÓPAVOGI. VINYL-VEGGFÓÐUR Þ0LIR ALLAN ÞV0TT UTAVER Grensásvegi 22-24 Simi 30280-32262

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.