Morgunblaðið - 10.04.1969, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1!>69
21
Frá síðasita klúbbfundi Heimdallar. Bjarni Benediktsson for sætisráðth. ávarpar fundargesti.
Opið hús flest kvöld í
Félagsheimili Heimdallar
Nýbreytni i félagsstarfinu
NÝLEGA tókum við tali þá Jón
Grímsson, formann Félagsheim-
ilisnefndar Heimdallar og- Pál
Stefánsson, framkvæmdastjóra
félagsins og inntum þá eftir því
hvernig félagsstarfið hefði geng-
ið í vetur og hvað væri fram-
undan.
Fyrstur varð fyrir svörum
Páll Stefánsson og rakti hann
helztu viðburði í félagsstarfinu,
það sem af er vetrar. Haldnir
hafa verið 5 klúbbfundir og hafa
frummælendur verið Magnús
Jónsson, fjármálaráðherra,
Hannibal Valdimarsson, forseti
A.S.Í., Aron Guðbrandsson, kaup
sýslumaður, Sigurður Bjarna-
son, ritstjóri og Bjarni Bene-
diktsson, forssetisrá'ðherra. Einn
ig hafa verið 5 stærri innanfé-
lagsifundir um ýmsa þætti stjórn
málanna. Kynningar- og fræðslu
fundir, þar sem fengnir hafa
verið fyrirlesarar í sambandi
við hvert efni, sem til umræðu
get ég láti'ð hjá líða, að nú um
þessar mundir er verið að inn-
um félagsins í vetur, en ekki heimta félagsgjöld og vil ég
hefur verið, hafa alltaf farið
fram vikulega í vetur. Ekki hef-
ur verið gleymt, að ungt fólik
þarf að skemmta sér í dagsins
önn og hafa því verið haldin
nokkur skemimtikvöld, sem fé-
lagsfólk hefur undirbúið sjálft.
Stærstu og fjölmennustu fund-
irnir voru kappræðufundirnir
tveir milli Heimdallar og F.U.F.,
ásamt hinum margumtalaða
borgarafundi um mjólkurmál og
ekki má gleyma hinum velheppn
aða fundi um íþróttamál. Allir
þessir fundir voru haldnir á
tímabilinu frá 2. febrúar til 2.
marz.
„Reynt hefur verið að halda
úti reglulegu Heimdallar- og
S.U.S.-síðum í Morgunblaðinu
og Vísi og verður því haldið
áfram. Gefið var út allstórt Við
skiptablað, sem margir Heim-
dallarfélagar aðstoðuðu við dreif
ingu á. Hafa tekjur af því blaði
staðið að mestu undir fjármál-
hvetja félagsfólk til þess að inna
greiðslu af hendi hið fyrsta.
Held ég, að nú hafi ég rakið að-
alþætti starfsins, en að sjálf-
sögðu eru ýmsar nefndir starf-
andi um allt milli himins og
jarðar, ef svo má að orði kom-
ast.“
Nú snerum við máli okkar til
Jóns Grímssonax og báðum
hann að lýsa því, sem Félags-
heimilisnefnd hefði á prjónun-
um. Kvað hann helzt að nefna
þá nýbreytni að hafa félagsheim
ilið opið fjögur kvöld vikunnar,
þ.e.a.s. mánudags-j þriðjudags-,
fimmtudags- og föstudagskvöld.
Fyrst verður opið fimmtudag-
inn 10. apríl og verður húsið
opnað kl. 20,30 eins og reyndar
öll kvöldin. Hér gefst félags-
mönnum frekara tækifæri til
þess að kynnast innbyrðis og
mun verða stefnt að því, að sem
flestir ungir Sjálfsitæ'ðismenn,
sem sæti eiga í stjórnum, nefnd
um og ráðum innan Sjálfstæðis-
flokksins munu líta inn ogbyggja
upp umræður um landsins gagn
og nauðsynjar. Félagsheimilis-
nefnd hefur og ákveðið að beita
sér fyrir fjölþættri starfsemi,
það sem eftir lifir vetrar og
munu m.a. verða kvikmynda-
sýningar, umræðufundir og al-
menn stjórnmálastarfsemi. Jón
sagði, að einnig hefði komið til
tals, að í sumar verði efnt til
fer'ðalaga, en það væri enn í
mótun.
Páll Steíánsson vildi að lok-
um hvetja Hekndallarfélaga til
þess að láta þessa nýbreytni
ekki, fara fram hjá sér og að
koma í félagsheimilið sem oft-
ast til skrafs og ráðagerða.
- BÆNIN
Framhald af bls 10
og ekkjur, og úthellið ekki
saklausu blóði á þessum stað,
og eltið ekki aðra guði —
yður til tjóns, þá vil ég láta
yður búa á þessum stað, í
landinu, sem ég gaf feðrum
yðar, fra eilífð til eilífðar".
Og síðar segir í sama kapí-
tula: „Er þá hús þetta, sem
kennt er við nafn mitt, orðið
að ræningjabæli í augum yð-
ar?“ Þessi orð hefði Kristur
haft í huga að sínu áliti og
reiði hans hefði verið sprott-
in af því, að menn hefðu hald
ið að allt fengist með fórn og
varaibjónustu, en hann hefði
viljað leggja áherzlu á ein-
læga tilbeiðslu, er kæmi frá
lifandi hjörtum. Musterið,
sem hann talaði um, væru
þessi lifandi hjörtu. Kristur
hefði átt við líf mannikynsins,
en ekki húsið, sem hann stóð
í, er hann talaði þessi orð.
Siffurbjörn Einarsson, bisk-
up, talaði síðastur og svaraði
spurningunni: Teljið þér, að
sá maður, sem er illa haldinn
af ofurþunga hversdagslífsins
í fjáhhagserfiðleikum, veiikind
um eða af öðrum ástæðum,
megi skilyrðislaust byggja á
orðunum: Biðjið og yður mun
gefast? Þessari spurningu
kvaðst biskup skilyrðislaust
svara játandi. Bf orð og fyrir-
heit Drottins væru ekki gild,
þegar öll sund væru lokuð,
hvenær væru þau þá gild?
Ef menn treystu á heilsu og
hagsæld eingöngu gerðu menn
það að guði sínuim. Tilvitnuðu
orðin væru úr Fjallræðunni
og í niðurlagi hennar væri
minnzt á húsin, sem byggð
væru á bjargi og á sandi. Sú
líking ætti einnig við þessi
orð. Orð Krists væru bjargið,
sem ekki bifaðist og á þeim
mætti byggja þegar allt annað
væri hrunið og aldrei fremur
en þá. Þegar allt er misst á
ég guð eftir. Við hann get ég
talað þegar hvergi er hjálp
að fá. Bænin væri lykill að
Drottins náð, enda þótt óskir
bænarinnar væru ekki upp-
fylltar; hún tengdi menn guði
von og trausti. Ræðumaður
vitnaði til útlends geðlæknis,
er hefði skrifað á þá leið, að
af öllum heilþrigðisráðstöfum-
um, sem ynnu á móti sálræn-
um truflunum, teldi hann þá
bezta að temja sér að biðjast
fyrir. Fjödi lækna mundi taka
undir þessi ummæli. Spurn-
ingin væri hins vegar sú,
hvort biðjandi maður gæti
haldið guði sínum föstum í
ítrustu neyð. Það ætti maður
undir náð guðs, en þegar
verulega syrti að yrði bænin
að vera sú, að guð sjái til
þess að biðjandi maður sleppi
honum ekki. Maðurinn yrði
að hal'da buga sínum föstum
við þetta: Ég sleppi þér ekki.
Bæn Jesú á krossinum væri
vitnisburður um þann sigur,
sem unnizt hefði í ítrustu
neyð. Guð væri andvígur
þjóningu og böli, en gæti þó
sigrað í þjáningu og með
hana að verkfæri. Bólu-
Hjálmar hefði svarað spurn-
ingunnd flestum betur i sálm-
inum: Ég á þig eftir, Jesú
minn....
★
í lok kirkjukvöldsins flutti
séra Óskar J. Þorláksson huig-
leiðinigu og bæn. Á milli at-
riða og á eftir hugleiðingu
séra Óskars var almennur
kirkjusöngur við undirleik
Ragnars Björnssonar.
HVERS VEGNA
BRIDGESTONE
VÖRUBÍLADE
Það lcetur nœrri að 7 af hverjum 10 vörubílstjórum, sem
við höfum haft samband við hafi á undantörnum árum
ekið meira eða minna á BRIDGESTONE dekkjum, og ber
þeim saman um að jafnbetri endingu hafi þeir ekki
fengið á öðrum hjólbörðum
Þess vegna eru BR/DGESTONE
mest seldu dekk á íslandi
BRIDGESTONE