Morgunblaðið - 10.04.1969, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1969
— Meira en dálítið. Klukkan
var orðin fjögur, þegsir þú komst
heim. Ég heyrði til þín.
— Hvað varstu að gera með að
vera vakandi á þeim tíma?
— Satt að segja var það nú
af áhyggjum af þér.
— Og hversvegna í hamingjunn
ar bænum?
- Ég var hrædd um, þegar
nóttin leið og þú komst ekki, að
þú hefðir lent í slysi. Ég veit,
að John ekur mjög hratt.
— Það sprakk hjá okkur og
það tafði okkur.
Einhvernveginn fannst mér
hún ekki vera að segja mér satt.
Enda þótt ég hefði lengst af tal-
ið hana sannorða, þá hafði ég
einu sinni eða tvisvar grip-
ið hana í ósannindum, síðan hún
fór að vera úti með John. Ég hat-
aði sjá'lfa mig fyrir að vera að
tortryggja hana, en þó hataði ég
John enn meira, fyrir að hafa
orðið valdur að þessum breyt-
ingum, sem á henni voru orðn-
ar.
— Mér finnst hann John ætti
ekki að vera svona lengi úti með
þér, sagði ég, enda þótt mér
væri það mjög á móti skapi að
vera eins og nöldursöm móðir.
En mér datt bara í hug, hvernig
mömmu hefði liðið ef Kay hefði
verið svona lengi úti, hefði hún
verið lifandi, — og pabbi reynd-
ar líka. Enda þótt foreldrar okk
ar væru alltaf góð við okkur,
hafði uppeldið hjá þeim verið all
strangt.
— Æ, í guðs bænum hættu
þessu, Melissa sagði Kay og var
nú orðin vond. — Hausinn á mér
er alveg að klofna og ég er varla
vöknuð. Ég þoli ekki neinar á-
minningarræður. Og til hvers
ætti ég líka að vera að hlusta
á þær? Ég er enginn krakki ieng
ur. Ég er átján ára.
— Afsakaðu, Kay, það var nú
ekki ætlun mín að fara neitt að
lesa yfir þér, en þú ert farin
að brenna kertinu í báða enda,
finnst þér ekki? í fyrsta lagi trúi
ég ekki, að Stourton verði neitt
hrifinn af þessu, ef þú ferð allt
af að koma ofseint á morgnana.
eins og þú hefur gert undanfar-
ið.
— Ef hann er ekki hrifinn af
því, þá hann um það. Og hvað
sem öðru líður er ég orðin hund
leið á þessari vinnu hjá Stourt-
on. Ég var að segja honum John
í gær, að mig langaði til að
verða sýndngarstúlka. Hann seg-
is-t skuli með ánægju kosta mig
á námskeið, og svo geti ég end-
urgreitt það, þegar ég fer að
vinna mér eitthvað inn. Hann
segir, að þetta geti verið góð fjár
festing.
Ég gápti á hana.
— Er þér avara, Kay?
— Já, sannarlega.
— Já, en þú getur ekki iátið
hann John fara að kosta þig.
— Hversvegna ekki?
18
Verzlunarstjóri
Bókaverzlun óskar eftir verzlunarstjóra, karlmanni eða kven-
manni Góð málakunnátta æskileg.
Umsóknir með upplýsingum um menntun, fyrri störf og aldur
sendist Mbl. merktar: „Verzlunarstjóri—bækur — 2872".
Tilkynning til bifreiðastjóra
Þeir viðskiptamenn sem enn eiga ósótta sólaða hjólbarða frá
árinu 1968 vinsamlega vitji þeirra sem allra fyrst, annars verða
þeir seldir fyrir kostnaði.
BARÐINN H.F,
Ármúla 7 — Sími 30501.
Afþví ... afþví, þú getur
það beinlínis ekki, sagði ég mátt-
leysislega. Ég vildi, að ég gæti
komið réttum orðum að því, til
að sýna hewni fram á, að þetta
kæmi ekki til nokkurra mála. En
einmitt þegar ég hafði svo mkla
þörf á réttu orðunum, vildu þau
ekki koima. Ég vissi, að ég varð
að fara varlega. Kay var svo
erfið um þessar mundir. Og ég
þráði mömmu mína meir en ég
hafði nokkurntíma gert síðan
hún dó, með svo sorglegum at-
vikum. Til skamms tíma hafði ég
vel treyst mér til að stjórna
systkinum mínum. Sjá um þau,
ráðleggja þeim og stjórna þeim,
ef þörf gerðist. En nú ekki leng-
ur. Nú var ég að missa stjórn-
ina á þeim. Ég vissi, að ég var á
einhvern hátt að bregðast þeim.
Fyrst hafði Nick stolið frá John.
Nú var komið að Kay. Ég lof-
aði Guð fyrir, að Lucy og Mark
NATHAN & OLSEN HF.
skyldu ekki valda mér neinum
vandræðum, og mundu sennilega
aldrei gera. Að minnsta kosti
ekki Lucy. En líklega yrði
Mark erfiður, þegar hann elt-
ist.
— Ég sá ekki, hversvegna ég
ætti ekki að taka þessu tilboði
hans Johns, sagði Kay ögrandi.
— Mér finnst það fjandans fal-
Iega gert af honum. Og hann er
nógu ríkur. Hversvegna ætti ég
ekki að lofa honum að hjálpa
mér til frægðar og frama?
— Afþví, góða mín, að ung
stúlka lætur ekki karlmann
kosta sig, nema ... nema ...
— Haltu áfram, sagði Kay. —
Við skúlum hafa þetta skellt og
fellt. Þú átt við, að karlmaður
kosti ekki stúlku nema hún sofi
hjá honum. Var það ekki það,
sem þú ætlaðir að segja?
Svona bein spurning krafðist
beins svars.
nú endurtekur þetta tilboð sitt,
ætla ég að taka hann á orðinu
og þá þýðir þér ekkert að segja
neitt.
Mér líkaði ekki þessi ein
beittni í rödd hennar og heldur
ekki augnaráðið. Ég þóttist
þekkja Kay. Hún eygði þarna
von um að sleppa frá þess-
ari leiðinlegu atvinnu sinni, sem
henni fannst vera. En hún hafði
bara ekki athugað málið til hlít-
ar. Það var meira en námsskeið-
ið sem um var að ræða, því að
ef hún færi út í þetta, þyrfti
hún að búa í London og því
hefði hún að minnsta kosti ekki
efni á.
— Vertu nú skynsöm, Kay.
Hverndg geturðu tekið sýningar-
námskeið í London úr sextíu
mílna fjarlægð?
— Ég gæti verið í borginni
frá mánudegi til föstudags og
komið heim um helgar.
— Jú.
— Ég fullvissa þig um, að ég
sef ekki hjá John.
— Nei, það ætla ég að vona.
Kay leit á mig spyrjandi.
— Væri það nú svo alveg
hræðilegt, ef ég gerði það?
— Já, það mundi mér finnast.
— Jæja þú getur verið alveg
róleg — ég sef ekki hjá honum.
Ég vissi, að hún sagði þetta
satt. Og mér létti feikilega. Og
samt hafði mér verið að detta í
hug, að hugsanlegt væri nú
þetta. Ég hafði ekkert traust á
John. Siðferðisreglur hans voru
gjöró'líkar mínum, þóttist ég
viss um.
Kay hélt ófram: En ef John
— Og hvað um kostnaðinn?
— John mundi sjá um það.
Námskeiðið tekur ekki nema sex
vikur, og eftir þann tíma, gæti
ég, ef allt fer vel, farið að vinna
mér eitthvað inn. Góða vertu
ekki með þennan svip, ein.s og ég
stefni beint í glötunina, því að
ég Jullvissa þig um, að það geri
ég ekki. Ég er alveg með fullu
viti. Ég veit alveg, að John
mundi gjarna vilja sofa hjá mér.
Hann hefur sama sem sagt það,
e-n hafi hann nokkurt vit í koll-
inum má hann vita, að ég ætla
ekki að lofa hon-um það, svo að
þú þarft engar áhyggjur að hafa
bess vegna. Ég veit það, Mel-
issa, að þú ert því algjörlega
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl
Víðsýni er nauðsynleg í dag.
Nautið, 20. apríl — 20. maí
LeyfSu öðrum að láta ljós sitt skína. Reyndu eitthvað nýtt.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní
Ef þú getur setið á þér að finna að öllu í fari annarra getur þetta
orðið eóður dagur.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí
Viðskiptasamböndin verða þér auðveldari í dag.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst
Ef þú lítur til baka, geturðu e.t.v. fundið leið út úr vandræðum
þínum.
Meyjan, 23. ágúst — 22. sept.
Það er gott að vinna jafnt og þétt, og bjargar þér frá illindum.
Vogin, 23. sept. — 22. okt.
Það er heilmikið að ske, og vertu því þolinmóður.
Sporðdrekinn, 23. okt. — 21. nóv.
Settu einkamálin til hliðar, þá gengur samvinnan betur.
Bogmaðurinn, 22. nóv. — 21. des.
Gleymdu ekki skyldum þínum og Guði, þótt eitthvað bjáti á.
Steingeitin, 22. des. — 19. jan.
Einkamálin og starfið kunna að togast á einu sinni enn, vegna
skipulagsins. Gleymdu ekki tilfinningum annarra.
Vatnsberinn, 20. jan. — 18. febr.
Forðastu þá vini þína, sem setja markið of hátt, en hugsaðu um
fjölskyldu þína í staðinn.
Fiskarnir, 19. febr. — 20. marz
Ef þú athugar málið dálítið betur, skilurðu vlðskiptin betur.