Morgunblaðið - 12.07.1969, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.07.1969, Blaðsíða 4
4 MORGUJSTBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1»»9 Hvérfiseötu 105. Simi eftir lokun 31160. MAGMÚSAR SKIPHDLTI21 SIMAR21190 c eftiriokun »lmi 40381 BfLALEIGAN FALURhf car rentalservice © 22-0-22- RAUDARÁRSTÍG 31 LITLA BÍLALEIGAN Bergstaðastræti 13. Sími 14970 Eftir iokun 81748 eða 14970. bílalcigan AKBHA JJT car rental service 8-23-4? sendum LOFTUR H.F. LJÖoMYNDASTOr A ingóKsstræti 6. Pantið tíma i síma 14772. að BEZT er að auglýsa í Morgunblaðinu MYNDAMÓT hf. 1 PRENTMYN dagærð AÐALSTR/ETI 6 SlMI17152 RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA AFGREIÐSLA'SKRIFStOFA SÍMI 10*10D £ Stórt orð Hákot „Bjartur“ skrifar: „Heiðraði Velvakandi: Hart finnst mér þaö, þegar ver ið er að kenna okkur sauðsvört- um almúganum löggilta stafsetn ingu og greinarmerkjafræði, að ýmsir þeir, sem telja sig betur menntaða en okkur, skuli temja sér hvers konar sérvizku í rétt- ritun og kommusetningu, svo að nærri stappar, að hver rithöfund- ur hafi sína einkastafsetningu. Mér datt þetta í hug af ákveðnu tilefni. Hingað til lands er kom- inn útlendur maður, sem vill hafa vit fyrir okkur mörlöndum í mörg um efnum. Fer hann ekki dult með skoðanir sínar á alls kyns hlutum hér á landi og segir okk- ur til syndanna. Vera má, að hon um finnist embætti sitt skyldast stöðu farandspredikara á miðöld um. Hélt ég þó fremur, að hann væri hingað kominn til þess að pústa hánorrænni menningu inn í íslenzkt þjóðlíf, en ekki til þess að fara að sletta sér fram í inn- lend málefni og skipta sér af því, sem honum hvorki kemur við né hefur vit á. Þetta þarf þó hvorki að stafa af hroka né löngun til þess að láta á sér bera, eins og sumir segja, heldur af einskærri umhyggjusemi fyrir íslendingum. Eitt af þvi, sem hann hefur tek ið sér fyrir hendur er að breyta einfaldri og ágætri reglu íslenzk unnar um notkun upphafsstafa í heitum fyrirtækja. Norræna húsið skrifar hann ávallt Norræna Hús ið, og þótt honum hafi verið bent á villuna, lætur hann sér ekki segjast (kannski einmitt vegna þess). Með allri virðingu fyrir norrænni menningu: megum við ekki fá að ráða þessu sjálfir hér úti á eynni? En — það er stórt orð Hákot. Bjartur". Velvakanda finnst, að einstakl ingar verði að fá að hafa eitt- hvert svigrúm um stafsetningu sína, enda geta smávægileg frá- 1964 — Imperial tii sýnis og sölu við sendiráð Bandaríkjanna Tiboð óskast fyrir kl. 5 þann 21. júl. Stór vinnustofa á jarðhæð óskast í haust. — Sími 21080. Lögmannsskrifstofa mín verður lokuð vikuna 14.—19. júlí og fyrir hádegi frá þeim tíma til 1. ágúst. KNÚTUR BRUUN, HDL., Grettisgötu 8 vik eða sérvizkukenjar frá venju legri skólastafsetningu tæpast skað að tunguna mikið. Hins vegar er óþarfi að skrifa Norræna Húsið með tveimur upphafsstöfum. Bæði er það ljótt áferðar og órökvíst, og svo er ástæðulaust, að opinber- ar stofnanir hviki frá lögboðinni venju, einkum þegar hún er ein- föld og rökrétt. — Gagnrýni Bjarts á því rétt á sér, en köpuryrði hans og háð- glósur koma málinu reyndar ekki við. Bréfið er raunar gott dæmi um það, hvernig menn eiga erf- itt með að stilla sig um að lýta bréf sín og málstað með alls kon ar útúrdúrum og persónulegri á- reitni. £ Góður vagnstjóri „Ég er einn af þeim, sem ekki þarf að eltast daglega við stræt- isvagna, en það kom samt fyrir mig sl. þriðjudagskvöld, að ég þurfti að ná í vagn suður í Kópavog, en vissi ekki en þeir væru hættir að ganga. En er ég var að ná mér í leigubíl, kom vagn úr Kópavogi, til að hleypa fólki út eftir síðustu ferð. Þessi vagn bar númerið Y—462, og var víst vesturbæjarvagninn. Bílstjór inn bauð mér að sitja í, því að hann þyrfti að skila bílnum. Það er ekki á hverjum degi, sem fólk hittir jafn-kurteisa og lipra bílstjóra, eins og ég gerði í þetta skipti, og ég vildi að lokum benda forráðamönnum S.V.K á, að ef all ir bílstjórar þeirra sýndu eins mikla kurteisi og þjónustu og þessi gerði, þurfa þeir ekki að óttast kvartanir. Borgari". 0 Ekki góður vagnstjóri „Kennari“ skrifar: „Kæri Velvakandi: Oft er á það minnzt og ekki að ástæðulausu, að miklu skipti jafnan, hvernig fyrstu kynni tak ast. Er þá bæði átt við menn, staði, þjóðir, fyrirtæki og allt þar á milli. Fyrstu frumskoðun er oft erfitt að útrýma úr huganum, þvl að við fyrstu kynningu eru menn opnir og athugulir. Þá stimplast oft skoðanir inn í hugarfarið, sem illa gengur síðar að afmá, þótt nánari kynni og rólegri yfirveg- un mæli þeim á móti. Mörgum ferðamanninum gengur illa að gleyma fyrstu áhrifunum af ís- landi á leiðinni frá Keflavík til Reykjavíkur, þótt hann ferðaðist síðar um blómlegar byggðir Borg arfjarðar, Suðurlands og Skaga- fjarðar. Ég tók á móti erlendum kunn- ingjum mínum hér í Reykjavík á dögunum. Voru þeir að koma frá Keflavíkurflugvelli. Höfðu þeir orð á því, að íslenzkir vagn- stjórar væru víst stórhættulegir vegna sofandaháttar og kæruleys is. Myndu þeir á sinn hátt vera jafnhættulegir þeim ítölsku, sem þeysast æpandi og syngjandi á full um hraða upp og niður snarbratta fjallvegi. Mér þótti þetta ein- kennilegt, en við eftirgrennslan kom í ljós, að vagnstjórinn, sem hafði ekið þeim sunnan að, hafði verið hálfdottandi alla leiðina, sí geyspandi og stynjandi, en þegar hann þurfti að stanza, munaði engu, að hann ylti út af. Menn þessir eru trúverðugir, og rengi ég þá ekki, enda hitti ég síðar fleira fólk úr sama hópi, og hafði það sömu sögu að segja. Syfjað- ur bílstjóri er kannske smáatriði, a.m.k. meðan hann veldur ekki slysi, en er ekki óþarfi að láta þetta verða fyrstu áhrifin, sem útlent fólk verður fyrir hér? Kennari“. Þetta var nú löng saga um lít- ið efni, en satt er það, að óþægi- legt er að aka með grútsyfjuðum bílstjóra. Hvernig væri að fá sér I nefið? VerzlunarhúsnœÖi Verzlunarhúsnæði óskast fyrir barnafataverzlun í Miðborginni, við Laugaveg eða í fjölmennu úrhverfi. Hlutdeild í annarri verzlun kæmi til greina. Tilboð merkt: ..Verzlunarhúsnaeði — 133' sendist afgr. Mbl. Lœrð fóstra óskast strax að sumardvalarheimili. Umsóknir merktar: „Fóstra" sendist í pósthólf 872. Fromkvæmdastjóri óskast Starf framkvæmdastjóra Dráttarbrautarinnar h f. í Neskaup- stað er laust til umsóknar. Umsóknir, þar sem gerð er grein fyrir menntun og fyrri störf- um, sendist formanni félagsins, Bjarna Þórðarsyni, bæjarstjóra, fyrir 1. ágúst 1969. Stjórn Dráttarbrautarinnar h.f. Neskaupstað. I Kleppsspitalanum er staða deildarhjúkrunarkonu laus til umsóknar frá 1. ágúst 1969 Nánari upplýsingar um starfið gefur forstöðukona spítalans, sími 38160. Umsóknir með upplýsingum um menntun, fyrri störf og aldur sendist stjórnarnefnd ríkisspítalanna, Klapparstíg 26, fyrir 25. júlí næstkomandi. Reykjavík 10/ 7 1969. SkrKstofa ríkisspitalanna. Vandað einbýlishiís á Akranesi til sölu Húseignin Heiðarbraut 45, Akranesi er vegna brottflutnings eigenda, til sölu nú þegar. Húsið er 7 íbúðarherb., stendur á fögrum stað með fallegum vel hirtum garði. Verð sanngjarnt og aðgengilegir skilmálar. Semja ber við Þórhall Sæmundsson hrl., Akranesi, sími 1926.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.