Morgunblaðið - 15.07.1969, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ H9Ö»
Úitgleíandi H.f. Árvafcur, Heykjaváfc.
Fxamfcvæmdaistjóri Haraldur Sveinsaon.
•Ritstjórai' Sigurður Bjamason fr» Vigui*.
Matthias Johannessten.
># Eyjólfur Konráð Jónsson.
Bitstj ómarfulltrúi Þorbjöm Guðjnundssoií.
Fréttasitjóri Björn Jóhannssora.
Auglýsmga'stjóxi Árni Garðar Kristinson.
Eitstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Auglýsingaa? Aðalstræti 0. Sínai 22-4-80.
Asfcriftargjald lcr. 150.00 á mánuði iimaníiands.
í lausasöiu ikr. 10.00 eintakið.
ÓGEÐ
Fnn hafa ræzt illspár þær,
sem hafðar voru uppi við
valdatöku Husaks í Tékkó-
slóvakíu. Tékkneskir kvisling
ar hafa í nafni flokksdeildar-
innar í Bmo, borið fram auð-
mjúkar þakkir sínar til rússn-
eska hemámsliðsins, fyrir að
ráðast inn í landið. Þessar
ógeðfelldu þakkir kvisling-
anna í næst stærstu borg lands
ins sýna, að alla ber þróun-
ina að sama brunni: Tékkó-
slóvakía er að fá aftur eðli-
legt svipmót hins sósíalska
„bræðralags“. Rökrétt fram-
hald atburðarins hlýtur að
vera svipaður þakkarboðskap
ur frá sjálfri flokksstjórninni.
Það er íhugunarefni fyrir
kommúnista og taglhnýtinga
þeirra á íslandi að draga
ályktanir af innrásinni og her
námi Tékkóslóvakíu. Hvernig
væri nú umhorfs í Evrópu, ef
þeim, á örlagaárunum eftir
síðari heimsstyrjöldina,
hefði tekizt að koma í veg
fyrir að Vesturlönd mynduðu
varnarbandalag.
Þeir grunnhyggnu menn,
sem telja sig vinna að því, er
kallað er íslenzkur sósíalismi,
skyldu einnig líta í sinn
barm. Hverju er það að
þakka, að ritskoðarar á borð
við þá, sem nú sitja á tékkn-
eskum ritstjómarskrifstofum,
vaka ekki yfir þeirra penna?
Gætu þessir menn talið sig
óhulta um að byggja upp sinn
sósíalisma í varnarlausri
Evrópu? Ætli þeim hefði ekki
þótt nokkuð þröngt fyrir sín-
um dyrum eftir innrásina í
fyrrasumar.
Það er kaldhæðni örlag-
anna, að hvergi skuli þeim
mönnum, sem kenna sig við
sósíalisma tryggð mannrétt-
indi og tjáningarfrelsi nema
á Vesturlöndum. En það
skyldu þeir hafa hugfast, að
vamarbandalagið NATO er
eina tryggingin fyrir því, að
þeir megi halda þessum rétt-
indum fyrir jábræðrunum í
austri. NATO er þeirra vörn
og skjól, til að láta skoðanir
sínar í ljósi, óáreittir fyrir
lögregluofsóknum og ritskoð-
urum.
Það er einnig ómaksins vert
fyrir íslenzka sósíalista að
hyggja að því, í hvaða átt
tékkneska umbótahreyfingin
stefndi. Hver var fyrirmynd-
in að hugsjónum hennar um
mannúðlegan sósíalisma?
Ekki voru það ríkin, sem ís-
lenzkir kommúnistar hafa
legið fyrir flötum beinum
dýrkunar og aðdáunar í hálfa
öld. Þvert á móti, glæstustu
hugsjónir hennar áttu rætur
í lýðræði Vesturlanda. Því
lýðræði, sem kommúnistar
naga og rægja ár og síð.
Ástandið, sem Sovétríkin
kölluðu óeðlilegt fyrir innrás
ina í Tékkóslóvakíu, var vita-
skuld sá frjókvistur vestræns
lýðræðis, er náð hafði að
skjóta aftur rótum í landinu.
Hann varð að rífa upþ tafar-
laust og að því vinna þeir nú
í sameiningu, innrásarmenn-
irnir og tékknesku föðurlands
svikararnir. Takmark þeirra
er að koma aftur á eðlilegu
ástandi í hinum sósíaliska
heimi. Frelsi og mannrétt-
indi eru jafn óeðlileg í þeim
heimi og þau teljast eðlileg
í hinum vestræna.
Héma megin við járntjald-
ið halda kommúnistar hins
vegar áfram baráttu sinní
gegn lýðræðinu og fyrir vam-
arlausum Vesturlöndum. Bar-
átta þeirra fyrir sósíalisma er
barátta fyrir sovézkum heims
yfirráðum. Eða hvar ætla þeir
að biðja sínum sósíalisma
verndar, þegar varnir Vest-
urlanda yrðu úr sögunni?
ARFTAKI
HITLERS
A ð undanförnu hafa nokkur
Arabaríki endurgoldið
velvilja Walter Ulbrichts með
því að viðurkenna leppstjórn
hans í A-Þýzkalandi. Eins
og kunnugt er, féll Gyðinga-
hatur þýzku nazistanna óvíða
í jafn góðan jarðveg og með-
al Araba. Ef einhver hefur
haldið, að sá þráður, sem upp
var tekinn með þýzku naz-
istunum og Aröbum, hafi
slitnað með hmni Þriðja ríkis
ins, þá leiðréttist það hér
með.
í boðskap, sem Ulbricht
sendi Nasser um sl. helgi,
segir, að sameiginlega muni
ríkin berjast gegn síonisma í
hvaða mynd, er hann birtist.
Það var þessi barátta, sem
kostaði 6 milljón Gyðinga líf-
ið í þýzku útrýmingarbúðun-
um. Því stríði lofar Ulbricht
nú Nasser, að hann skuli
halda áfram. Sér til fullting-
is hefur einvaldurinn, með
hjálp rússneskra yfirboðara,
komið upp nýjum stormsveit-
um, sem árlega stíga gæsa-
gang hinum nýja foringja til
dýrðar.
Um þessar mundir heldur
arftaki Hitlers friðarhátíð við
Eystrasalt, og létu þeir sig
ekki vanta til hátíðarhald-
anna, Magnús Kjartansson og
Þórarinn Þórarinsson. Er
þess að vænta að friðarhöfð-
inginn Ulbricht uppfræði ís-
lenzku gestina um hina nýju
krossferð gegn síonismanum
og þátt sinn í innrásinni í
Tékkóslóvakíu í fyrrasumar.
Þessar þrjár myndir eru frá
útför Tom Mboya, efnahags-
málaráðherra Kenya, á Rus-
ingaeyju í Viktoríuvatni, en
þar var hann fæddur. — Á
einni myndinni sést hvar
menn hafa raðað sér við
kistuna til þess að lyfta
henni að gröfinni, þar sem
hendur á lofti bíða eftir að
taka á móti henni. — Á ann-
arri mynd sér í hönd frú
Pamel Mboya, ekkju hins
myrta ráðherra, með .mold,
sem hún stráði yfir kistuna.
— Og á þriðju myndinni sést
Oginga Odinga, foringi stjóm
arandstöðuflokksins K.P.U.,
við líkbörur Mboya.
VŒJ l ITfl iN 0 R II IEIMI