Morgunblaðið - 29.07.1969, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1969
Margháttaður fróðleikur
úr árbók SÞ
EFNAHAGSSTARFSEMI í
veröldinni náði nýju hámar(ki
áratuginn 1958-67, en vaxtar
hraðinn var ákaflega misjafn
í hinum ýmsu heimshlutum,
segir í nýútkominni Hagfræði
árbók Sameinuðu þjóðanna,
|,,Unáted Nations Statistical
Yearbook, 1969“.
217 töflur bókarinnar eru
flokkaðar undir 25 höfuðefni,
eins og t.d. samanlögð fram
leiðsla, iðnaðarframleiðsla,
verzlun, mannfjöldi, vinnu-
afl, orkuframleiðsla, flutning
ar, samgöngur, fjármagnstil-
færsla, menntun og húsnæðis
mál.
Það kemur meðal annars
fram í árbókinni, að brúttó-
þjóðarframleiðslan í heimin-
um öllum jókst um 62 prósent
á fyrrgreindum tíu árum. Þar
sem fólksfjölgunin nam 18
próisentum á sama árabili,
merkir það, að hagvöxturinn
á hvern jarðarbúa nam 36 pró
sentum.
Samanlagður útflutningur
heimsins náði nýju hámarki
árið 1968 og nam 238.000 mill
jónum dollara (20.944.000.
i 000.000,00 ísl. kr). Aukningin
nam 11 prósentum miðað við
árið 1967 og var þannig mesta
aukning sem orðið hefur á
undanförnum 15 árum. Iðnað
arlönd með markaðshagkerfi
júku hlut sinn í samanlagðri
heimsverzluninni úr 67 pró—
sentum árið 1960 í 70 prósent
árið 1967, á sama tíma og
hlutur vanþróuðu landanna
minnikaði úr 21 prósenti niður
í 18 prósent, en lönd með mið
stjórnarhagkerfi héldu sín-
um hlut óbreyttum í 12 pró-
) sentum.
1 Hér enu nokkrar fleiri stað
reyndir, tíndar úr hinum
mikla talnasæg árbókarinn-
ar:,
Á miðju ári 1967 var tala
jarðarbúa 3.420 milljónir. Er
það 516 milljónum meira en
á miðju ári 1958. Þrír fjórðu
hlutar jarðarbúa eiga heima í
vanþróuðu löndunum.
Á árabilinu 1958-67 jókst
matvælaframleiðslan á hvern
íbúa í Afríku einungis um 1
prósent og í Suð-Austur-Asíu
um 3,1 prósent, en í Norður-
Ameríku nam aukningin 6.1
prósenti, í Sovétríkjunum og
Austur-Evrópu 15.5 prósent-
um og í Vestur-Evrópu 18.9
prósentum.
Á miðju ári 1967 skiptust
jarðarbúar þannig niður á
svæði (nýrri tölur eru ekki
fyrir hendi um alla heims-
byggðina):
Árleg
Fólksf jöldi í aukning
milljónum (1960-67)
Heimurinn
allur 3,420 1,9 %
Afríka 328 2,4 -
N-Ameríka 220 1,4 —
R.-Ameríka 259 2,9 —
A-Asía 877 1,4 —
S-Asía 1,030 2,5 -
Evrópa 452 0.9 —
Kyrrah.s. 18.1 2,0 —
Sovétr. 236 1,4 —
Tvö fjölanennustu ríki
heims, Kínvergka alþýðulýð-
veldið og Indland, voru talin
hafa 720 milljónir og 511
milljónir íbúa.
Sé litið á þéttbýlið, er Evr
ópa enn efst á blaði með 92
íbúa á hvern ferkílómetra að
meðaltali. Samsvarandi tölur
fyrir Asíu er 69. Þéttbýlasta
einstakt svæði er Monaco,
sem er einungis hálfur annar
ferkílómetri. Þar er íbúatal-
an „á hvern ferkílómetra"
16.107. Næst kemur Vestur-
Berlín með 4.518 íbúa á fer-
kílómetra, síðan Gíbraltar
með 4.161 og Hong Kong með
3.708 íbúa á ferkílómetra.
Meðal þeirra landa sem mest
hafa svigrúmið eru ísland og
Ástralía efst á blaði, hvort
um sig með 2 íbúa á ferkíló-
metra. Samsvarandi tölur fyr
ir Danmörku 112, Noreg 12,
Finnlandi 14 og Svíþjóð 17.
Notkun stáls á hvern íbúa
nam á árinu 1967 634 kg. í
Bandaríkj'unum. Næst kom
Svíþjóð með 589 kg. og þar
næst Kanada með 446 kg. Til
samanburðar nam stálnotkun
á hvern íbúa 327 kg. í Dan-
mörku, 270 kg. í Finnlandi,
373 k)g. í Noregi og 186 kg. á
íslandi. Frá þessum tölum er
stórt stökk til stálnotkunar
vanþróuðu landanna. í Ghana
og Zambíu nemur hún 6 kg.
á íbúa í hvoru landi, í Indó-
nesíu og Malawi 2 kg. á íbúa.
Samanlögð raforkufram-
leiðsla heimsins meir en t»ö-
faldaðisf á áratugnum 1958-
67 og var áætluð 3.844.000
milljónir kílówattstunda ár-
ið 1967. Af þessu magni voru
40 prósent framleidd í Norð
ur-Ameríku, 29 prósent í Evr
ópu, 15 prósent í Sovéríikjun
um, 10 prósent í Asíu og hin
6 prósentin í Rómönsiku Am-
eríku, Afriku og á Kyrrahafs
svæðiruu. Reiknaðar í milljón
um kílówattstunda eru tölurn
ar fyrir einstök lönd sem hér
segir:
Bandaríkin 1.316.914, Sov-
étríkin 587.699, Japan 244.800,
Bretland 209.368. Til saman-
burðar voru samsvarandi töfl
ur fyrir Norðurlönd þessar:
Danimörk 9.480, Finnland
16.760, fsland 700, Noregur
52,814 og Svíþjóð 50.628.
I fiskveiðayfirliti árbókar-
innar eru eftirtalin lönd
nefnd með yfir milljón smá-
lesta fiskafla árið 1967: Perú
10.110.200, Japan 7.814.000,
Noregur 3,214.300, Bandarík-
in 2.384.100, Spánn 1.430.600,
Indland 1,400.400, Kanada
1.289.800, Danmörk 1.070.400,
Chile 1.052.900 og Bretland
1.026.100. Figkafli annarra
Norðurlanda árið 1967 var
hér segir: Finnland 73.700
smálestir, Færeyjar 173.300,
ísland 896.300 og Svíþjóð
338.300 smálestir.
Það hitaeiningarmagn, sem
jarðarbúar áttu kost á upp-
skeruárið 1966-67 var ákaf-
lega misjafnt, allt frá 3.470 á
íbúa daglega í Nýja Sjálandi
og 3.440 í írlandi niður í 1.800
eða minna á hvern íbúa í
nokkrum vanþróuðum lönd-
um í Asíu, Afríku og Róm-
önsku Ameríku. Samsvarandi
daglegt hitaeiningamagn á
Norðurlöndum var sem hér
segir: Danmörk 3.300, Finn-
land 2.950, Noregur 2,960 og
Svíþjóð 2,900.
Árið 1967 voru akráðir 160
milljón fólksbílar í heimin-
um. Helmingur þeirra var í
Bandaríkjunum, en 34 pró-
sent í Evrópu. Þegar litið er
á veröldina í heild nernur
aukningin frá 1958 86 pró-
sentum. Tölurnar frá Norður
löndum voru sem hér segir:
Danmörk 887.000, Finnland
551.000, ísland 35.500, Noreg- \
ur 569.000 og Svíþjóð
1.967.000.
Samanlagður kaupskipa-
floti heimsins stækkaði um 64
prósent á árunum 1958 til
1967. Þá var hann kominn
upp í samtals 194 milljón
akráðar brúttóamálestir. Af
þeim voru 25.7 milljónir
akráðar í Líberíu, 21.9 milljón
ir í Bretlandi, en Noregur og
Bandaríkin voru nálega jöfn
með 19.668.000 smálestir
Skráðar í Bandaríkjunum og
19.667.000 smálestir í Noregi.
Á öðrum Norðurlöndum voru
tölurnar sem hér segir: Dan-
mörk 3.200.00, Finnland
1.100.000, ísland 133.000 og
Svíþjóð 4.865.000 smál.
Árið 1967 voru 222.400.000
símar i notkun um heim all-
an. Af þessum talsímium voru
104.000.000 í Bandarílkjunum,
18.200.000 í Japan, 12.000.000
í Bretlandi og 10.300.000 í
Vestur-Þýzkalandi. Á Norður
löndum var talsímafjöldinn
sem hér segir: Danmörk
1.469.185, Finnland 949.976,
fsland 62.698, Noregur 987,264
og Svíþjóð 3.757.495.
Á árinu 1967 voru 78 mill-
jón sjónvarpstæki í notkun í
Bandaríkjunum, 22.7 milljón
ir í Sovétrikjunum, 14.4 mill-
jónir í Bretlandi, 13.8 milljón
ir í Vestur-Þýzkalandi og 8,3
milljónir í Frakklandi. Töl-
urnar fyrir Norðurlönd voru
sem hér sfegir: Danmörk
1.182.000, Finnland 899,000,
Noregur 662.000 og Svíþjóð
2.268.000.
Mesta útbreiðsla dagblaða
árið 1967 var í Svíþjóð, þar
sem út komu 514 eintök á
hverja 1000 íbúa. Næst kom
Bretland með 488 eintök, síð
an Luxemborg með 477, Jap-
an með 465 og ísland með
435. Tölurnar fyrir önnur
Norðurlönd voru: Danmörk
354 og Noregur 382.
Hagfræðiárbók Sameinuðu
þjóðanna er 796 blaðsíður að
stærð og gefin út bæði á
ensiku og frönsku.
RACNAR JÓNSSON
Lögfræðistörf
og eignaumsýsla
Hverfisgata 14. - Sími 17752.
Útgerðarmenn
Vegna verðlækkunar á þorskanetum, er nýútsendur verðlisti
úr gildi fallinn.
Vinsamlegast hafið samband við okkur um nýtt verð.
MARCO HF„ Aðalstræti 6,
símar 15953 og 13480.
Athugasemd
í MORGUNBLAÐINU laugard.
19. júlí er á baksíðu lítil frétt,
sem heitir. „Verðjöfnunargjald
á rafmagni tvöfaldað“. Er þar
sagt frá bráðabirgðalögum, sem
nýlega voru sett um þetta efni.
Og svo kemur akýringin: „Vetrð
jöfnunargjald þetta rennur í
Orkusjóð, sem hjálpa á til með
rekstur rafveitna í dreifbýli.“.
Þesisi fáu orð eru líkleg til að
skapa rangar hugmyndir um or-
sök þessa verðjöfnunargjalds.
Flestir vita að tvær gengislækk
anir eru nýafstaðnar, sem höfðu
í för með sér hæ'kkun skulda
hjá Rafmagnsveitum ríkisins
um ca. 400 millj. króna, vegna
þess hve mikið af þeim lánum
voru erlend. Hækkun verðjöfn-
unargjaldsins svarar því ekki
til þess að mæta þeim auknu
greiðslum í ísl. krónum, sem
leiða af gengislækkuninni. Ég
spurðist fyrir um það í vetur hjá
Samb. ísl. rafveitna hvort eitt-
hvað hliðstætt hefði gerzt hjá
öðrum rafveitum, eins og t.d.
Rafveitu Reykjavíkur, Laxár-
virkjun o.fl. (Landsvirkjun und
anskilin), en fékk þær upplýs-
ingar að erlendar skuldir ann-
arra raforkufyrirtækja væru til-
tölulega litlar og gegnislæfckun-
in hefði þess vegna ekki valdið
þeim verulegum rekstrarútgjöld
um, hliðstæðum skuldahæikkun-
arafleiðingunum hjá RARIK.
Það má hver meta sem vill
að RARIK Skuldaði mikið í er-
lendum lánum. Ég dreg í efa
réttmæti þess að það fyrirtæki
færi mikið verr út úr gengis-
lækkun, en t.d. önnur fyrirtæki í
raforkuiðnaði. En úr því að það
hefir gert það, er a.m.k. nauð-
synlegt að alimenningur viti hin
ar réttu orsakir fyrr tvöföldun
verðjöfnunargjaldsins. Ég deili
manna harðast á Rafmagnsveit-
ur ríkisins, en ekki fyrir það,
sem mér finnst þær raunveru-
lega ekki eiga sök á.
Ég tel höfuðsynd Morgun-
blaðsfrásagnarinnar þá að gefið
er í skyn að þéttbýlisifólkið sé
með þessu að borga fyrir strjál-
býlið. Það má finna þeim orð-
um stað hjá þeim, sem hafa
þá réttlætiskennd að strjálbýlis-
fólk eigi að gjalda gengislæfck-
ana í raforkuverði, en þéttbýlið
þá að vissu leyti að njóta.
En hve lengi á að vera hægt
að vefja fyrir sér þessi rafmagns
mál áður en það rennur upp
fyrir sem flestum að skapa á
sjálfstæð raforkufyrirtæki í
landshlutunum, — t.d. kjördæm-
unum og skipta Rafmagnsveit-
um ríkisins upp. Þá yrði rí'kið
að taka á sig baggann af mis-
tökum þeim sem orðið hafa i
framvindu þessarra mála.
Mín þolinmæði er raunveru-
lega löngu þrotin að búa undir
þeirri útbreiddu skoðun í þétt-
býlinu að við strjálbýlismenn-
irnir séum þiggendur þeirra, sem
þéttast búa — í raforkuverði og
víst á mörgum öðrum sviðum.
Nei. Tökum raforkumálin i
eigin hendur, — Austurlands-
virkjun þarf að verða veruleiki,
— Norðvesturlandsvirkjun, >—
já, hver af annarri.
Jónas Pétursson.
Ungur norskur
rafeinda - tæknifræðingur óskar
eftir viðunandi vinnu. Einnig með
þekkingu í- venjulegri raffræði. —
Reynsla í hvoru tveggja.
ARILD HASSEL,
Korvaldveien, N-3050
Mjöndalen, Norway.
ARATUGA REYNSLA SANNAR Afi ÚTI-SPRED
ER serlega endingargóð utanhússmXlning
Amúr
FEGRIÐ VERNDIÐ
VEL HIRT EIGN ER
VERÐMÆTARI