Morgunblaðið - 29.07.1969, Síða 20

Morgunblaðið - 29.07.1969, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1969 un, og að Fortunu hafði verið saknað úr kví sinni um svipað leyti. En bæði skipin voru kom- in í hðfnina aftur síðdegis. Þeir höfðu ekki trúað Khayar fyrir fyr irætlunum sínum, endá'hefði það sennilega komið honum í vand- ræði. Að minnsta kosti gerði myrkr ið Tucker kleift að leggja af stað miklu nær Ustica, og hann ákvað að vera ekki með kúta og köfunarbúnað, vegna þess, að ef hann skildi hann eftir á sama stað og áður mundi verða tekið eftir honum þegar skipið legði frá, og heldur ekki gagn í hon- um nema í birtu. Hann stóð nú fremst á bakkanum og Pont við hliðina á honum. Hann bar við belti sér þykka peysu í plast- poka, ef svo færi að honum yrði kalt á þessari löngu bið, en á bakinu bar hann segulband í vatnsheldum umbúðum. Annars var hann í sundbuxum, en engu öðru. Það var þýðingarlaust að draga þetta meir á langinn. Mennirnir tókust í hendur. Þeir ætluðu aldrei að geta sleppt hvor annars hendi, því að þetta gat vel orðið í síðasta sinn, sem þeir kveddust. Tucker renndi sér niður í hlýjan sjóinn. Hann fór sér að engu óðslega — ekk- ert lá á og um að gera að láta Hlæið bara! ekki heyra til sín. Hann synti hægt að kvínni og fann nú fyrir alvöru til einmanaleikans, sem greip hann. Hann sá ekki nein kenmimerki fyrir myrkrinu sem lagðist allt kring um hann, líkast þoku og villti fyrir hon- um, hvað vegalengdir snerti. En hann vissi vel, hvað hann var að gera og vanmat ekki áhætt- una. í þetta sinn var Capelli og óaldarflokkur hans um borð í skipinu. Vonandi voru þeir allir sofandi. Tucker einbeitti hugan- um að Denise og það veitti hon um nokkra fró, en nú var hann íarinn að verða hræddur um hana Væri hún ekki þegar í hættu, var hættan að minnsta kosti te kin að nálgast hana og sjálfur gat hann ekki meira gert en raun var á. Hann herti sundtök- ifi. Það var merkilegt, að tvær manneskjur, sem hann var nýbú inn að kynnast gætu haft svona mikil áhrif á líf hans. Þau voru bæði góðar manneskjur og hann hafði athugað sjálfan sig vand- lega og ekki orðið hrifinn af. Einmitt núna þarfnaðist hann þeirra sárlega, en líklega höfðu þau enga hugmynd um það. En svo fór hann að hugsa um á- höldin sín, sem hann hafði 3vo lengi verið með allan hugann við, en nú lágu á mararbotni, einmitt í sjónum, sem hann var nú að synda í. Hann herti upp hugann. Ustica lá enn á sama stað og þegar Tucker nálgaðist hana, fór hann sér að öllu var- lega. Myrkrið hlífði honum, en það krafðist líka fullkominnar þagnar. Minnsta hreyfing á sjón- um mundi ná eyrum varðmann- ins. Kaðallinn hékk þarna ennþá, enda hafði skipið ekki hreyfzt síðan hann var þar í fyrra skipt- ið. Þarna voru engin aukahljóð til þess að leyna honum, er hauin lyfti sér upp úr sjónum og lét leka varlega af sér vatnið. Nú var heldur engin sól til að hrað- þurrka hann. Hann yrði að bíða. Þegar hann gægðist upp á þil- GÓÐUR DAGUR BYRJAR MEÐ ÁRBÍT Á ASKI NestiðfáiSþérh'k/t hjá okfur! Opnum kl.6 árdegis! ASKUR suðurlandsbraut 1 ^ sími 88550 g en þetta eru þægileg- ustu sokkabuxur sem þér getið fengið. með styrktum hæl og tá, ein stærð sem pass- ar öllum, reynið nýj- ungar og sannfærizt. VOC UE-búðirnar Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl. Þér verður þetta góður dagur, ef l>ú hefur nóg fyrir stafni. Nautið, 20. apríl — 20. maí. Einkamál þín stangast á við atvinnu þína. Gerðu það nauðsynleg- asta í vinnunni, en farðu svo heim og semdu frið. Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní. I»ú hefur fengið ófullkomnar upplýsingar, og reyndu því að vera dálítið hagsýnn. Bíddu með að taka ákvarðanir, en sinntu því nauð- syniegasta. Krabbinn, 21. júní — 22. júlí Nú verður einhver breyting á högum þinum. Það er einhver endurskipulagning í vændum. Hugsaðu og gefðu hugmyndafluginu lausan tauminn. Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst. Láttu búið vera búið. Losaðu þig við það, sem þú ekki þarft að nota. Meyjan, 23. ágúst — 22. september. Nú kemur að góðum notum að hafa verið hirðu- og reglusamur. Haltu ókunnugum í fjarlægð, og forðastu alla smithættu. Slepptu skyldunni, svona einu sinni, og láttu einhvern annan um hana. Vogin, 23. sept-ember — 22. október. Ef þú hyggur á ástabrall eða gróðafyrirtæki, kemur þér það f koll. Reyndu að vcra hreinn og beinn, án þess að lcsa alltaf á milli linanna. Sporðdrekinn, 23. október. — 21. nóvember. Ljúktu við máfefnin, sem þú hefur fengizt við. Láttu eigur þín- ar í púkk, og haltu síðan ótrauður áfram, eins og þú hefur ailtaf viij- að gera. Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember. Engin ástæða til breytinga. Steingeitin, 22. desember — 19. janúar. Reyndu að fá ráðleggingar sérfróðra manna, og hugsaðu sfðan um þær áður en þú hefst eitthvað að f Hármáium. Áform þín verða sett á hakann. Borðaðu létt og hreyfðu þig mikið. Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar. Skrifaðu ekki undir neitt, sem má bíða bctri tíma. Þú hefur hvort sem er allt of mikið að starfa til að sinna einkamálum. Þú lend ir f erjum eða nágrannakrit, en kipptu þér ekki upp við það. Fiskamir, 19. febrúar — 20. marz. í stað þess að deila við yfirmenn þina, skaltu gæta þess, að eigur þínar séu nægilega tryggðar. Láttu þér f iéttu rúmi liggja, þótt ætt- ingjar og vinir deili á þig. Það verður nægur tíma til að leiðrétta svo leiðis misskilning, er fram 1 sækir. farið, gat hann' rétt komið auga á varðmanninn og síðan eld í vindlingi. Nú komst hann heldur enga styttri leið, hann varð að fara sömu erfiðu leiðina og áður. Þegar upp á þilfarið kom, hall- aðist hann upp að riðinu og strauk af sér vætuna með hönd- unum. Hann velti því fyrir sér, hve lengi hann yrði að þorna, því að skildi hann eftir vatns- polla, gat það komið upp um hann. Hann píndi sig til þess að standa þarna í nokkrar mínútur og reyndi að þerra af umbúðun- um á vatnsheldu bögglunum, en þó einkum af iljum sér. Þegar hann þóttist viss um, að hann skildi ekki eftir nein fótspor, píndi hann sig samt til að bíða stundarkorn enn, til þess að vera alveg viss. Honum leið ein- kennilega á þessu þögla skipi, er hann vissi, að hinum megin við yfirbygginguna var harðhentur varðmaður, sem var einmitt að bíða eftir einhverjum hans líkum. Fyrri rannsóknaferðin hans kom nú að góðu haldi, er hann gekk áleiðis að stiganum, sem hann háfði áður notað. Hann ‘ 44 ‘ opnaði hurðina ofur varlega og hélt í hana meðan hún var að lokast. Framhaldið var miklu auðveldara en honum hafði dott- ið í hug — þarna voru allir sof- andi og jafnvel suðið í skipinu sjálfu yfirgnæfði öll hljóð, sem hann kynni sjálfur að gefa frá sér. Hann gekk beint eftir litla ganginum, sem lá að stjórnar- herbergi Capellis. Bæði ytri og innri hurðin voru ólæstar og enn renndi Tucker sér inn í stóru káetuna. Þegar inn kom, stóð hann stundakorn og sneri baki í hurð- ina, meðan hann var að venjast myrkrinu. Smám saman sá hann móta fyrir stólbökunum og borð- inu, og nú rakti hann sig varlega áfram. Þegar hann kom að veggnum, lyfti hann lokinu á setkistunni og gægðist niður í hana. Þar reyndist vera nægi- legt rúm. Hann settist niður, fór í peysuna sína, og tók síðan að ganga frá segulbandinu, sem var með ofurlitlum vasahljóðnema. Þegar hann hafði fært bjarg- beltin til, fór þarna sæmilega um hann, þegar hann hafði komið sér fyrir í kistunni. Loftræstingin var aðalvanda- málið, því að loft yrði þarna af skornum skammti, ef kistan væri lokuð. En hann hafði haft með sér mjóa spýtu, og kom henni nú fyrir undir lokinu. Þarna var ekki nema lítil rifa, en nóg til þess að hleypa lofti inn. Með því að leggja augað að rifunni, hafði hann furðanlega gott útsýni yf- ir káetuna. Þá klifraði hann upp aftur og leit á kistuna, til þess að sjá, hvernig hún liti út utan frá. Það mátti sjá missmíði á henni, ef vel og rækilega væri að gáð, en annars ekki. Alls voru þarna fimm sætislok og hann valdi það, sem var í miðjunni og brúnirnar á því komu eitthvað ofurlítið upp fyrir hin. Hann vissi, að þetta var ekki nema sáralítið, en mundu mennirnir taka eftir því? Hann fór niður í kistuna aftur og lokaði sætinu. Síðan kom hann hljóðnemanum þannig fyrir að hann rétt komst í rifuna. Hann horfði á sjálflýsandi úrið sitt. Klukkan var næstum fjög- ur. Það gat ekki verið langt til birtingar, en hann gerði sér ljósa þessa hræðilegu bið, sem fram- undan var, og hættuna á að fá sinadrátt í þessu þrönga rúmi. Þá heyrði Tucker mikla hrotu og vaknaði og hann varð dauð- hræddur vegna hinnar slæmu að stöðu sinnar. Hann hafði sofnað og það gæti kostað hann lífið. Það var engin afsökun, að harnn Knútur Bruun hdl Lögmannsskrifstofa Grettisgötu 8 II. h. Sími 24940. var búiÁn að missa svefn undan farið, þegar svona mikið var í húfi. Skútan var að hreyfast. Hann hreyfði sig og rak þá höf- uðið í lokið. Hann var þegar far inn að líða við þessi þrengsli. Hann gægðist gegnum rifuna og lofaði guð fyrir að káetan skyldi enn vera manntóm. En það var ofurlítil birta, og borðið sást næstum greinilega og allt í einu datt honum í hug, að úr því að guð hefði leyft honum að kom- ast svona langt, mundi hann vernda hann það sem eftir væri þessa leiðangurs. Þessi hugdetta kom honum algjörlega á óvart, því að árum saman hafði hann aldrei hugsað um guð, en samt fannst honum það nú ekkert undarlegt, og hann vissi sjálfur, að hann var dauðhræddur. Dyrnar opnuðust meðan hann var í þessum hugleiðingum, nak- inn og einmana. Hann næstum tók ekki eftir því strax, vegna þess, hve þetta var eðlilegt at- vik. En svo snöggkólnaði hann og fékk ákafan hjartslátt, og munnurinn á honum varð þurr um leið. Nú gat hann séð efri hlutann af manninum, niður að mitti og síðan niður að hnjám. Hann var í grófri sjómanns- peysu og víðum, blíium nankins- buxum. Þessir þrír fjórðu hlutar af manninium færðust hægt yfir káetugólfið, rétt eins og hann væri að leita þar. Svo lagaði hann til stólana og atlhugaði borð plötuna. Síðan fór hann eitthvað að þreifa undir borðið og höf- uðið kom í Ijós. Þetta var Lazio. Tucker gerði sér allt í einu ljóst, að nú var úti um hann. Þeir Pont hefðu báðir átt að vita, að menn eins og Capelli lögðu ekki neitt í hættu — ekki einu sinni, þegar þeirra eigin menn voru annars vegar. Ekki einu sinni úti á sjó, á eigin skipi. En þannig tókst svona manntegund að sleppa lifandi. Það kæmist óumflýjanlega upp um hann. Tucker var gripinn skelfingu, en tókst samt að hafa hemil á henni. Fingurnir á hon- um hreyfðust eins og af sjálfs- dáðum og losuðu iímbandið, en síðan faldi hann bæði hljóðnem- ann og segulbandið undir sér. Svo ringlaður sem hann var, þá var hann samt hissa á því, hve öruggir fingur hans voru. Nú gægðist hann gegnum rif- una og sá, að Lazio gekk út í snyrtiherbergið, en skildi dyrn- ar eftir opnar. Með ótrúlegu snarræði lyfti Tucker lokinu og kippti burt spýtunni í snatri. Lokið lagðist niður og nú var hann y í loftlausu niðamyrkri. Hann lá og beið og vonaði, að þetta tæki fljótt af. Hann heyrði einhvern dynk, rétt við höfuðið á sér og þóttist vita, að eitthvert hinna lokanna hefði lyfzt og lokazt aftur. Enda þótt hann hefði mátt eiga von á þessu varð honum bilt við. Svo opnaðist lokið og hann hafði ekki nema augnablik til að átta sig. Hann leit fast á bletti í loft- inu, og stillti sig eins og hann gat um að depla augum. Munn- urinn á honum hékk opinn, með an hann reyndi að ná andanum. Armarnir voru krosslagðir á brjóstinu, eins og á dauðum manni, og þannig leit hann líka út. Hann vissi, að hann gat sloppið með þetta, en þó ekki nema eitt andartak, en nú treysti hann aðeins á að geta komið hin um manninum á óvart. Hann heyrði eitthvert snöggt, ítalskt blótsyrði, en hélt áfram að glápa með uppglennt augu og eins og stirðnaður, og sá að- eins þokukennt andlitið á mann inum uppi yfir sér. Lazio bölv- aði aftur og dró snöggt að sér andann. Allt í einu beygði hann sig niður til þess að gripa í ann- an handlegginn á Tucker, senni- lega til að taka á slagæðinni og vita hvort hann væri dauður. Þetta var eini möguleikinn, sem Tucker hafði: hann greip um úln liðinn á ftalanum með báðum höndum og togaði hann til sín af öllum kröftum og rak hnéð beint framan í hann. Það var ekki hægt að fylgja högginu fullkomlega eftir, en það nægði til þess að gefa hon- um blóðnasir og nú rann blóðið ofan á Tucker, áður en hann gat risið upp. ítalinn var ekki með vitundarlaus, en talsvert dasað-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.