Morgunblaðið - 19.09.1969, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.09.1969, Blaðsíða 4
..MQRGUIÍBLAÐIÐ, FpSTUÐAGUR 1’9. SEPTEMBER. 1!XÍ9 25555 BILALEIGA HVERFISGÖTU103 VW Sendiferðabifreið-VW 5 manna-VW svefnvagn VW 9 manna - Landrover 7 rnarma LITLA BÍLALEIGAN Bergstaðastræti 13. Sím/ 14970 Eftir lokun 81748 eða 14970. BILA LEIGil MAGOJÚSAR íkiph 3i.ii 21 sima«21190 ettirlokuníimi 40381 0 ... Hvassyrt Eyjamær Guðmundur Þorsteinsson, íþróttaíréttaritari Alþýðublaðs ins skrifar: „Ein sem ekki er Vestmanna- eyingur" (hvað er hún þá?) send- ir mér og Valsmönnum aldeilis tóninn i Velvakanda á laugar- daginn, og er mikið niðri fyrir. Tilefnið er grein, sem ég skrifaði á iþróttasiðu Alþýðublaðsins fyr ir nokkru um sögulega för ungra Valsdrengja til Eyja. Áreiðanlega er það hinum á- hugasömu og snjöllu knattspyrnu- mönnum Vestmannaeyja mikill sálarstyrkur, að haía slíkar val- kyrjur á sínum snærum, sem hlaupa fram fyrir skjöldu, og ulla á þá, sem eru að hrekkja Eyjamenn með sínum illu penn- um, og ánægjulegt er til þess að vita, að húsmæðurnar í Eyjum hafa ekki meira að gera við hús- verkin en svo, að þær geta látið knattspyrnumál staðarins til sín taka, ef svo ber undir. Stór orð frúarinnar í upphafi greinarinnar tek ég ekki alvar- lega, fullviss inn að þau eiga sér aðeins rætur í ást hennar til heima haganna, og ég vona líka að Vals- menn geti fyrirgefið henni skýr- lega athugasemd um að þeir séu „Ergjó“ (sem mig grunar nú reyndar að sé framlag Velvak- anda sjálfs). 0 Pylsur, gos og gestrisni Fyrri hluta ádrepu frúarinnar sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða um. Það hefur dómarinn i um- ræddum leik sjálfur gert í bréfi, sem birt var á iþróttasíðu Al- þýðublaðsins laugardaginm 6. september. Þar gerir hann hreint fyrir sinum dyrum, eins og ég óskaði eftir i. grein minni, en eft- ir stendur síðari hluti ádrepvmn- ar, sem n»ér finnst satt að segja ekki verða til þess að klæða mál- ið í betri fötin. Hún segir: „Það verður áreið- anlega engum 11—13 ára dreng meint af því að lifa á pylsum og gosi einn dag, þó svo að þeir þurfi að borga það úr eigin vasa. Áreiðanlega hafa fleiri drengir en þeir úr Val, reynt það í fót- boltaferðalögum, hvar sem er um landið". — Það er hreinn sann- leikur, að þetta hafa knatt- spyrnumennimir okkar imgu BÍLAL£1GANFALURhf carrental service © 22-0*22* RAUDARÁRSTÍG 31. PINGOUIN-GARN Nýkomið VACANCES, ódýrt garn, sem þolir þvottavélaþvott. Verzhmin Grein, Hveragerði. bilaleigan. AKBBAUT car rental service r 8-23-4? sendum PINGOUIN-GARN CLASSIQUE CRYLOR — SPORT CRYLOR M ULTI-PINGOUIN — VACANCES. Nýkomið mikið úrval. Hannyrðaverzlun Þyrí Hólm. Hafnargötu 15, Keflavík. FELAGSLIF Innanfélagsmót verður í Sundhöll Hafnar- fjarðar 22. sept. kl. 20.00. Képpn isgreman 100 og 200 m baksond kvenoa, 200 m brmgusund kvenna, 4x50 m bringusund kverma, 3x50 m þrísund karla. Ármann. PINGOUIN-GARN Nýkomið VACANCES, ódýrt garn, sem þolir þvottavélaþvott. Verztun Jórunn Bachmann, Borgamesi. fengið að reyna í ferðum sínum um landið, en ekki er það æskilegt að svo ungir drengir, sem hér um ræðir, séu látnir vera vega- lausir og matarlausir á ókunnum stað, vegna þess að það hafi ver- ið látið viðgangast áður. Myndi frúnni sjálfri vera það ljúft að horfa á eftir sínum eigin syni í slikt ferðalag? Ekki trúi ég því. Einmitt núna um helgina voru ungir drengir frá Eyjum í heim- sókn í Reykjavík, sem vel að merkja stóðu sig afbragðsvel, og urðu tslandsmeistarar í 5. flokki, og komust í úrslit í 4. flokki. Ekki trúi ég því að þeir hafi verið látnir lifa á pylsum og gosi, eða hírast í búningsklefa meðan á dvöl þeirra hér stóð. — Það þarf að ganga svo frá hnút- unum f eitt skipti fyrir ðU, að slíkt geti ekki átt sér stað nokkurs staðar á landinu, og virðist mér það vera vandalaust fyrir knatt- spymuforystuna að koma því í kring. 0 Símasamband er komið á Hafi það verið umtalað, að for ráðamenn ÍBV sæju um móttöku liðsins umræddan dag, var þeim engin vorkunn að gera það á sómasamlegan hátt, og sömuleið- is, hafi það verið vanrækslu Vals manna sjáifra að kenna, að svo fór sem fór um móttökumar, má benda viðkomandi aðilum á, að langt er nú umliðið síðan síma- sairiband komst á milli Eyja og lands. Það sést á bréfi frúarinnar — sem bendir til þess, að einhver hafi þrátt fyrir allt átt að greiða götu drengjanna við komuna til Eyja — að það hafi verið talið öruggt, að liðið kæmi um miðjan dag. Vestmannaeyjaflúgvöllur er enginn Kennedy-flugvöllur, og því varla umtalsvert, þótt ein- hver þurfi að „æða upþ á flugvöll í hvert sinn sem flugvél sést", ef von er á gestum til félagsins. § Óréttmætt hnútukast Sá slæmi misskilningur kemur fram i báðum bréfunum frá Eyj- um, að Knattspyrnufélagið Valur hafi að einhverju leyti staðið að þessari grein minni í Alþýðu- blaðinu. Þetta er alrangt — nema kalla megi mig Valsmann. Ég lék reyndar einu sinni með 4. flokki Vals, og man einmitt Til sölu er SAAB1966 f mjög góðu standi. Upplýs- ingar í síma 33571. glögglega eftir keppnisferð, sem við fórum í til Akraness. Akur- nesir.gar létu okkur ekki lifa á pylsum og gosi, né hírast í bún- ingsklefa um dagiim. Við vorum nefnilega gestir þeirra ,og þeir tóku okkur sem slíkum, en þetta er nú önnur saga. 0 Öryggis barnanna sé gætt Valsmenn eiga ekki skilið þetta hnútukast frúarinnar og dómarans i Eyjum, þvi þeir gleðjast áreið- anlega yfir því, eins og við ger- um ÖH, að Vestmannaeyjar skuli búa svo vel að sínum ungu drengjum, að þeir geti orðið með al beztu knattspymumanna landsins. Allir geta verið ánægð- ir yfir því, og vissulega vakti það ekki fyrir mér að kasta rýrð á sigur hinna ungu Eyjamanna, fjarri þvi. Hins vegar getum við líklega öll verið sammála um það, að það hlýtur að vera skil- yrðislaus krafa þeirra foreldra, sem eiga böm sin í íþróttaflokk- um, sem ferðast út um landið til keppni fyrir félag sitt, að örygg- is þeirra og velferðar sé gætt til hins ítrasta. Það hefur ekki orð- ið uppi á teningnum í þessari ferð ungra Valsmanna til Vestmanna- eyja. Guðmundur Þorsteinsson, íþróttafréttaritari Alþýðublaðsins.“ • Endalaus rigning Ósköp rignir! Ætlar þetta aldrei að taka enda? segja menn. Og sumir bæta við: Það er nú ekkert með okkur. En aumingja bændumir, sem eiga aUt sitt und- ir þessu! En ef við lítum að staðsetningu landsins á landakortinu og rifj- um upp liðinn tíma, þá vitum við að svona ár geta komið — óg koma hér! Sem betur fer eiga menn ekki eins mikið undir þeim og áður, ajn.k. falla menn ekki lengur úr hor eða eta skóbætur. Þar hafa orðið miklar framfarir. Þar sem við erum nú ávallt öðru hverju minnt á þá stað- reynd að svona árferði getur kom ið, væri ekki úr vegi að reyna að búa sig undir það. Áður reyndu karlamir að safna heyjum, þótt- ust hólpnir ef þeir áttu gamla stabba. Það er víst úrelt aðferð. Við þurfum að vinna hey á hverju sumri — en það þarfbara að fara einhvera veginn öðm vísi að þvi en að bíða eftir að veðrið lagist og keana veður- spámönnum um, ef maður verð- ur fyrir vonbrigðum. Ekki veit ég hvemig á að gera þetta .Það er bara verkefni, sem blasir við og þarf að leysa. Og hvað er ekki hægt að leysa á þess ari tækniöld. Ef kostað er miklu til að bera á túnin og haldinn dýr vélakostur, verður að vera hægt að nýta þetta. Nú tækni- menn, leysið vandann! URVALS GÆÐINGUR AF GÓDU KYNI TIL 5ÖLU Upplýsingar í síma 13227. ferðaskrifstofa bankastræti 7 símar 16400 12070

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.