Morgunblaðið - 30.09.1969, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAOU'R 30. SE^PTEMBER 1960
25
Kennarar
Kennara vantar strax að Bamaskólanum í Hveragerfli.
Nánari upplýsingar gefur VALGARÐ RUNÓLFSSON Simi 4195 eða 4238.
KennarasfaBa
er laus við Iðnskólann á Selfossi. Aðalkennslugreinar eru:
íslenzka, danska, enska og bókfærsla. Ibúð er fyrir hendi.
Upplýsingar hjá formanni skólanefndar í síma 1144 og hjá
skólastjóra i síma 1113.
Lisfdansskóli
Þjóðleikhússins
tekur til starfa 1. október næstkomandi. — Innritaðir nem-
endur mæti samkvæmt áður sendri tilkynningu þannig:
Miðvikudaginn 1. október.
Fyrsti flokkur kl. 4 síðdegis.
Þriðji flokkur kl. 5 síðdegis.
Fjórði flokkur kl. 6 síðdegis.
Fimmti flokkur kl. 6.30 síðdegis og
Sjötti flokkur kl. 7 síðdegis.
Fimmtudaginn 2. október:
Annar flokur kl. 4 síðdegis.
Athygli skal vakin á því að kennslugjald ber að greiða fyrir-
fram fyrir hvern mánuð.
Listdansskóli Þjóðleikhússins.
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN
RÍKISINS MML fm
Húsnæðismálastjórn hefur ákveðið að veitá
á tímabilinu 1. október til 31. desember n.k.
lánsloforð (fyrri hluta lán) til þeirra ein-
staklinga, sem áttu hinn 17. þ.m. fullgildar
umsóknir hjá Húsnæðismálastofnun ríkis-
ins, innkomnar fyrir 16. marz s.l., til íbúða,
sem verða fokheldar á tímabilinu 1. ágúst
til 31. desember 1969. Lánsloforð þessi
koma til greiðslu frá og með 1. febrúar 1970.
Húsnæðismálastjórn hefur einnig ákveðið
að veita framkvæmdaaðilum í byggingar-
iðnaðinum, sbr. 1. nr. 21, 27. apríl 1968, láns-
loforð (fyrri hluta lán) til þeirra íbúða, sem
þessir aðilar gera fokheldar á tímabilinu
1. ágúst til 31. desember 1969, enda skili þeir
vottorðum þar um til stofnunarinnar fyrir
árslok og tjái sig samþykka skilyrðum þeim
fyrir lánum þessum, er greinir í téðum lög-
um. Lánsloforð þessi verða veitt á tímabilinu
1. október til 31. desember n.k., eftir því sem
hlutaðeigandi byggingar verða fokheldar, og
koma til greiðslu eftir 1. febrúar 1970.
Að gefnu tilefni skal tekið fram, að einstakl-
ingar, sem eiga óafgreiddar umsóknir um
íbúðarlán, fá nú ekki skrifleg svör við um-
sóknum sínum fyrr en lánsloforð eru veitt.
Hins vegar geta umsækjendur jafnan gengið
út frá því, að umsókn fullnægi skilyrðum ef
umsækjanda er ekki tilkynnt um synjun eða
skriflegar athugasemdir eru gerðar af Hús-
næðismálastofnuninni. Auk þess skal um-
sækjendum bent á, að þeir geta að sjálfsögðu
ætíð leitað til stofnunarinnar með fyrir-
spurnir vegna umsókna sinna.
Reykjavík 26. september 1969.
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN RlKISINS
LAUGAVEGI77, SlMI 22453
S. Helgason hf.
Súðarvogi 20
Listdansskóli
Guðnýjar Pétursdóttur
Lindarbæ Reykjavík
og Félagsheimili
Kópavogs Kópavogi.
Kennsla hefst mánudaginn 6. október.
Byrjenda og framhaldsflokkar.
Innritun og upplýsingar frá kl. 1—7 dag-
lega í síma 40486.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS <><>0
STÓST.HEIMILI
EDA LITID
Hvort heldur sem er, hafa
Heimilistæki sf.
Philco-þvottavél, sem yður
hentar:
AUTOMAT
hefur fjölbreytt þvottakerfi, vinduhraði er
400 snúningar á mínútu.
Verð kr. 23.990.—
ECHOMAT hefur,12 þvottakerfi, auk sérstaks
forþvottarmöguleika fyrir hin nýju lífrænu
þvottaefni. Vindúhraði er 500 snúningar á
mínútu. Verð kr. 26.633.—
ECHOS III
hefur 14 þvottakerfi, tekur bæði inn heitt og
kalt vatn, sérstakt sjálfvirkt þvottakerfi fyrir
forþvott úr lífrænum þvottaefnum. Vinduhraði
er 530 snúningar á mínútu. Verð kr. 32.771.
MARK IV
hefur 16 þvottakerfi, tekur inn bæði heitt
og kalt vatn, vinduhraði er 600 snúningar
á mínútu.
Verð kr. 36.990,—
Allar gerðirnar hita að suðu og allar
taka 5 kg af þvotti.
ÞVOTTAVÉLAR VIÐ ALLRA HÆFI
HAFNARSTRÆTI 3, SÍMI 2045S
★ A,lar vetamat eru alsjálfvirkar. SÆTÚNI 8, SÍMI 24000