Morgunblaðið - 20.03.1970, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1970
3
Áfengisvarnastarf
þarf að samræma
- Samþykkt borgarstjórnar
Á FUNDI borgarstjórnar
Reykjavíkur í gær var sam-
þykkt einróma tillaga frá
Sigurjóni Björnssyni (K),
þess efnis að fela félagsmála-
ráði að leita samvinnu við
þá aðila, sem vinna að áfeng-
isvörnum, í því skyni að gera
heildartillögur um eflingu
og endurskipulagningu áfeng
isvarna í borginni.
Sigurjón Bjömsson (K) fylgdi
tillögu sinni úr ftlaði og sagði,
að í Reykjavík væru margir að-
ilar, sem vinna að áfengisvörn-
um. Það hlýtur að vera til bóta
að samræima þetta starf og koma
á heildarskipulagi með náinni
samvinnu aðila. Eðlilegt er, að
Reykjavíkurborg taki forystu
um það t.d. með því að efna til
ráðstefnu eða fundar með full-
trúum frá þessum samtökum.
Tilgangurinn með slíkri sam-
komu ætti að vera sá að reyna
alð skýna vwrflosMilð þeasara sam-
taka, raða niður verkefnum og
samræma starf þeirra. Eðlilegt
verður að teljast að félagsmála-
ráði verði falið þetta verk.
Þórir Kr. Þórðarson (S) tók
næstur til máls og sagði:
Það dylst engum, sem vanda
áfengisvarnanna er kunnur, að
Iþalð er eiotoum þreranit, sem sltoort
ir á, til þess að viðunandi að-
gerðir í þeim málum mættu hefj
ast fyrir alvöru:
1. Samræming á störfum
þeirra mörgu félaga og aðila,
sem að áfengisvamarmálum
vinna.
2. Að málið sé rætt og undir-
búið á sviði heilbrigðismála ekki
síður en undir félagsmálalið.
3. Að ríkisvaldið leggi fram
aukið fjármagn til þeirra stofn-
ana, sem eru alger forsendaþess
að nokkur árangur náist í áfeng
isvörnum.
Það er alkunna, að ríkið ver
árlega nokkrum fjármunum til
áfengisvarna. Ber fyrst að nefna
starf það, sem unnið er á Klepps
spítalanum og deildum hans. Þá
ber að nefna Gunnarsholt og
einnig margt annað. — Samt er
það svo, að mikið skortir á, að
hér sé nóg að gert. Á vegum
félagsmálaráðs Reykjavíkurborg
ar hefur á undanfömum miss-
erum verið unnið að könnun
þess, hverjir möguleikar séu fyr
ir hendi um að koma upp lok-
uSu hæli fyrir áfengissjúklinga
Á það skal bent, að slíkt hæli
er e.t.v. það fyrsta, sem koma
þarf á fót. Lögum samkvæmt er
það hlutverk ríkisins að stofna
og reka slíkt hæli og virðist
mönnum sem tekjur rikissjóðs
af áfengissölu séu það ríflegar,
að ekki þurfi háan hundraðs-
hluta þeirra að leggja í gæzlu-
vistairsjóð umtfram. niúveramdi
fraimóag tlil þeiss, aíð hiainin reyind-
ist hlutverki sínu megnugur. —
Þá þamf að (tooma upp, sömu leiðis
á vagiuim ríkiisiiinisi, ek. „pemisáoniati"
fyrir þá áfengissjúklinga, sem
em í atftuirtoata, en skortir að-
hald og aðbúð ásamt aðhlynn-
ingu til þess að geta með ár-
angri gengið út í atvinnulífið á
nýjan leik. Að þessu hyggst fé-
lagsmálaráð vinna og er þess að
vænta, að ríkisvaldið sýni mál-
inu fullan skilning.
Þá er sömuleiðis kunnugt, að
hversu öflugt félagslegt starf
sem unnið er á þessu sviði, næst
ekki fullur árangur nema bætt
sé aðstaðan á sviði heilbrigðis-
og læknaþjónustu í þessu efni.
Því hefur félagsmálaráð kann-
að þetta, — einnig á því aviði,
sem að heilbrigðismálum snýr,
og var fundi félagsmálaráðs í síð
asta mánuði (12.2) skýrt frá við
ræðum við stjórn Heilsuverndar
stöðvarinnar um þessi mál. Hér
þarf áfram að halda á sömu
braut. — Einnig hefux verið rætt
um vandamál heimilislausra
áfengissjúklinga, og til bráða-
birgða hefur verið komið upp
gistiskýli í Farsóttarhúsinu fyrr
verandi að Þingholtstræti 25,
Þessi ráðstöfun kemur samt eng
an veginn í stað varanlegrar
lausnar með stofnun vistheim-
ila, ef hægt er að tala um
nokkra varanlega lausn í þess-
um efnum.
Að lokum er svo 1. verkefnið
sem talið var upp hér að framan,
samræming á störfum þeirra
mörgu félaga og aðila, sem að
áfengisvarnarmálum vinna.
Eins og mönnum er kunnugt
vinna allmargir aðilar að mál
um þessum, en með furðu litl-
um árangri. Hvers vegna hefur
árangurinn ekki reynst meiri en
raun sannar? Ekki skortir fólk
það, sem að þessu vinnur, áhug-
ann eða góðvildina í garð þeirra,
sem hér eiga hlut að máli. Miklu
fremur er orsakarinnar að leita
í þeirri staðreynd, að mörg mál
og úrlausnarefni verði útund-
an, detta upp fyrir, ef svo mætti
sagja, þair eð ekJki er Ijóist á
hvers sviði þau eru, og of marg
ir koktoarnir í sama eldhúsinu
Meðal þeirra sem að þessu vinna
mætti nefna Áfengisvarnarnefnd
Reykjavíkur, Áfengisvarnarnefnd
kvenna í Reykjavík og Hafnar-
firði, A.A. samtökin, Bláa band-
ið, Félagssamtökin Vernd, Fanga
hjálpina, fslenzka ungtemplara,
Þingstúku Reykjavíkur o.fl.
Þessir aðilar njóta allir styrks
Reykjavíkurborgar auk húsbygg
ingar templara, bindindisfélags
ökumanma, Áfengismálafélags
íslands, Landssamtafca gegn
áfengisbölinu, Bindindisráðs
kristinna safnaða o.fl.
Áfengisvarnir og samstarf milli
þessara aðila hafa ítretoað verið
til umræðu í félagsmálaráði, og
eru skoðanir manna mjög skipt-
ar um það, hversu haldmikið
starf þessara aðila er vegna
skorts á skipulegum og sam-
ræmdum aðgerðum. Þess má
geta til dæmis, að í nóvember-
mánuði sl. var lagt fram erindi
Áfengisvarnamefndar varðandi
samstarf þeirra aðila, sem að
áfemgisvörnum vinna. í fram-
haldi af því átti félagsmálastjóri
viðræður við fulltrúa áfengis-
vamarnefndar. Kom málið aft'
ur í félagsmálaráð, og var þá
ihalHdfimin fuimduir miefð stjóirn
Heilsuverndarstöðvar Reykjavík
ur, eins og áður greinir í því
skyni að kanna, hversu mætti
samræma og efla áfengisvarnar
starf.
Tillaga sú, sem nú liggur fyr-
ir borgarstjórn frá einum af með
limum félagsmálaráðs um „að
leita samvinnu við þá aðila, sem
vinna að áfengisvörnum í því
skyni að gera heildartillögur um
eflingu og endurskipulagningu
áfengisvama í borginni" er því
þörf áminning til okkar allra í
félagsmálaráði um að vinna
áfram að lausn þessara mála og
með endurnýjung kraftanna.
Legg ég því til, að tillagan verði
samþykfct.
Einar Ágústsson (F) sagði, að
það væri ugglaust rétt, að marg-
ir aðilar glíma við lausn í áfeng-
isvandamálunum. Það er tvímæla
laust til bóta að samræma starf
þessara aðila og að félagsmála-
ráð beiti sér fyrir því. En ég
óttast að hlutur ríkisins sé ekki
nægilega mikill. Það hefur ver-
ið staðfest með lagasetningu, að
það sé hlutverk ríkisins að
byggja og starfrækja hæli fyrir
áfengissjúklinga. í því skyni var
stofnaður sérstakur sjóður,
gæzluvistarsjóður.
Ég hef flutt á Alþingi frv. um
að á'kveðið hlutfall af tekjum
áfengissölunnar renni til þessa
sjóðs og lagði til að það yrði
ákveðið 2 lfz % en það hefur ekki
fengizt samþykkt. Því var bor-
ið við, að eðlilegra væri, að um
áfcveðið fast framlag væri að
ræða. Þá gerði ég tilraun til þess
við afgreiðslu fjárlaga að fá
þetta framlag hækkað um 5
miljónir úr 8 milljónum í 13
milljónir en sú tillaga var held-
ur ekfci samþykkt. Ég er ekki
að rekja þetta til þess að hafa
á móti þeirri tillögu, sem hér
liggur fyrir en ég óttast að þetta
sé ekki nóg og að menn muni í
ríkum mæli reka sig á, að hlut-
ur ríkissjóðs sé ekki nægilega
stór í áfengisvörnum.
Sigurjón Björnsson (K)
kvaðst vilja þakfca góðar undir-
tektir við tillögu sína. Það væri
hárrétt að hlutur ríkisins í þess-
um málum væri lakara en sann
gjarnt gæti talizt, sérstaklega
þegar hafðar væru í huga gíf-
urlegar tillögur ríkisins af áfeng
issölu.
K j ör dæmisráð
Reykjaneskjördæmis:
Aðalfundurinn
á morgun
hefst
Á MORGUN, laugardag, kl. 10
árdegis, verður aðalfundur Kjör-
dæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi, settur i
Aðalveri í Keflavík. Að lokinni
setningarræðu formanns Kjör-
dæmisráðsins, Odds Andréssonar,
og skýrslu stjómar, er Kristján
Guðlaugsson, bæjarfulltrúi, flyt-
ur, verður málverkasýning Helga
S. Jónssonar opnuð í húsakynn-
um Netagerðar Suðumesja.
Þá verðuir hádiegisverður fram-
neiddur, en að honium loknum
heifjast aðalfuindairstörf að nýju,
Tfflögur til lagatoreytinga verða
kyrunitar af formainini laiganiefnd
ar, Ólafi G. EinarsBynd, sweitar-
stjóra. Þegar venjulegum aðal
fundarstöiiifum er kvkið, mun
M'atthías Sveinsson, sveitarstjóri,
ræða um bæjar- og sveitarstjónni-
airlkoisningarniar og undirhúninig
þeirra. Loks verða frjálsar um-
ræður um 'fcosninigaunidirtoúninig
inn.
<§> KARNABÆR
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS — TÝSGÖTU 1 — SÍMI 12330.
MIKIÐ ÚRVAL
oí vörum í búðum deildum
Dömudeild:
★ KJÓLAR í ÚRVALI
★ SlÐAR PEYSUR
STUTTAR PEYSUR
★ BLÚSSUR ÚR JERSEY
★ SÍÐAR KAPUR
★ BOLIR O. M. FL.
ÞÁ ERU KJÓLARNIR
LOKSINS KOMNIR
SlÐIR — MILLISlÐIR
STUTTIR — ÚRVAL.
Herradeild:
★ STAKIR FLAUELIS
JAKKAR
★ STAKAR BUXUR
NÝ SNIÐ
★ SKYRTUR NÝKOMNAR
★ HERRAPEYSUR
NÝKOMNAR
★ BOLIR — KLÚTAR
BELTI O. M. FL.
Op/ð til klukkan 4 e.h. laugardag
PÓSTSENDUM UM LAND ALLT
NÝKOMIÐ
1 SN YRTIV ÖRUDEILD
KLAPPARSTÍG 37.
HÁRTOPPAR
SÍÐIR — STUTTIR
HÁRKOLLUR
ALLRA NÝJASTA
TÍZKA — STRETCH
GOTT HÁR FRÁ
BATOLI OF LONDON.
STAK8TEINAR
Hinar ytri
kringum-
stæður
Kommúnistablaðið viðurkenn-
ir það enn í forystugrein í gær,
að bati hafi orðið í cfnahagsmál
um þjóðarinnar — en sú viður-
kenning er veitt af mikill tregðu.
Þannig er sagt, að „talnaspeking
ar ríkisstjórnarinnar“ hafi keppzt
við að sýna fram á batnandi
hag og að þessar upplýsingar
séu „sjálfsagt réttar í flestum
atriðum". Hviiík framför hjá
kommúnistablaðinu, að viður-
kenna að upplýsingar opinberra
aðila um stöðu þjóðarbúsins séu
réttar! Hins vegar segir blaðið,
að þessi bati sé orðinn „vegna
ytri kringumstæðna þrátt fyrir
stjórnarstefnuna“. Það er alveg
rétt hjá kommúnistablaðinu, að
hinar „ytri kringumstæður“, svo
sem batnandi aflabrögð á bol-
fiskveiðum og hækkandi verð-
lag á erlendum mörkuðum, eiga
verulegan þátt í batnandi af-
komu þjóðarinnar. Það er óneit
anlega mikil framför, að komm-
únistar skuli viðurkenna, að slík
ar „ytri kringumstæður" geti
haft áhrif á efnahag fslendinga.
Þeir hafa nefnilega verið býsna
tregir til að viðurkenna að afla-
brestur á síldveiðum og algjört
verðhrun á afurðum okkar er-
lendis ásamt öðrum erfiðleikum
hafi haft nokkur áhrif á efnahag
landsmanna á árunum 1967 og
1968.
Á hinn bóginn er bersýnilegt,
að kommúnistar vilja enn ekki
viðurkenna, að gengisbreytingin
í nóvember 1968 og þær ráðstaf
anir í efnahagsmálum, sem rik-
isstjórnin beitti sér fyrir í kjöl-
far hennar, hafi haft umtalsverð
áhrif á bættan efnahag. Þó ligg-
ur það í augum uppi að meiri
afli og hærra verð hefði komið
þjóðinni að litlu gagni, ef ekki
hefði verið búið að skapa sjáv-
arútveginum og frystiiðnaðinum
nýjan rekstrargrundvöll í árs-
byrjun 1969.
Erfið aðstaða
Kommúnistar eru í afar erfiðri
aðstöðu um þessar mundir. Þeir
vilja helzt ekki viðurkenna þá
staðreynd, að mikil grózka er
að verða á ný í efnahagsmálum
fslendinga. Þeir gera sér hins
vegar ljóst, að kjarabætur til
launþega í vor hljóta að hyggj-
ast á batnandi afkomu þjóðar-
innar í heild. Til þess að hafa
einhver rök fyrir kröfum um
bætt kjör verða þeir að viður-
kenna staðreyndir. Það gera þeir
með nýrri útgáfu af „já-já-nei-
nei“ stefnu Framsóknarmanna.
Auðvitað má svo ganga út frá
því sem vísu, að kommúnista-
blaðið og einstakir þingmenn
kommúnista geri kröfur í vor,
sem líklegar eru til að koll-
steypa efnahagskerfinu. En
reynsla síðustu ára sýnir, að þeir
verkalýðsforingjar, sem fylgja
kommúnistum að málum, fara
eigin leiðir í þeim efnum, — og
taka ekki meira tillit til kommún
istablaðsins en þeim sjálfum sýn
ist.
Hver var
fystur
Það er raunar óþarft að met-
ast um það hvaða flokkur hafi
orðið fyrstur til að leggja fram
framboðslista vegna kosninganna
í vor. Þjóðviljinn segir í gær, að
það hafi verið kommúnistar.
Hafa skal það sem sannara reyn
ist. Það voru Sjálfstæðismenn í
Seltjamarneshreppi.