Morgunblaðið - 20.03.1970, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1070
7
Rúmlega milljón trjáplöntur
gróðursettar í ár
Skógarverðir þinga í Reykjavík
Undanfarna daga hafa skóg-
arverðir víðsvegar að af land-
inu og forystumenn Skógræktar
félags íslands setið á fundi und-
ir forsæti skógræktarstjóra, Há-
konar Bjarnasonar, í húsakynn-
um Skógræktar rikisins að Rán
argötu 18.
Blaðamaður Mbl. fékk að
hitta þá að máli á miðviku-
dag, en þá va«r áætlað að fund-
inum lyki síðdegis.
Hákon Bjarnason skógræktar-
stjóri kvað þetta vera 19. reglu
legan fund þeirra. „Okkur er
nauðsynlegrt að bera saman bæk
ur okkar, vita hvar við stönd-
um og ræða« framtiðaráætlanir. Á
fundum þessum komum við okk
ur saman um starfsáætlanir fyr-
ir næsta ár. Ýmislegt hefur bor
ið á góma á þessum fundi.
Segja má, að allt skógræktar-
starf hafi gengið vel á s.l. ári.
Við þurftum ekki að kvarta yf-
ir kali eða a«tnarri óáran.
Og nú stendur auðvitað fyr-
ir dyrum annatími okkar við
gróðursetningu. Að sjálfsögðu
kysum við að hafa fleiri plönt-
ur handa á milli til þeirra
hluta, en fjárskortur hamlar
því. Þó munu verða til gróður-
setninga í vor, rétt tæpar
900.000 skógarplöntur, og um
170.000 garðplöntur, svo að rúm
lega milljón plöntur ættu að
komast í jörðina í vor, ef allt
gengur vel og verður með
felldu.“
„Við eigum," sagði Hákon
ennfremur, „samkvæmt áætlun
að hafa þriðjungi fleiri plöntur
til ráðstöfunar, en fjármagn er
ekki nóg, svo að við hana verði
staðið."
★
„Hvað er helzt á döfinni í
skógræktarmálum, Hákon?“
„Einhverja fyrstu dagana í
júni n.k. hefst kynningarmót
ungs skógræktarfólks á Hallorms
stað. Þetta er eins konar nám-
skeið, sem stendur í 10 daga.
Sækja það unglingar frá hinum
ýmsu skógræktarfélögum, og eru
þeim þar kennd handbrögð við
gróðursetningu og grisjun og
ýmislegt fleira, sem skógrækt
er viðkomandi. Þessi kynning-
armót eru haldin með það fyr
ir augum, að þetta unga fólk
geti síðar tekið að sér leiðbein-
ingarstörf innan skógræktar-
félaganna og orðið stjórnarmeð
limir þeirra. Segja má, að hug-
myndin að þessum námskeið-
um sé komin frá Tryggva Þor-
steinssyni kennara á Akureyri. í
fyrra var haldið 7 daga nám-
skeið á sama stað, en það þótti
vera helzt til stutt, og þess
vegna verður það í 10 daganú.
Þeir, sem áhuga hafa á þessu
námskeiði eiga að snúa sér til
síns skógræktarfélags, og ald-
ursmörk höfum við sett frá 18—
25 ára. Kostnað greiða þátttak
endur sjálfir, en skógræktarfé-
lögin hafa veitt ríflega styrki
til slíkrar þátttöku. Okkur vant
ar tilfinnanlega leiðbeinendur,
og þess vegna eru þessi kynn-
ingarmót ákaflega mikilsverð.
★
Þá má geta um það, að við
fáum heimsókn Norðmanna 4.
—18. ágúst, og á sama tíma
fara um 70 íslendingar til skóg
ræktarstarfa í Noregi. Þar er
settur lágmarksaldur 16 ára, og
helzt ekki eldra fólk en 60 ára.
Ferðirnar eru mjög ódýrar, en
uppihald og ferðir í Noregi
greiðist með skógræktarvinnu. í
þessa ferð komast einungis fé-
lagar í skógræktarfélögunum.
Þessar skiptiferðir milli Norð-
man-na og íslendinga hafa gef-
izt rnjög vel á undanförnum ár-
um, og ekki að efa, að svo
verður einnig nú. Á döfinni er
einnig heimboð til Sovétríkj-
anna frá Skógræktarráðuneyt-
inu í Moskvu, og vonandi verð-
ur þess ekki langt að bíða. að
okkur berist slíkt boð einnig
frá Bandaríkjunum. Það er ein-
mitt þannig, sem við komumst
helzt yfir gagnleg fræ fyrir
okkur, og er satt að segja ekki
möguleg fræsöfnun á annan
veg, það er of kostnaðarsamt
fyrir okkur að senda menn
gagngert til fræsöfnunar, og við
getum ekki skipt við venjulega
fræsala."
★
Við beindum þeirri spurningu
því næst til Sigurðar Blöndals
skógarvarðar á Hallormsstað,
hvað liði Fljótsdalsáætluninni
svonefndu, þ.e. ræktun lerki-
skóga á vegum bænda í Fljóts-
dah Sigurður sagði, að nærri
væri lokið við að girða fyrsta
svæðið, og myndi verða gróður-
sett í það í vor, en síðan yrði
girðingarvinnu framhaldið, og
myndi svo verða fyrst um sinn.
Segja mætti, að áætlunin gengi
samkvæmt því, sem fyrirhugað
var.
Skógarverðirnir á þessum 19.
reglulega fundi koma alls stað-
ar að af landinu, og er því
mjög fróðlegt að kynnast við-
horfum þeirra og þeim vanda-
málum, sem skógræktin á við
að glíma á hverjum stað. Hver
landshluti á sín sérstöku vanda
mál, einnig sínar uppáhalds trjá
tegundir, og með síaukinni til-
raunastarfsemi skógræktarinnar
verður betur en áður hægt að
segja til um, hvaða tré henta
bezt í hinum ýmsu landshlut-
um.
Það ríkti mikil vinnugleði á
þessum fundi, enda kom það
greinilega fram hjá þessum
mönnum, að íslenzk skógrækt
hefur fyrir löngu sannað til-
verurétt sinn.
— Fr. S.
MENN
OG
MÁLEFNI
SKogarverðir og skogræktar-
menn á fundi. (Myndina tók
ÓI. K. M.) Taliö frá vinstri:
Þórarinn Benediktz, Mógiisá,
Gunnar Finnbogason, Akureyri,
Haukur Ragnarsson, Mógilsá,
Hákon Bjarnason, skógr.stj.
Haníel Kristjánsson, Hreða-
vatni, Oddur Andrésson, Hálsi í
Kjós, Isleifur Sumarliðason,
Vöglum, Ágúst Árninson,
Hvammi, Skorradal, Kristinn
Skæringsson, Kópa«vogi, Ólaf-
ur Sæmundsen, Skógræktarfél.
Rvk., Indriði Indriðason Tuma-
stöðum, Vilhjálmur Sigtryggs-
son, Skógr.fél. Rvk., Hákon
Guðmundsson, form. Skógrækt-
arfél. Islands, Garðar Jónsson,
Selfossi, Sigurður Blöndal,
Ilallormsstað, Baldur Þorsteins
son, skrifst.stj. Á myndina
vantar Sigurð Jónasson, Lauga-
brekku, Skagaf. og Snorra Sig-
urðsson, framkvæmdastj. Skóg-
ræktarfél. íslands.
Kopar-
rottur
Koparklumpar og þráður
komá að góðu gagni.
Geldfé og grávöru áður
gátu menn klófest með lagni.
Háspennustrengi af staurum
stýfa að næturlagi.
Allt verður þeim að aurum,
sem áhættu taka í fagi.
Kirkjurnar rændar rennum,
ruplað er niðurföllum
Koparrottur við kennum
krafsandi í sorpi og hjöllum.
Tugir vatnskassa týndust
trúi ég úr kopar væru.
Seldir um borð þeir sýndust
saxaðir srnátt í hræru.
Harpa af legsteini er horfin,
hljóður er vitundarvottur.
Brotin af bauta eða sorfin.
Bruddu hana tvífættar rottur.
Listaverk láta ekki í friði
lífsvilltar koparrottur.
Gaula ykkur garnir í kviði,
grályndu mannfélags skottur?
Bjarni Andrésson.
VÍSUKORN
Það vill reyndar fólkið flest
— fjarsýnis á öldum
sjá og heyra Svavar Gests
sunnudags á kvöldum.
Leifur Auðunsson.
„AU PAIR"
vantar til Englands fljótfega.
Sknifið eftir uppk t/il G.
Agusts 56 Green Lane
Edgware, Middlesex, Eng-
Jand,
KEFLAVK — ATVINNA
Afgreiðslumaður ösikast
strax.
Stapafell hf.
TIL SÖLU
m áln ínga rsprauta, teíkn ilborð
og stóll og | ha. rafmótorar.
Til sýnis og sölu á Klappar-
stíg 16, 3. hæð t. h. kl. 1—7
í dag.
BROTAMALMUR
Kaupi allan brotamáim lang-
hæsta verði, staðgreiðsla.
Nóatúni 27, sími 2-58-91.
TIL SÖLU
4ra rása Grundig TK-24
segulbandstæíkii sem nýtt.
Verð 6 þúsund kr.
S»mi 13833.
TVEGGJA HERBERGJA IBÚÐ
til sölu á Austurbrún nr. 2
á móti suðri, 7. hæð. —
Sími 1-17-46.
GÓÐUR BlLL
Opel Kadett, mjög fltið ek-
ínn, sem nýr. Gæti selzt gegn
vel tryggðu skuldaibréfi ti'l
2ja ára. Uppl. í s. 32651 e.
kl. 17 og e.ih. laugardag.
A næstunni fenna skip vor
til Islands, sem hér segir:
ANTWERPEN:
Tungufoss 23. marz
Skógatfoss 8. apríl
Tungufoss 18. apríl *
ROTTERDAM:
Reykjafoss 26. marz
Fja Hfoss 2. apríl *
Skógafoss 9. apríl
Reykjafoss 16. apríl
Fjallfoss 23. apríl *
FELIXSTOWE/LONDON:
Skógafoss 20. marz
Reykjafoss 28. marz
Fjallfoss 3. apríl *
Skógafoss 10. aprh
Reykjafoss 17. april
Fjalffoss 24. apríl *
HAMBORG:
Skógafoss 24. marz
Reykjafoss 31. marz
Fjallfoss 7. apríl *
Skógafoss 14. apríl
Reykjafoss 21. apríl
Fjallfoss 28. apríl *
NORFOLK:
Brúarfoss 24. marz
Selfoss 9. apríl
Hofsjökull 23. apríl
WESTON
POINT/LIVERPOOL:
Tungufoss 24. marz
Tunguifoss 15. apríl *
HULL:
GÚSTAF A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmaSur
Laufásvegi 8. — Sfmi 11171.
Bezt að auglýsa
í Morgunblaðinu
Allt á sama stað.
BIFREIÐASALA
EGILS
Notaðar bifreiðar
til sólu:
Singer Vogue '63
Hilliman statiion '66
HiHman IMP '67
Taunus 17 M '65 og '67
Cortina '64 og '66
Zephyr 4 '66 é góðu verði
Ford Anglia '60
Austin A 40 '60
Skoda 1000 MB '67
Saaib '63
Vauxhall Victor '63
Vauxhall Velox '63
Ohevrolet '55 og '60
Wiltys jeep '46, '65 og '66
Toyota jeppi '66
Mosikwitch '65
Opel Record '64
Mercedes-Benz 220 '60.
[gili Vílhjálmsson hf.
Laugaveg 116.
Sími 22240.
Inngangur úr porti
og frá Rauðarárstíg.
Tungufoss 31. marz 1
r Tungufoss 20. apríl * ’
LEITH:
Tungufoss 2. apníl
1 Gulífoss 10. apríl .
Gullfoss 27. apríl
KAUPMANNAHÖFN:
Gullfoss 20. mairz .
, Elisabetih Hentzer 4. apr. * 1
Gullfoss 8. apríl
Skip 17. apríl
» Gullfoss 25. apríl (
r GAUTAPORG:
Cathrina 6. apnil *
sikip 16. apríl ,
; KRISTIANSAND:
Elisaib'etih Hentzer 7. apr. *
skip 20. apríl
, GDYNIA / GDANSK: J
' Elisabeth Hentzer 1. april
KOTKA:
Laxfoss 6. apríl
- VENTSPILS: I
Laxíoss um 18. apríl.
Skip, sem ekki iru merkt ‘
. með stjörnu !osa aðeins í
Rvík.
, * Skipið iosair í Rvík, Vest- “
' maonaeyjum, Isafi.rð'i, Ak-
ureyri og Húsavík.
J >
M_______
-ac- ^ig. ~3el
Fjaðrir, fjaðrablöð, hljóðkútar,
púströr og fleiri varahlutir
í margar gerðir bifreiða.
Bilavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168. — Sími 24180. .
Gdðor vörur - Tryggð verðbréf
Vil selja góðan vörulager gegn greiðslu með tryggum verð-
bréfum.
Þeir, sem hafa áhuga á þessum viðskiptum leggi nöfn sín
inn á afg. Mbl. sem fyrst merkt: „Góðar vörur — 426".