Morgunblaðið - 20.03.1970, Síða 11

Morgunblaðið - 20.03.1970, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1970 11 Skarphéðinn Jóhanns son arkítekt - Minning Skammt hefir verið stórra högga milli í ungri sveit ís- lenzkra arkitekta. Hinn „slyngi sláttumaður“ hefir látið þar til sín taka í ríkum mæli, — og nú síðast er Skarphéðinn Jóhanns- son einn af kunnustu arkitekt- um landsins, lézt á miðjum aldri, og á því skeiði, þegar þroski og reynzla starfsáranna höfðu fast mótað persónuleika hans og hæfni í því hlutverki, er hann hafði kosið að ævistarfi. Með sviplegum og skyndileg- um hætti hefir íslenzk þjóð misst um aldur fram mikilhæfan lista- mann á sviði byggingarlistar. Það, sem eftir hann liggur í byggingarmálum, ber vitni um hæfileika og snilli, og erfitt að sætta sig við þá staðreynd að honum skyldi ekki endast aldur til þess að takast á við mörg óleyst verkefni er biðu hans. En enginn fær sköpum ráðið, og stórt skarð er fyrir skildi við fráfall Skarphéðins Jóhannsson- ar arkitekts. Skarphéðinn lézt hinn 13. þessa miánaðar. Hann var fæddur hér í bæ 7. apríl 1914, og því nær 56 ára að aldri er hann var kvadd- ur burtu. Foreldrar hans voru Jóhanm Ögmu'ndur Oddsson kaup maður og komia hans Sigríður Halldórsdóttir. Snemimia á æskuáruim bar á ríkuim hagleiiksgáfuim hjá Skarp- héðni. Þegar aldur var til lærði hamn húsgiagmasimíði, en í fram- haldi þeisis innritaðisit hanm í List- iðmaðarskólainm í Kaupmamma- höfn. Þáðam lauk harun prófi með miklum ágætum árið 1937. Eftir noikkuð starf sem húsigagnaarki- tekt inmritaðisit hanm á Listaihá- skólamin og lauk þaðam fullnaðar- prófi sem arkitekt árið 1949. Einn keminara hans á þeim skóla, var himn víðfrætgi damski arki- tekt Kaiare Klint. Eftir próf starfaði Skarphéðinn um tveggja ára Skeið á teiknistofu þessa keminiara síns, sem valið hafði hann öðruim fremur til starfa, og mun fljótlega hafa séð sikapamdi og listræma hæfileiba himis umga íslendings meðam hann var vi® nám í Listaihásfcólanum. Þanmig hafði Skarphéðinm afl- að sér hinnar haldbeztu mennt- uniar og þjálfuniar, sem völ var á til þeisis að takasit á við þau verkefni, sem hugur hans allur stóð til, og hæfileikar buðu. Að lokinni skólagönigu og starfi í Kaupmannahöfn hélt hann til Ítalíu, og dvaldi þar í landi list- amna- um eimis árs skeið, til þess enn að víkfca sjóndeildarhring- inn í því, sem átti eftir að verða lífsistarf hans. Fyrstu starfsárin heima vann hann með Gunnlaugi Halldórs- syni arkitekt, en rak síðan eig- in teiknistofu. Eitt fyrsta sjálfstæða verkefni hans var stórbygging fyrir Mjólkurbú Flóamanna að Sel- fossi. Framkvæmdir þær eru til mikillar fyrirmyndar, og hlutur arkitektsins slíkur, að halda mun á lofti nafni hans, þótt engu öðru væri til að dreifa. Frá hendi Skarphéðins eru einnig komin fjölmörg íbúðar- hús, athyglisverð og vel unnin. Listrænir hæfileikar hans voru óumdeilanlegir, en ekki síður nákvæmni hans og natni við hvert verkefni er honum var falið. Hin síðari ár voru skólabygg- ingar eitt aðal verkefni Skarp- héðins. Má þar nefna Hagaskól- ann í Reykjavík, Réttarholtsskól ann, Raunvísindadeild Háskól- ans, Verkfræðideild Háskól- ans (frumdrög), Nýbyggingu Menntaskólans í Reykjavík og Akureyri, og Menntaskólann við Hamrahlíð. Aðrar byggingar í Reykjavík má einnig nefna, svo sem Vöggustofu Thorvaldsensfé- lagsins, Vistheimilið við Dal- braut, Rannsóknarstofnun bygg ingariðnaðarins á Keldnaholti og útibú Landsbanka íslands. í samkeppni um ýms verkefni hlaut Skarðhéðinn mörg verð- laun, og má þar nefna uppdrætti að kirkju í Ásprestakalli, Leik- skóla- og dagheimili í Reykja- vík og nú síðast fyrir uppdrætti að Seðlabanka íslands. Félagi hans að þessum þrem verkefn- um, og samstarfsmaður um langt skeið, var mágur hans Guðmund- ur Kr. Guðmundsson arkitekt. Með öðrum arkitektum starfaði Skarphéðinn einnig að úrlausn nokkurra meiriháttar bygginga, og má þar til nefna m.a. frum- teikningar að nýju Stjórnarráðs húsi í Reykjavík. Af íslands hálfu var hann val inn til þess að teikna, ásamt ein- um arkitekt frá hverju hinna Norðurlandanna, sýningarskála Norðurlanda á heimssýningunni í Montreal, er mikla athygli vakti, og hrós fyrir hugkvæmni og listræna samræmingu í upp- byggingu og efnismeðferð. Hef- ir Skarphéðinn einnig hér á landi stjórnað og séð um fyrir- komulag á ýmsum sýningum, og ber þar hæzt Iðnsýninguna 1952, er var sérstaklega vel skipu- lögð. f stórum dráttum var starfs- saga Skarphéðins Jóhannssonar þannig er hann féll frá, og átti þó margt ógert hefði honum enzt aldur. Segja má að hér sé um ærið lífsstarf að ræða og fáum falli í hlut á tiltölulega skammri ævi, að eiga að baki jafn merk- an feril og farsælan í bygging- armálum þjóðar sinnar. Sakir hæfileika og mannkosta fékk Skarphéðinn óvenju mörg og mik il verkefni til úrlausnar og full- nægingu í því, að verk hans voru metin að verðleikum. Skarphéðinn Jóhannsson var í einkalífi sínu lánsamur maður. Hann var heill og drenglundað- ur, gæddur næmu fegurðarskyni og þoldi ekki smekkleysur í hvaða mynd sem birtust. Heimilislíf hans var til fyrir- myndar. Fjölskyldu sinni fórn- aði hann flestum stundum er af- gangs voru erilsömu starfi, og fáa vissi ég betri félaga en hann var þremur efnilegum börnum sínum. Beztur og traustastur lífsföru nautur og félagi hans var þó eig inkona hans, Kristín Guðmunds dóttir híbýlafræðingur, er nú á um sárt að binda við fráfall ást kærs eiginmanns. Áhugamál þeirra í lífinu voru samtvinnuð og hugðarefn- in hin sömu. f starfi var frú Kristín mikil stoð manns síns, og þegar mest á reyndi í erfiðri sjúkdómslegu hans, er á skömm- um tíma leiddi hann til dauða, sýndi hún þá hetjulund og kær- leika, er manni hennar hefir vafalaust verið mestur styrkur að í vonlausri baráttu. Mikill harmur er kveðinn að fjölskyldu Skarphéðins Jó- hannssonar og vinum. En harma- bót má það vera, að hjá nánum ástvinum eru aðeins góðar minn ingar um göfugan mann, sem um langa framtíð á eftir að lifa í því, sem hann hefir afrekað, — óbrotgjörnum sköpunarverkum fagurrar byggingarlistar. Hörður Bjarnason. Skarphéðinn Jóhannsson er látinn. Á stundu sem þessari er manni stirt um stef og erfitt reynist að festa hugsanir og myndir um lát inn vin á blað. Sagt er, að þeir, sem skrifa minningargreinar, skrifi um sjálfa sig, Fram hjá þeim boðum kemst ég sennilega ekki, en í öllum okkar viðhorfum tökum við mið af okkur sjálfum. Sem vegvilltur stúdent gekk ég fyrst til fundar við Héðin, eins og hann var oft nefndur af vin- um. Ég leitaði ráða hans m.a. um námsval. Hann var í mínum aug- um hinn þroskaði og reyndi arkitekt, þá rétt að ljúka námi, með danska menningu og fágað- an smekk upp á vasann. Sex árum síðar réðst ég til starfa hjá honum. Vinnustaður- inn var óvenjulegur, jafnframt hans heimili. Ég varð því heim- ilisvinur þeirra hjóna, Skarphéð ins og Kristínar, næstu fjögur árin. Þessi nánu kynni af Héðni, sem arkitekt og heimilisföður, urðu til þess, að ég virti hann meira en aðra menn. Þar bar til hans umhyggja, sanngirni, höfð- ingsskapur og sjálfsögun ásamt miklum hæfileikum listamanns- ins. Hann var vel meðalmaður á hæð, þéttvaxinn, hægur í fasi, á stundum dulur, en í vinahópi gáskafullur og glaðvær, geymdi óvenjulegt skopskyn og átti frá sagnargleði meiri en almennt gerist. Æviferil Skarphéðins ætla ég ekki að rekja hér, vænti þess, að það geri mér ritfærari menn, en starfa hans sem arkitekts, lang- ar mig að geta að nokkru. Hann var frábær dráttlistar- maður og meðhöndlaði vatnsliti af kunnáttu. Hann fór dult með þessi verk sín. Víðtæk þekking hans á hlut- um, er sjónmennt snerta, urðu til þess að hann valdist, sem arkitekt, að mörgum sýningum hérlendis og erlendis. Má þar minnast Iðnsýningar í Reykja- vík 1952 og Landbúnaðarsýning ar, sama stað 1968: Hann var arkitekt. ásamt fleirum, að sýn- ingarskála Norðurlanda á heims sýningunni í Montreal 1968. Of langt mál yrði upp að telja öll þau hús, sem Skarphéðinn hef- ur staðið að sem arkitekt, hér skulu þó nokkur nefnd, svo sem Mjólkurbú Flóamanna, bygging- ar fyrir Menntaskólana í Reykja vík og Akureyri, barna og gagnfræðaskóla fyrir Reykja- víkurborg, leikskóla og dagheim ili fyrir sömu aðila og fjölda annarra bygginga. Hann hefur hlotið verðlaun í fjölda samkeppna um byggingar, en fæstar þeirra hugmynda hafa klæðzt steinsteypu, tré eða gleri Er þar okkar ungu stétt skaði aS. Ég ætla mér ekki það hlut- verk að meta hans afrek, til þess stend ég of nálægt honum í tíma og vináttu, en þegar saga bygg- ingarlistar hér á landi síðustu tvo áratugi verður skráð, ætla ég, að þáttur hans reynist einna stærstur. Honum var annt um starf sitt og gekk ógjarnan á mála við sjónarmið, sem hann taldi stríða gegn óskráðum lögmálum góðrar byggingarlistar. í hópi starfsfélaga var Héð- inn rrrikils metinn. Hann tók rík- en þátt í félaigailíifi Artkáitektaifé- lags fslands og var um skeið formaður þess. Allt frá fyrstu skrefum mín- um sem arkitekts skulda ég hon um þakkir fyrir vináttu og leið- sögn og minnist hans að leiðar- lokum með virðingu og trega. Ég bið Kristínu og börnunum blessunar. Manfreð Vilhjálmsson. ÞAÐ er með döpruim huiga, að ég skriifa þessi kveðjiuiorð til viin- ar miíras. Þó akal ekki dvalið við hið sorglega. Sl'íkt hefði varið honiuim sáálfum fjainri skapi. Ég vil þess vegn'a fremiur miimraasit samivista í gleðii og samigbairfi með þessu l'júfmieranii og húmor- iista. í gtarfi var horaum mikii vairad- virkrui í blóð borin. Hainin var í eðlli síniu penfektionisti. Þetta haíðii að sjálifsöigðiu í för með sér mikla vjrarau._ Mumu þaiu og haf*a verið færri kvöld'in, sem ekki var uranið fram eftir á teifcni- stofuinini en hiiin sem hvíldar vair raotáð. Bera verk haras þessia eðl- ishábtar glögg merká. Ég raauit þeinra forrébtimda að vinina alllmiikið með honium um 14 ára skeið bæði hér hekraa og erleradás. Var einikum um að ræða ýmsa þætti iaradkynmlinigar, svo og sýninigu á ísl. afurðum. Átti hanin drjúigan þátt í að lagigja gruindvölll að þessard starf semi af okkar hálfu, 'með l'ist- feragi gírau og hugfkværrarai. Á hvíldarstundum uppi á fjöffl um eða við veiðiiskaip va-r það ekki sízt hin góðl’átlega, en þó ofbast miairkvisBa kímind, sem réð rikjum og voru fáiir miaran gðiaðari og re.ifa.Ti en hann.. Hairan hafði miiikið ynidS af að vera úti í niáttiúruran'i, þótt haran l'eyfði sér sj*aMian siíkan munað. Má segja, að hanin hafi haiflt meœri ánægju af landslaginu gróðniraum, fugl- . uiraum og f iskuraum, og þá fremur í ánni en á þakkaraum, hefduir en veiðiskapraum sem slíkum. Dró haran okkur veiðifélaga síma þá sturad'um raauðuiga vilj- uga frá eiinihverjum veiðistaðn- um, því að horaum þótti önirauir uradur náttúruramair merkiliegri. Síðustu ferðiraa fónum við í sept. ál. í góðum félagsskap tiil Siluragsveiða austiuir í Laradþrot og nuitum hvíldar og áraægju í hiniu faigra umlhvertfi. Fáum dög- um síðar l'agði hanin í síraa síð- usbu för, þótt það værli ekki vibað þá. Sfcarphéðinn tók veikiiradum sáinium með æðrulieysi og karl- meniniSku. Má um haran haÆa orð Hávamiála, að haran vaeri glað- ur og rei'fur til hiinzitiu sturadair. Ég og máirair samlhryggjumist eftirláifaindi korau hams, sem sýnt hefur fádæma þrek í þessium rauraum, svo og bornunum. Þótt við syngjum gebuim við þó líka glaðzit yfir því lánii að haifa átt samil'eið með ágæiÉismaniniraum Skarphéðrai Jóharanssiyni. Már Elísson. Kveðja frá Lionsklúbbnum Ægi Á útfarardegi þínum, kæri Skarðhéðinn, þykir víst flestum nokkuð seint að svarað sé bréfi þínu til mín og Lionsfélaga þinna frá sjúkrabeði í Ameríku 27.2 s.l. En svo undurskjótt og óvænt gerðust válegir atburðir að svar bréfið var ópóstlagt, þegar þú komst heim dauðvona. í bréfi þínu leyndi sér ekki að hverju stefndi og heldur ekki að þú varst ákveðinn að berjast eins og ljón fyrir lífi þínu unz yfir lyki. Allt frá því þú kenndir þér fyrst meins í sept. s.l. og til hinztu stundar sýndir þú á ógleymanlegan hátt, hve hetju- lega og æðrulaust, hægt er að berjast við miskunnarlaus örlög, sem ekki verða umflúin. Eftir komu þína í Lionskl. ÆGI má segja að straumhvörf verði í skipulags og bygginga- málum Sólheima í Grímsnesi. — Þar tókst þér að sameina gam- alt og nýtt með þeim hætti, að vakið hefir óskipta athygli og aðdáun allra þeirra, er séð hafa. í þessu sambandi mætti minn- ast á heimsókn erlendra gesta úr alþjóðastjórn Lions, sem ferðast hafa um hnöttinn og séð ánægju leg og árangursrík verkefni víðs vegar. Starfsemin að Sólheimum og byggingar þær, sem þú hefir teiknað og skipulagt þar eystra töldu þeir samt eitt af því, sem skæri sig úr og ekki gleymdist. Ferðirnar austur voru ófáar og þér ávallt kærkomnar. Þú að vísu störfum hlaðinn og máttir varla vera að líta upp frá teikni borðinu og hvers konar vanda- sömum verkefnum. Viðkvæðið sífellt það sama: „Ég má til að koma með“ eða „frestið ykkur til kl. 5, þá kemst ég“. Alls þessa er gott að minnast. Þegar byggingaframkvæmdir stóðu sem hæst þar eystra fór þín ágæta eiginkona marga ferð ina austur með þér og tók þátt í verkefnum þínum þar af miklum áhuga. Reikningarnir fyrir störf þín að Sólheimum voru aldrei skrif- aðir, enginn víxill, enginn gjald dagr, allt sjálfsagt, allt ókeyp- is! Það var þér líkt, þegar líkn- armálefni áttu í hlut. Okkar árlega fjáröflunar- kvöld vair 5. miairz sl. Af því til- efni skrifaðir þú bréfið og fannst þér slæmt að geta ekki mætt þar eins og venjulega með sveit góðra vina. „Mínir menn mæta“. Það var þín hinzta dags- skipun til þeirra og okkar. Og hún var gefin, þegar þú varst heltekinn og áttir afleins fáa daga ólifaða. Einnig mjög tákn- rænt fyrir þig. Það gleymist heldur ekki, hve maður regluseminnar (sem hvorki bragðaði vín né tóbak), maður hlédrægni, hógværðar og prúðmennsku — gat alltaf verið manna glaðastur á góðri stund, fyndinn og hnittinn, svo að leiftrandi brandarar þínir flugu og geisluðu frá sér hlátri og glaðværð. Þannig varst þú. Já, kæri Héðinn. Þeir eru margir, sem eru þakklátir fyrir að hafa átt samleið með slíkum dreng sem þér. Og síðasta verk- efni þitt að Sólheimum var vissu lega táknrænt: Sólverönd —• stór og skjólgóð. Með lífi þínu hefir þú varpað mörgum hlýjum og björtum sól- argeislum á þá vegarspotta, sem ótal menn hafa átt með þér sam- leið um. Þess vegna engar harma tölur, þrátt fyrir allt, aðeins þakkir fyrir ánægjulega sam- fylgd, sem engum gleymist er þér kynntist og engin vildi hafa án verið. Að vísu gaztu á stundum ver ið kröfuharður, því fúsk og kæruleysi var aldrei þoiað í þinni návist, en það gleymist heldur ekki að fyrst og síðast gerðir þú miklar kröfur til þín sjálfs — og þess vegna reistirðu þér marga óbrotgjarna minnis- varða, sem vitna betur um Skarp héðin Jóhannsson en gert verð- ur með orðum. Þinni ágætu konu, Kristínu Guðmundsdóttur, sem stóð við hlið þér, sem sönn hetja í þinni þungu sjúkdómsraun til hinztu stundar, vottum við djúpa samúð og börnunum þínum ungu, sem hljóta að erfðum óvenjulega mannkosti, svo og öllum nákomn um ættingjum ykkar hjóna, send um við samúðarkveðjur, hugheil ar hjartanlegar samúðarkveðjur. f.h. Lionsklúbbsins ÆGIS Guðm. Guðmundsson. Skarphéðinn Jóhannsson arki- tekt lézt í Landspitalanum 13. þ.m. Hann fæddist hér íReykja- vík 7. april 1914. Foreldrar Skarphéðins voru hjónin Jó- hann Ögm. Oddsson fram- kvæmdastjóri og Sigríður Hall- dórsdóttir. Þau voru bæði Ár- nesingar að ætt, Jóhann frá Oddgeirshólum en Sigríður fædd í Stokkseyrarseli. Skarp- héðinn átti því til Árnesinga að telja í báðar ættir. Þau Sigríð- ur og Jóhann eignuðust sjö börn, en eitt misstu þau í frum- bernsku, hin komust upp og eru nú aðeins tvö þeirra á lífi Sig- urður Kári fiskimatsmaður Sandgerði og Bergþóra frú í Reykjavík. Uragiuir réð<gt Skarphéðiran tifi náms í húsgagnasmíði hjá Lofti Sigurðssyni húsgagnameistara sem þá rak húsgagnavinnustofu hér í bænum. Eftir að hann lauk Framliald á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.