Morgunblaðið - 20.03.1970, Side 21

Morgunblaðið - 20.03.1970, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1070 21 — Árni G. Framhald af bls. 13 og breyttar aðstæður valda þar nokkru um, en engin rit sam- bærileg hafa leyst þau af hólmi, enn sem komið er, og ekki nær nokkurri átt að telja þau úrelt fræði. Einnig vill svo vel til, að Ó.J. hefir síðar og eigi fyr- ir löngu tekið svo skörulega til máls um ræktunarmálin, að ekki er um að villast. Á ég þar fyrst og fremst við greinar hans tvær í Ársriti Rfl. NL. 1964: Ræktun á villigötum og Notkun köfnun- arefnisáburðar. Þótt í greinum þessum sé fátt rætt um forrækt- un og beina þýðingu hennar, og jafnvel þótt höfundurinn játi hreinlega að hún hafi oft gef- ist miður vel (mest fyrir mis- tök og skort á ræktunarleikni og þekkingu), ber mikið á milli margs af því sem þar er skýr- ast sagt og hinna nýju fræða og áramótaboðskapar í Frey: að allt tal og öll skrif um forræktun og snöggsoðna ræktun, sé mis- skilningur og „úrelt fræði“. Ég fæ ekki betur séð, en að með hinum tilgreindum ummælum J.J. í Frey sé reynt að slá striki yfir æði margt af því sem Ó.J. hefir ritað bezt og rökfastast um ný- rækt og ræktunarmál. Nefni nokkur dæmi: „Not nýræktunarinnar af for- rækt gætu verið tvenns konar: í fyrsta lagi myldun jarðvegs- ins og í öðru lagi aukning frjó- efnaforðans vegna þess, er for- ræktin skilur eftir í landinu.“ (1948). „Segja má, að mestöll nýrækt okkar sé léleg yfirborðsræktun og liggja til þess tvær megin- ástæður. Mikið af nýræktar- landi okkar er mjög tyrfið, en mýramar þó sérstaklega. Skyndi vinnsla sú, sem hér er allsráð- andi, hefur sáralítil áhrif á rotn un og ummyndun torfsins. Jarð- vegurinn heldur áfram að vera tyrfinn eftir að honum hefur verið lokað með grasfræsáningu, gefur ekki frjómagn sitt til gróð ursins og nýtir illa þann áburð, sem á hann er borinn, því rótar kerfi jurtanna þroskast illa, verð ur grunnstætt og viðkvæmt fyr- ir áhrifum veðurfarsins. Jarð- vegur í þessu ásigkomulagi á ekkert skylt við fullunninn jarð veg —“ (1964). „— það ætti að vera auðskil- ið hverjum hugsandi manni, að með þeim ræktunaraðferðum, sem hér eru allsráðandi, verður ekki óræktarjörð breytt í það horf að verðskuldi nafnið rækt- un.“ (1964). „Mikill hluti af nýræktun okk ar er einungis hálfræktun eða ekki það. Yfirborð þeirra hefur að vísu verið jafnað og tætt en svo lokað með grasfræsán- ingu jafnskjótt aftur, svo gras- svörðurinn er ekkert annað en ólseigt torf. Gróðurmold, í þess orðs réttu merkingu, fyrirfinnst ekki. Víða er því vafalaust end- urræktun þessara nýrækta miklu meira bagsmunamál held ur en aukning þeirra. (Undir- strikun mín, Á.G.E.). Það er ekki líklegt, að rætur jurtanna sæki djúpt til fanga í þennan reiðing, eða á áburður- inn dreifist vel um hann. Hvort tveggja sezt að í blá yfirborð- inu. Rótarkerfi jurtanna verður því of lítið og grunnstætt, vaxt- arrýmið of lítið og vöxturinn eft ir því. Auk þess verður slíkur gróður mjög viðkvæmur fyrir veðurfarslegum áhrifum og kal hætt.“ (1964). Allt virðist þetta vera meira eða minna „úrelt fræði“, ef marka skal hinn stóra dóm í Frey í jan. 1970. Engin reynsla og „ekki neitt, sem bendir til þess að betri tún fáist ef land er unnið fleiri ár áður en sáð er til túms.“ — „ — að ræktun okkar sé of snöggsoðin------hef ur alls' ekki við að styðjast," slíkt eru „úrelt fræði.“ — Og ekki nóg með það, þessu er öf- ugt farið, „— það reynist því miður þeim mun erfiðara að fá grasið til að ná fótfestu og var anleika, sem oftar hefur verið sáð í landið og því umbylt.“ Þótt ég láti mér ekki til hug- ar koma, að þeir ágallar rækt- unarinnar, sem J.Ó. bendir greinilegast á, verði bættir með því einu að taka upp og iðka heppilega og góða forræktun, ætti það einnig að vera fullljóst hverjum, sem vill hugsa og ræða um ræktunarmál af þekkingu og sanngirni, að forræktun í ein- hverri mynd og með einhverjum hætti hlýtur að verða eitt af því sem að haldi kemur, er bæta skal ræktunarhættina og rækt- unina. Annað er óhugsandi. Hér stoða engin stóryrði um „úrelt fræði.“ Þótt það sé óskylt efni, get ég ekki látið hjá líða, er Ólafur Jónsson flýtur yfir á fjórða ald arfjórðung æfi sinnar, rétt um það leyti, er grein þessi birtist, að minna um ritverk hans nokk ur og önnur, sem ekki snerta jarðræktina, en eigi eru síður gagnmerk. Ef til vill merkust um það, að tilraunamaður störf- um hlaðinn skuli hafa unnið slík verk í tómstundum sínum, oftast fáum og strjálum. Nægir að nefna bækurnar um ódáðahraun þrjú bindi, 1945, og hið mikla yfirlitsverk í tveimur bindum stórum: Skriðuföll og Snjóflóð, 1957. Ein skáldsaga og ein ljóðabók varpar líka skemmtilegum blæ- brigðum á starfið og tilveruna. Og ekki má gleyma fjörkippun- um er fjöllin kölluðu, eins og t.d. hinu ágæta riti: Dyngjufjöll og Askja, 1962. Tvær eða þrjár umfangsmiklar tilraunaskýrslur um búfjárrækt læt ég ónefndar. Fyrir þetta allt þakka ég og fjöldi manna og kvenna um land allt, sem ólumst upp við útilegu mannatrú og heima-fræði, Ólafi Jónssyni, eigi síður en fyrirjarð ræktarfróðleikinn. Þannig hefir hann af svo miklu að má, að þótt einhver taki sér fyrir hendur að „sanna“ að eitthvað af því sem hann hefur ritað um ræktunar- mál séu „úrelt fræði,“ nú orðið, þá vegur það smátt. — Síðasta orðið um úrelt fræði í íslenzkri túnrækt hefur enn eigi verið sagt. Arni G. ’Eylands. mm ÚRVAL \\ ÁKLÆSUM Acryl og ullgobitene frá Beigiu og mohairplep frá Hollandi. Nýtízku litir og munstur, mjög hagstætt verð. Selt aðeins þessa viku. HÚSGAGNABÓLSTRUNIN Njálsgötu 5, simi 13980. Hnrðplost — verðlækkun Við vorum að taka heim mikið úrval af hinu vinsæla italska PRINTPLAST i tveim gæðaflokkum, einlitt og mynstrað. 1. flokks gæðavara á lægsta verði. PÁLL ÞORGEIRSSON & CO., Armúla 27 — Sími 16412. Litið í sýningargluggana. Stúlka óskast til síma- og afgreiðslustarfa. Upplýsingar í síma 25035 kl. 9—11 í dag. Verksmiðjuhús T1I sölu eða leigu 340 ferm. nýlegt verksmiðjuhús við Trönu- hraun i Hafnarfirði. Tilvalið fyrir margskonar iðnað. , Hrafnkell Ásgeirsson, hdl., Strandgötu 1, Hafnarfirði. Sími 50318. Fermingarskór Ný sending í mörgum litum og gerðum. Inniskórnir margeftirspurðu komnir aftur- Athugið lægra verö vegna tolllækkunar. SKÓHORNIÐ, Hrísateig 47, sími 38770. Samkomusalur til leigu Hentugúr fyrir fermingarveizlur, árshátíðir, fundi og ráðstefnur. Heitur og kaldur matur, eða aðrar veitingar eftir því sem hentar hverju sinni, LAS VEGAS Grensásvegi 12 Símar 83590—84807. Verkfræðingar - tæknifræðingar Hafnamálastofnun rikisins vili ráða byggingaverkfræðinga eða byggingatæknifræðing til starfa við hönnun, eftirlit og stjórn verka. Skriflegum umsóknum þar sem gerð er grein fyrir menntun og starfsreynslu sé skilað til Hafnamálastofnunar ríkisins. Fostöðukona óskast að Elli- og dvalarheimilinu í Skjaldarvík frá 15. maí n.k, Æskilegt er að umsækjandi sé hjúkrunarkona eða hafi hlið- stæða menntun. Umsóknarfrestur er til 10. apríl n.k. Uppl. gefur forstöðumaður Jón Kristinsson í sima (96) 21640, Stjórn Elli- og dvalarheimilisins í Skjaldarvík. Verkakvennufélugið Frumsókn heldur aðalfund sunnudaginn 22. marz í Iðnó kl. 20.30 e.h.: Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Rætt um uppsögn samninga. 3. Önnur mál. Konur fjölmennið og sýnið skírteini við innganginn. Verkakvennafélagið Framsókn. 15% tækifæris- kaup til páska! Gefum 15% afslátt af sófasettum, svefn- bekkjum, kassabekkjum, kommóðum, stök- um stólum og mörgu fleiru gegn staðgreiðslu, til páska. Einnig hagkvæmir greiðslusklmálar! Yfir 100 litir ullar- og dralonáklæða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.