Morgunblaðið - 08.04.1970, Qupperneq 5
MOR.GUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1070
.Ai'vps. gg
Sýning á handunnum munum
f GÆR var opnuð farandsýn-
ing á handunnum munum, á
vegum Upplýsingaþjónustu
Bandaríkjanna. Er sýningin í
tveimur hlutum: annars veg-
ar gefur að líta muni sem
gerðir eru af íbúum Appal-
achian-fj allanna og hing veg-
ar muni sem indíánar frá hin
um ýmsu svæðum Bandaríkj-
anna hafa búið til.
Fjallabúar í, Appalachian
eru margir hverjir af skozk-
um og írskum uppruna og
margir þeirra hafa ekki aðr
ar beinar tekjur en þær sem
þeir fá fyrir handunna muni,
þá, sem eru til sýnis á sýn-
ingunni. Þar gefur m.a. á að
líta leikföng, leirmuni og
hljóðfæri og þess má geta að
eitt hljóðfærið á sýningunni
er náskylt íslenzka langspil-
inu.
Á þeim hluta sýningarinn-
ar sem helgaður er indíán-
uim eru m.a. sýnd handunnin
teppi, skartgripir, dúkkur,
fjaðraskraut indíánapils og
fleira.
Sýningin, sem er til húsa
í Ameríska bókasafninu,
Bændahöllinni við Hagatorg
verður opin frá 10—7 frá
mánudegi til föstudags næstu
þrjár vikumar.
Héðan fer sýningin til Lond
on.
Skákkeppni aldarinnar lokiö;
Sovétmenn hlutu 20%
vinning, heimsliðið 19%
SKÁKKEPPNI aldarinnar er
lokið með naumum sigri sovézku
st«rmeistaranna, er hlutu 20%
vinning gegn 19% vinningi
„heimsliðsins“ í Belgrad, Júgó-
slavíu. Keppni þessi vakti gífur
lea-a athygli í skákheiminum. Um
3000 manns fylgdust með skák
keppninni daglega og mörg
hundruð urðu frá að hverfa á
hverium degi, en úr því var
bætt með sýningarborðum á göt
um úti meðan skákimar stóðu
vfir. Síðustu umferðinni, sem var
tefld á laugardag og biðskákir á
sunnudag, lauk með jafntefli, 5
vinninaum gegn 5. Friðrik Ólafs
son. sem tefldi í síðustu umferð
inni fvrir Bandaríkjamanninn
Samuel Reshevsky, tapaði fyrir
fvrrverandi heimsmeistara Vass-
ily Smyslov á 6. borði. Úrslit
einstakra skáka í fjórðu og síð
ustu umferðinni urðu annars
þessi:
Á fyrsta borði vann Bent Lar
sen Leonid Stein, sem tók sæti
Jóhann Öm Sigurjónsson,
hraðskákmeistari 1970.
heimsmeistarans Boris Spassky,
en Spassky veJktist. Larsen hlaut
því 2%—% á fyrsta borði. Tigr
an Petrosjan og Bobby Fischer
gerðu jafntetfli á öðru borði (1—
3). Á þriðja borði áttust við Laj
os Portiseh og Viktor Kortsnoi og
lauk þeirri viðureigin með jafn-
tefli, (2%—1%). í>á gerðlu Lev
Polugaevgky og Vlastimil Hort
jafntefli á fjórða borði, (1%—
2%). Á fjórum efstu borðunum
hlaut heiimisliðið því 10% vinn-
ing gegn 5% vinning Sovét-
manna, 6 vinn. 9 jafntefli og 1
tap! Svetozar Gligoric og Evfim
Geller gerðu jafntefli á fknmta
borði, (1%—2%). Smyslov vanr
Friðrik á sjötta borði, sem fyrr
greinir, (2%—1%). Wolfgang
Uhlmann vann Mark Taknanov
á sjöunda borði, (1%—2%). Mik
hael Botvinnik og Milan Matulo
vic gerðu jafntefli á áttund'a
borði, (2%—1%). Mikhael Tal
og Miguel Najdorf gerðu jafn-
tefli ,á níunda borði, (2—2) og
Paul Keres vann Boris Ivkov
Hraöskákmót íslands 1970:
Jóhann Örn varð
hraðskákmeistari
JÓHANN Örn Sigurjónsson varð
hraðakákmeistari íslands 1970.
Jóhann hlaut 13% vinning af 18
mögulegum í harðri keppni við
marga af beztu skákmönnum
landsins í Skáikheimilinu við
Gremsásveg sl. sunnudag. Björn
Þorsteinsson og Magnús Sól-
mundsson unðlu í 2.—3. sæti með
13 vinninga. Næstir komu þeir
á tíunda borði, (3—1).
Sovézka sveitin, með heims-
meistarann Spassky á 1. borði og
fjóra fyirv. heimsmeistara, Bot-
vinmilk, Smyslov, Tal og Petro-
sjan, voru fyrir keppnina álitnir
mun sigurstranglegri, en tölvur
út um heim spáðu sovézka lið-
inu sigri með þetta 21%—23
vinninga úr ákákunum 40. Út-
koma Sovétmanna á f jórum efstu
borðunum vekur þó hvað mesta
athygli; aðeins einn vinnimgur í
16 ákákum. Hver keppandi fær
400 bandaríska dollara fyrir vik
ið, eða tæpar 40 þús. kr. Þrír
keppenda frá hvorri sveit voru
taplaiusir í keppninni, en það
voru Sovétmennimir Geller, Bot
vinnik og Keres, en hjá heknislið
inu þeir Fischer, Portisdh og
Hort. — sg,
Frá sýningunni í Ameríska bókasafninu
fóðurblöndun kpgf un
Keres sigrar
í Budapest
SOVÉZKI stórmeistarinn Paul
Keres sigraði á mjög vel „mönn-
uðu“ Skákmóti í Budapest, sem
lauk nokkrum dögum áður en
keppni Sovétmanna og heimsliðs
ins hófst. Keres er sennilega
sterkasti skákmaður núlifandi,
sem ekki hefur hlotið heimsmeist
aratitil í skák. Hann hlaiut 10
vinninga (taplaus) af 15 mögu-
legum. Ungverski stónmieistar-
Szabo varð annar með 9 vinn-
inga. Ivkov, Júgóslavíu og Suet
in, Sovétríkjunum hlutu 8% vinn
ing hvor, en næstir komu Ung-
verjarnir Lengyel, Portisch og
Csom með 8 vinninga hver. f 8.
—12. sæti urðu þeir Averbakh,
Sovétríkjunum, Barczay, Ung-
verjal'andi, Gheorg'hiu, Rúmeníu,
Kholimov, Sovétríkjiunum og
Janisa, Tékkóslóvakíu með 7%
vinning hver. Fjórir aðrir kepp
endur hlutu færri vinninga. —
Keres, sem er nú 54 ára hefur áð
ur unnið stóra sigra í Budapest
en árið 1952 varð hann t.d. efst-
ur á stórmóti þar í borg fyrir
ofan stórmeistarana Botvinniik,
Smyslov, Geller og Petrosjan á
minningarmóti Maroczy.
Björn Theodórsson, Guðmundur
Pálmiason og Guðmundur Ágústs
son með 12% vinning 'hver, en 12
vinninga hlutu þeir Bragi Björns
son, Ingvar Ásmundsson og Ás-
geir Friðjónsson. Þátttakendur
voru 60 og teflt eftir Monrad-
kerfi, 2 skákir á 10 mímituim, alls
9 umferðir. — sg.
Hænsnaræktendur!
Af um 30 fegundum fóðurs, sem
eru nú ó fóðurvörulista okkar, eru
yfir 10 tegundir
HÆNSNAFÓÐUR!
FOÐUR
hver sem
framleiöslan
er...
jafn og
markviss
áranni ir
Það er og hefur verið kappsmét
M.R. að bjóða staðlaðar og
öruggar fóðurtegundir.
Hver sem framleiðslan er
— egg, kjöt eða lífkjúklingar —
þá getur M.R. boðið rétta fóðrið.
Notið M.R. fóður
og þáttur fóðurslns er tryggður.
• M.R. varpfóður
• M.R. varpfóður B
• Kögglað varpfóður, heilfóður
• Blandað hænsnakorn
• Maískurl • Bygg • Hveitikorn
líf-
kjúklingar
• Byrjunarfóður, mjöl
• Vaxtarfóður, kögglar
Blandað vífamínum og varnarmeðali við hníslasótt
* Staðlaðar tegundir *Vilamínblandaðar í iullkomnustu vélum * Efnagreiningarblað i hverjum poka
vour
grasfrœ
girðingirefni
holda-
kjúklingar
MJÓLKURFÉLAi
REYKJAVÍKUR