Morgunblaðið - 08.04.1970, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 08.04.1970, Blaðsíða 7
!MORjG-U<NBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 3OT0 7 d Fagurt syngur svanurinn um suonarlanga tíð, og stundum syngur danskurinn með kartöfl una uppi i sér þetta sígilda: „Nn skinner solen igen paa vor lille jord," og allt þetta vakti hjá mér gleðilegar minningar og sælar vonir um vor og sum- ar með sólskini, sunnanblæ og sumarhita, þegar maður gettir spókað sig úti á brókinni einni faía og þarf ekki einu sinni að lerðast til Mallorca til að fá brúnku á skrokkinn og hlusta á Sunnuútvarp á stuttbylgju. Allt er i heiminum hverfult, og nú geta þeir íslendingar, sem ekki heyra til islenzka útvarpsins þolanlega hér heima, einfald- lega lagt lönd undir fót, skeið- andi með Gullíaxa til Palma á MaJlorka, og hlustað þar með andakt á íslenzka útvarpið hans Guðna Þórðarsonar. Það held ég hann Villi, vinur allra ís- iendinga þar, verði hrrfinn. Já, það er nú karl í krapinu, hann Villi. Ég hitti mann í fyrradag, suð- ur í Kópavogi, gamlan þul, fræðaþul, sem tekur eftir ýmsu, og ég ýtti að honum þessari spurningu: Storkurinn: Er vorsins ennþá langt að bíða, vinur Krans? Maðurinn í Kópavogi: Nei alls ekki, því miðar hægt og hægt, en nú held ég það sér ör- ugglega komið langt á leið, mætti segja mér, það væri þegar komið. Ég sat hér í sólinni á sunnudag. Hafði ekkert annað mér til dundurs þá stundina, nema að horfa á veðurblíðuna. Og viti menn, við fætur mér sé ég koma alls kyns bjöllur upp úr jörðlnni. Það stóð reykjar- strókur uppúr jörðinni, rakinn var að hverfa, hitinn var allt um krinig, vorið var að koma, halda innreið sína, og hinar smáfættu lífverur i moldinni notuðu tækifærið til að bjóða góðan dag og teygja úr álkunni út í sólskinið og sunnamáttina Ég er ekki sérdeilis fróður um skordýr, en ég held þetta hljóti að hafa verið gullsmiðir mestanpart, a.m.k. skinu þeir i ails kyns ljóma. Suimir voru fjólubláir, aðrir guijnir, en upp vildu þeir til okkár islenzka vors. Það gegn ir allt öðru máli um blessaðar flugurnar. Þær fara á stjá, þeg ar hver vill, þegar loftihitinn er kcmninn upp yfir núllgráðuna, en dýrin, sem allan veturinn hafa lifað heðan moldar, koma ekki upp, fyrr en vorið er kom- ið, og guð gefi við fáum ekkert hret eftir þetta. Og ég tek undir bæn þina, vin ur minn Frans, og ég, eins og þú, finn það á mér, að vorið er komið, og ég hlakka til, ætli við hittumst ekki sdðar til að gleðja okkur saman yíir vorblíðunni, og með það var storkur flog- inn frá daprasta minnismerki landsins suður i Kópavogi, rétt við lækinn, um Kópavogsfund, þar sem þeir grétu Brynjólfur og Árni fyrir Henrik Bjálka, — og beint upp í heiðið hátt og söng við raust í „falsettiu": „Vorið er komið, og grnndirnar gróa, gilin og lækirnir fossa af brún, syngur í runni, og senn kemur lóa, svanur á tjarnir og þröstur í tún. Nú tekur hýma um hóima og sker, hreiðra sig blikinn og æðurin fer, hæðimar hrosa og hliðarnar dala, hóar þar smaii og rekur á ból, lömbin sér una um blómgaða hala, börnin sér ieika að skeljum á hól.“ VÍSUKORN Nálægt árinu 1880 bjó Jakob nokkur Aþanasíusson í Tungumúla á Barðaströnd, og mun þá hafa verið hreppstjóri þar í sveit. Þá hittust þeir, Símon Dalaskáld og hann og kváðu hver um annan. Símon kvað þetta: Jakob hcfur glaðvært geð, gáfna og mennta hraður, Ijóðasmiður, læknir með, Uka kvennamaður. Jakob svaraði með eftirfaraindi vísu: Símon skáld af brögnum ber, bragi smíðar hrönnum. í honum Breiðljörð annar er endurfæddur mönnum. (Úr Skuggsjá Arnar á Steðja) FRETTIR Kvennadeild Skagfirðingafélagsins Skemmtifundur í Lindarbæ uppi fimmtudaginn 7. april kl. 8.30. Spil að bingó. Sjálfstæðiskvennafélagið Edda, Kópavogi heldur bingó i Sjálfstæðisihúsinu við Borgarholtsbraut kl. 8.30 í kvöld. Ailir velkomnir. Félag austfirzkra kvenna heldur skemmtifund fimmtudag- inn 9. april að Hverfisgötu 21 kl. 8J0. SpiJað verður bin.gó. Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, kvennádeild Munið fundinn 9. april kl. 8.30. Systrafélag Ytri-Njarðvlkur heldur fund í Stapa í kvöld kl. 9. Kvenfélagið Keðjan Munið síðasta fund vetrarins fimmtudaginn 9. april kl. 8.30 að Bárugötu 11. Hafliði Jónsson garð yrkjustjóri sýnir litskuggamyndir og talar um garðyrkju. Spakmæli dagsins Það er litilsvert að svelta. Hitt skiptir miklu máli, ef maður yfir- gefur veg dyggðanna. — Kang Hsi fslenzk ull hefur mjög látið til sín taka í verzlunum á Vesterhro I Kaupmannahöfn að undanförnu. Það er Hulda Ragnar, sem hefur kynnt reykvíska tízku I Kaup- mannahöfn. Hún er forstöðukona isienzku verzlunarmiðstöðvarinn- ar þar, og segir, að mikið hafi selzt af hinnm sérstæðu ullarvörum, bæði „mini" og „maxi ', og herða- skjólum. Stúlkur i Skandinaviu nola hinar loðnn og hlýjn flíkur, sem Hulda hefur á boðstólum, til heimanotk- unar og vetrarferða. Lise Gry, sem sést hér á mynd- inni, reyndi þessar flíkur fyrir Berlingske Tidende, en þaðan feng um við myndina. — sagði á eftir, „að flikin væri létt sem fjöður og hlý sem pels." „Fengunt kjól- ono að lóni hjú mömmu" — Fyrstu'isl. karlmenn- irnir 6 dansleik í kjól- 5C- 5 -7 5/^Da/ 77 — Maroma var ekki heima, bara amma!! KAUPUM AlUMINtUM KÚLUR hæsta verði. Málmsteypa Amumda Sig- urössonar, Skiphotu 23. Sími 16812. BROTAMALMUR Kaupi ailan brotamálm lang- hæsta veröi, staðgreiðsla. Nóatúni 27, sími 2-58-91. Landgrœðslu- og nátfúruverndar- samtök Islands auglýsa Þau félög eða félagasamtök, sem hafa i hyggju að vinna að landgræðslu- og gróðurvernd með fræ og áburðardreyfingu eða á annan hátt á komandi sumri eru beðin að hafa sam- band við ritara samtakanna Ingva Þorsteinsson landgræðslu- fulltrúa hið fyrsta. LANDVERND, LANDGRÆÐSLU- OG NÁTTÚRUVERNDARSAMTÖK Islands Klapparstíg 16, Reykjavik. Aóalfundur Stýrimannafélags Islands verður haldinn fimmtudaginn 9. april n.k. að Hallveigarstöðum við Túngötu og hefst kl. 20 30. DAGSKRA FUNDARINS: 1. Venjitleg Eðalfimdarstörf. 2. Talning atkvæða úr yfirstandandi kosningum. 3. Uppsögn kjarasamntnga. 4. Önnur mál. Þeir félagar, sem ekki hafa skilað atkvæðum, eru áminntir um að gera það sem fyrst. STJÓRNIN. Bólstrarar LEÐURLlKIÐ VINSÆLA. og nýkomið í miklu litaúrvali. Heildsölubirgðir: Davíð S. Jónsson & Co. hf. Sími 24-333 Höfuð- og heyrnarhlífar VIÐURKENNDAR AF ÖRYGGISEFTIRLITI RlKISINS. HEYRNARHLÍFAR HLiFÐARHJÁLMUR Verð mjög hagstœtt HEILDSALA — SMASALA. DYNJANDI sf. SKEIFUNNI 3 — SlMI 82670.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.