Morgunblaðið - 08.04.1970, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1070
GEORGES SIMENON:
EINKENNILEGUR
ARFUR
Ef svo er, ætla ég að komast í
rúmið aftur.
Honum tókst að setja upp
máttleysislegt bros.
— Já, það er allt í lagi. Afsak
ið þetta ónæði.
Jafnskjótt sem hún var farin
út, þaut hann út að glugganum.
Bíllinn var þama enn og ljós-
laus. Manninum hafði ekki unn
izt tími til að forða sér. Vafa-
laust var hann í felum í ein-
hverju horninu — kannski í her-
bergi Colette, að bíða eftir því
að Gilles væri sofnaður aftur.
— Það er annar lykill í
Frakklandsbanka, heyrði hann
sjálfan sig segja upphátt.
Svo endurtók hann nokkrum
sinnum:
— Hvers vegna, hvers vegna,
hvers vegna?
Hann var lítið betri nú en
nóttina sælu, þegar hann drakk
sig fullan hjá Plantel. Það var
rétt, að hann gat stillt sig um
að fara að gráta.
— Hér skal ég standa við
gluggann í alla nótt, ef þörf
krefur. Ég verð að sjá hann. Ég
verð að vita, hver hann er.
En hann sá hann nú samt
ekki. Þegar hann vaknaði um
morguninn, lá hann í rúminu, en
þangað hafði hann skriðið, úr-
vinda af þreytu.
Hver á fætur öðrum, tíndust
Mauvoisin-bílarnir út griðastað
sínum, út í morgunkuldann út á
Úrsúlínabryggjuna, en bíll næt-
urgestsins var hins vegar horf-
inn þaðan.
rv.
Þennan dag gerðist ekkert
það, sem hægt væri að telja mik
ilvægt. En væru allir atburðir
lagðir saman, boðuðu þeir samt
það, sem hefði mátt kalla merkis
dag í sögu Gilles Mauvoisin.
Frá fyrstu byrjun höfðu verið
ýmsar bendingar — þessi litlu
smáatriði, sem okkur gengur illa
að skilja, og við tökum ekki eft-
ir fyrr en við lítum um öxl og
neyðumst til að viðurkenna, að
þau hefðu verið fyrirboðar.
Þó ekki væri nema bara veðrið
— gruggað og ullarkennt. Heill
heimur af hvítum og gráum lit,
þar sem öll hljóð, ekki sízt skipa
flauturnar, voru óvenju skörp,
jafnvel skerandi. Gilles minntist
Þrándheims og allra hinna norð-
lægu borganna, þegar hann
vaknaði í litlu gistihúsi — alltaf
nýju, en þó voru þau öll eins.
Og þegar hann leit í spegilinn
með svarta og gyllta rammanum
var hann kinnfiskasognari og
andlitið allt kantaðra, en næstu
dagana á undan. Hann hafði
losnað við kvefið. En þreytan
eftir þessa óróanótt, og sú til-
finning, að hann væri á reki fót-
festulaus í einhverjum framand-
legum heimi — allt þetta var gef
ið til kynna af guggnu yfirliti
hans, nefinu og vörunum, sem
var orðið einhvern veginn skarp
H agfrœðingur
AUGLÝSIR EFTIR STARFI.
Til greina koma hvers konar ráðgjafastörf, sem flokkast undir
hagræðingarstarfsemi, svo sem við áætianagerð. stjórnun,
skipulagningu vinnustaða og verka, hönnun eyðublaða, launa-
kerfi o. fl. Hugsanlegt væri að taka til úrlausnar einstök
afmörkuð verkefni.
Tilboð sendist Mbl. merkt: ,,2767".
0
H
I □
carmen
með carmen
Carmen töfrar lagningu í hár yðar á 10 mínútum.
Hárið verðurfrísklegra og lagningin helzt betur með
Carmen. Sendum í póstkröfu hvert á land sem er.
Klapparstíg 26, sími 19800, Rvk.
n og Brekkugötu 9, Akureyri, sími 21630.
0
ara og bláu dilunum tveimur
undir hálflokuðum augnlokum.
Sönnun þess, að eitthvað væri
orðið breytt, var það, að hann
opnaði gömlu ferðatöskuna sína
— síðan hafði hann fengið tvær
nýjar, til þess að koma fyrir
öllu nýja dótinu sínu — og tók
upp persónulega muni sína, eins
og hann hafði svo oft gert í fram
andi herbergjum, og stakk
nokkrum myndum í spegilramm-
ann. Súkkulaðikassi, sem mamma
hans hafði gefið honum, endur
fyrir löngu, og nú var notaður
undir bindi, var lagður á komm-
óðuna, ásamt öðru fleira, svo
sem austurlenzkum trefli, sem
hann hafði keypt af kínversk-
um trúði . . .
XVII
Umheimurinn hvarf honum.
Húsið við Úrsúlínabryggjuna
leystist upp, svo að ekki varð
annað eftir en þetta eina her-
bergi, og Gilles í því, aleinn. La
Rochelle var ekki annað en
landslag, með gluggann fyrir
umgerð — stúfur af skurði, ann
ar af bryggju, turnarnir tveir í
fjarska, sem gættu innsiglingar-
innar, og svo til vinstri glugg-
inn, sem Colette átti, og ekki
var enn búið að taka hlerana
frá.
Hann kafroðnaði þegar Ger-
ardine frænka ruddist allt í
einu inn' í herbergið og þó enn
meir, þegar hún leit á hann ásak
andi augum.
— Þú hefur haft herbergja-
skipti?
Varimar á Gilles kipruðust of
urlítið, eins og á feimnum manni
sem hefur allt í einu tekið
ákvörðun. Hann reyndi að gera
röddina eins kæruleysislega og
hann gat. En jafnframt vildi
hann reyna að sýnast ósveigjan-
legur.
— Já, sagði hann, — ég kann
betur við þetta herbergi, og ætla
svo að útbúa það eftir mínum
eigin smekk.
— Já, en . . . ég er búin að
hringja til Bobs og biðja hann
að koma heim frá París. Hann á
kunningja, sem er sérfræðingur í
Munið apríl
söluskránna.
*
Hringið og við
sendum yður hano
cndurgjaldslaust
í pósti
FASTEIGIMA-
PJÓNUSTAN
Austurstrœti 17 (SIIIÍ & Valdij 3. hœð
Sími 2 66 00 (2 línur)
Ragnar Tómasson hdl.
Heimasímar:
Stefán J. Rithter - 30587
Jóna Sigurjónsdóttir - 16396
— Vertu róleg Vilborg, það rúmast ekki annað en þú í húsunum
minum.
innanhússskreytingu og við ætl
uðum okkur að . . .
— Þakka þér fyrir, en þetta
vildi ég heldur sjá um sjálfur.
Þetta var nú fyrsta sprengj-
an, sem hann hafði varpað að
þeim. Framkoma hans var hóg-
vær, næstum auðmjúk, en á
hinu varð ekki villzt, að hann
hafði ákvarðað sig.
— Hveraig gekk í gær-
kveldi? Við þennan kvenmann?
— Alveg prýðilega.
— Fékkstu almennilegt að
borða?
-— Frú Rinquet er ágætis
kokkur.
— Hvað sagði hún?
— Hver? Frú Rinquet?
— Nei, hún frænka þín.
— Ekkert svo sem sérstakt.
Hann lézt ekki taka neitt eftir
því, að Eloi frænku hafði brugð-
ið illilega við.
— Vel á minnzt, þú ert boð-
inn í hádegisverð til Plantel.
Hann langar til að fræða þig
um fyrirtækin hans frænda
þíns, sem héðan af eru þín eign.
Hví skyldi hann ekki leysa al-
mennilega frá skjóðunni, úr því
að hann var að þessu á annað
borð? Hóglega en með einbeitni
rellukrakka, svaraði hann:
— Viltu segja hr. Plantel, að
ég geti ekki komið í dag. Bæði
er ég þreyttur og svo þarf ég.
að útrétta ýmislegt sjálfur.
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
Þú dansar ekki á rósum i dag. Reyndu að blanda ekki einkalífi
þínu saman við skyldustörfin, og vertu kurteis til hins ýtrasta.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
Þeir, sem leggja þér mest lið, vilja endilega láta sem minnst á
sér bera.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní.
Þú kemst að raun um, að ýnisir bera til þín kala. Sittu á þér
og byrjaðu á nýjan leik.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Það vilja allir fara eigin lciðir. Farðu lil þeirra, sem máli skiptir,
að heyri um áform þín.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Það er viturlegast fyrir þig að starfa með öðrum, því að vanda-
málin eru raunhæf og flókin.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Gerðu ráð fyrir allskyns töfum og hindrunum, hvað sem starf
þitt kann að vera. Þér gengur vel með samvizkusemi þinni.
Vogin, 23. september — 22. október.
Starfaðu með þeim meðulum, sem þér eru innan handar og spar-
aðu.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Sannaðu öðrum bæfni og vizku þína.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Þú færð hvatningu í starfinu, reyndu að keppast við.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Illýddu á hoIlráS, því margt er forvitnilegt og þú getur grætt á
því. Þegar þú hefur tekið allt með í reikninginn, kann svo að fara,
að þú farir aðrar leiðir.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Fjölskyldan og grannarnir eru uin það bil að valda þér töfum og
skapraun. Láttu ekki hugfallast, því að margt græðist á því að skiptast
á skoðunum.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz.
Reyndu að forðast að blanda þér í málefni, sem þér konia ekki við.
HAPPDRÆTTI HASKOLA ISLANDS
NYTT símanúmer ú aðalskrifsiofu 26411
Happdrætti Háskóla Íslands