Morgunblaðið - 03.05.1970, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 03.05.1970, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1070 5 HÚSNÆt)ISMÁLASTOFNUN rikisins mmm í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar hinn 28. júlí 1965 eru hér með auglýstar til sölu 100 íbúðir, sem bygging er hafin á í Breiðholti III í Reykjavík, á vegum Framkvæmdanefndar bygg- ingaráætlunar. Gert er ráð fyrir, að íbúðir þessar verði afhentar fullbúnar á tímabilinu október 1970 til febrúar 1971. Samkvæmt reglugerð félagsmála- ráðuneytisins hinn 28. 4. 1967 skulu íbúðir þessar seldar láglaunafólki, sem hefur fullgildan félags- rétt í verkalýðsfélögum í Reykjavík svo og kvænt- um/giftum iðnnemum. íbúðirnar eru allar í fjöl- býlishúsum við Þórufell 2—20 og eru tveggja her- bergja (58.8 fm brúttó) og þriggja herbergja (80.7 fm brúttó). Áætlað verð tveggja herbergja íbúð- anna er kr. 850.000,00, en verð þriggja herbergja íbúöanna er kr. 1.140.000,00. Er þetta áætlað verð á íbúðunum fullgerðum, sjá nánari lýsingu í skýr- ingum með umsóknareyðublaði. Greiðsluskilmál- ar eru í aðalatriðum þeir, að kaupandi skal innan þriggja vikna frá því, að honum er gefinn kostur á íbúðarkaupum, greiða 5% af áætluðu íbúðar- verði. Er íbúðin verður afhent honum skal öðru sinni greiða 5% af áætluðu íbúðarverði. Þriðju 5%-greiðsluna skal inna af hendi einu ári eftir að kaupandi hefur tekið við íbúðinni og fjórða 5%- greiðsluna skal greiða tveim árum eftir að hann hefur tekið við henni. Kaupandi skal setja trygg- ingu, sem veðdeild Landsbanka íslands metur gilda, fyrir þessum greiðslum. Hverri íbúð fylgir lán til 33ja ára, er svarar til 80% af kostnaðarverði íbúðarinnar. Þeir, sem telja sig eiga rétt til kaupa á íbúðum þeim, sem að ofan greinir, geta sótt umsóknar- eyðublöð í Húsnæðismálastofnunina. Hverri um- sókn fylgja teikningar, lýsing á íbúðunum og upp- lýsingar um sölu- og greiðsluskilmála. Gögn þessi verða til afhendingar eftir 7. maí n.k. Umsóknir um kaup á íbúðum þessum skulu berast stofnun- inní eigi síðar en fyrir kl. 17 hinn 29. maí n.k. HÚSNÆÐISMALASTOFNUN RlKISINS LAUGAVEGI77. SlMI 22453 KXyfa Ufrænn blómaáburdur INNIHELDUR AILA PLÖNTUFÆDUNA í AflGENGILEGU FORMI NEÐRI-BÆR SlÐUMÚLA 24. StMI 83150. Njótið Ijúffengra smárétta í hinum vistlegu húsakynnum okkar. SPOBTHENN Enskir hraðbátar úr glassfieber 14’ STANDARD fyrir allt að 50 h.p. mótor. Lengd 4,27 m., breidd 1,73 m., þyngd 114 kg. Verð frá £ 175. MARK III 16 fet Sportsmann fyrir allt að 100 h.p. mótor. Lengd 4,87 m., breidd 2,08 m., þyngd 430 kg. Verð frá £ 199. MARK II 18 fet fyrir allt að 100 h.p. mótor. Lengd 5,48 m., breidd 2,08 m., þyngd 460 kg. Verð frá £ 249. TEAL 22’ Sportfishermann fyrir allt að 16,5 h.p. mótor. Lengd 6,70 m., breidd 2,36 m., þyngd 917 kg. Verð frá £ 399. Þetta eru úrvals bátar á góðu verði Leitið upplýsinga —- og fáið myndlista. SPQRTVAL hlemmtorgi ^'Sr LAUGAVKGI 118 Siml 14390 V REYKjAVlK Ný verzlun að Laugavegi 24

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.