Morgunblaðið - 07.05.1970, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1970
Hve trúaðir eru
íslendingar?
Á síðastliðnu hausti (16. okt.),
birtist í dagblaðinu Vísi grein
með ofangremdri spumingu að
yfirskrift.
Það vakti athygli mína og sér
staka gleði að þessi mikilvægi
þáttur þjóðlifsins var til meðferð
ar tekinn og fljótt á litið á all-
rækilegan nátt með könnun og
tölulegum samanburðartöflum.
Því miður reyndist nánari lest
ur ekki eins áhugavekjandi, því
svar greinarhöfundar virtist lít-
ið sannfærandi og á ýmsan hátt,
beinlínis villandi. Óljós skilning
ur, og jafnvel fullkomið skiln-
ingsleysi er mjög útbreytt á
okkar landi, að því er þessi efni
varðar, enda næsta eðlilegt þeg-
ar trúaruppeldi þjóðarinnar er
hugleitt.
Eg hefi þessvegna beðið eftir
því að einhver af okkur lærðu
trúarleiðitogum gerðu nefndri
grein nokkur skil, en árangurs-
laust. Strax í upphafi greinarinn
ar er því slegið föstu, að „íslend
ingar eru ekki trúrækin þjóð,“
þó að um hitt séu skiptar skoð-
anir, „hvort þeir eru trúlausir
að sama skapi.“ Síðar í grein-
inni stendur, að hópur Islend-
inga „trúi á guð í einhverri
mynd.“
Af þessu er augljóst að orðin
„trú og trúaður“ hafa fengið allt
aðra merkingu en þau áður
höfðu. Meðan Meistari Jón og
Hallgrimur Pétursson og allir
þeirra samstarfsmenn mótuðu trú
arskoðanir þjóðarinnar, var það
engum vafa bundið að trúaður
maður þýddi kristinn maður.
Allt annað flokkaðist undir van
trú og hjáguðadýrkun, hversu
einlæglega, sem menn trúðu „á
guð í einhverri mjmd.“ Þannig
var það einnig um Grikkina, sem
Páll postuli talaði við á Aresar-
hæð. Hann viðurkenndi þá sem
trúaða menn, en kristnir voru
þeir ekki. Þessi skilningur var
ríkjandi hér á landi fram á þessa
öld. Það var fyrst, þegar hin rót
tæka og óvægilega gagnrýni á
Biblíunni fór að hafa hér veru-
leg áhrif að hugtakið trú fékk
áður óþekkta merkingu, enda fór
kristilegri uppfræðslu þá mjög
hrakandi, bæði á heimilum, í skól
um og í kirxju. Nú ríkir hér full
komirm glundroði í skilningi á
þessum efnum, þannig að „trú á
framhaldslíf," guð í einhverri
mynd og Kristindómur, er af
mörgurn talið eitt og hið sama.
Sá varnagli er sleginn í um-
ræddri grein, að „vísindalegt
gildi“ kannana þeirra, sem greint
er frá, sé mjög takmarkað, og er
það sízt ofmælt, en að það sé
einkum „af tölfræðilegum ástæð
um,“ dreg ég mjög í efa. Mér
virðist „könnunin" /era algjör-
lega á sandi byggð. í greininni
segir að „grundvallar trúarhug-
Nauöungaruppboð
Uppboð það, sem auiglýst var í 17., 19. og 23. eintaiki
Liögbirtingablaðsins 1970 á faisteignum þrotabús Sam-
vinoutfélaígsine Borgar s.f., hefst í Skrifstofu embættisins
1 Borgarniesi föstudaginm 8. maí kl. 13.00 og verður síðan
fram haldið á eignumium sjálfum.
Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu.
Keflavík
Við Hafnargötu í Keflavík er til leigu íbúð, tvær samliggj-
andi stofur, með gólfteppum og gluggatjöldum, tveimur
svefnherbergjum og eldhúsi með tilheyrandi ísskáp.
Á sama stað er til leigu kjallarahúsnæði hentugt fyrir léttan
iðnað og fieira.
Upplýsingar í símum 2316 eða 1490.
Allt á sama stað
EGILL VILHJÁLMSSGM HF.
Laugavegi 118 — Reykjavík
Vegna sérstakra samninga við Rootes-verksmiðjurnar getum við
boðið þennan glæsilega bíl SUNBEAM ARROW fyrir kr. 271.500,00.
Innifalið í verðinu er:
Sjálfskipting
Tvöfalt bremsukerfi
Há sætabök
Læst stýri.
Til sýnis á bílasýningunni í Skautahöllinni
Öryggisbelti
Bakkljós
Öryggisljós f/handbremsu
myndir manna séu um það, hvort
þeir trúi á guð og framhaldslíf."
Þar segir einnig: „Eins og vænta
mátti er íslenzki hópurinn all-
miklu vantrúaðri en sá banda-
rísiki." Ég sé ekki annað en að
hér sé um algjört hugmynda-
brengl að ræða, en þannig hlýt-
ur ævinlega að fara, þegar krist
indómurinn er sviptur algjörri
sérstöðu sinni meðal trúarbragða
heimsins. Þá blandast saman trú
rækni (trúhneigð), sem öllum
mönnum er í blóð borin, og trú,
sem veitir trúrækninni útrás og
einhverja svölun, þó að oft ein-
kennist hún fyrst og fremst af
ótta við guðina. Ég held að það
sé rangt að saka Islendinga um
skort á trúrækni. Það afsannar
trúin á allskonar hindurvitni,
bæði að fornu og 'nýju. (Hlustið
þið bara á samtalsþættina hans
Stefáns Jónssonar fréttamanns).
Mik þess efast ég um að hingað
til lands berist nokkur trúar-
bragðahrejrfing, sem engan á-
hanganda fær meðal íslendinga.
í viðbót við þennan veika
grundvöll „könnunarinnar" er
hún byggð á spurningu, sem ég
tel að ekkert erindi eigi hingað
vegna þess hve gjörólíkt trúar-
uppeldi þessara tveggja þjóða
er.
Þar eru fríkirkjur, sem annast
uppfræðsluna, ekki aðeins með
einni guðsþjónustu á viku, held
ur með reglubundnu frseðslu-
starfi, sem sainaðarmeðlimir geta
notið og eiga að notfæra sér alla
ævi. Hér er kristin ríkiskirkja,
sem, að því er flesta varðar hætt
ir skipulagsbundinni kristnidóms
fræð-slu, á þeim aldri, sem fæstir
hafa getað gert sér sjálfstæða
grein fyrir því hvað í kristni-
dóminum felst, samanborið við
önnur trúarbrögð, eða hvers
virði kristna trúin er.
Með þetta í huga virðist mér
allar spurningar ósanngjarnar og
ólíklegar til að gefa nokkra vís-
bendingu um mótaða trú íslend
inga, allra sizt þeirra jmgri.
Það er reyndar furðulegt hve
margir fullorðnir tjá sig óljóst,
þegar vikið er að því, sem snert
ir trúna, í ræðu eða riti. Það er
eins og þeir forðist þau hugtök,
sem Biblían notar, en grípi til
annarra, sem e.t.v. eiga að þýða
það sama. Menn tala gjarnan um
forsjónina, almættið, veðurguð-
ina og ótal margt annað, þó að
vafalaust kunni þeir allir fyrsta
boðorðið utanbókar.
Ef það heíur verið hugmynd
greinarhöfundar, að kanna af-
stöðu fslendinga til kristinnar
trúar, hefði 9. spurningin ein ver
ið líkleg til að gefa einhverja
bendingu, því að þekking á boð
skap Biblíuinnar um hjálpræðið
í Jesú Kristi er nauðsjmleg for-
senda trúarinnar á hann. Þó er
auðvitað hægt að lesa þetta rita
safn, án þess að eiga trúarsam-
félag við Krist, og sumir hafa
jafnvel náð langt í því að nota
það gegn honum.
Hafi það hinsvegar fyrir höf-
undi vakað að kanna trúrækni
þjóðarinnar, er eðlilega allt í
sömu þokunni eftir sem áður.
Ég hefi gagnrýnt nefnda grein,
vegna þess að ég álít málsmeð-
ferðina villandi, en ég þakka
greinarhöfundi fyrir að hreyfa
máli, sem ég er sannfærður um
að þörf væri að ræða miklu
meira, ef réttum rökum er beitt,
því ekkert er okkur nauðsyn-
legra en að vita á hvem við trú-
um. Af því mótast innra jafn-
vægi og samskiptahættir okkar
við aðra menn.
Steingrímur Benediktsson.
n mmn t™*1**™™ GRENSÁSVEG 11 - SÍMI 83500
LEIFTURLAKK ER LITLAUST, HÁLFGLANSANDI OG FLJÓTÞORNANDI PLASTLAKK. ÞAÐ ER NOTAÐ ÞAR SEM MIKIÐ MÆÐIR Á T. D. VIÐARGÓLF, HURÐIR, ELDHÚSINNRÉTTINGAR O. FL.
1» miíffliNN * BANKASTRÆTI 7 — SÍMI 22866
SAUMAVÉL. Þetta nýja model hefur nú verið á markaðinum
í 3 ár og líkað mjög vel. Miklar endurbætur urðu, t. d. fleiri
útsaumsmöguleika, rennilásafóður, ein mynzturskífa í stað
20 áður. Sjálfvirk Zig Zag, sjálfvirk hnappagatastilling, ný og
falleg taska. Ýmsar nýjungar. — Eins árs ábyrgð — íslenzkur
leiðarvísir — kennsla innifalin í verði. Viðgerðar- og vara-
hlutaþjónusta.
Verð aðeins ...................................... kr. 9985,00
rrtHHIMOj
•MMMHHMlf
JMMMMMMM]
MIIIIMMMMIM
IHMIMIMMIMI
.VMMMIIMMMMMMIMMMIIMIMMMMMMMIMIMMMtMt..,
“ .......... IIIMMMlMM.
IIIIMMMIMIM.
IIIIIIIIIMMMM
IMMIIMMMIMII
MIIMIMMIMMH
IIIIIIMIIIIIMM
IIIMMMMMIIM
■i111mi• mMIIiiinijjViVuB ^mmmmVmm*
ÍlMIIIIMMIIIMMIIIMMIlliiJMirMIIMMMH
II. mmmmmimmmiimimmmmimmmmmii.m.mm.1'