Morgunblaðið - 07.05.1970, Page 16

Morgunblaðið - 07.05.1970, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1970 Marta, Marta, eitt er nauðsynlegt Mörgum góðum búmanni og sjósóknara hér úti á íslandi, þar sem lífsbaráttan hefur löngum verið hörð og annasöm hefur þótt Kristur undarlega mistæk ur í dómi sínum á þeim systrum Mörtu og Maríu, þegar hann ávítaði Mörtu fyrir umstang sitt og búsorgir en blessaði Maríu fyrir að sitja aðgerðarlausa við fætur hans og gapa upp í hann. Fjölmiðlar nútímans hafa þó dregið nokkurn lærdóm af þess ari sögu, að minnsta kosti að því leyti, að þeir telja það vænlegra að höfða fremur til hins ljúfa lífs en strits í sveitá síns and- lits. Útvarp, sjónvarp og hvert einasta blað ver margföldu rúmi undir svonefndan skemmti- iðnað og listir og fleira það, sem gleðiur hjartað, en á við hagnýt- ar upplýsingar og frásagnir um atvinnuvegi og brauðstrit. Tímarnir hafa breytzt, rétt er það, og við þurfum nú lítinn tíma til að afla okkur matar, en ekki er það alveg víst að bú- sorgirnar hafi minnkað fyrir það, og þó að fjölmiðlarnir þyk ist hafa reiknað, dæmið, og vita nákvæmlega, hvað vænlegast sé til að ná hylli fólksins, þá er heldur ekki alveg öruggt, að þeir hafi reiknað rétt. Þeim skýzt þótt skýrir séu, og við skulum minnast þess, að tölvan þeirra reiknar skakkt, ef hún er skakkt mötuð. Ég efast sem sagt stórlega um að fjölmiðlunartækin eigi að taka þessa biblíusögu eins bók- staflega eins og þau gera, og leyfi mér að minna á ummæli Krists á öðrum stað, sem sé: — í sveita þíns andlits skalt þú brauðs þíns neyta. Það eru ekki bara nokkrir gamlir skarfar hér uppi á ís- landi, sem eru að nöldra yfir því, að hér sé um öfugþróun að ræða. Englendingur nokkur, John Burgess, skrifar reglulega an eins fjölda hollráða til að fyr irbyggja afleiðingar þeirra. John Burgess ræðir siðan í grein sinni um þróunina og fram- tíðarhorfur í minni gerð skipa undir 80 fetum. Hann segir þró- unina, þó að hún sé mjög hæg, vera þá, að skipin séu byggð fyrir skuttog og jafnframt séu þessir bátar byggðir til síld- veiða. Þeir eru frambyggðir og með heilan skut. Enn er mest byggt af trébátum, þó að stálið sé orðið mikið notað og lítið er um það enn þá að fiskibátar séu leggja enn meiri áherzlu á önn- ur gæði bátanna en þau, að þeir nái sem mestum hraða. Yfirleitt virðist ekki mikið hafa verið um breytingar í gerðum fiskibáta undanfarin ár annað en þetta með frambyggingu þeirra og skutlagið. í tækjabúnaði hafa aftur á móti orðið örari breytingar. Fyrir nokkrum árum voru véldrifin spil í flestum fiskibát- um, nú eru þau vökvadrifin. Kraftblökkin var almennt tekin í notkun á þessum liðna áratug og ekki aðeins við síldveiðar, heldur einnig snurvoð og neta- drátt. Netatrommur af ýmsum gerðum ryðja sér einnig til rúms, Gamla lagið gildir enn. '■ **'£**• Enskur frambyggður bátur. en þó er enn óvíst í hve ríkum mæli það verður, en samt mjög líklegt að þær verði sífellt meir og meir notaðar á smærri bát- um. Enn er að mestu um eina aðal- vél í fiskiskipi að ræða og einn skrúfuöxul (Þó að Jón Tómas- son skipstjóri, teiknaði 1936, að mig minnir, togara með tveimur aðalvélum, sem hægt var að nota á vixl) — en ekki er ólík- legt að á næsta áratug verði teknar upp tvær vélar í fiski- ( bált og beltadrifmr s!krúfúöxlar. Skiptiskrúfan ryður sér einnig til rúms, þó að föst skrúfa sé enn í miklum meirihluta í fiski- bátum undir 80 fetum. Það er ný leg uppfinning, sem getur átt framtíð fyrir sér að vökvadrifa skrúfur, þar sem með því móti losna menn við gírana. Síðar á Sjómannasíðu verður sagt frá hugleiðingum John Burgess um fiskileitartækin og veiðarfærin. byggðir úr áli, hertu plasti eða steypublöndu. Burgess telur þó líklegt að það fari vaxandi að fiskibátar verði byggðir úr síð- ast töldu efnunum, þegar reynsl an hafi sýnt, að þessi efni standist það álag sem er á fiski- bátunum, því að þessi efni end- ast vel í skipum og viðhaldið litið. Vafasamt telur Burgess að tvískrokka (Katamaran) fiski- bátar eigi mikla framtíð fyrir sér, að minnsta kosti sé enn eft- Glaður KE-67 — frambyggður íslendingur. 1 Fishing News, vikublaðið, um fiskveiðitækni. Bretar telja sig hafa lokið sjöunda áratugn- um, kannski ranglega, það er önn ur saga, en í sambandi við þessi tímamót gerðu fjölmiðlarnir nokkra úttekt á því, sem gerzt hefur undanfarin tíu ár og það sem líkiegt sé að gerist næstu tíu ár. í þessari úttekt, er helzt að heyra á John Burgess, að at- vinnuvegirnir hafi gleymzt, að minnsta kosti fiskveiðamar al- veg, að því er hann segir; það nefndi enginn á nafn, hvað þar hefði gerzt né myndi gerast, heldur snerist málið um þvílíka hluti, sem hugsanlega flugvéla- grýtu, sem bæri fólk miilli staða innanlands og stórþotur, sem flyttu fólk milli heimsálfa og síð an gagnsæ baðföt og milljón ráð til að örva kynhvatirnar, og ann- ir að leysa mörg vandamál í sam bandi við það byggingarlag. Sama er að segja um mjög hrað skreiða fiskibáta. Þó að vélaraflið hafi aukizt mikið í fiskibátum, þá eru enn ekki byggðir mjög hraðskreiðir fiskibátar og atvinnufiskimenn Yfirlit um tækniþróun í tækjum fiskibáta Mesta framförin á sviði tækja búnaðar fiskibáta hefur orðið á sviði raftækninnar. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á dýptarmælum, astikk- inu, ratsjánni, talstöðvuim og margvíslegar nýjungar komið fram síðustu árin. Dýptarmæl- arnir eru nú allir sjálfritandi og miklu nákvæmari en þeir voru og velta skipsins truflar þá minna en áður var, sama er að segja um fisksjána (fishscope), sem er nýtt tæki, sem sýnir ein staka fiska jafnvel alveg niður við botn. Astitekið er einniig orð ið nákvæmara en það var og í sambandi við það er netaugað (netzonde). Nú er hægt að finna fisk nið- ur á 500 faðma dýpi og jafn vel einstaka fiska niður á 100 faðma dýpi eða meira, og í full- komnustu tækjunum er hægt að greina hvers konar fisk er um að ræða, hvort hann sé af réttri stærð og gerð til veiðanna. Radartækninni hefur einnig fleygt fram og nú er verið að glíima við að smíða nógu litlar og ódýrar ratsjár fyrir minnstu bát ana. Þess er að vænta að það mál verði leyst til fulls innan tíðar. Talstöðvum og fjarskiptatækj um hefur fjölgað geysilega á undanförnum árum og fjarskipta viðskipti stór aukizt. Þessi aukna notkun radíotækja hefur vitaskuld leitt til margs konar nýrra og endurbættra gerða, „Mælir, mælir, herm þú mér, hvar i sjónum fiskur er.“ bæði til fjarskipta á langleið- um og við strendurnar. Tækin verða sífeilt orkumeiri og með hærri tiðni og þægilegri og auð- veidari í notkun. í raun og veru ríkir orðið all mikið öngþveiti í öllum þessum síauknu radíoviðskiptum, og vandamálið ekki ósvipað síauk- inni umferð í landi. Það er erf- itt að segja fyrir um þróunina í fjarskiptaviðskiptunum, en ekki er ólíklegt að unnið verði að því að koma skipan á þau mál, og jafnvel fundin upp ný tæki i því sambandi. Siglingatækninni hefur fleygt fram samfara radíotækninni og er Dekkakerfið þar fullkomnast. Með Dekkamiðunum og staðar- S j ómannasíðan í umsjá Asgeirs Jakobssonar ákvörðunum og hinum sjálf- virku stefnutækjum er hægt að finna hvaða fiskislóð sem er í svarta þoku. Stýringin á skip- inu er þegar orðin mjög al- mennt sjálfvirk í fiskiskipum, en ekki er óliklegt að hún eigi enn eftir að aukast og til dæm- is tengjast dýptarmælinum þannig að hægt sé að stýra skip inu hárrétt eftir gefinni dýpt- arlínu. Hér með greininni er birt mynd af „Sonne“. Þessi tæki eru svo fullkomin að af þeim má ráða um hvers konar fisk sé að ræða og hvort það borgi sig að veiða hann. Sjálfritandi fiskileitartækið greinir einstakan fisk á allt að 150 föðmum og stórar torfur nið ur á 500 faðma en botn niður á 2000 faðma. Og tengt því er önn ur fiskisjá (fishscoped) sem sýn- ir fiskitorfuna sem ljósblossa. Við hliðina á fiskiritanum og fisksjánni er annað tæki, sem sjálfritar bæði lóðréttar og lá- réttar lóðningar og við það er einnig tengt netaugað á höfuð- línunni. Með samlestri af þessum tækj um er hægt að gera sér full- komna grein fyrir veiðinni á miklu dýpi — gáfnafar „manns- ins, sem úr hinu skrifaða les, er auðvitað dálítill þáttur í svona kerfi,“ og þess vegna má lesa það á öðrum stað, að brezkir vís indamenn (sem auðvitað ráku sig á, að þeir höfðu ekki heilabú á við skipstjórana — þó að okkar vísindamenn trúi því ekki enn) — glíma nú við að tengja þess- ar aflesningar tölvum sinum. Það er nefnilega enginn barna leikur við þær aðstæður, sem geta verið út í sjó, að eiga að stjórna skipi og öllu, sem þar er að gerast og ákvarða jafn- framt á augabragði með aflestri af þessum tækjum, hvemig veið inni skuii hagað. Tölvan verður að létta starf skipstjórans í framtíðinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.