Morgunblaðið - 23.05.1970, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 23.05.1970, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MAÍ »70 O T Varnir gegn félagslegum vandamálum og viðhald óspilltra náttúrugæða. Rætt við Markús Örn Antonsson, sem skipar 6. sætið á lista S j álf stæðisf lokksins MARKÚS Örn Antonsson er yngsti frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í borgarstjómarkosningunum. Hann hef- ur ekki tekið virkan þátt í pólitísku starfi flokksins áður. — Hveraig stóð á því, að þú gafst kost á þér í framboð? — Ef prófkjörið hefði ekki farið fram, væri ég ekki í fraimboði nú. Það var hópur ungra manna, sem hvatti mig til þess að gefa kost á mér í þetta. Ég var reiðubúinn að gefa kost á mér vegna þess, að ég taldi eins og ungt fólk ai- mennt, að endurnýjun þyrfti að eiga sér stað í stjórnimálaflokkunum. Því taldi ég eðlilegt, að ungt fólk sýndi það í verki, að það vildi vinna að eðlilegri endurnýjun og gæfi kost á sér til þess. Margt af því fólki, sem hefur í orði kveðnu viljað breytingar og meira áhrifavald á stjómmálasviðinu, hefur í reynd sýnt því lítinn áhuga. Það trúir því ef til vill, að stjórnmál séu myrkra- verk, sem heiðarlegt fólk eigi ekki að koma nálægt. — Það var haft á orði, að þú hefðir notað óvanalegar aðferðir í prófkjörs- baráttunni. Nú ert þú þekktur úr sjón- varpi, þurftirðu á frekari auglýsingu að halda? — Eftir að hafa tekið þá ákvörðun að verða við þessum áskorunum, var ég sannfærður um, fyrst á hólminn var komið, að ég yrði að sækja þetta af fulílri alvöru. Við vitum, að allir stjó.cn- málaflökkar hafa lagt á það áherzlu að fá kunnugleg andlit eða nöfn til þess að prýða fraimboðslista sína með. Mér fannst ég verða að gera grein fyrir því, að ég væri ekki kominn í prófkjörið sem slikur, heldur myndi ég vinna að því að ná sæti á endanlegum framboðs- lista. Mín skoðun er sú, að það sama eigi að gilda um prófkjör og sjálfa kosningabaráttuna. Frambjóðendur eiga sjálfir að vinna upp á sínar eigin spýt- ur að sínu kjöri. Ekki sitja auðum hönd- um og treysta eimmgis á hina svoköll- uðu flokksvél og blaðamennina. Fram- bjóðendur eiga ekki að setjast í helgan stein og láta aðra vinna fyrir sig. — Hvert er þitt álit á yfirlýsingu Geirs Hallgrímssonar? — Það hefur sem kunnugt er skapazt sú hefð hjá Sjálfstæðisflokknum, að borgarstjóraefni flokksins skipaði efsta sæti á framboðslistanum. Við tvennar undanfarnar borgarstjórnarkosningar hefur Geir Hallgrimsson skipað þetta forystusæti. í bæði Skiptin lýstu Reyk- víkingar yfir stuðningi við hann með því að endurkjósa meirihlutastjóm Sjálfstæðismanna. Þeir hafa tvisvar sýnt Geir Hallgrímssyni þetta traust í almennum kosningum; bæði Sjálfstæðis- menn og ótal andstæðingar Sjálfstæðis- flokksins í landsmálum. Borgarstjórinn hefur nú ákveðið að víkja, komi það í ljós, að Reyikvíkingar beri ekki traust til hans eins og þeir hafa áður gert. Eru þetta ekki einmitt þau viðbrögð, sem við ætlumst til af kjörnum fulltrúum okkar? Með tilliti til þessa, tel ég það mjög eðlillegt, að Geir Hallgrímsson gefi ekki kost á sér sem borgarstjóri í samstarfi margra flokka, ef meirihlut- inn tapast. Að mínum dómi er það þvert á móti mjög lýðræðisleg afstaða að gefa hin- um almenna kjósanda kost á að velja sig áfram eða hafna sér. Víða erlendis eru borgarstjórar kosnir sérstaklega. Starf borgarstjóra í Reykjavík er það veigamikið starf og trúnaðarstaða, að mjög eðlilegt er, að kjósendur fái sjálfir að leggja dóm á það, hvern þeir vilja fá til þess að gegna þessu embætti. Prófkjörið og yfirlýsing Geirs er hvort tveggja svar við háværum kröfum ungs fólks um aukið lýðræði í störfum stj órnmálafloíkka. — Hver eru brýnustu verkefni borg- arstjórnar að mati ungs frambjóðanda? — Borgin verður hér eftir sem hingað til að búa í haginn fyrir aukinn fjölda borgarbúa, veita ungu fólki tækifæri tij að eignast þak yfir höfuðið. Víðast hvar eru nú í borginni malbikaðar göt- ur og hitaveita, nægilegt Skólahúsnæði, verzlanir og tíðar strætisvagnaferðir. Einmitt fyrir það hvað margt hefur áunnizt á síðustu árum, mun það taka skemmri tima að gera nýju hverfin vel Framhald á bls. 20 3 þotum grandað Tel Avív, Kaíró, Beirút, 15. maí. AP. ÍSRAELSMENN segjast hafa skotið niður þrjár egypzkar MIG-þotur í loftbardögum yfir Súezskurði í dag. Skömmu síðar sögðust Egypt- ar hafa valdið miklu tjóni með loftárásum á ísraelskar stöðvar við norðurenda Súez- skurðar. f Beirút var því formlega neitað í dag að sveitir úr fastaiheir Sýrlands hefðu sótt iran í Líbanon, en margt þyk- ir benda til þess að nýjar sveitir skæruliða hafi sótt yfir landamærin frá stöðvum í Sýrlandi. Fréttir herma að mörg þúsund ma-nna vel vopn að lið hafi tekið sér stöðu á svæði þvi í Suður-Líbanon, sem ísraelsmeran gerðu kröft- ugar árásdr á fyrr í vikunni. Tveimuir möramm hefur ver ið bjargað af áhöfn ísraelsks togara sem egypzkur flug- slkeytabátur sökfcti undan norðurströnd Sinai-skaga í gærkvöld, að því er tilkynnt var í Tel Aviv í dag, Fjögurra mamna áhöfn var á bátnum. Nú fást Kóróna fötin líka í Herrabúðinni við Lœkjartorg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.