Morgunblaðið - 06.08.1970, Page 19
MOR'GUMBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1®70
19
Snorri Stefánsson
Hlíðarhúsi Siglufirði - 75 ára
í DAG, fimmtudaginn 6. ágúst,
verður Snorri Stefánsson, Hlíð-
arfhúsi, Siglufirði, siötíu og fimm
ára.
Snorri Stefánsson á að baki
viðamikinn þátt í atvinnusögu
Siglufiarðar og sögu íslenzkrar
síldarvinnslu, enda gegndi hann
í nær fjóra áratugi framkvæmda
stjórastörfum við síldarverk-
smiðju hér á staðnum; fyrst hjá
Sören Goos, sem er þekkt nafn
í sögu síldariðnaðarins (1924—-
1933), síðan hjá Rauðkuverk-
smiðjunni, sem hann ra'k um
tíma í félagi við Steindór Hjalta
lín, útgerðarmann (1934—1936)
og síðan áfram hjá þeirri verk-
smiðju, eftir að hún komst í eigu
Siglufjarðarkaupstaðar (1937—
1963), eða þar til hann lét af
störfum af heilsufarsástæðum.
Au<k þessa átti hann aðild að út
gerð og verksmiðjurekstri með
Sigurði Kristjánssyni, heiðurs-
borgara Sigluf j arðarkaupstaðar,
um árabil.
Snorri Stefánsson hóf sem
kornungur maður iðnnárn í verk-
smiðju Sören Goos i járnsiruíði og
vélstjórn hjá Gustav Blomquist,
sem þar var meistari. Síðan hóf
hann nám í Vélstjóraskóla íslands
og lauk burtfararprófi frá þeim
skóla 1922. Vélsmíðameistari
varð hann síðan 1937.
Samfara traustri menntun og
þekkingu á vehksmiðjurekstri,
sem Snorri þannig aflaði sér, býr
hann yfir mikilli starfshæfni,
góðri greind og þeim góðvilja og
umgengnishæfni við aðra menn,
að með honum þótti gott að
vinna og ljúft að lúta ihans stjórn.
Og umönnun hans fyrir fyrirtæki
því er hann veitti forystu, verð
mætum þeim, sem honum var
trúað fyrir og velferð þeirra, er
hjá honum störfuðu, var einstök
og fátíð. Það er því ekkert undr
unarefni, þótt Snorri Stefáns-
son eigi að mæta almennum vin-
sældum Siglfirðinga, enda stend
ur Siglufjarðarkaupstaður í
stórri, vangoldinni þakklætis-
skuld við þennan aldna heiðurs-
og sómamann.
Otalin eru þá margháttuð önn
ur störf, sem Snorri vann þessu
bæjarfélagi og félagasamtökum
hér. Hann var ríkisskoðunarmað
ur með verksmiðjum og vélum
jhér í bæ 1941—1963, ríkiss'koðun
armaður skipa í Siglufirði 1948
—1963, í bygginganefnd Síldar-
verksmiðja ríkisins 1945—1947, í
Iðnráði Siglufjarðar 1937—1942
og 1948—1960. Formaður Iðnaðar
mannafélags Sigluf jarðEp' var
hann um skeið og er nú heiðurs-
félagi þess. Þá var Snorri í sókn
arnefnd Siglufjarðar um langt
árabil og traustur velunnari
kirkjunnar starfs hér í bænum.
i Fleiri félagsstörf mætti telja, en
það sem hér heíur verið rakið
nægir til að sýna svipmyndir af
iákvæðu lífsstarfi í þágu Siglu-
fjarðar og samborgara hans.
Snorri er kvæntur Sigríði Jóns
dóttur hinni mætustu konu, sem
verið hefur manni sínum traust-
ur förunautur og stoð í erilsöm-
um og erfiðum störfum. Dóttir
þeirra er Anna, gift Knúti Jóns-
syni, framkvæmdastjóra og bæj
arfulltrúa hér í Siglufirði.
^ Ég þakka Snorra Stefánssyni
ÞESSI fallegi Shefferhundur
kom til landsins í fyrradag
með sömu flugvél og minka-
hvolpamir, sem sagt var frá i
Mbl. í gær. Hundurinn er 10
mánaða gamall og okki orð-
inn kynþroska, eai hlaut ný-
lega 1. verölaun sam unghund
ur á mikilli hundasýnlngu í
Noregi, þar seim hann er fædd
ur og alinn upp. Hann eir al-
gjöriega hrefinræktaður, og
foreldrar hans báðir verð-
launahundar.
Eigandi hundsins er Jón
Magni Ólafsson, sem að und-
anförnu hefur lsert mdnkaeldi
út í Noregi. Hamn keypti, þenn
an hund sem lítinn hvolp og
fékk hann alinn upp þar ytra.
Féklk hann boðmiar 50 þúsund
krómur fyrir hund nn rétt á'ð
ur en hann var sendur heim.
Jón hafnaði því boði, enda get
ur huindurinn margfaldazt í
verði, hljóti h,ann rétt upp-
eldi á n'æstunni. Jón hefur
hugsað sér að nota hundinn til
vörzlu á miinkabú:i, sem kem-
ur til með að rísa í nánd við
Akranes.
persónuleg kynni og velvild alla
tíð. Og fyrir hönd Siglufjarðar-
kaupstaðar og Siglfirðinga al-
mennt þa.kka ég margháttuð trún
aðarstörf og þá ekki sízt allt hans
trúverðuga starf um* áratugi í
þágu Síldarverksmiðju Siglu-
fjarðarkaupstaðar, Rauðku. Þar
held ég, að ekki hafi verið hægt
að skila betra né trúverðugra
starfi, en hann vann þar bæ sín
um og samtíð.
Eg flyt Snorra Stefánssyni og
fjölskyldu hans, í nafni okkar
allra, sambórgara hans, innileg-
ustu afmælisóskir, og bið honum
alls góðs á ókomnum æviárum,
sem hann og verðskuldar flestum
öðrum fremur.
Stefán Friðbjarnarson.
KIR nUKH
uiosKiPiin scm
nuGLúsn í
Hef verið beðinn
að útvega 2ja herb. íbúð nú þegar, helzt í Vogahverfi.
Uppl. gefur Hafsteinn Baldvinsson, hrl., Málflutningsskrif-
stofa Garðastræti 41, sími 18711.
Útboð
Tilboð óskast í að byggja um 300 rúmmetra steinsteyptan
vatnsgeymi í Borgarnesi fyrir Borgarneshrepp.
Otboðsgögn eru afhent á skrifstofu Borgarneshrepps, Svarf-
hóli, Borgarnesi og á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen sf.,
Ármúla 4, Rvik, gegn 1000,— króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Borgarneshrepps, Svarfhóli,
Borgarnesi kl. 11, þriðjudaginn 11. ágúst n.k.
Útboð — Málun
Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar, Lágmúla 9, Reykjavík,
óskar eftir tilboðum í málun fjölbýlishúsanna Þórufell 2—20,
Yrsufell 1—3 og Yrsufell 5—15, Rqykjavík.
I húsum þessum eru 180 íbúðir og er óskað eftir tilboðum í
mátun þeirra bæði að utan og innan og skal vinna verkið á
tímabilinu 20. ágúst 1970 til 1. júlí 1971.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að Lágmúla 9, gegn
2000.— kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri mánudaginn 17. ágúst
næstkomandi klukkan 16.00.
Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar.
Velduð þé ef tír heml kœmi tœf einn til gr< r yður bíl ukerf inu, »ast nema úna I 1
VOLVO Tvöfalt hemlakerfi-Tvöfalt öryggi
■BSSI “Wrtt npf Trm mWWmWCi vkr MLi JLi JL JL JCvL JEJL JE • ■BSal Suðurlandsbraut 16 * Reýkjavik • Símnefni: Volver • Simi 35200