Morgunblaðið - 08.09.1970, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SSPTEMBER 1970
4
HVERFISGÖTU 103
VW Sendiferðabifrei«5-VW 5 ma«ia-VW svefwaga
VW9maun3-Landrover 7manna
bilaleigan
AKBBAUT
car rental servicc
r 8-23-47
sendum
Bílaleigan
UMFERÐ
Sími 42104
SENDUM
Hópferðir
Til leigu í tengri og skemmri
feröir 10—20 ferþega bílar
Kjartan Ingimarason,
sími 32716.
HÚSHJÁLP
Amerísk fjöiskykia óskar eftir
stúfku eða komr, sem vrtdi vera
tif aðstoðar við búsverk og
bamgæzlu í ertt ár. Fangjald
greitt. Skrifið: Mrs. F. C. Rose,
1040 00100(31 Dr. Youngstown,
Ohio 44505 — U.S.A.
ALLTAF FJÖLCAR VOLKSWACEN
Volkswagen
varahlutir
tryggja
Volkswagen
gæði:
0 Dýrt er lambakjötið
EJ. skrifar:
„Heiðraði Velvakandi!
Má ég biðja þig fyrir nokkr-
ar línur í dáilki þínum? Nú er
lambakjötið komið á markað
inn, og er nú heldur mikið verð
sett á það, þessar litlu lamba-
kreistur, sem eru bláar í gegn
af hor. Þetta lætur enginn sér
detta í hug að kaupa og það
svona rándýrt. Nú þurfum við,
góðar húsmæður, að standa vel
saman og kaupa ekki einn ein
asta bita af þessu kjöti. Látið
engan plata ykkur til þess.
Með kveðju og þökk fyrir
birtinguna.
Elka Jónsdóttir,
Eiríksgötu 13“.
0 Gagnrýni og skaðrýni
tJlfur Ragnarsson, læknir
skrifar:
„Velvakandi minn!
Mér er frámunalega litið um
gagnrýni gefið í þeirri merk-
ingu orðsins sem virðist vera
að festast í málinu, nefnilega
að gagnrýni sé sama og nei-
kvætt nöldur.
Þegar sálin segir nei,
sofna líf og andi.
Verri örlög veit ég ei
en vera gagnrýnandi!
Raunverulega merkir orðið
gagnrýnandi maður, sem sér i
gegn. Sá sem i raun og sann-
leika sér í gegn, er i engu
ónæmari fyrir hinu jákvæða
en því, sem miður fer.
Þess vegna hafa sannir gagn
rýnendur aðstöðu til að vera
sannir leiðbeinendur.
Á því vill verða raunalegur
misbrestur, sem veldur því, að
margir, sem nefnast gagnrýn
endur, njóta lítillar tiltrúar
með þjóðinni. Menn, sem aðeins
rýna í brestina eru í rauninni
alls ekki sannir gagnrýnendur,
heldur miklu fremur skað-rýn-
endur.
Þetta var nú útúrdúr. Tilefn
ið var annað.
0 Læknar fjarverandi
Mig langar að leiðbeina þó
í litlu sé þvi stóra blaði, sem
gjaman vill veita lesendum sin
um beztu þjónustuna. Undanfar
in ár hef ur þetta merkisblað —
Morgunblaðið — veitt lesend-
um sínum upplýsingar um f jar-
vistir lækna vegna sumarleyfa
eða námsferða. Þessi þjónusta
hefur verið felld niður fjölda
manns til mikils óhagræðis. Að
þessu leyti hefur þjónustu blaðs
ins við lesendur þess hrakað.
Vilduð þið nú ekki taka það
til vinsamlegrar athugunar,
hvort þessi gagnrýni mín —
sem aðeins er af góðvilja sprott
in, eigi ekki við rök að styðj-
ast?
Með þakklæti fyrir alla góða
þjónustu, sem blaðið innir af
hendi.
Úlfur Ragnarsson,
læknir".
0 Blettur við
Rauðarárstíg
„Kæri Velvakandi!
Mig langar til að skrifa þér
lítið bréf um lítinn blett héma
í borginni, nánar tiltekið á
hominu á Rauðarárstíg og
Hverfisgötu norðanverðri, eða
við Rauðaréirstig 13.
Þegar Hverfisgatan á sinum
tíma var löguð fyrir hægri um-
ferðina, sem eins og kunnugt
er tókst með miklum ágætum,
var steypt í kringum grasblett
á umræddu horni, en nú er hér
lítið gras sjáanlegt. 1 þurrki er
bletturinn eiginlega bara flag
og í rigningu forarpollur, eins
og hann reyndar oftast er.
Vilja nú ekki viðkomandi
gatnayfirvöld miskunna sig yf
ir þennan litla blett og mal-
bika eða helluleggja hann? Um
grasvöxt eða annan jarðargróð
ur getur varla verið að ræða á
þessum stað, og við, sem dag-
lega eða oft á dag göngum fram
hjá blettinum, losnum þá við að
sjá það vandræðaástand sem
hann er í.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna og von um góðan
árangur af beiðninni.
SBr, býr neðarlega á
Rauðarárstíg".
Röskur ungur maður
óskast í varahlutaverzlun og til léttra skrifstofustarfa, þarf að
hafa bílpróf.
Umsókn leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir næstkomandi
föstudagskvöld merkt: ,Röskur — 4261".
Skólastjóri - ný íbúð
Skólastjóra vantar að barnaskóla Tálknafjarðar. Rúmgóð ný
íbúð fyrir hendi.
Upplýsingar veitir formaður skólanefndar í síma 2551 í Tátkna-
firði. SKÓLANEFND.
enn emn nyr
þjónustu-og
útsölustaður
TOEOBMU
HÉR FÁIÐ ÞÉR OG
ÞÚSUNDIR ANNARRA,
SEM UM SUÐURLANDS-
VEG AKA,FLJÓTA OG
GÓDA ÞJÓNUSTU
SAMBANP ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
VÉLADEILDSÍ™