Morgunblaðið - 08.09.1970, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1970
— Flugslys
Framhald af bls. 1
manninn til bana. Einn af far-
þegunum varpaði stúlkunni í
góifið og var hún síðan yfirbug-
uð. Hélt hún á handsprengju
sinni í hvorri hendinni. Flugvél-
in lenti síðan heilu og höldnu á
Heathrow-flugvellinum við Lond
on, en flaug síðan til Banda-
ríkjanna kl. 22.40 (ísl. tími) á
sunnudagskvöld, eftir að ný á-
höfn hafði komið flugleiðis frá
ísrael.
• Farþegaþota af gerðinni Bo-
eing 747 í eigu bandaríska
flugfélagsins Pan Ani. f henni
voru 170 manns. Hanni rændu
sjö farþeganna eftir að hún
hafði hafið sig til flugs á
leið til New York frá flugvellin-
um í Amsterdam. Hún lenti í
Beirut í Líbanon til þess að taka
eldsneyti og þar stigu um borð
18 Palestínu-skæruliðar. Síðan
var flugvélinni flogið til Kairo,
þar sem öllum, er í vélinni voru,
tókst að komast heilu og höldnu
frá borði, en síðan sprengdu
skæruliðar vélina í loft upp með
dínami tsspr eng ju.
• Farþegaþotu af gerðinni Bo-
eing 707 í eigu bandaríska
flugfélagsins Trans World Airlin
es með 145 manns um borð var
rænt eftir að hún hafði millilent
í Frankfurt í Vestur-Þýzkalandi
á leið til New York frá fsrael.
Samkvæmt frásögn svissneska
Rauða krossins er vélinni nú hald
ið í Zerqa á jórdönsku eyðimörk-
inni, þar sem hún er á valdi Pal-
estínu-Araba.
• Farþegaþotu af gerðinni DC-
8 með 155 manns um borð í
eigu Swissair var rænt, eftir að
hún hafði hafið sig til flugs frá
flugvellinum í Zúrich á leið til
New York. Samkv. frásögn
svissneska Rauða krossins er
henni einnig haldið i Zerqa.
FORÐIÐ YKKUR
Fa.rþegarnir úr bandarísku risa
þotunni, sem sprengd var í loft
upp á Kairo-flu.gvelli, komu í dag
til Rómaborgair. Voru þeir flutt-
ir þan.gaS með fluigvél frá Pan
Am, sem send hafði verið sér-
staklega til Kairo til þess að ná
í þá. í risaþotunini voru 152 far-
þegar og 23 manna áhöfn og
komu 149 farþeganna og flest
ir úr áhöfninni með hinni flug-
vélirmi til Rómaborgar, en þrír
farþeganna urðu eftir vegna
minni háttar meiðsla, sem þeir
höfðu hlotið.
Einn af farþegunum sagði í
dag, að flugvallaryfirvöldin í
Amsterdam hefðu leitað ga.um-
gæfilega á tveimur af flugræn-
ingjunum og kannað skilríki
þeirra, áður en flugvélin lagði
af stað. Hefði þessi athugun á
mönnunum verið gerð þrisvar
sinnum. Farþeginn, sem er belg-
ískur stúdent, telur, að það hafi
greinilega rí'kt sá grunur, að flug
ræningjar væru í hópi farþega.
Margir af farþegunum voru
mjög þreyttir eftir aHt ferðalag-
ið og talsvert riniglaðir eftir þá
æsikenndu reynslu, sem þeir
höfðu orðið fyrir. Hollenzkur
læknastúdent, sem var í hópraum,
sagði að ekki hefði komið upp
nein ókyrrð í flugvélinni, fyrr
en flugránið hafði verið fram-
kvæmt og flugvélin lent í Beirut,
þar sem rændnigjarnir kröfðust
þess, að eldsneyfisgeymar vélar-
innar yrðu fylltir.
Kona frá Indónesíu kvaðst hafa
haft þá tilfinningu, að eitthvað
áþægilegt væri í vændum, eftiir
að flugvélinni seinkaði um 20
mínútur á flugvellinum í Amster
dam. Henni sagðist svo frá, að
strax eftir að flugvélin var kom-
in á loft, hefði hávaxinn, vel
klæddur maður staðið upp og
krafizt þess, að allir farþegarn-
ir létu af hendi vegabréf sín.
Hann spurði, hvort í hópnum
væru nokkrir ísraelar, Axabar,
heirmenn eða seradistarfsmeran.
Eftir að lent hafði verið í Beirut
gáfu ræniragjarnir fairþegunum
fyrirmæli um að sitja kyrrir í
sætum sínum.
Þegar tíl Kairo kom hefðu far
þegarnir aftur á móti feragið fyr
irmæli um að yfirgefa flugvél-
ina án þess að taka nokkuð af
eigum sínum með sér. Ein af
flugfreyjunum hefði sagt, að far
þegarnin yrðu að hoppa niður á
völlinn og forða sér síðan eins
hratt og eins langt burt og þeir
frekast gætu.
Á sunnudag var skýrt frá því
af fréttastofu í Kairo, hverjiir
þrír af ræningjunum væru. Þeir
væru allir meðlimir í svonefndri
frelsishreyfingu Palestínu, PFLP
og allir á þrítugs aldri. Haft var
eftir þeim, að þeir hefðu fram-
kvæmt flugránið í því skyni að
„mótmæla áframhaldandi stuðn
ingi Bandaríkjamanna við ísra-
el“. Þeir hefðu sagzt hafa 9 dýna
mitsprengjur með sér um borð
og sagt flugstjóranum, er flug-
vélin var yfir Kairo, að hann
yrði að flýta sér að lenda, því að
sprengjurnar myndu springa eft
ir nokkrar mínútur.
„ÁN VEGABRÉFA"
Sama fréttastofa sagði, að af
farþegunum hefðu 85 verið
Bandaríkjamenn, 19 hollenzkir,
12 Ástralíuimenn, 10 Belgíu-
menn, 4 Frakkar, 4 Indóraesíu-
menn, 3 Tyrkir þar af tvö böm,
3 Norðmenn, 2 frá Bretlandi og
2 frá Iran. Einn frá hverju eftir
talinna landa: Danmörku, Colum
bíu, Argentínu og loks 4 aðrir
farþegar „án vegabréfa“.
Fáei.nir farþegar hefðu hlotið
skrámur, á meðan flugferðinni
stóð, en þó einna helzt, er menn
reyndu, hver eins hratt og hann
gat, að forða sér út um neyðar-
dyr vélarinnar, eftir að hún var
lent. Það hefði hins vegar verið
tekið vel á móti þeim á flugvell
inum og ráðstafanir verið gerðar
til þess að veita þeim nauðsyn-
lega aðhlynningu þegar í stað.
Þetta var í fyrsta sinn, sem
risaþota af gerðkmi Boein.g 747
lenti á flugvöllunum í Beirut og
Kairo. Á síðarnefnda flugvellin
um var fjöldi brunabíla sendur
á vettvan.g til þess að reyna að
hefta eldinn í flugvélinni og
hindra, að hann næði að breiðast
út með þeim afleiðingum, að það
kvi’knaði í flugvélum og flug-
vélaskýlum, sem stóðu þar ekki
fjarri.
Eftir að farþegarnir, sumir ber
fættir, höfðu þyrpzt inn í flug-
stöðvarbygginguna, sögðu þeir
frá því, sem gerzt hafði.. Þar kom
það m.a. fram, að eirnn af flug-
vélarrænin.gjunum, Samir Ab-
del Maguid eins og hann haifði
kynnt sig, hefði borið fram skýr
ingar á flugráninu, á meðan flug
ferði.n frá Beirut til Kairo stóð
yfir, en það var í 95 mínútur.
Hann hefði sagt, að ísraelsmenn,
studdir gf Bandaríkjamönnum,
‘hefðu hrifsað til sín heimaland
þeinra, þ.e. Palestínumanmanna.
Þetta væri refsing þeirra. Með
rólegri röddu hefði flugræning-
inn síðan sagt, að flugvélin, sem
hlaðin hefði verið dýnamiti,
myndi springa fáei-num mínút-
um efti.r lendingu.
Lokur að neyðardyrum hefðu
þegar verið leystar frá og hefði
vindblásturinn verið heiftarleg-
ur, sem fór um vélina, er loftinu
var hleypt inm. Var sagt, að sum
ir farþeganna hefðu ekki getað
haldizt kyrrir í sætum sínum,
heldur hefði loftstraumurin.n ýtt
þeim út að hliðarveggjum vél-
arinnar.
VIDBRÖGÐ IATA
Knut Haimima.rskjold, aðalfram-
kvæmdastjóri alþjóðasaimtaka
flugfélaga (IATA) skoraði í dag
á Nasser Egyptalandsforseta og
Hussein Jórdaníulkonung að grípa
til aðgerða gegn flugvélaræníngj-
unum. Skýrði Hammairskjold frá
þessu á fundi með fréttamönnum
í Hong Komg, þar sem hann tók
það fram, að Egypta-land og
Jórdamía ásamt öðrum þjóðum
hefðu fyrr á þessu ári lýst því
yfir, að Þau myndu beita sér
gegn flugránum og beita flug-
vélarræningjania hörðu.
„Ef ríkisstjómiir þessara landa,
sem atburðirnir nú varða bæði,
hálda ökki loforð sín, þá er það
augljóst, að þau munu baika sér
mikið vantraust“, sagði Hamm-
arskjold. „Ég var nógu barna-
legur til þess að trúa því, sem
þessar ríkisstjómir sögðu og und-
irrituðu. Ef ríkisstjórnirnar sýna
hins vegar, að við getum ekki
treyst þeim, þá verðum við að
talka ákvarðanir um, hvað gera
skuli og þessar ákvairðanir verð-
um við að taka innan sóla.r-
hrings". Hammarskjold vildi
hins vegar ekki skýra frá, til
hvaða ráðstafana yrði gripið, ef
stjórnir Egyptalands og Jórdaníu
hefðust ekkert að gagnvart flug-
vélaræningjunum. Hann neitaði
einnig að skýra frá inniihaldi
orðsendiraga sinna til Nassers og
Husseins í einstökum atriðum.
Hammarslkjold, sem ikvaðst
vera ,mjög reiður", frestaði að
sinni brottför sinni frá Hong
Kong, en hann var farþegi í flug-
vél, sem hafði millilent þar á
leið til Honululu, en þar stendur
fyrir dyrum ráðstefna IATA.
Hamm.arsikjold bjóst við því, að
haran myndi hailda áfram för sinni
á morgun, þriðjudag.
Á fundi sínum með frétta-
mönnum skýrði Hammarskjold
ennfremur frá því, að baram hefði
skorað á Kemneth Kaunda, for-
seta Afríkuríkisins Zambíu, en
þar hefur farið fram ráðstefna
hlutlausra ríkja, til þes3 að talka
til meðferðair á ráðstetfnunni
vopnaðar árásir gegn flugvélum,
sem flytji óbreytta farþega, en
atburðirnir nú varða rikisistjórn-
ir margra þeinra ríkja, sem sent
hafa fulltrúa á ráðstefnuna í
Lusaka. Sagði Hammarskjold, að
harðlega ætti að snúast gegn Öll-
um tilraununum til þess að nota
farþega og flugáhafnir sem gísla
eða flugvélar í samsikonar til-
gangi með það fyrir augum að
fá þannig leysta úr haldi flug-
vélarræningja eða stjórnmála-
fanga.
ÖNGÞVEITISÁSTAND
„Ég tel ekki, að það eigi að
gefa flugvélarræmiragjum frelsi,
'heldur á að refsa þeim“, sagði
Hamimarskjold. „Áð heimila
skipti í staðinn fyrir gísla, er að
gera nákvæmlega það sama og
gríska stjórnin gerði, það er að
láta undan kúguna.ra.ð.gerðum.
Það er það versta, sem hægt er
að gera“.
Þegar Ham.marsikjold va<r spurð
ur um örlög fa.rþeganna með
flugvélum þeim, sem rænt var á
sunnudag, svaraði hann: „Þei.r,
sem eru í Kaíró eru á valdi
stjórna.rvaldanna. Ef þeir verða
ðkki látnir lausir, þýðir það
endi alls fairþegaflugs fyrir
Egyptaland. Það land myndi
ekki geta haldið uppi farþega-
fl-ugi á millilandaleiðum, ef far-
þegarnir verða ekki látnir la.us-
ir“.
Ha.mm.a.rskjold sagði, að flug-
vélarrán yrðu til gaumgæfilegr-
ar athugunar á aðailfundi IATA,
sem hefst 27. Okt. í Tdheran.
Haran sagði, að farþegatflug vaeri
að lenda í hreinu öngþveiti og
binda yrði endi á flugránin, en
þeir einu, sem væru þess megn-
ugir, væru ríkisstjórnimar. Aug-
ljóst væri, að flugfélög heimsins
hefðu engin tök til slíks. Hann
kvaðst vona, að egypzka stjóm-
in myndi reynast samstairfsfús.
Hún hefði heiimi.lað á laugardag,
að maður, sem framið hafði flug-
vélarrán, yrði aflhentur til Italíu
og nú væri fróðlegt að fylgjast
með því, hvort hún myndi bregð-
ast eins gegn arabískum fl-ugræn-
ingjum. Þá sagði Haimma.rskjold,
að ríkisvaldið ætti að gangast
fyrir straragari aðgerðum til þess
að koma upp um þá, sem hygðu
á flugrán og koma í veg fyrir, að
þeir gætu farið um borð í flug-
vélar.
STRANGARI AÐGERÐIR
KRAFA FLUGMANNA
Alþjóðasamband flugmanna
krafðist í dag strangari aðgerða
gegn fiugrændngjum. Sagði rit-
ari sambandsims, Charles Jack-
son flugstjóri, á fundi með frétta
mönnum í Loradon í dag, að ein
angra yrði þau lönd með tilliti
til flugs, sem létu það viðgang
ast, að flugræningjar störfuðu
frá landssvæðum sínum. >á gat
hann þess eiraraig, að Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna yrði að
taka til athugunar aðgerðir, sem
dugað gætu til þess að hindra
flugvélarán í framtíðinni. Hefði
sambandið jafntframt ákveðið að
boða til aukafundar innan sam-
taka sirana til þess að ræða þetta
vandamál. Óhæft væri, að sam-
vizkulausir flugræningjar gætu
leikið sér að lífum saklausra, ó-
breyttra farþega í refskák sinni
á borði heimsstjórnmálanna.
- Isvandamál
Framhald af bls. 2
Eniglandi Fraikklandi, Hollandi,
Þýzkalandi, Japan, Sviss og
Tékkóslóvakíu. Og menn eru enn
að bætast í hópiran.
Berrahard Midhel, sem er
prófessor við Laval iháskóla í
Quebeck í Kanada sagði að í
hans heknaLandi væri ísinra mik-
ið varadamál í sambandi við
mararavirkj agerð. Atlhyglin beind-
ist mjög að því viðfangisefini, etoki
siízt nú þegar farið er að þróa
norðurhéruðin. Hann sagði að
Kanadameran hefðu etolki einu
sirani reyrat að virkja ár, eiras
og Þjórsá, enda nóg af auðveld-
ari ám fyrir. En nú, þegar ís-
lendiragar heíðu hatft forgöngu
um að leysa vamdann með að
losna við kraþið, þá muradu þeir
vaíalaust gera það.
Höfum fyrirliggjandi
hljóðkúfa og púströr
í eftirtaldar bifreiðir
hl.ióðkútar og púströr.
hljóðkútar og púströr.
hljóðkútar og púströr.
Bedford vörubíla ................ hljóðkútar og púströr.
Borgward ......................... hljóðkútar.
Bronco .......................... hljóðkútar og púströr.
Chevrolet vörubíla............... hljóðkútar og púströr.
Chevrolet fólksbíla ............. hljóðkútar og púströr.
Dodge fólksbíla ................. hljóðkútar og púströr.
D.K.W. fólksbíla ................ hljóðkútar og púströr.
Fiat fólksbíla .................. hljóðkútar og púströr.
Ford, ameríska fólksbíla ........ hljóðkútar og púströr.
Ford Anglia og Prefect .......... hljóðkútar og púströr.
Ford Consul 1955—62 ............. hljóðkútar og púströr.
Ford Consul Cortina.............. hljóðkútar og púströr.
Ford Zephyr og Zodiac ........... hljóðkútar og púströr.
Ford Taunus 12 M, 15 M og 17 M
Ford F100 sendiferðabíla 6 og 8 cyl.
Ford vörubíla F500 og F600 ....
Ferguson eldri gerðir ........... hljóðkútar og púströr.
Gloria .......................... hljóðkútar og púströr.
Hillman og Commer fólksb. og sendiferðab. hljóðkútar.
og púströr.
Austin Gipsy jeppi ............... hljóðkútar og púströr.
International Scout jeppi ....... hljóðkútar og púströr.
Rússa jeppi Gaz 69 ............... hljóðkútar og púströr.
Willys jeppi ..................... hljóðkútar og púströr.
Landrover bensín og diesel .... púströr.
Mercedes Benz fólksb. 180—190—200—220—250 hljóðkútar
og púströr.
Mercedes Benz vörubíla ........... hljóðkútar og púströr.
Moskwitch fólksbíla.............. hijóðkútar og púströr.
Opel Rekord og Caravan .......... hljóðkútar og púströr.
Opel Kadett ...................... hijóðkútar og púströr.
Opel Kapitan .................... hijóðkútar og púströr.
Rambler American og Classic .. hljóðkútar og púströr.
Renault R4—R8—R10 ............... hljóðkútar og púströr.
Saab ............................ hljóðkútar og púströr.
Scania Vabis ..................... hljóðkútar.
Simca fólksbíla ................. hljóðkútar og púströr.
Skoda fólksbíla og station ...... hljóðkútar og púströr.
Taunus Transit ................... púströr.
Toyota fólksb. og station . . allir
Vauxhall fólksbíla ...............
Volga fólksbíla .................. hljóðkútar og púströr.
Volvo fólksbíla alla ............. hljóðkútar og púströr.
Volvo vörubíla................... hljóðkútar.
Mjög hngstætt verð
Setjum pústkerfi undir bíla.
Sími á verkstæðinu 1 48 95.
Sendum í póstörfu um land allt.
hljóðkútar og púströr.
hljóðkútar og púströr.
FJÖÐRIN, Laugavegi 168,
sími 2 4180.
Til sölu
Ketill, olíukynditæki, hitadunkur (spíral) og dæla (sem nýtt)
o. fl. Frystivél (| ha.) hitaborð, (Cafeteria) rarmagnshella
(stór), ískista. Sími 84179.