Morgunblaðið - 05.12.1970, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGU.R 5. DESEM'BER 1970
3
»
í*ESSA dagrana er staddur hér
á landl Daninn Svend As. Krist
ensen erindreki Alþjóðasam-
taka viðskipta- og hagfræði-
stúdenta, A.I.ÍBS.E.C. Alþjóða-
samtök þessi vorn stofnnð ár-
ið 1948 og er markmið þeirra
að stuðla að auknum skiln-
ingi þjóða I milli og stuðla
að bættum alþjóðlegum við-
skiptum með stúdentaskiptum
i
seminar-höldum og fræðslu- og
upplýsingamiðlun. Tilgangur-
inn með komu erindrekans
hingað er sá að auka áhuga
islenzkra viðskipta- og hag-
fræðistúdenta til þess að fara
utan og kynnast viðskiptalífi
eriendis, að endurskipiileggja
starfsemi Aiesec-nefndarinnar
hér og að halda námskeið í
söhitækni. Er ísland eitt af
52 aðildalöndum samtakanna.
í viðtali við Svend As. Krist
ensen í gaer kom m.a. fram
Danski erindrekinn Svend As. Kristensen (fyrir miðju) ásamt tveimur meðlimum íslenzku
Aiesec-nefndarinnar þeim Jóni Ásbergssyni og Kjartani Jónssyni (lengst til vinstri).
Bætt viðskipti og
skilningur þjóðaá milli
að talsvert hefur dregið úr
kynnisferðum islenzkra stúd-
enta undanfarið. Fóru t.d. að-
eins 3 viðskipta- og hagfræði
stúdentar utan í ár, en fyrstu
starfsár samtakanna fóru
venjulega um 8 stúdentar á
hverju ári. Er ætlunin að
reyna að glæða aftur áhuga
íyrir þessum ferðum, sem
byggjast á stúdentaskiptum.
Ferðir þessar eru þannig
skipulagðar að Aiesec-nefndir
á hverjum stað fá fyrirtæki
í sinu landi til að taka á
móti erlendum stúdentum til
vinnu og jafnframt taka þær
á móti umsóknum frá stúd-
entum sem óska að fara ut-
an.
Á ársþingum Aiesec, þar
sem mæta fulltrúar frá öll-
um aðildarlöndunum, er siðan
unnið úr umsóknum stúdent-
anna og fyrirtækjanna. Hafa
nú alls um 50.000 stúdentar
farið í siíkum skiptum í gegn
um samtökin.
1 Aiesec-nefndinni á íslandi
eru 6 fulltrúar, þeir Jón Ás-
bergsson, formaður, Kjartan
Jónsson, Snorri Pétursson,
Ásta Garðarsdóttir, Birgir
Harðarson og Stefán Sólberg
Friðfinnsson. Starf nefndar-
innar hér skiptist aðallega í
tvennt. Annars vegar er vetr-
arstarfið, sem er fólgið í því
að útvega störf fyrir þá út-
lendinga sem hingað koma
og taka á móti umsóknum
frá íslenzJkum stúdentum, sem
vilja fara utan til starfa. Hins
vegar er sumarstarfið, sem
felst í þvi að taka á móti
útiendingum, útvega þeim hús
næði, kynna þá fyrir atvinnu
veitendum og gefa þeim kost
á að kynnast landinu. — Hef-
ur Svend As. Kristensen heim
sótt nokkra forstjóra fyrir-
tækja i Reykjavík með nefnd
armönnum til þess að kynna
samtökin og kanna hvort þeir
hafi áhuga á því að ráða til
sín erienda stúdenta. Munu
þeir væntanlega heimsækja
fiieini fyrirtæ*ki eftir helgina.
Svend As. Kristensen er23
ára gamall Árósarbúi. Hann
leggur stund á hagfræði við
háskólann i Árósum, en er
nú í eins árs hléi frá námi og
ferðast um milli þátttöku-
landa Aiesec-samtakanna til
þess að kynna hina ýmsu
þætti starfseminnar. Aiesec-
samtökin hafa miðstöð í Rott
erdam I Holiandi og er for-
seti samtakanna franskur
maður, að nafni Pierre Paill-
eret.
Svend As. Kristensen held-
ur utan á fimmtudaginn 10.
desember, en í dag, laugar-
dag, heldur hann fund i Hl
með hagfræði- og viðskipta-
fræðinemum, þar sem hann
kynnir ákveðin atriði í sam-
bandi við sölutækni.
18,4 milljónir kr. til
tannlækninga
— í skólum Reykjavíkur
GERT er ráö fyrir aó verja 18,4
niilljónuni króna tii tannlækn-
inga í skólum Rcyk.javíktirborg-
ar skv. fjárhagsáætiiin fyrir ár-
ið 1971, sem lögð hefur verið
fram í borgarstjórn Reykjavík-
ur. Hefur markvisst verið unn-
ið að því að auka tannlækna-
þjónustu í barnaskóluni borgar-
innar t.d. með námslámim til
tannlæknanema.
Geir Hallgrímsson, borgar-
stjóri, sagði á borgarstjórnar-
fundi sl. fimmtudag, að mun
fleiri tannlæknar væru nú reiðu-
búnir til starfa en áður, svo að
nú er öhum börnum á bama
skólastigi veitt allt að því full
nægjandi þjónusta á þessu sviði
Tilraun verður gerð til að
veita nemendum á unglingastigi
sömu þjónustu eftir því sem
unnt er og viðurkenning rikis-
valdsins fæst til þátttöku í kostn
1 aði, sagði borgarstjóri.
er hmn sanni brautryðjandi
í hljómtækja- og hljómplötu-
deild okkar að Laugavegi 66.
OPIÐ TIL KL. 4 E.H. I DAG
í verzlununum
TÝSGÖTU 1 og
LAUGAVEGI 66.
Símar 12330 —13630.
FJOLBREYTT VORUURVAL
FATNAÐUR A HERRA OG DÖMUR
SNYRTIVÖRUR FRÁ M. QUANT
OG ÖÐRUM ÞEKKTUM MERKJUM
TÖSKUR OG VESKI
HLJÓMPLÖTUR
HLJÓMTÆKI — 2JA ÁRA ÁBYRGÐ.
SJON ER SOGU RIKARI.
STAKSTEIKAR
ísland og EBE
FRÖÐLEGT er að kynnast þeim
sjónarmiðum, sem fram koma í
öðrum löndum um viðræður Is-
lands við Efnahagsbandalag Ev-
rópu og þær óskir sem settar
hafa verið fram fyrir Ísíands
hönd. Norska blaðið „Aftenpost-
en“ birti mánudaginn 30. nóv-
eanber grein um Finnland, ísland
og EBE ©g segir þar m. a.: „Ósk-
ir íslands virðast vera talsvert
umfangsmiklar, sérstaklega varð
andi tollfrjálsan útflutning til
EBE-landanna, á sama tíma sem
útflutningur EBE-landanna til
íslands yrði háður vissum tak-
mörkunum um skeið. Jafnvel
þótt fiskútflutningur sé mjög
þýðingarmikill á evrópskan
mælikvarða, er íslenzki markað-
urinn lítill og úr þvi að EFTA
gat leyst vandamál íslands, er
full ástæða til að ætla að EfBE
takist það einnig, sérstaklega þar
ssm EFTA er mikilvægari mark-
aður fyrir íslendinga en EBE.“
Færey j af lugið
Allmikið er rætt í færeyskum
blöðum um Færeyjaflugið eftir
fundinn í Kaupmannahöfn, þar
sem ákveðið var, að Flugfélag
íslands yrði ekki lengur aðili að
þvi. í forystugrein útbreiddasta
blaðs Færeyja, Dimmalætting
hinn 1. desember sl. segir m. a.:
„Eftir því sem frétzt hefur af
viðræðunum í Kaupmannahöfn
við SAS og sérstaklega Jóhannes
Nielsen, forstjóra danska innan-
landsflugsins, hefði sennilega
verið hyggilegast að taka alls
ekki boðinu um þátttöku í þess-
um viðræðum, sem einbenndust
af valdsmannlegri framkomu og
ótrúlegum hroka. SAS vill a sitt
eindæmi ráða málunum. Á
grundvelli réttinda til Færeyja-
flugs, sem SAS ef til vill hefur
alls ekki, er ætlazt til, að Fær-
eyingar bíði, þar til SAS hefur
myndað sameiginlegt félag með
nokkrum leiguflugfélögum, með
þátttöku færeyska félagsins, sem
ekki hefur sýnt umtalsvert fram
tak, en jafnframt á að visa á
dyr frumherjanum í Færeyja-
flugi, Flugfélagi fslands. ... Okk
ar skoðun er sú, að SAS se ekki
skilyrðislaust rétthafi til Fær-
eyjaflugs og hafi því ekki rétt
til að gefa fyrirmæli um, að
færeyskt flugfélag skuli ganga
til samstarfs við eitt eða tvö
dönsk leiguflugfélög, sem unnið
er að stofnun á í samvinnu við
SAS. Hins vegar skal viður-
kennt, að í Færeyjum er ekki
fyrir bendi sá skilningur, sem
er nauðsynlegur til þess að
stofna og reka sjálfstætt flngfé-
lag, þegar landsstjórnin ákveður,
að nú skuli Færeyingar taka
flugmálin í eigin hendur. Því
miður skortir einföldustu for-
senduna til að það sé hægt, hæði
fjármagn til að stofna til sjálf-
stæðs flugrekstrar og einnig er
til staðar innbyrðis ágreiningur
um málið í Færeyjum.“ Af þess-
um ummælum Dinimalætting
má marka, að Færeyingar eru
alls ekki ánægðir nieð þá stefnu,
sem flugmálin í Færeyjum hafa
tekið. Þeir viðui-kenna ekki, að
vegna réttinda til innanlands-
flugs í Danmörku sé SAS ótví-
ræður rétthafi í Færeyjaflugi en
bersýnilegt er, að óeining með-
al Færeyinga sjálfra veldur
þeim erfiðleikum.
ÞEIR nUKH
v UIÐSKIPTm SEIH
nuGivsní
m