Morgunblaðið - 05.12.1970, Síða 13

Morgunblaðið - 05.12.1970, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGAPJOAjGUR 5. DESBMBHR 1970 13 Framtíð Kópa vogs er í höndum okkar sjálfra GATNAGERÐ Það hefur eðlilega verið jnikill þyrnir i augum Kópa- vogsbúa, hversu iítið hefur mið að áfram i varanlegri gatnagerð undanfarin ár og höfum við í þeim efnum dregist iangt aftur úr öllum nágrann£isveitafélögum og mun það vera ein höfuð- éstæðan fyrir því, að fasteignir hér hafa einnig verið verðlagð- ar í lægsta flokki miðað við slikan samanburð. Hversu lítið miðaði áfram í gatnagerð tel ég fyrst og fremst megi heimfæra til þriggja meginorsaka: í fyrsta lagi var aldrei mörkuð skýr heildarsrtefna i þessum málum og gatnaóætlanir við það miðaðar að ljúka þeim á þann fullkomn- asta og kostnaðarsamasta máta er þekktist, með þeim afleiðing- um, að feosningabúturinn við Kársnesbraut varð eina varan- lega gatnaframfevæmdin yfir 8 éra stjómartómabil fyrrverandi bæjarstjórnarmeirihluta. 1 öðru lagi voru framkvæmdir aldrei boðnar út, en öllum er ljóst, að lang ódýrast er fyrir sveitarfé- lögin að bjóða út slikar fram- kvæmdir og er einnig mjög mik ilvægt að það sé gert á heppi- legum árstíma, en töluverður verðmunur getur verið á þvi hvenær verk eru boðin út. 1 þriðja lagi hefur ekki verið leit að nógu fast og skipulega eftir lénsfé til langs tíma í þessar framkvæmdir, en öllum er ljóst, að til þes's að gera verulegt átafe þarf í það minnsta tíu milljónir árlega að láni, umfram það sem sveitarfélagið sjálft get ur látið af mörkum. VERKEFNI FRAMUNDAN Strax og núverandi bæjar- stjórn tók við völdum kom i ljós, að ekkert fé var til ráðstöf unar í gatnagerð né í margvís legar aðrar framkvæmdir, sem fjárhagsáætlun sagði til um, þar sem greiðslusfeuldbindingar bæj arins, til ársloka, voru það mikl ar, að ekkert fjármagn var af- lögu. Tókst þó að tryggja lánsfé frá viðskiptabanka bæjarins til þess að kleift væri að bjóða út framkvæmdir við Auðbrekku og Kársnesbraut, en áætlanir um kostnað gatnanna voru í kring- um 6.6. milljónir. Áður höfðu gaúmgæfliega verið kannaðar þær leiðir, sem færar voru um endanlega gerð og frágang gatn anna að mati þeirra verkfræð- inga er hönnuðu verkin. 1 gatna áætlun bæjarins, sem fyrir lá til grundvallar, var gert ráð fyrir að við endanlegan frágang þess ara gatna hefði heildarkostnað- ur verið þrefált meiri. Það er augljóst mál, að til þess að skap ist viðunandi ástand í þessum efnum hér, þarf að leggja olíu- möl á stóran hluta af gatna- kerfi bæjarins án mikillar und- irbúningsvinnu, enda leyfá ástæður það viða og þær götur sem þarf sérstaklega að undir- byggja, þá þurfa framkvæmdir að vera við það miðaðar, að, að kostnaði sé stillt i hóf. Á næsta ári mun m.a. vera áætlað að lagfæra og leggja olíumöl á fjölmargar götur er nema um það bil 4 km. að lengd, auk þess sem gert verður stórt átak í gerð Borgafholtsbrautar frá Urð arbraut að brúnni við Hafnar- fjarðarveg. Nánari upplýsingar um þéssi mál er að vænta þeg- ar framkvæmdaáætlun bæjarins fyrir kjörtímabilið verður birt, en þess er fastlega vænzt, að hún verði tilbúin fljótlega upp úr áramótum. ALLIR FÆDDIR JAFNIR Þessi sígilda mannréttindayfir lýsing virðist oft þyí miður gleymast í hita dagsins og vera meira í orði en á borði. Mjög tiltækt dæmi þessu til sönnun- ar er að finna í gagnrýni and stæðinga okkar á hæfekun launa til bæjarráðsmanna, bæjarfull- trúa og fyrir nefndarstörf. Bæj arráðsmenn fá nú fast 12 þús. krónur á mánuði og bæjarfull trúar kr. 1.500.00 og auk þess sem greiddar eru 1.000.00 kr. fyr ir hvern bæjarstjómarfund og kr. 500.00 fyrir nefndarstörf en formenn fá kr. 750.00, áheymar fulltrúar í bæjarráði fá hálf bæjarráðslaun. Það er ljóst, þrátt fyrir veru- lega leiðréttingu, að allir ofangreindir aðilar leggja miklu meiri vinnu af mörkum, en fyrr- nefndar greiðslur gefa til kynna, auk þess sem flestir taka mikinn þátt í ólaunuðum félags störfum í bænum. Það er aftur á móti ekki bæjarfélagi okkar til góðs, ef þeir sem vinna að bæjarmálum geta efeki lagt af mörkum nauðsynlegan tíma til þess að vinna að þeim störfum, vegna þess að þeir hafi ekki fjárhagslega aðstöðu til þess og eðiilega er hægt að gera miklu strangari kröfur til bæjarráðs- manna og bæjarfulltrúa, sem ekki leggja nær eingöngu starfs krafta sína fram i sjálfboðaliðs vinnu og þannig mætti lengi rökstyðja ástæður fyrir þessari sanngjörnu leiðréttingu á áður- nefndum launum. Það verður einnig að haía í huga að eign- ir Kópavogsbúa eru um 2500 milljónir samkvæmt siðasta fast eignamati og er það eðlilega skýlaus krafa bæjarbúa, að stjómun bæjarins sé á hverj- um tima vel skipulögð og lýð- ræðisleg. Það kemur úr hörð- ustu átt að bæjarfulltrúar svo- kallaðra vinstri flokka, sem þyk ast þó öðru jöfnu ver að telja mönnum trú um, að þeir berjist fyrir kjörum hinna lægst laun- uðustu, skulu vera þeir sem mest hafa gagnrýnt þessa ráð- stöfun. Það var þó gleðilegt að á bæjarstjórnarfundi, þegar launamál þessi voru til af- greiðslu að einn bæjarráðsmann anna úr þeirra röðum Sigurður Grétar Guðmundsson studdi þó tillöguna, enda gat hann þess réttilega að hann teldi það ekki sérréttindi þeirra ríku að vera þeir einu sem möguleika hefðu til þess að taka þátt í bæjar- málum eða í störfum Alþingis Islendinga. SKÓLAMÁL Það hefur löngum verið bor- ið fyrir sig af fyrrverandi bæj- arstjórnar-meirihluta, að ástæð- an fyrir litlum framkvæmdum væri óeðlilega miklar skólabygg ingar. Ástandið í þessum efnum var þó mjög bágborið og.eru all ir skólamir 3 settir að mestu, Ekki var hægt að koma á kennslu 6 ára bama s.l. haust vegna húsnæðisskorts og stór- vandræði blasa við i Ðigranes- skóla, ef hann yerður ekfei stækfeaður um 3 kennslustofur fyrir næsta kennsluár, og svöna mætti lengi telja. Alvarlegast var þó með bygg ingu Þinghólsskólans, en í hon um átti kennsla að hefjast á gagnfræðaskólastiginu , s.l. haust, en framkvæmdir við hús gruntn höfðu dregsit um nokkra mánuði og ekki fyrirsjáanleg notkun hans á komandi skóla- ári, auk þess sem f jármálastaða bæjarins gaf til kynna að ekk- ert f jármagn væri aflögu. Það tókst þó með snarræði nú verandi meirihluta bæjarstjórn- ar, að ganga þannig frá málinu, að allt útlit er fyrir að kennsla geti hafizt strax eftir áramót. Höfuðverkefnin á næstunni í sfeólamálum er áframhaldandi stækkun Þinghólsskólans og barnasfeólanna, Digranessfeólans og Kópavogsskólans. Það er álit sérfróðra manna, að barnaskólar eigi ekki að vera fjölmennari en með 500 nemendur og m.a. með það í huga tel ég rétt að ljúka sem fyrst við Kópavogsskólann, þar sem tillit verði tekið til þess að ekfei verði talið heppilegt að fjö'lga mjög kennslustofum og lokaframkvæmdir við það miðað ar. Bæjarstjóm Kópavogs sam- þyfefeti í fyrra áskorun til menntamálaráðuneytisins að menntaskóli yrði reistur í Kópa- vogi enda væri hún reiðubúin að úthluta lóð til skólans. Það er staðreynd að um það bil 70—80 nemendur úr hverjum árgangi stunda nú nám í mennta skólum og er þvi mjög tímabært að strax verði hafist harida í þessu máli. Það væri þó vissu- lega mjög þýðingarmikið, að menntaskólinn leggi áherzlu á Framh. á bls. 24 KÓP AV OGSBRÉF ALMENNA BOKAFELAGIO TILKYNNIR Þar sem útgáfubækur félagsins eru nú orðnar 232 talsins, og aðstaða okkar til afgreiðslu í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar er takmörkuð, höfum við til hagræðis fyrir félagsmenn AB. opnað stóro bókaofgreiðslu í Sætúni 8 Félagsmenn AB fá allar bækur félagsins fyrir 20—30% lægra verð en utan- félagsmenn. AB-bækur kosta allt frá kr. 35 upp í kr. 980.— en þorri þeirra kostar INNAN VIÐ KR. .300.— Allir geta gerst félagsmenn, engin innritunar- eða félagsgjöld, en félagsmenn lofa aðeins að kaupa 4 bækur hið minnsta á ári. þeir sém kaupa 6 bækur eða fleiri fá gjafabók frá félaginu. Félagsmenn hafa ætíð frjálst val um allar AB-bækur. í bókaafgreiðslum okkar fást flestar úrvalsbækur AB á ótrúlega lágu verði. ALMENNA BÓKAFÉLAGID Afgreiðsla í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar. Sími 18880. Afgreiðsla í Sætúni 8. Sími 15920.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.