Morgunblaðið - 06.12.1970, Page 2

Morgunblaðið - 06.12.1970, Page 2
r, 34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DE9EMBER 1970 Kortið sýnir í megindráttum gatnakeríið í M ið- og Austurbænum eins og ráð er fyrir því gert í aðalskipulaginu. * K ar varð. Verksrniðjurnar urðu fyrsti vísir að 7.eykjavíkur- kaupstað og til merkis um mik ilvægi þeirra má geta þess, að þegar verksmiðjurnar voru 10 ára gamlar eða 1762, þá höfðu þær 95 manns í þjónustu sinni, en á því ári voru ibúar Reykja víkur taldir 177, en auk þess 34 á Arnarhóli og 39 í Hlíðar- húsum eða samtals 250. Kaup- staðarréttindi fékk Reykjavík árið 1786 og síðar gerðust eft- ir því, sem árin liðu, ýmsir at- hurðir, sem hver um sig og sam tiginlega urðu til þess að festa Reykjavík í sessi sem höfuð- borg Islands og skal sú saga ekki rakin hér. Þróun byggðarinnar gekk hægt fyrir sig. Fólki fjölgaði ekki mikið og byggðin var lengi bundin við iítið svæði, þ.e. kvosina milli tjarnarinnar og sjávar. Um aldamótin voru íbúar í Reykjavik um 6000 tals ins og hafði byggðin þá skot- ið öngum, bæði austur og vest ur á bóginn, sérstaklega með- fram Laugavegi, sem er hinn upphaflegi vegur að Þvotta- laugunum og ber nafn sitt sam kvæmt því. Árið 1900 var stjórninni veitt heimild ti'l þess að leyfa Reykjavikurkaupstað vega- lagningu um Arnarhólstún. Það var upphaf að Hverfis- götu, en hluti hennar var þó kominn áður, þ.e. austar í Skuggahverfinu. Þá mynduð- ust um þetta leyti götumar í Skuggahverfi svo sem Lindar- gata og Klapparstígur. Göturn ar milli Laugavegs og Skóla- vörðustígs, Grettisgata og Njálsgata risu einnig upp rétt eftir aldamótin. Svo að vikið sé að fleiri götum má geta þess, að Frakkastígur frá Laugavegi niður Skuggahverf- ið var lagður 1903 og Vita- stígur 1907. Barónsstígur frá norðri til suðurs við endann á þáverandi byggð við Lauga- veginn var lagður 1903. 1904 byggðist Miðstræti, 1906 Tjarn argata og Vonarstræti. Á Geirs túrá var byrjað að byggja 1907, komu þá Bárugáta, Rán argata og Ægisgata. Á stríðsárunum 1914—1918 var ekkert byggt í bænum. Þó fjölgaði íbúum mjög mikið og varð því húsnæðisskortur, svo að til vandræða horfði. Að af- lokinni heimsstyrjöldinni fyrri hófst fyrsta meiri háttar bygg ingartimabil Reykjavíkur og varð þá steinsteypa aAalbygg- ingarefnið. Á árunum 1920— 1930 tvöfaldaðist fjöldi húsa í Reykjavík og þá byggðust að miklu leyti svæðin á og í kringum Skólavörðuholtið. Jafnframt var þá byggt í Vest urbænum, t.d. á Sólvöllunum. Eftir 1930 varð þróunin hæg- ari, enda gætti þá heimskrepp unnar, en þegar landsmenn losnuðu úr viðjum kreppunn- ar, hefur borgin þanizt út, eins og raun ber vitni og ekki þarf að f jölyrða um hér. GAMLAR SKIPULAGSHIJGMYNDIR Ýmsir verða til að hugsa um skipuiagsmál borgarinnar á þessu hæga framfaraskeiði hennar. Tómas Sæmundsson t.d. birti í Fjölni bréf um 1836, þar sem hann m.a. gerir Reykja vík að' umtalsefni. Honum finnst ekki fullnægt fegurðar- innar kröfum. Kofaþyrpingin bjóði af sér óþokka. Hann vildi fegra Reykjavík. Hann vildi beinar götur þvert og endilangt yfir kvosina og fjög ur stórhýsi umhverfis opið svæði við Austurvöll og stór- hýsin áttu að vera kirkjan (sem þá var reyndar komin), háskóli, menntabúr (þ.e. menntaskóli) og ráðstofa (þ.e. ráðhús). Ýmsar fleiri hugmynd ir setti Tómas og fram, en samt var eins og hann hefði ekki órað fyrir því að Reykja vík myndi nokkurn tíma vaxa úr kvosinni. Annar góður forveri okkar, Sigurður Guðmundsson, málari hugsaði og mikið um skipulags mál Reykjavíkur. Hann lét eft ir sig lauslega skipulagsupp- drætti, sem sýndu ^Tssulega stórhug. Hann mun fyrstur manna hafa komið fram með hugmynd um það, að í Laugar- dalnum væri tilvalinn staður fyrir leikvang handa æskulýð bæjarins og þar væri skjól og jarðhiti til að rækta tré og skrautblóm. Þessar hugmyndir Sigurðar voru á ferðinni um 1860. Allar voru þessar hugmynd- ir, þótt merkar væru, frekar sundurlausar og oft byggðar á tilfinningu og fegurðarsmekk frekar en þvi, sem raunhæft var á þeim tíma. Árið 1927 var hins vegar gerður heildarskipu lagsuppdráttur af bænum, sem samþykktur var í bæjarstjórn. Á meðfýlgjandi mynd hefur hinn gamli uppdráttur frá 1927 verið prentaður á nýjan upp- drátt af Reykjavík. Það sem fyrst og fremst vekur athygli er hringvegurinn í kringum að albyggðina. Þetta er Hring- brautin, svonefnda. Klemens Jóns'son segir í sögu Reykja- víkur, sem út kom 1929: „Alveg nýlega hefur verið lokið við skipulagsuppdrátt af bænum, er það tilætlunin að fylgja honum eptirleiðis. Samkvæmt honum á vegur, er nefnist Hringbraut, að liggja eins og belti utan um hann frá Rauð- árvík og að Selsvör. Innan þessa beltis verður þvi aðal- bærinn eptirleiðis og er að mestu leyti albyggður á þessu svæði.“ Svo mörg voru þau orð Klemensar, en fjarri fer því að hugmyndirnar frá 1927 hafi staðizt. Hringbrautin umlykur nú aðeins elzta hluta bæjarins, sem að öðru leyti teygir sig orðið langt inn fyrir Elliðaár. AÐALSKIPULAG REYKJAVlKUR Þó að mikils sé um vert að skipuleggja ný ibúðar- og at- hafnahverfi til að ' mæta út- þenslu borgarinnar, er hitt og mikilvægt að reyna að gera sér grein fyrir því, hvernig endur nýjun og endurskipulagning gömlu borgarhverfanna geti átt sér stað. Einmitt með þetta í huga, var það veigamikill þáttur í aðalskipulagi Reykja- vikur, sem út kom 1966, að gera nokkuð nákvæma áætlun um skipulag Miðbæjarins og eldri hluta Austurbæjarins. Aðalskipulag Reykjavíkur er eins konar rammi um þróun borgarinnar í meginatriðum fram til ársins 1983. Það segir þó aðeins fyrir um þróunina í mjög breiðum dráttum og upp í það verður að fvlla með ákvörðunum, sem stöðugt er verið að taka frá degi til dags. Mikilvægustu þáettirnir í aðalskipulaginu eru staðsetn- ing ýmissa meginþátta borgar- lífsins og gagnkvæm lega þeirra, notkun landsins til jhn- issa þarfa og loks umferðar- kerfi, sem tengir borgina í eina heild. Slík áætlanagerð hlýtur að hvíla á ýmsum forsendum. Sumar eru óskeikular og óbreytanlegar, eins og náttúru far borgarinnar, en aðrar eru byggðar á mati og þær for- sendur geta breytzt frá tíma til tíma. Sama er og um mark- mið slíkrar áætlunar. Mark- miðin eru mörg, sem keppa þarf að og stundum þarf eitt að víkja fyrir öðru og endan- leg niðurstaða hlýtur að byggj ast á eins konar sáttum milli mismunandi markmiða. Það sjá um við bezt, þegar við hugleið- um að fagurfræðileg markmið t.d. þurfa ekki alltaf að fara saman við hagræn markmið og tæknileg markmið þurfa ekki alltaf að fara saman við félags leg markmið, svo að dæmi séu nefnd. GÖMLU BORGARHVERFIN Við skulum þá víkja að gömlu borgarhlutunum sér- staklega og átta okkur á þvi í fyrstu, hvernig aðalskipulagið gerði ráð fyrir að þeir myndu þróast í framtíðinni. Að því loknu ætla ég að víkja að ein stökum málum, sem rædd hafa verið í sambandi við gömlu borgarfiverfin. Eins og ég vék að áðan greinir aðalskipulagið í mjög grófum megindráttum frá þró- un borgarinnar állt til ársihs 1984. Hins vegar þótti nauðsyn legt að gera skipulag með nokkru meiri nákvæmni að tveimur gömlum borgarhlutum, þ.e. Miðbænum og gamla Aust urbænum. Það er ljóst að þar þarf allmikil enduruppbyggnig að eiga sér stað og því mikil- vægt að gera sér grein fyrir því í meginatriðum, hvernig sú uppbygging eigi fram að fara. Þar eru fyrir hendi ákveðin sérstök vandamál, eins og t.d. að eignarréttur að lóðum á þessu svæði er yfirleitt í einka eign, en lóðir flestar nokkuð smáar. Þess vegna er á það sótt, að nýtingarhlutfall sé le.vft mjög hátt á lóðunum. Þá eru umferðarmálin og bíla- stæðamálin erfið viðfangs á þessu svæði og þarfnast sér- stakra aðgerða. Þá má ekki gleyma þvi að hinir gömlu borgarhlutar hafa sérstakt gildi, bæði sögulega og fagur- fræðilega og því ekki óeðlilegt að reynt sé að segja nákvæm- ar fyrir um þróun þessara borgarhluta en annarra. Þvi má og heldur ekki gleyma, að skipulag á þessum hverfum, eins og annars staðar er byggt á ákveðnum forsendum og for- spám, sem kunna að breytast með breyttum tímum. Það er því ekkert líklegra en að eft- ir því sem tírpar líða muni hug myndir aðsdskipulagsins um uppbyggingu gömlu borgar hlutanna breytast, þó að viss- um grundvallarreglum sé hald ið. NOTKUN HtJSNÆÐISINS Við skulum fyrst athuga fyr irhugaða notkun landsins í að- alatriðum í Miðbænum og Aust urbænum og ræða um leið hug myndir aðalskipulagsins um notkun húsnæðis í þessum hverfum. Árið 1962 var heildarflatar- mál húsnæðis í Miðbænum 118.000 m2. Samþykkt borgar- stjórnar og ennfremur útreikn ingar á væntanlegu umferðar- magni byggjast á þeirri áætl- un, að húsnæðisflatarmálið muni komast upp í 150.000 m'2 til 1983 og síðar upp í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.