Morgunblaðið - 26.01.1971, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 26.01.1971, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, URIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1971 13 Samstillt átak í umferðar- slysavörnum nauðsyn Ekki má draga úr þeim vegna f járskorts, sagði Olafur B. Thors á fundi borgarstjórnar Á FUNDI borgarsljómar Reykjavíkur sl. fimmtudag var gerð samþykkt um umferðarmál, sem í höfuðatrið'um byggðist á tillögu er Ólafur B. Thors lagði fram á fundinum, en með nokkr um breytingum að tillögu Guð- mundar G. Þórarinssonar. Sam- þykktin er svohljóðandi: „Borgarstjórn Reykjavíkur lýs ir yl'ir áhyggjum sínum vegna þeirrar fjölgunar umferðarslysa, sem orðið hefur að undanfömu. Telur borgarstjórn, að einskis megi láta ófreistað til þess að vinna gegn þessari þróun. Borgar stjórn bendir á nauðsyn þess, að umferðaræðar og gatnakerfi í heild, gangbrautir, lýsing og önnur tæknileg atriði, tryggi umferðaröryggi svo sem unnt er, haldið sé uppi markvissri um- ferðarfræðslu og öflugum áróðri fyrir bættri umferð í landinu, svo og víðtækum rannsóknum á orsökum og afleiðingum umferð- arslysa. Það fjármagn, sem þjóð- in leggur fram til umferðarslysa vama, skilar sér margfalt aftur til þjóðarbúsins. Borgarstjórn telur því eðtilegt að efla umferðardeild borgar- verkfræðings vegna síaukins umferðarþunga. .Tafnframt skor- ar borgarstjóm á Alþingi og rík- isstjórn að veita umferðarráði þann fjárhagsgrundvöll, sem nauðsynlegur er til að starfsemi þess verði sem árangursríkust, auk þess sem sveitarfélög og aðr ir aðilar em hvattir til að Ieggja sitt af mörkum í baráttunni gegn umferðarslysum.“ Ólafur B. Thors (S) fyígdi til- llögu simni úr hlaði og gerði grein fyrir ýmsnjtm töhileguim upplýsingum um uimferðarslys hér á landi síðustu árin, eins oig fná var greint í Morgunblaðinu Sl. suninudag. Síðan vék hann að þróun uimf e r ð a rsly s avar n a á landimu frá H-dagi, og sagði, að þá hefðu orðið alger straurn- hvörf í þessium málum. Borganfulltrúinn minniti á, að í kjölfar þess starfs, sem uinnið hefði verið við hsegri umtferð- ina, hefði Um- f erðarmá! aráð * verið sett á : stofn með reglu- » gerð en Umferð- aráð síðan lög- fest á Al'þirugi í maí 1970. Starfs- svið Umiferðar- ráðs má slkil- gneina með eftirfarandi hætti, sagði ÓlafuT B. Thors. í fyrsta lagi ber því að hafa heildaryfir- sýn yfir umferðarvandamálið og draga inn í landið allan þann fróðleik, sem til er um urnferð- armál og miðla þeim fróðleik til aðila er þessi mál sérstaklega varða. í öðru lagi ber stfoímun- inni að fást við slysaranmsóknir og draga af þeim ályktanir um hvað helzt sé til úrbóta. í þriðja lagi ber Umtferðarráði að beita sór fyrir skipulegum áróðri fyrir bættum umfarðarháttum í land- imu og því beri að sameina sem fiesta aðila ti! samstilltra átaka í umtfenðarglysavörnum, m. a. með því að hafa yfirsýn yfir þau verkefni, sem vinna þarf hverju sinni og útdeila þeim til þeirra aðila er þau gefa fram- kvæmt. Þá geirði ræðuimaðuir grein fyr ir helztu verkefnum, sem Um- tferðarráð hetfux sinnit fram til jþessa. Umfeirðarskólinn U(“gir ýegfarenduir er fyrir börn undir sfkólaskyldualdri, 3ja—6 ára. Nær 13 þúsund böm eru í sfkól- anium, s<-m fá 6—8 verkefni á ári. 20 sveitarféiög, þ. á m. Reykjavík, eru aðilar að rekstri sBcóíláns og greiða hluta af rekstr airkostnaði. Umferðarfræðslan í skólnkn hetfur verlð eitt heizta verkefni ráðsins. Spuirninga- keppni skólanna er landskeppni tmieð þátttöku 4500 barna. Efnt hefuir verið tdtf jólagetraunar, sem nær til 32 þúsuind bama. Til foreMra 6 og 7 ára skóiabama í þéttbýli, hefur verið sent for- eldrabréf, „Leiðin í skólann“. Á veguim ráðsins hafa verið fluttir tvö sl. ár um 300 fræðslu- þættir í Rikisútvarpið og ráðið hetfur haft milligöngu um sýn- ingu á fræðsluiþáttum í sjón- varpi um öryggisbúnað bifreiða og útgáfu bókar um sama atr- iði. Upplýsingamiðstöð hetfur verið starfrækt uim verzlunar- mannahelgar í samvinmiu við lög- regliuina. Ökumaðuæinn, fræðslu- rit fyrir bifreiðastjóra hefur ver ið gefið úf á vegum Umferðar- ráðs. Upplag ritsins er 50 þús- und eintök. Á sl. sumri fór fram fræðsliustarf um gildi öryggis belta. 150 þúsund endurskins- merikjum hetfur verið dreift til söliu. Starfsami Umiferðarráðs að slysarannsóknium má iskipta í þnennt: 1 fyrsta lagi söfnun upp- lýsiinga um ölll umferðariS'lys í lögsagnarumdæmium landsins og niðuirstöður þeirra notaðar tií á- kvörðunar á aðgerðum til að draga úr umtferðarslysum. í öðru lagi athugun á orsökum fram- rúðubrota í bifreiðum. í þriðja lagi alllvíðtæk athugun á orsök- um og aflleiðingum slysa við notkun dráttarvéla og er nú unnáð að tillöguigarð á því sviði. Loks sagði borgarfuilltrúiinn, að í samvinmu við Slysavarnafélag ís- lands væru starfræktar uinferð- aröryggisnefndir víðs vegar tum landið. Ólafuir B. Thors sagði, að starf semi sem þessi kostaði fé. Á ár- inu 1969 hetfðu útgjöldin orðdð 1,9 mi'llljónir króna og á árinu 1970 námu þau 4 miHjónum kr. Fyrir árið 1971 sendi Umferðar- ráð frá sér fjárhagstiWögur að upphæð 6,8 milliónir króna og var þar gert ráð fyrir svipaðri starfsemi og sll. tvö ár. Aðeins væri gert rað fyrir tveimur nýj- um verkefnum á árinu 1971: fræðsiuhenferð, sem hetfði það að mankmiði að fæklka Slysuim á bömium í umferðinni og fræðsilu myndaflokki um umtferð og halztu orsakir umferðarsQysa. Alþingi hefði hins vegar aðeins veitt 900 þúsumd krónur tif ráðs- ins og það þýddi að fella yrði niður nær al'lt starf á vegum þess. Ólafur B. Thors sagði að lok- ™, að nú virtist sem draga ætti úr þessu slysavarnakerfi og því teldi hann rétt, að borgarstjórn Reykjavíkur legði áherzlu á mikilvægi þess, að svo yrði ekki. Tilgangurinin með tiMögufHutn- ingnum væri tviþættur. í fyrsta lagi að vekja athygli borgar- stjórnar á um'ferðarvandamáliinu, sem eykst ár frá ári og í öðru lagi að benda á nauðsyn öflugs sliysa’vannastarfs og þá hættu, sem nú væri á, að úr því yirði dnegið vegna fjárskorts. Guðmundur G. Þórarinsson (F) sagði, að slí'k áskorum, sem sú, er fælist í tillögu Ólafs B. nions, væri ejáltfsögð og meira en það. Skýrimg margra á afgrciðslu Al- þingis á fjárveitingum til Um- fenðarráðs væri sú, að þar hefðu orðið mistök. Svo ágæt, sem þessi tiliaga er, sagði ræðumað- ur, er hún ef til vil'i ekki nógu víðtæk. Hér er lögð mest á- * íj 'g’JÍ herzla 4 umtferð- ú arfra'ðslu. Hún |j§ er ómetanieg og JL* Æ na-uðsynleg. En orsakir umferð- arslysa ntó rökja til margra þátta. Þar kamur til bæði vankuninátfa og athuigunar 3)eysi, sem bætt er úr meö tfræðsllu. Ég viil nefna liér nokk- ur tæknileg atriði, sem mér sýn- ist, að skipti veruilegu máli. Ó- fullllnægjandi gatnamót, lýsinigu gatna og legu ganigstétta, frá- igamg stétta og kanta og fleira. Öryggi fótgamgandi í umfierð- Lnind. Umferðin fer etftir gatnakerfinu í borgimni og þvi eöliiegt að álíta, að það hafi sín áhrif. Ég vil í þessu sambandi nefma nokkra staði, þar sem Slys hafa orðið fXeiri en annars staðar. Þar má nefna gatnamót Kringliumýrar- brauitar og Háaieitisbrauitar. Nú hetfuir verið komið þar fyrir beygjuböninum og umferðarstýr- imigu og hefur þetta hjálpað. Á sl. ári urðu 33 árekstrar á gatna- mótum Hrimgbrautar og Hotfs- vallagötu. Þau hafa rnikið batn- að með merkimgu akreina. Það er mikilivægt að akreinar séu vel meriktar og viðhald á þeim gott. Enn vil ég nefna gatna- mót Kringlumýrarbrautar og Sléttuivegar, en eftir að þau voru tekin í notkum á sl. sumri urðu þar 27 árskstrar. Með lagfær- imgu þar ætti að vera unnt að aiuka umferðaröryggi. Sömu sögu er að segja um gatnamót Hrimgbrau'tar og Sóleyjargötu. Þá má metfna mót Skeiðvallarveg ar og Suðurlandsbrautar við Mikluibraut. StkeiðvaMarvegurinn, er ófudlnægjandi og eykur á um ferðarhættu við Bústaðaveg. Á þessum gatnamótum urðu á sl. ári 36 árekstrar. Þegar endan- lega er búið að ganga tfna þess- um gatmamótu'm og brúnni má búast við að mjög dragi úr um- ferð og slysahættu á Bústaða- vegi. Á mörgum þessaira gatna- móta mætti beita meiri stýringu í umiferðinini. Su'ims staðar hafa verið gerð viðamikil gatnamót, en síðan aru settir upp tróklloss- ar og uimtferðinni beimt á annan veg. Á sl. ári urðu 6 slys á gang- andi vegfarendum við Bústaða- veg en eftir umræður í borgair- stjónn um má!ið og þá athygli, sem vakin var á þessari hættu þá, hefur ekkert slys orðið. Lýs- img á umtferðavæðuim hefur milk- ið að segja, svo og að húin sé sett upp strax og þær eru tekn- ar. í notkun. Ennfremur er gang brau'targerð þýðimgarmi'kil, svo að fótgangandi gangi ekki eft- ir götunum. Nauðsymlegt er, að hafa betri lýsimgu á þeirn gatna- mótum, þar sem umferðarsíys hafa verið tíð. Borgarfullltrúinn gerði í ræðu sinmi athuigaseimdir við lýsimgu Miklubrauitar, austast og syðst, þar sem lýsing væri ekki komin og sagði, að lýsimg á Hringbraut væri mjög gölluð. Þá ræddi hann ma/bikið og sagði, að hinn dökki litur þess drykki í sig ljós bíla. Margar þjóðir hefðu neynt að bæta úr þessu á þann veg, að setja litarefni í efsta slit- lagið, þamnig að það hjálpaði tíH. Borgarfu'il'trú inn sagði, að ekki yrði gemgið fram hjá þessum veigamilklu atriðum, þegar rætt væri um orsakir umferðarslysa. Hamn kvaðst hafa benit á það við afgreiðálu fjárhagsáætluinar borgariranar, a'ð fjárveitingar til umferðairdeildar borgarinnar væru ónógar. Tillaga Ólafs B. Thors næði aðeins til hl'U'ta þessa máls og því legði hanin fram breytimgartillögu. Ólafur B. Thors (S) kvaðst Guðmundi G. Þórarinssyni sam- mála um það, að fleiri atriði skiptu má!i í þessu sambandi en umfeirðarÍTæðslan ein, m. a. tækniiegir þættir. Hann kvaðsit vera sarramála breytingartillÖg'U borgarfu'l:trúans. Sú spuming vaiknaði að vísu, þar sem málið hefði verið fært á víðari grund- völl, hvort vísa ætti þvi til 2. umræðu og meðferðar umferðar nefndar en ef slíkar óskir kæmu ekki fram, muiradi hann greiða breytingartiLiögunni atkvæði. Bneytingartillagan var eíðan samiþykkt og tillagan í heild með samhljóða atkvæðum, eins og að ofan greinir. mm Kílreimar og reimskífur ávallf fyrirliggjandi. Vold Poulsen hf. írí Aip ,PS Hf. SUÐURLANDSBRAUT 10 SÍMAR: 38520 - 31142 greiðið lægri skatta, ef þér eruð ^LÍFTRYQQÐUR Samkvæmt núgildandi skattalögum er heimilt að færa iðgjaldagreiðslur fyrir Ifftryggingar sem frádrátt á skatta- skýrslu. Má iðgjald nema allt að kr. 6.000.00 á ári, ef viðkomandi er í lífeyrissjóði.en kr. 9.000.00 sé hann það ekki. Með þessu verða skattar þeirra lægri, sem líftryggja sig, og hið opinbera vill á þennan hátt stuðla að því, að sem flestir séu líftryggðir. Útsvar og tekjuskattur geta lækkað um allt að helmingi iðgjalds, ög má því segja, að hið opinbera greiði helm- ing iðgjaldsins. Iðgjaldið er því í raun og veru helmingi lægra en iðgjalda- töflur segja til um. Leitið nánari upplýsinga hjá Aðalskrifstofunni, ÁRMÚLI 3, eða umboðsmönnum. SÍMI 38500 UtFTRYGGINGAFÉLACÍIÐ ANDVAKA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.