Morgunblaðið - 23.02.1971, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRtJAR 1971
7
Gleði er
*
í
höll
„Já, nú finnst mér ég
þekkja „drauminn" lians
Shakespeares aftur, þessi
„Herranótt" er alveg ósvik-
in skólakrakkagleði, eins og
þær gerast beztar/* sagði Lár
us Sigurbjörnsson, þegar við
hittum hann á frumsýningu
á Jónsmessunæturdraumi
Shakespeares í Háskólabíói á
laugardagskvöldið. I>ar var
sneisafullt hús og hinum
ungu ieikendum klappað lof í
lófa, og þegar við höfðum orð
á þvi, að okkur hafi þótt
Rokki eða Puck, eins og
höfundurinn nefnir liann,
vera óvenju liðugur að kom-
ast á milli staða á hinu stóra
sviði, sagði Lárus.
„Oft hef ég séð Puck á
sviði, þeir hafa m.a. s. komið
honium í bönd og sveifiað
honum til og frá um sviðið,
en þessi héma í kvöld var
ágaetur, og þetta var ósvikin
gleði.“
„Já, úr því þú nefndir orð-
ið „gleði“, væri ekki úr vegi
að spyrja um tvær síðustu út
gáfur þinar á „Gleðum", Lár
us, hverjar þær eru, og þá
ekki síður að hinu, hvað þú
hafðir fyrir þér um þetta
„gtleði“-nafn ?“
„Já, rétt er það, að nýlega
eru komnar út 3. og 4. gfleði,
hjá samnefndri leiíkritaút-
gáfu, en það er Enarus Mont
amus eða Nesjamennska eftir
Holberg i staðfærslu minni,
og Kappar og vopn, andróm-
antísk gleði eftir Bernhard
Slhaw, en ég þýddi hana.
Enarus var sýndur hér af
Menntaskólanemendum tví-
vegis, sem skólaleikur 1946,
og ættir þú að mínnast þess
leiks, þar sem þú lókst sjálf-
ur Drésa fógeta, og síðan á
Herranótt 1962.
Kappar og vopn var sýnt
sem Skólaieikur 1945 og sem
Herranótt 1963. Ég var leik-
stjóri Enarusar áríð 1946 og
Kappa og vopna 1945, en
Helgi Skúlason i bæði seinni
sikiptin."
Lárus Sigurbjörnsson.
„En hvað svo með nafnið
„Gleðir," Lárus?"
„Með því að taka upp aft-
ur hið eldgamila heiti á gleði-
leikjunium gömlu, sem í eina
tíð voru svo langt leiddir að
það mátti heita algengt að
fólk fór „til komedíunnar"
eða öllu heldur „á komedí-
una“. Gamanleikur eða „gleði
leikur" var mun yngra orð
en það sem Espólín hafði um
gömgu sína „á leikarahús"
áður hann færi úr bænum, og
átti sýslumaður þar trúlega
við skólapiltaleik. Leynt fór
orðið „gleðikona", enda mein-
ing öll önrnur þar sem konur
tóku ekki þátt í leikjumum,
en „gleðimaður" gamalt við-
Glymja
hlátra-
sköll
skeyiti heldur til lofs en lasts,
sbr. „Hann var hinn mesti
gleðimaður" þ.e. var hændur
að góðri skemmtam, í eldri
merkingu „hann var hinn
bezti leikari". Gleði og gleð-
ir er hið ákjósanlegasta orð
og liðugt í alfls konar sam-
setningum — það má enda
komast allar götur upp í and
stæðuna við orðið: ógleði eða
and-gfleði, það sem vekur
manni leiða eða ama. .
Sem þýðing á útlenzka orð
inu „komedie" eða „Come
dy“ er gleði nýyrði og fellur
vel að máli og stil. Menn
kflappa af sér gleðina að
gömlu máli eða öltu heidur
„klappa af sér gleðina hver
af öðrum" þ.e. varpa af sér
gleðinni og hver einasti mað
ur finmur sannleiksgildi orð-
anna, þagar grár hversdagur-
inn blasir við manni að lok-
inni gleði. Ýmislegt fleira
mætti tilfæra úr gömlu máli
svo sem „gleðileikafólkið"
þ.e. leikaramir „að horfa
upp á gleðina,“ „sitja á palli
og sjá gleðina" o.s.frv. Og
siðast en ekki sízt „nú er
glatf á Hjala“ og eins og
Grimur Thomsen hefur: „Gleði
er í höll, glymja hlátrasköli."
— Þannig er tilkoma þessa
heitis til orðin".
Og siðan héldum við Lárus
báðir inn eftir hflé tii að
'horfa á Herranótt, þar sem
ungir Menntskæflingar
spreyta sig á Shakespeare
þessa stundina með viðeig-
andi Skraparotsprédikun.
— Fr. S.
A
förnum
vegi
FRÉTTIR
Stúdentar MR
1946
Fundur í Naustinu, uppi, mið-
vikudag kl. 8.30. Athugið breytt-
an íundarstað.
Aðalfundur Kirkjimefndar
kvenna Dómkirkjunnar
verður haldinn að Hallveigar-
stöðum (skátaheimilinu), gengið
inn frá Öldugötu, fimmtudag-
inn 25. febrúar kl. 2.30 síðdegis.
Arnað heilla
50 ára er í dag Þórður Sig-
urðsson, Herjólfsgötu 35, Hafn
arfirði.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Herdís Einarsdóttir
Bjarnhólastíg 17a og Oddur B.
Grimsson Álfhólsvegi 8a Kóp.
Þann 25.12. 1970 voru gefin
saman í hjónaband i Grindavík
urkirkju af séra Jóni Á. Sigurðs
syni ungfrú Bergiljót Sjöfn
Steinarsdóttir og Magnús Ing-
ólfsson. Heimili þeirra er fyrst
um sinn að Vikurbraut 38,
Grindavík.
Myndin að ofan er af læknum útskrifuðum frá Háskóla fslands í febrúar 1971, í lieimsókn í Ing
ðifs Apóteki. Læknamir á myndinnl eru: Árni V. Þórsson, Einar M. Valdimarsson, Guðjón
Magnússon, Jóiiann R. Kagnarsson, Leifur N. Dungal, Ólafur Ólafsson, Óskar Jónsson, Stefán
J. Helgason.
Hjúkrunarkonur
Tvær aðstoðarhjúkrunarkonur vantar til starfa við
Sjúkrahús Skagfirðinga Sauðárkróki.
Upplýsingar gefur yfirhjúkrunarkona.
Skrifstofustúlka
Ríkisfyrirtæki viM ráða nú þegar stúlku til simavörzlu, svo og
annarrar almennrar skrifstofuvinnu.
Þær, sem vildu sinna þessu, sendi nöfn sín og heimilisfang,
svo og upplýsingar um menntun og fyrri störf, til afgreiðslu
Morgunblaðsins, fyrir 1. marz næstkomandi, merktar:
„SKRIFSTOFUSTARF 1971 — 6747".
STANLEY
Gluggotjaldostongir
J. Þorláksson & Norðmann hf.