Morgunblaðið - 23.02.1971, Síða 23
1
HÉR birtist mynd af Oddnýju
Elínu Vigfúsdóttur, frá Snæ-
hvammi. Þau leiðu mistök urðu
að myndin varð eftir er minn-
ingargrein um Oddnýju birtist
hér í blaðinu sl. laugardag.
— ÍR - Fram
Framhald af bls. 30
ÍR-ingar ljómandi vel, ekki sízt
í vörninni, þar sem þeir voru
vakandi og ákveðnir og gáfu
Fram fá tækifæri til athafna.
Strax á fyrstu mínútunum
breytti Ásgeir stöðunni í 11-7
fyrir ÍR, og eftir 5 mínútur
hafði Vilhjálmur ^ tryggt fimm
marka forskot ÍR-inga, 12-7.
Voru menn þá farnir að gera
því skóna að sama sagan og í
fyrri leik liðanna myndi endur-
taka sig, en þá sigruðu íR-ingar
með 9 marka mun. En Fram-
arar létu mótlætið ekki á sig
fá og börðust ljómandi vel. Arn
ar gerði þeirra 8. mark, en Vil-
hjálmur svaraði með 13. marki
ÍR. Síðan skoraði Axel þrjú
mörk í röð og breytti stöðunni
£ 13-11. Spenna var aftur kom-
in í leikinn, og allt virtist geta
gerzt. Um miðjan hálfleikinn
var enn tveggja marka munur,
15:13, en þegar hér var komið
sögu virtist úthald ÍR-inga vera
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1971
23
nokkuð tekið að þverra og ekki
sama öryggi í leik þeirra og áð
ur. Þegar 10 mínútur voru til
leiksloka fékk Fram gullið tæki
færi til þess að jafna er dæmt
var vítakast á ÍR. Arnar fram
kvæmdi vítakastið, en Guðmund
ur Gunnarsson, í ÍR-markinu
varði snaggaralega. Dýrðin stóð
þó ekki lengi fyrir ÍR, því strax
á næstu mínútu jafnaði Axel
fyrir Fram með sannkölluðu
þrumuskoti.
HART BARIZT Á LOKA-
MÍNOTUNUM
Á lokamínútunum var svo
mikil barátta, og mátti ekki á
milli sjá, hvort liðanna gengi
með sigur af hólmi í þeirri bar
áttu. Þegar 4 mínútur voru til
leiksloka var staðan 18:18, en
síðan náðu Framarar tveggja
marka forystu, með glæsilegu
marki Björgvins af línu og enn
einu marki frá Axel Axelssyni.
Þórarinin Tyrfingsson skoraði
svo síðasta mark leiksins, en
þrátt fyrir tilraunir ÍR-inga
tókst þeim ekki að ná boltanum
á síðustu sekúndunum.
FRAM AÐ SÆKJA SIG
Framarar áttu engan glans
leik að þessu sinni, en ljóst er
þó að liðið er að sækja sig, og
ætti innan skamms að skipa
sér í þann sess sem það hefur
verið í á undanförnum árum.
Það er meira en lítils virði fyrir
það að Axel skuli nú hafa fund
ið sjálfstraust sitt að nýju, því
fáir leikmenn eru skotharðari
en hann. Björgvin Björgvinsson
stóð sig einnig af stakri prýði
í þessum leik, og er án vafa
bezti línumaðurinn hérlendis,
enda leikur hann allt öðru vísi
en þeir flestir. Þá varði Þor-
steinn ágætlega í markinu og
virðist hafa fundið sitt gamla,
góða form.
ÍR-ingar virtust eiga góða
möguleika á sigri í þessum leik,
þegar þeir voru komnir fimm
mörkum yfir. Það háir liðinu
gremilega hvað það hefur fáum
góðum leikmönnum á að skipa.
Þegar aðalliðið er inná og er
sæmilega óþreytt, er það erfiit
viðureignar fyrii hvaða lið sem
er, en þegar skipta þarf einstök
um leikmönnum þess út af, eru
skiptimennirnir ekki nógu góðir
til þess að skipa þeirra sess. —
Það er líka greinilega mikið
áfall fyrir ÍR-inga að Ágúst
Svavarsson skuli ekki vera með,
en hann er ennþá í gipsi eftir
fingurbrotið á dögunum.
I STUTTU MÁLI:
Crslit: Fram — IR 20:19.
Mörkin: Fram: Axel 12, Björg
vin 3, Ingólfur 2, Guðjón 2 og
Arnar I. —■ ÍR: Vilhjálmur 6,
Hrynjólfur 4, Þórarinn 4, Ásgeir
2, Ólafur, Jóhannes og Hörður
1 hver.
Vísað af leikvelli: ÍR: Ólafi
Tómassyni í 2 mín.
Dómarar: Sigurður Bjarniason
og Valur Benediktsson. — Voru
nokkuð mistækir, og í svo jöfn
um leik sem þessum, geta mis
tök dómara verið mjög afdrifa-
rík.
Beztu leikmenn: Fram: 1. Ax-
el Axelsson, 2. Björgvin Björg-
vinsson, 3. Þorsteinn Björnsson.
ÍR: 1. Brynjólfur Markússon, 2.
Vilhjálmur Sigurgeirsson, 3. Guð
mundur Gunnarsson.
Leikurinn: Jafn og spennandi,
sérstaklega undir lokin. ÍR-ing
ar fóru illa með gott forskot
sem þeir höfðu skapað sér, og
áttu a.m.k. annað stigið skilið.
— stjl.
- ÍR - Þór
Framhald af bls. 31
sæmilega í þeim fyrri. Mig lang-
ar til að koma hér inn á eitt
atriði 1 sambandi við Þórsliðið,
en það er hversu hræddir sumir
leikmenn liðsins eru við að reyna
skot. Þeir Númi og Pétur eru báð
ir leikmenn sem geta skotið, og
skorað, aðeins ef þeir hafa kjark
til að reyna slikt. Það virðiist að-
eins stefnt að þvi, að spila upp
á að hinir „stóru“ í liðinu, þ.e.
Stefán og Guttormur fái að
skjóta. Annars er Þórsliðið í
mjög svipuðum. „klassa" og KR,
Ármann og HSK, og til alls lík-
legt. Beztu leikmenn iR: Agnar,
Kristinn og Þorsteinn.
Þór: Stefán, Magnús og Albert,
en sá síðastnefndi er ungur leik-
maður sem lítið hefur fengið að
reyna sig hingað til.
Stigahæstir, iR: Agnar 28,
Kristinn 21, Birgir og Þorsteinn
10 hvor.
Þór: Stefán 25, Magnús 21, Al-
bert 6.
Það vakti mikla óánægju áhorf
enda, að leikurinn hófst ekki á
tilsettum tima', og kom í ljós að
tvennt kom þar til. Hringlað
hafði verið með leikskrána og
ekki hafði verið séð fyrir því að
dómarar væru til taks til að
dæma leik iR og Þórs. Loks þeg-
ar fólk kemur til að fylgjast með
leikjium í 1. deild, þá er það ó-
verjandi að ekki séu til
staðar dómarar til að sjá um að
keppnin geti hafizt á tilsettum
tíma. Þeirri áskorun er hér með
komið á framfæri við þá sem
um þessi mál eiga að sjá, að þeir
láti slíkt ekki endurtaka sig.
Svona vinnulag fælir fólk frá
þvi að koma og fylgjast með
leikjunum.
Til leiksins voru fengnir til
að dæma tveir af leikmönnum
fyrstu deildar, þeir Jón Sigurðs-
son og Birgir Guðbjörnsson, og
stóðu þeir sig mjög vel. Sérstak
lega Birgir, sem er mjög ákveð-
inn og röggsamur dómari.
gk.
Innilegustu þakkir færi ég öllum þeim
er glöddu mig með kveðjum og gjöfum á 75
ára afmæli mínu. Sérstakar þakkir vil ég
færa yfirmönnum og starfsfólki pósts og
síma í Reykjavík fyrir hina höfðinglegu gjöf.
Guð blessi ykkur öll.
Eyjólfur Magníisson.
Innilegar þakkiir færi ég öll-
um þeim, sem glöddu mlg
með heimsóknum, gjöfum og
heiliaóskaskeytum á 80 ára
afmæli minu 7. febrúar sl.
Guð blessi ykkur ÖH.
Sigríður K. Gísladóttir
frá Ytra-Skógarnesi.
Innilegar þakkir til elskulegra
barna minna, tengdabama,
barnabarna, foreldra, syst-
kina, fóstursystkina og tengda
fólks, kunningja og vina fyrir
góðar gjafiir á 60 ára afmæli
mínu 9. febrúar sl. Svo og
kvenfélaginu Fjó'lu og Verka-
lýðsfélagi Vatns'leysustrandar
fyrir rausnarlegar gjafir.
Óska ykkur öHum góðs í nú-
tíð og framtíð og hafið ÖU
hjartans þökk.
Margrét Þórarinsdóttir,
Minna-Knarramesi,
V atnsley suströnd.
FRAMTÍÐIN ER FORD-CORTÍNA.
Cortínan frá Ford sló í gegn um leið og hún birtist
á bíiamarkaði heimsins. Nú birtist ný Cortina, bíll
áttunda áratugsins — endurnýjuð frá grunni.
Hjá Ford vinna 3600 sérfræðingar að slíkri endur-
sköpun, en það bezta er þó, að eftir allt saman
verða menn að endurskoða hugmyndir sínar um
hvað hægt sé að fá fyrir peningana.
Fjölskyidan fær sinn óskabíl og sannir sportmenn
vagn sem sameinar lipurð, fegurð og kraft.
CORTINA1971