Morgunblaðið - 16.03.1971, Page 4
r- ________________________________________________________________________________
[ 4. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUK 16. MARZ 1971
mmm
HVERFISGÖTU 103
VW SendiferÖabifreið-VW 5 manna-VWsvefnvagn
VW 9manna*Landfover 7manna
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13
Sími 14970
Eftir lokun 81748 eða 14970.
bilaleigan
AKJifiA UT
*■T
car rental scrrice
+ 8-23-47
sendimi
r
0 Engar „villu-
kenningar“
Ástríður Eggertsdóttir skrif-
ar:
„Hveragerði, 7. 3. 1971.
Velvakandi vænn!
Aðeins nokkur orð viðvíkj-
andi æskulýðsmessu í Hall-
grímskirkju sl. sunnudag, 7.
marz. Messu þessa hlýddi ég
á með mikilli gleði. Er þó alda
mótabarn.
í gegnum tárin eygði ég ó-
væntar, ótrúlegar dásemdir,
ekki einungis upphafningu
kristinnar trúar í landi voru,
heldur og uppreisn hennar,
þar sem hvorki verður talað
tim friðþægingardauða, upp-
risu holdsins né eilífa útskúf-
un.
Loksins munu þær villukenn
ingar verða kveðnar niður —
vonandi að eilífu.—
Ungu leiðtogar!
Guð mun blessa og stjórna
starfi ykkar.
Vinarkveðjur,
Hveragerði, 7. marz 1971.
Ástríður Eggertsdóttir."
0 Eigum við að uppræta
loðnuna líka?
Svo spyr Guðmundur Ág-
ústsson í bréfi dags. 7. marz
1971.
„Daglega berast fréttir af
mokveiði af loðnunni smáu við
suðurströnd landsins, —
smæsta nytjafiskinum okkar,
— eftir að okkur tókst að tor-
tíma ævintýrafiskinum okkar,
— „silfri hafsins", með kapp-
samlegri aðstoð Norðmanna, er
þeir mokuðu upp ókynþroska
smásíld í fjölmörgum fjörðum
Noregs. En það var í þann
mund, er við íslendingar keppt
umst við að elta síðustu leif-
arnar af fullorðnu síldinni aust
ur í hafsauga til þess að mala
hana í skepnufóður (— að
mestu), í mörgum nýjum og
dýrum verksmiðjum, er byggð
ar voru af lítilli forsjálni á
óheppilegum stöðum.
Með því að það eru fleiri en
ég. sem uggandi eru vegna af-
leiðinga svona takmarkalauss
dráps á þessum smáfiski, þá
vil ég vinsamlegast beina þeim
Strandnmenn - Strcndamenn
Árshátíð félagsins verður haldin að Hótel Borg laugardaginn
20. marz og hefst með borðhaldi kl. 19.
TH skemmtunar verður:
Kórsöngur, tvisöngur, ræða kvöldsins
og annáll félagsins,
hljómsveit Ölafs Gauks leikur fyrir dansi.
Miðasala veður fimmtudaginn 18. og föstudaginn 19 marz
kl. 17—19 í anddyri Hótel Borg, borð tekin frá.
Upplýsingar í síma 11440 á sama tíma.
Gerum okkur glaðan dag, mætum mörg.
Stjóm og skemmtinefnd.
jmáLmJsikmmm
u' '•bilasoilq
GUÐMUNDAR
Bergþóruqötu 3
Símar: 19032 — 20070
Hópierðir
Til leigu í lengri og skemmri
ferðir 10—20 farþega btlar.
Kjartan Ingimarason,
stmi 32716.
VERZLUN
Til sölu lítil búsáhalda-, ritfanga- og leik-
fangaverzlun í einu bezta úthverfi borgar-
innar.
Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 20. marz n.k
merkt: „7335“.
Volkswagen
varahlutir
tryggj'a
Volkswagen
gæði:
ELDTRAUSTIR
SKJALASKÁPAR
3ja og 4ra skúffu.
SÆNSK
GÆÐAVARA
E. TH. MATHIESEN H.F.
SUÐURGT. 23 — HAFNARFIRÐI — SÍMI 50152
tilmælum til okkar vísu fiski-
fræðinga, að þeir láti í ljós
álit sitt á því, hvort ekki sé
vissara að fara nú þegar að
„stinga við fótum“, meðan enn
kunna að vera eftir einhverj-
ar leifar af núverandi loðnu-
göngu vestur með hálfri strand
lengju íslands. Venjulegum
„landkrabba“ finnst ótrúlegt,
að að viðkoma þessa smáfisks
sé svo gífurleg, að engar af-
leiðingar komi í ljós af þessu
milljarðadrápi á hverju ári,
einkum ef loðnan hrygnir ekki
nema einu sinni á sinni
skömmu ævi. Álit og væntan
legt svar fiskifræðinga veltur
þó sjálfsagt mest á því, hvort
loðnan er nú veidd undan eða
eftir hrygningu.
Vonandi byggist þetta hik-
lausa áframhald veiðanna á
því, að sjómenn viti, að hrygn
ingu núverandi loðnugöngu sé
lokið. Annars er hætt við, að
margur skipstjórinn eigi eftir
að iðrast þátttöku sinnar í þess
um kappsfullu veiðum á þess
um verðlitla smáfiski, ef í ljós
kemur, að þorskstofninn okk
ar dýrmæti fer að tregast við
að sækja upp á gömlu fiski-
miðin í leit að uppáhalds-fæðu
sinni — loðnunni.
Sjálfsagt veltur á mestu um
framhald á fiskveiðum, sem
aðalatvinnuvegs íslendinga, að
þorskstofninn verði ekki skert
ur, — viljandi eða óviljandi.
Reykjavík, 7. marz 1971.
Guðm. Ágústsson."
0 Ofvöxtur í sálarlífinu
Undir þeirri fyrirsögn skrif-
ar Bergur Sigurbjörnsson:
„Bréf til Hallbergs Hall-
mundssonar, New York.
Gamli vinur!
f sem allra fæstum orðum
sagt, er ég þér óendanlega
þakklátur fyrir þá hávísinda-
legu og hárnákvæmu skýr-
greiningu, sem felst í orðunum
„ofvöxtur í sálarlífinu" sem
þú settir fram í fremur snagg-
aralegum greinarstúf í dálkum
Velvakanda fyrir skömmu, af
smáu tilefni.
Ástæðan til þess, að ég vil
þakka þér fyrir þessa „upp-
götvun", er sú, að ég hef um
nokkurt árabil glímt við að
finna þessa skýrgreiningu, án
árangurs, því meira, sem ég
skrifaði um fyrirþærið, því
flelri orð þurfti ég til að tjá
það, sem ég vildi, en hafði þó
alltaf á tilfinningunni, að það
mætti gera með einni setningu.
En nú hefur þú leyst þessa
þraut, og hafðu blessaður gert.
Ég vildi svo sannarlega, að ég
hefði nú ráð á einhverjum stór
vérðlaunum, líkt og Nóbels-
verðlaununum, og skyldi ég þá
með sérstakri gleði veita þér
þau fyrir afrekið, enda værir
þú vel og maklega að kominn.
— Nauðsynlegt er, að vakin sé
athygli á ofvexti sálarlifsins,
hvar sem hann er að finna,
jafn mikið böl og þessi sjúk-
dómur hefur valdið mannkyn
inu frá upphafi vega, enda
flestir aðrir sjúkdómar þess hé
góminn einber í samanburði
við ofvöxt í sálarlífinu.
Tökum til dæmis krabba-
mein, jafn skelfilegan sjúk-
dóm og það er. Það veldur ó-
bærilegri þjáningu, ekki aðeins
þeim, sem með það ganga
heldur og nánustu ættingjum.
En tökum svo annað dæmi
af manni með ofvöxt í sálarlífi
inu: Napóleon, Hitler, Stalín,
Mussolíni, L. B. Johnson, svo
að örfá fræg dæmi séu nefnd.
Sj úkdómur þessara manna, of
vöxtur í sálarlífinu, olli millj
ónum og milljónatugum eða
hundruðum saklausra manna
ómælanlegum þjáningum, kvöl
um og tortímingu og öllu
mannkyni ómældu böli, niður-
lægingu og vanþroska um ófyr
irsjáanlega tíma.
0 Jafnvel hér á landi
Jafnvel hér hjá okkur, þar
sem allir hlutir mælast á ör-
smáan mælikvarða (mæli-
kvarða öreindanna), hefur of-
vöxtur í sálarlífi tiltekinna
manna, sem illu heilli fengu að
stöðu til að valda öðrum en
sjálfum sér tjóni með honum,
verið bærilegu mannlífi i þessu
dvergríki meiri vágestur en í
tölum verði talinn, eða í fáum
orðum greindur.
f raun og veru er bráðnauð
synlegt að endurskrifa alla
mannkynssöguna í ljósi þessar
ar frábæru uppgötvunar þinn
ar á „ofvexti í sálarlífinu". Ég
tel því nauðsynlegt að vekja
athygli á henni, úr því að aðr
ir hafa ekki ennþá orðið til
þess, ef vera mætti að það
yrði til þess, að hún færi ekki
framhjá þeim fáu mönnum,
sem enn nenna að hugsa og
geta notað þann lækningamátt,
sem í þessari uppgötvun þinni
er fólginn, öllu mannkyni til
blessunar, og þó fyrst okkur
sjálfum, því ekki mun af veita.
Með beztu kveðjum og end
urteknu þakklæti.
Bergur Sigurbjörnsson."
— Einkennilegt uppátæki er
það hjá bréfritara að nefna
Lyndon B. Johnson í sömu
andrá og t.d. Stalín. Erfitt get
ur stundum reynzt að upp-
ræta gamalt illgresi úr sálar-
lífinu, sem veldur brengluðu
mati og rangsýni á mannkyns
söguna.
Kópavogur
Parhús við Hlíðaveg.
Raðhús við Digranesveg með tveimur íbúðum.
Raðhús við Hrauntungu.
Einbýlishús á tveim haeðum við Melgerði, hentar
mjög vel tveim fjölskyldum.
ÍBÚÐA-
SALAN
GÍSLI ÓLAFSS.
ARNAR SIGURBSS.
INGÓLFSSTRÆTI
GEGNT
GAMLA BÍÓI
SÍMI 12180.
HEIMASÍMAR
83974.
36349.