Morgunblaðið - 16.03.1971, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1971
• • 37 • •
lega. Þessi frænka yðar er ung-
írú Joyce Biackbrook, er ekki
svo?
Benjamín leit ögrandi á
Jimmy. — Hvernig vitið
þér það?
— Þannig, að ég heí haft þá
ánægju að tala við ungfrúna,
svaraði Jimmy hressilega.
— Hún átti nokkurra daga
frí og var hjá bróður sínum í
Catford, svaraði BenjamLn hik-
iaust. — Svo þér hafið hitt
Joyce, eða hvað? Er hún hress?
Ég var hálfgert að búast við
bréfi frá henni, þegar hafnsögu
maðurinn kom um borð, en fékk
ekkert.
— Ungfrú Blackbrook var
fullhress þegar ég hitti hana
fyrir nokkrum dögum, sagði
Jimmy. En ef þér hafið tíma til,
langar mig að tala við yður um
fráfall bróður yðar.
— Já, ég á frí í einn eða tvo
klukkutíma. Æ, ég bið yður að
afsaka, að ég bauð yður ekki
sæti. Gerið svo vel. Hann benti
á setbekkinn en settist sjálfur
á rúmstokkinn. Segið mér nú
frá þessu öllu.
— Bróðir yðar fannst á mið-
vikudaginn var, í móanum við
Farningcote, sagði Jimmy dræmt
um leið og hann settist niður.
-— Höfuðið var skotið af, hægra
megin og hann var dáinn. Leif-
arnar af spunginni byssunni
fundust þar skammt frá.
— Ja, hvert i veinandi! sagði
Benjamín og það var ósvikinn
söknuður i málrómnum. — Vesl-
ings Caleb. Ég sagði alltaf, að
þessi hólkur hans mundi ein-
hvern tima springa. Hann léði
mér hann stundum og ég var
dauðhræddur í hvert sinn sem
ég hleypti úr honum.
—Það var betri byssan hans
bróður yðar, sem sprakk. Og
hún var í fullkomnu lagi, ný-
viðgerð hjá hr. Newsham.
— Betri byssan? Hvernig í
dauðanum hefur hún getað
sprungið. Hér er eitthvað grun-
samlega á seyði!
— Já, það er ég einmitt
hræddur um. Þér segið, að bróð-
ir yðar hafi stundum léð yður
byssuna. Lét hann yður þá líka
hafa skot?
— Ekki aldeilis. Hann var
ekki svo múraður, að hann hefði
efni á því. Ég keypti þau alltaf
sjálfur.
— Hvenær keyptuð þér skot
síðast?
O, það er langt síðan. Ein
tvö ár, býst ég við. Ég man
eftir, að ég fékk kassa með
fimmtíu hjá járnvörusala i
Lydenbridge. Það voru þau
ódýrustu, sem hann átti, man ég.
Popinjay, hétu þau, eða eitthvað
þess háttar.
— Datt yður aldrei í hug að
senda bróður yðar einn kassa af
skotum, fyrir bysslulánið ?
-— Víst ekki, því miður. Það
hefði náttúrlega verið fallega
gert, ,en okkar á milli sagt, full-
trúi, þá hefur okkur Caleb ekki
komið svo vel saman undanfar-
ið, að við færum að gefa hvor
öðrum gjafir.
— Hafði ykkur lent saman ?
— Það var nú ekki eins auð-
velt að komast hjá því og þér
kynnuð að halda. Ég býst við
að við höfum rifizt hvenær sem
við hittumst. Einhvern veginn
tókst okkur að vera á öndverð-
um meiði um flest miili himins
og jarðar.
— Nokkrum vikum áður en
bróðir yðar dó, sendi einhver
hor.um einn kassa af Nimrod-
skotum. Gætuð þér hugsað yð-
ur, hver það hefði getað verið?
Benjamín hristi höfuðið. — Ég
er hræddur um ekki, sagði
han,n.
— Kunningjar Calebs voru
ekki mínir kunningjar. En ég
man vel eftir þessum Nimrod-
skotum. Hann frændi minn ■—
pabbi hennar Joyce — notaði
þau alltaf, og vildi ekki neina
aðra tegund.
— Það er ástæða til að halda,
að eitt skotið úr þessum kassa
hafi orðið bróður yðar að bana.
Og það hefur komið í ljós, að
hleðslan hefur verið tekin úr
því og sterkt sprengiefni sett í
staðinn. Og þá er það
skiljanlegt, að byssan hefur
sprungið. Og þá erum við aftur
komnir að pappírsblaðinu, sem
ég sýndi yður.
Jimmy athugaði vandlega
svipinn á Benjamín, en sá þar
ekkert annað en undrun.
— Hvað kemur pappirsblaðið
þessu við?
— Það fannst i skotkassanum,
sem ég var að nefna, sagði
Jimmy.
Þýðing þessarar upplýsingar
varð ekki ljós fyrir Benjamín
alveg strax. En svo hall-
aði hann sér fram, að Jimmy. —
Hvem skollann sjálfan eig-
ið þér við? Þér eruð þó ekki
að gefa í skyn, að ég hafi sett
það í kassann, eða hvað?
— Nei, alls ekki, sagði Jimmy
með vingjamlegu brosi. En ef
þér viljið setja yður í min spor,
verður yður ljóst, að ég hlýt
að spyrja sjálfan mig, hvernig
miðinn komst i kassann. Nú skal
ég vera alveg hreinskilinn við
yður. Ég hef þegar talað við
ungfrú Blackbrook um þetta og
hún hefur gefið mér ná-
kvæmlega sömu skýringar á
uppruna miðans og þér hafið nú.
AKR A
fyrir steik
AKRAIAKRA
r steik I fyrir steik
Allar legundir i útvarpstaeK vasaljós og leik-
föng alltaf fyrirliggjandi.
Aðeins f heildsölu til vcrzlana.
Fljót afgreiðsla.
HNITBERG HF.
Öldugötu 15. Bvlk. — Stmi 2 28 17.
BREYTT SÍMANÚMER:
25866
VOCUE búðin Skólavörðustíg 12
VOCUE skrifstofa Skólav örðustíg 12
VOCUE vörugeymsla Crettisgötu 3
Skólavörðustíg 12
Hún kannaðist undir eins við
hann sem hluta af bréfi til henn
ar frá yður. Hún þykist muna,
að hún hafi rifið bréfið sund-
ur, en man ekki hvar
eða hvenær. Og ég hetf sann-
fserzt um, að næstum hver sem
er hefði getað náð í miðann.
Svipurinn á Benjamín jafnaði
sig og hann komst aftur í eðli-
legar stellingar. — Ég get ekki
annað en fullvissað yður um,
að ég gerði það ekki, sagði
hann. Hinu dettur mér ekki i
hug að neita, að við Caleb vor-
um engir sérlegir vinir. En þvi
fer fjarri, að mér dytti í hug að
fara að drepa hann.
— En hver er liklegastur til
að hafa látið sér koma það til
hugar?, sagði Jimmy. — því að
við erum alveg hárvissir um, að
dauði hans hefur orðið af manna
völdum.
Benjamín opnaði skúffu og
tók upp kassa hálffullan af
vindlum og bauð Jimmy.
— Reynið þessa, sagði hann.
— Þeir eru frá Panama. Hreint
ekki svo slæmir þegar maður
A IA
fy ri r s tei k
venst þeim. Mér skilst, að þér
hafið farið til Lydenbridge?
— Já, ég var þar daginn sem
bróðir yðar dó. Undir eins og
ég frétti af þvi hjá Appleyard,
ók hann mér til Farningcote.
— Já, ég þekki Appleyard
vel og hann er allra bezti ná-
ungi. Ég þykist viss um, að hann
hafi sagt yður eitt og annað, sem
ekki var Caleb beinlínis til
hróss.
— Já, ég skal játa, að
það gerði hann, sagði Jimmy. —
Til dæmis það, að bróðir yðar
hefði verið kærður fyrir
likamsárás á Chudley.
— Nú, svo hann sagði yður
frá því? En ef þér viljið trúa
því þá var ekkert illt til í hon-
um Caleb. Gallinn var sá, að
hann kunni alls ekki að stilla
skap sitt, og þegar hann reidd-
ist, var hann alls ekki ábyrg-
ur gerða sinna, eða orða . . .
Og vitanlega gerðu þessir gall-
ar hans það að verkum, að
hann var ekki beinlínis vinsæll
hjá nágrönnum sínum.
— Já, svo hefur mér skilizt.
Við vei’ðum að taka þann mögu-
AKRA
fyrír steik
Hrúturlnn, 21. marz — 19. apríl.
Hvergi er betra að halda sig en heima núna, og þú skalt ekki
gleyma bví.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
Fleiri hafa vit á hlutunum en þú, og því ekki að viðurkenna það?
Tvíburarnir, 21. inaí — 20. júní.
Nálega allir, sem þú þekkir hafa verið að gera atliugascmdir við
verk þín undanfarið.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Rétt er að tína til það heiilegasta í fari annarra gagnvart þér,
og halda fast í það.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Lengi má deila um athafnir annarra, en er ekki réttast að
styðja og styrkja þá, sem þér eru næstir?
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Nú mæðir dálítið á þér um hríð, og er þá bezt að brynja sig
gagnvart því.
Vogin, 23. september — 22. október.
Nálega allir hafa einhverjar fréttir að færa þér, kannski ekki
allar ákjósanlegar.
Sporðdreltinn, 23. október — 21. nóvember.
I»ú tefur sjálfan þig aðeins á heilabrotum um málefni, sem ekk
ert koma þér við.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Þeir fáu, sem þú hefur átt í útistöðum við, eru þér e.t.v.
léttari í taumi núna, en þú áttir von á.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Stundum gengur fram af þér, hvað stirðlega þér gengur að gera
þig skiljanlegan við þína nánustu. Úr þessu rætist þó innan tíðar.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Þeir eru ófáir, sem óska sér í þín spor núna, og er það skiljan-
legt af ýmsum ástæðum. %
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz.
Þótt illa biási og óbyrlega þessa stundina, er ekki úr vegi að
minnast þess að ekkert er svo með öllu illt, að ekki boði nokkuð
gott.