Morgunblaðið - 21.03.1971, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. MARZ 1971
Bæ j ar útger ð
Hafnarfjarðar
fjörutíu ára
Afmælisins minnzt í dag —
Elzta bæjarútgerö á landinu,
þar er 200 manns veitt atvinna
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar á
fjörutíu ára afmæli um þessar
mundir og í dag, sunnudag-
inn 21. marz verður hátíðasam-
koma í Skiphóli i tilefni þeirra
tímamóta. >ar verða flutt á-
vörp og ræður og þrir starfs-
memn úgterðarinnar heiðraðij.
Eru það þeir Benedikt Ög-
mundsson, fyrrum skipstjóri og
Jón Björnsson og Kristmundur
Guðmundsson, báðir verka-
menn og hafa þremenningarn-
ir unnið hjá útgerðinni síðan
hún hóf störf. >á hefur útgerð
arráð B.H. látið safna saman
myndum úr sögu fyrirtæki.sins
og gefst mönnum kostur á að
skoða þær í anddyri Bæjarút-
gerðarinnar í dag.
Vegna afmælisins voru frétta
menn kvaddir á fund með fram
kvæmdastjóra og útgerðarráði
fyrir heLgina og þar rifjaður
upp aðdragandi að stofnun út-
gerðarinnar og farið í stórum
dráttum yfir abvinnusögu henn
Einar Sveinsson, núverandi
forstjóri
ar. Að því loknu voru húsa-
kynni skoðuð og fylgzt með
framleiðsluStörfum, en útgerð-
in sér um 200 manns fyrir
vinnu, þegar allt er í fullum
gangi. Voru forráðamenn fyrir
tækisins ánægðir með það
hversu vinna hefur verið stöð
ug í vetur og naumast nokkur
vinnudagur fallið úr.
ERFITT ATVIN N UÁSTAND
í HAFN ARFIRDI Á
ÁRUNUM UM OG FYKIR 193tl
í3vo sem aiikunna er var at-
vinnuástand erfitt víða um
land á árunum kringum 1930
og átti það ekki síður við um
Hafnarfjörð. Verðfall varð á
erlendum mörkuðum og sam-
dráttur i útgerðinni olli mjög
minnkandi atvinnu í landi. >á
var einn helzti atvinnurekandi
í Hafnarfirði enskur, en dró
sig i hlé vegna afleits árferðis
og iagði útgerð sína niður. Ár-
ið 1930 hafði bæjarstjórn Hafn
arfjarðar staðið að hálfu að út
gerð togarans Clementinu á
móti útgerðarfélaginu Akur-
gerði og bætti þetta úrræði
nokkuð úr atvinnu'leysinu.
Maí gamli, fyrsta skip útgerð arinnar.
Göaiiil mynd frá fiskvinnu við Fiskiðjuna.
Frá komu togarans Maí til Ha fnarfjarðar árið 1960. Hann
hefur fært drjúga björg i bú
FEST KAUP A MAÍ
í ársbyrjun 1931 réðst bæj-
arstjórnin í að kaupa togara.
Var og ákveðið að kaupa
„Edinborgareignina“ svoköll
uðu og hefja þar fiskvinnslu,
þ.e. saltfiskverkun og þurrkun.
Voru þessi kaup staðfest á bæj
arstjómarfundi 12. febrúar
1931 og varð Bæjarútgerð Hafn
arfjarðar þar með til. Á þeim
sama fundi var skipað í útgerð
arráð. Fyrsti formaður þess
var Emil Jónsson, en hinir voru
Björn Jóhannesson, Björn >or
steinsson, Kjartan Ólafsson og
>or!eifur Jónsson.
Fyrsti togari útgerðarinnar
bar nafnið Maí og hélt hann
til veiða þann 13. febrúar. Skip
stjóri var Benedikt Ögmunds-
son. Afli var saltaður um borð.
Togarinn aflaði vel, en markað
ur var óhagstæður og var því
afkoma ekki að sama skapi góð.
>að hafði enda verið fyrst og
fremst til að bæta atvinnu-
ástandið að 1 var ráðizt að
stofna til þessarar fyrstu bæj-
arútgerðar. >ess má í leiðinni
geta, að Benedikt Ögmundsson
var skipstjóri á Maí í 16 ár,
en tók þá við stjóm á nýsköp-
unartogaranum Júlí, sem kom
nýr til landsins árið 1947.
FEEIRI TOGARAR —
STARFIÐ
Fyrsti fundur útgerðarráðs
var haldinn 18. febrúar 1931,
sem áður hefur komið fram.
Var Ásgeir G. Stefánsson fonn
leiga ráðinn forstjóri. Gegndi
hann því í 24 ár og vann að
allra dómi merkilegt brautryðj
endastarf. Árið 1934 var keypt
ur annar togari, Júní. Voru
þau kaup aukin lyftistöng fyr-
ir atvinnuMfið og Júli kom
1947. Júní strandaði 1948, en
mannbjörg varð. Voru þá skip
in tvö um sinn, en fljótiega
keyptir þrír til viðbótar, Júní,
Ágúst og Apríl. Gamli Maí var
seldur um svipað leyti. í febrú
ar 1959 fórst Júlí á veiðum við
Nýfundnaland með allri áhöfn.
Ánð 1960 kom togarinn Maí
nýr til landsins. Núverandi
skipstjóri er Halldór Ilaiidórs
son. Fiskiðjuver útgerðarinnar
var byggt á árunum 1955—
1957 og hófst fiskframleiðsia
þar árið 1957. Hefur fiskiðju-
ver Bæjarútgerðarinnar lengst
af verið í röð fremstu fiskiðju-
vera á landinu.
EINN HEI.ZTI
VINNUVEITANDI HAFN-
FIRÐINGA UM ARABIL
Hefur hér nú verið farið
fljótt yfir sögu. Afkoma útgerð
arininar hefur verið misjöfn og
skipzt hafa á skin og skúrir.
eins og forráðamenn núverandi
komust að orði við fréttamenn.
Fyrsta
útgerðarráðið
Emil Jónsson
Björn Jóhannesson.
Bjiirn Þorsteinsson.