Morgunblaðið - 21.03.1971, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNTJDAGUR 21. MARZ 1971
13
Við verðum að lifa í
heimi tölvunnar
— Nóg er til af hryllingssögum, en vélinni
sjálfri er ekki alltaf um að kenna
Höfundur eftirfarandi
gTeinar er sjálfur sérfræðing
ur í tölvum og- tölvutækni og
hér tekur hann t.il meðferð-
ar sum þeirra mála, sem vak-
ið hafa ótta — ýmist með
réttu eða röngu — í huga al-
mennings vegna tilkomu
tölvualdarinnar.
London — FWF
Eftir Ivan Berenyi
SÖLUMANNI einum í
New York kom það þægi-
lega á óvart er hann opn-
aði mánaðarlaunaumslag
sitt fyrir nokkru. í stað
1.000 dollara grunnkaups
var í umslaginu ávísun
á 100.000 dollara. Án þess
að hika leysti hann ávísun-
ina út og um kvöldið hélt
hann þennan óvænta ríki-
daemisdag hátíðlegan með
konu sinni í Rio de Janeiro
í Brasilíu. „Tölva gerir
99.000 dollara g'lappasikot“
æptu fyrirsagnir blaðanna,
og er loks náðist til sölu-
mannsins var hann búinn
að eyða mestu af pening-
unum. Ekki var hægt að
grípa til neinna refsiað-
gerða gegn honum og fyr-
irtæki hams varð að bera
tapið. Hinn seki aðili, að
því er kom á daginn, var
hinn óheppni hálfviti, tölv-
an!
Sé fólk spurt um það, hvað
það viti um tölvur, mun það
svara með sögum um mistök,
sem þær eiga að hafa gert:
Þær senda út reikninga fyrir
einum eyri, ávíta vel stæða
góðborgara fyrir ávísanayfir
drætti, sem ekki eru fyrir
hendi, og stundum ganga þær
berserksgang og eyðileggja
margra mánaða bókhald á
nokkrum millisekúndum!
Sum tölvuslysanna, sem við
getum nefnt svo, geta verið
brosleg þrátt fyrir allt. I>ann
ig var tölva fengin til þess að
skrifa út áskrifendaheimilis-
föng fyrir fagtímarit um tölv-
ur, af öllum hlutum. Á síð-
ustu stundu tókst að kippa til
hliðar heimilisfangamiðum,
sem áletraðir voru „Wolver-
hampton, Vestur-Pakistan."
Og svo var það dómarinn,
sem fékk nokkur bréf frá
töivu, þar sem hann var að
þvi spurður hverju það sætti
að hann gegndi ekki skyldu
sínni i kviðdómi.
Þegar mistök verða, er sök
inni venjulega skellt á tölv-
una sjálfa, en hins vegar er
sökina i 99 málum af hverj-
um hundrað að finna hjá „sér
frapðingum", sem stjórna
þessum rafmagnsheilum. Ajð
sjálfsögðu kemur fyrir, að
tölvur biia eða að slit verður
á þeim, líkt og á bilum og
flugvélum en öryggiskerfin
! varðandi tæknilega bilun eru
venjulega mjög fullkomin og
umfangsmikil, og sjálfar eru
tölvurnar meðal þeirra véla,
sem áreiðanlegastar eru í
heimi hér.
Það er einmitt vegna hinna
‘ ósveigjánlegu rökfestu vélar-
1 innar að svo margar mann-
legar skyssur eru fram-
kvæmdar varðandi hana.
Menn eru, þegar öllu er á
botninn hvolft, ekki sérlega
óskeikulir, og það vefst oft
fyrir þeim að útbúa hin mjög
svo nákvæmu fyrirmæli, sem
tölvan þarfnast til úrvinnslu.
Hinn gífurlegi vöxtur i
tölvuiðnaðinum gerir málin
enn verri viðureignar, þvi
skapazt hefur skortur á sér-
hæfðu og reyndu starfsfólki.
„Tölvufræðingar“ skipta lík
lega oftar um starf en nokk
ur önnur stétt manna. Þegar
svo er í pottinn búið, geta
mistök auðveldlega átt sér
stað — og til eru þeir
„tölvumatarar" sem ákveða
að „gera gys“ að vinnuveit-
anda sínum svona I kveðju-
skyni. Slik fyrirfram ákveð-
in „mistök" geta reynzt dýr.
En þrátt fyrir allar hryll-
ingssögurnar, vex áreiðan-
leiki tölvanna hröðum skref-
um — miklu hraðar en breyt
ingin á afstöðu almennings til
þeirra. Hér má sjá mjög
greinilega hliðstæðu í sögu
fyrstu ára hinnar vélknúnu
bifreiðar, þar sem svolítið af
slæmum fréttum og sögum
varð til þess að skapa gífur
legan þröskuld milli bíla og
almennings fyrst í stað.
TÖFRAR OG
LEYNDARDÓMAR
En þetta er aðeins ein hlið-
in á málinu. Sé litið á annað,
kemur i ljós að almenningur
er reiðubúinn til þess að dást
að því, sem þessi makalausa
galdraskepna getur fram-
kvæmt. Eitt dæmi um slíkt er
að manni að nafni Murray
Moroner, tókst að selja
„tölvueftirlíkingu" af hnefa-
leikakeppni milli Classius
Clay og Rocky Marciano, sem
er látinn. Nærri má fara um
að „keppnin" var harla ólík
því, sem hún mundi hafa ver
ið í raunveruleikanum, en
Moroner græddi um milljón
dollara á þvi að selja þetta
efni til sjónvarpsstöðva viða
um heim. Það er aðeins hula
leyndardómanna og töfranna,
sem enn umlykur tölvurnar,
sem skýr+ getur að loddara-
skapur á borð við þetta tekst.
Misskilningur og kvíði um
hlutverk tölvunnar hafa kom
ið fram alls Staðar, meira að
segja í Rússlandi á dögum
Stalíns, sem sjálfur hafði
harla litla trú á hagnýti hinn
ar „æðri stærðfræði". Hin
mikla sovézka Alfræðiorða
bók frá 1955 lýsir henni sem
„herbragði kapitalista, sem
notað er til þess að arðræna
vinnustéttirnar með því að
skapa gervignægð". Nú eru
Rússar að sjálfsögðu ákafir
kaupendur tölva frá Vestur-
löndum, og þeir smíða einnig
eigin tölvur, sem ekki eru
eins fullkomnar.
Misskilningurinn varðandi
tölvurnar er vonandi fyrir-
bæri, sem er að hverfa. Þeg-
ar tölvurnar verða í -æ ríkari
mæli þáttur í hinu daglega
lífi manna, mun hinn nánast
ytfirnáttúrulegi ótti — eða
tröllatrú — við völd raf-
magnsheilans víkja fyrir
skynsamlegra mati á hlut-
verki.hans.
Þess ber sérstaklega að
geta, að þau börn, sem nú
sitja á skólabekk, munu ugg-
laust hafa gjörbreytt við-
horf gagnvart þessum málum
en eldri kynslóðirnar. Við
stefnum hraðbyri 5 átt til þess
að tölvutækni verði skyldu-
námsgrein í gagnfræðaskólum
Það liggja þegar fyrir sann-
anir þess efnis, að táningar,
sem koma til móts við þetta
efni með opnum huga eru
miklu fljótari að tileinka sér
hin flóknu tölvufræði en
þeir, sem eldri eru, og þeir
fara oft fram úr kennurum
sínum eftir nokkrar kennslu-
stundir!
Er árið 1984 gengur í garð,
verðum við þá búin að læra
að elska tölvuna, gleyma Ge-
orge Orwell og mun allt leilka
í lyndi —- eða hvað? Verður
litið á allar hættur, sem stafa
frá tölvum, sem einskæran
hugarburð þá? Það er vissu-
lega erfitt að vera í rónni
þegar manni verður hugsað
til þess að allar upplýsingar
um sérhvert okkar eru
geyimdar i tölvum ríkisvalds
ins.
í Svíþjóð, Vestur- og Aust-
ur-Þýzkalandi hefur hver
einasti einstaklingur sérstakt
nafnnúmer — til hagræðis
fyrir tölvuna. 1 Bretlandi eru
fullkomnar skýrslur haldnar
um menntamál, heilsufar,
skattamál, almannatrygginga-
mál og sakaskrá.
Og það eru ekki aðeins
gögn ríkisvaldsins, sem við
þurfum að hafa áhyggjur af.
Bankar, sölufyrirtæki, fyrir-
tæki sem selja með afborgun
um og útgáfufyrirtæki hafa
samanlagt furðu nákvæmar
upplýsingar um fjármál okk-
ar, smekk kaupvenjur og
jafnvel stjórnmálaskoðanir.
Og allt er þetta geymt I tölv-
unni, og er hægt að nota til
góðs eða ills.
Það er þegar orðið allút-
breitt að fyrirtæki kaupi og
selji nafna og heimilisfanga-
lista í tölvuformi, og árang-
urinn af þessu verður m.a. sá,
að þeir sem t.d. hafa lánskort
(credit cards) fá skyndilega
ytfir sig dembu af sölubækl-
ingum varðandi eitt og ann-
að, sem þeir kæra sig ekkert
um.
Þessi mál geta orðið enn
verri, svo sem kaupsýslumað-
ur einn í Los Angeles komst
að raun um. Hann stóð allt í
einu andspænis því, að hon-
um var ómögulegt að fá láns-
fé til þess að reka fyrirtæki
sitt, sem stóð algjörlega á heil
brigðum grundvelli — og eng
in skýring fékkst. Þar sem
hann átti vini á réttum stöð-
um tókst honum loks að graf
ast fyrir um orsökina: Hann
hafði gleymt að borga mjólk-
urreikning sinn, og afleiðing-
in var sú, að hann lenti á
svörtum lista hjá tölvu, en
listanum var síðan dreift
meðal fyrirtækja, sem hafa
það að sérgrein að veita
upplýsingar um lánstraust
manna!
AD MÓI.VA ER EKKI
LATSNTN
^æssi maður hafði henpn-
ina með sér og cat grafizt fyr
ir um ..'dær>“ sinn, en hvaða
tr*-CT-in~ »r fvr'r bví, að hinn
almenni boreari, sem ekki hef
ur nein sérstök ..sambönd",
geti ekki orðið illa úti vegna
mannleerar skammsýni og
einfa'dra mi.staka? Sá dagur
hlýtur vissulega að koirta, að
nv löwínf verði sett til þess
að vernda almenning gegn
misnotkun á möguleikum tölv
anna. En sá dagur hefur enn
ekki runnið upp.
Sé litið á málin I þessu
liósi, virðast árásir banda-
rískra stúdenta á tölvur, sem
þeir hafa mölvað og brotið,
bvvvia á öðru og meira en
einvörðungu skemmdafýsn.
Það er einkum ungt fólk, sem
alizt hefur upp á tölvuöldinni
sem veit meira um möguleika
tölvanna og aukaverkanir,
sem þar geta komið fram. Fyr
ir mörgum ungmenna stendur
tölvan sem tákn innrásar, rík
isvaldsMTs í einkalif manina
— tæki sem býr til óbreytan
legar, en á engan hátt óskeik
ular skýrslur um mannlega
hegðan.
Engin augljós eða nærtæk
lausn er fyrir hendi varðandi
þetta vandamál eins og nú
háttar, og afnám tölvunotk-
unar, eða eyðilegging tölva
er vissulega ekkert svar.
Vera má, að við séum þegar
orðnir of háðir tölvunni, en
skepnan er engu að síður til
staðar og mun verða, og okk
ur verður að lærast sambýli
við hana. En ljóst er, að við
verðum að læra mikið.
(Forum World Features —-
öll réttindi áskilin).
W
Eg er ein.
peirra
haming jusömu húsmæðra, sem eiga
PHILCO, alsjálfvirka þvottavél
Hér eru fáeinir kostir PHILCO-véla:
Þvottastilling 14- eða 16-skipt eftir gerð.
Hitastilling 4-skipt eftir þörf og þoli þvottarins.
Sérstök stilling fyrir lifræn þvottaefni.
Sjálfvirk þvottaefnagjöf 3 þvottaefnahólf.
5terk, hljóðlát, stílhrein.
Stór þvottakarfa úr eðalstáli.
Tekur 5 kg. af þurrum þvotti.
Þér veljið þvottadaginn — véiin sér um afganginn.
Þvottavél er ekki munaður — hún er þörf —
en PHILCÓ-þvottavél er NAUÐSYN.
HEIMILISTÆHI
HAFNARSTHÆTI 3. SIMI 20455
SÆTÚN 8. SlMI 24000. <§