Morgunblaðið - 21.03.1971, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. MARZ 1971
. . 42 . .
— í>að staðfestir eitt af þvi,
sean Benjamin sagði mér, sagði
Jimmy. — Hann sagðist hafa
verið hérna i byrjun febrúar.
Stendur heima. En meðan við
vorum að tala um Benjamin,
mundí Benson allt í einu eftir
nokkru. Hann spurði mig, hvort
ég vissi hvenær Niphetos kæmi,
af þvi að hann væri með böggul
til Benjamíns, sem ætti að bíða
komu hans. Vitanlega fór ég að
sperra eyrun og spurði, hvenær
þessi böggull hefði komið. Það
gat hann ekki munað, en liklega
hefði það verið fyrir svo sem
þremur mánuðum. 1 stuttu máli
sagt, fékk ég hann til að af-
henda mér böggulinn, þar sem
ég mundi hitta Benjamín á und-
an honum.
— Og þér hafið auðvitað opn
að hann? sagði Jimmy, brosandi.
— Það gerði ég en þannig, að
ekki sæist, að neitt hefði verið
fiktað við hann. Appleyard opn
aði skúffu í skrifborðinu sínu.
Ég hef það allt hérna, sagði
hann. 1 fyrsta lagi eru það nú
umbúðirnar.
Jimmy tók við umbúðapapp-
imum, sem hann rétti honum. Á
honum var límmiði með
nafni útibús í Woilwich frá vel-
þekktu lyfjafyrirtæki. Á þenn-
an miða var ritað, að böggull-
inn skyldi geymdur þangað til,
eftir honum væri spurt. Póst-
stimpillinn var ógreinilegur, en
samt mátti sjá, að böggulinn
hafði verið sendur 25. maí.
— Stendur heima, sagði Apple
yard, er Jimmy lagði frá sér um
búðapappirinn. — Og þetta
fann ég þegar ég tók upp bögg
ulinn.
Hann rétti Jimmy íianga
pappaöskju, sem á var prentað:
„Pikrin grisja." í öskjunni var
vafin í mjúkan pappir ailstór
grisjurúlia, lituð gul.
Appieyard horfði á Jimmy
meðan hann athugaði grisjuna
— Jæja, hvemig lízt yður á
þetta ?
— Svei mér, ef ég veit það,
sagði Jimmy dræmt. — Það koli
varpar öllum tilgátum mínum.
Woolwich er rétt handan við
ána frá Albert-skipakvínni. Og
Niphetos sigldi frá London 5.
júní, og hlýtur því að hafa leg-
ið í kvínni þann 25. mai.
— Já, þarna sjáið þér! sagði
Appleyard sigrihrósandi. —
Benjamín skauzt yfir til Wool-
wich og skipaði að senda grisj-
una í Drekann. Vafalaust hefur
hann ætlað að koma hingað og
ná úr henni efninu í rólegheit-
um. Ég er búinn að tala við
lyfjafræðing hér á staðnum og
hann segir, að ekki þurfi ann
að en gegnbleyta grisjuna i
heitu vatni og láta svo upp-
lausnina gufa upp.
— Já, það lítur helzt út fyrir
það, sagði Jimmy. En það er nú
f jandans ótrúlegt samt. Þegar ég
fór frá borði á skipinu, var ég
alveg sannfærður um, að Benja
mín ætti engan þátt i þessu.
Appieyard benti á pappaöskj-
una — En þetta krefst nú samt
einhverrar skýringar, verðið þér
að viðurkenna. Ég býst við, að
honum hafi ekki þótt hentugt að
fást við þetta hér, og þess vegna
hafi hann keypt meira efni ann
ars staðar og gengið frá því þar.
Sennilegast um borð í skipinu.
— Það kann vel að vera, sagði
Jimmy. En þér megið ekki
gleyma öðrum atriðum, sem um
getur verið að ræða. Þann 6.
ágúst var Niphetos einhvers-
staðar vestan megin á hnettinum
og Benjamin áreiðanlega þar um
borð. Ekki hefur hann getað
stungið bögglinum í bilinn hans
Mowbray daginn þann.
— Ég held, að hægt sé að kom
ast yfir þá hindrun, sagði Apple
yard. Joyce Blackbrook var hjá
bróður sinum í Catford áður en
Niphetos lagði úr höfn. Benja-
mín fékk henni skotin og það
var hún, sem stakk þeim inn í
bíiinn hjá Mowbray.
— Og vissi, að einu þeirra
hafði verið breytt?
— Það er ég hræddur um. Ef
ekki, hvers vegna hefði hún þá
ekki átt að fara með þau sjálf
i Klaustrið?
— En hvað þá um pappírsmið
ann? Ef Benjamín og Joyce hafa
verið að ráðgera morðið í fé-
lagi, er það þá líklegt, að þau
hafi verið að skilja eftir upp-
spunnið vegs .immerki, sem benti
á Benjamín? Og ég vil alls ekki
trúa því, að miðinn með þessu
ákveðna orðalagi hafi komizt í
kassann af einhverri tilviljun!
AKRA
í bakstur
AKRA AKRA
í bakstur í bakstur
Handritin
og fornsögurnar
eftir Jónas Kristjánsson
Gjafabók dagsins
NYR MOSKVICH
80 HESTÖFL
Bifreiðar &
Landbúnaðarvélar hi.
Sudurlandsbraul 14 - IlryKjavík - Sími .‘»«600
— Kannski hafa þau hugsað
nákvæmlega eins og þér, sagði
Appleyard.
En Jimmy hristi höfuðið. —
Það er bara alltof kænlegt og
alltof hættulegt, sagði hann. —
Ég er alveg hárviss um, að mið-
inn hefur verið settur í kass-
ann, beinlínis til þess að leiða
grun að Benjamín. Og i því sam
bandi dettur mér í hug, að Wool
wich er ekki langt frá Catford
og beint i leiðinni þaðan til Al-
bertsskipakvinnar.
— Catford? Já, þar sem Arth
ur á heima. Þér hittuð hann?
Hvernig leizt yður á hann?
— Mér fannst hann ósköp
meinlaus maður, sem skoðar
Margate sem eins konar himna-
riki á jörðu. Og hann er bú-
inn að leggja þá sniðugu áætl-
AKRA AKRA
i bákstur * bakstur
li
11
11
11
11
11
11
11
11
11
11
II
II
Aliíjör nýjung
Sjúkra-og
II
II
Hringið og leitið tilboða.
V\
II
n
ii
ii
II
II
II
II
II
II
II
11
ii
11
■ i
'I
pASTHÚSSTHXTI S SÍMIIT700 / /
'ALMENNAR TRYGGINGARf
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
Rétt er að gera sérstakar ráðstafanir vegna aldraðs fólks ann-
ars verður meiri ringulreið en búi/t var við.
Nautið, 20. april — 20. mat.
Rétt er að fara varlega í sakirnar í metorðastiganum. Margir
eru mislyndari en þú áttir von á.
Tvíburarnlr, 21. »naí — 20. júní.
I»ú verður að hefjast handa snemma í dag, en svo opnast ótal
nýjar leiðir fyrir þig, og gefa betri raun, en þú bafðir þorað að
vona. Þú mátt samt hvergi slaka á.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Velgengni þín á morgun er undir því komin, að þú vinnir jafnt
og þétt og slakir hvergi á.
l.jónið, 23. júlí — 22. ágúst.
I>ú finnur kannslci dálítið fyrir tæknilegum erfiðlcikum eða
líkamlegri þreytu, en slíkt gctur alltaf gerzt, cf mikið er starfað.
Mcyjan, 23. ágúst — 22. septcmber.
I>egar miklar breytingar verða, er ekki undarlegt þótt gamiar
venjur glatist. Þú færð iíklega að finna fyrir nýjungunum.
Vogin, 23. septcmber — 22. október.
Þú gengur i gegnum miklar breytingar og morgundagurinn og
liðin tíð cru jafn ólík og dagur og nótt,
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Samstarfsmenn þínir verða æ erfiðari i tanmi, og þú hefur
þungar áhyggjnr af þcssn.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. tlesember.
Þú þarft að hrökkva eða stökkva. Skapgerð þin er föst fyrir
og þú átt crfitt með að gefa þig.
Steingeitin, 22. tlesember — 19. janúar.
Þér er eðlilegt að beina athyglinni að fleiru en einu i dag. —
Reyndu að hafa augun hjá þér, og taktu vcl cftir aukaatriðum. Ekki
sÍ7,t í persónulegum atriðum, sem gætu að gagni komið síðar.
V'atnsberinn, 20. janúar — 18. feijrúar.
Mikil árvekni og atorka hafa sín tilætluðu áhrif.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz.
Bæði formleg atriði, og þau, sem óvænt verða, hafa á sér
ævintýralegan blæ.