Morgunblaðið - 24.04.1971, Side 4
MORGUNBLAÐEÐ, LAUGARDAGUR 24. APRtL 1971
♦
m
>
HVERFISGÖTU 103
VW Sendiferðabífreið-VW 5 manna-VW svefnvago
VW 9manna-Landrover 7manna
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastraeti 13
Sími14970
Eftir lokun 81748 eða 14970.
Bílaleigan
UMFERÐ
Sími 42104
SENDUM
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
ÍT 21190 21188
IBÍIILdlBIVSII^
Sigtúni 3.
Sími 85840-41
BÍLALEIGAN
Bliki hf.
Lækjargata 32, Hafnarfirði.
Sím/ 5-18-70
KVÖLD- OG HELGAR-
SlMAR 52549 — 50649
NÝIR BlLAR
bilaleigan
AKBRATJT
car rental scrvice
r
* 8-23-4?
sendum
*gg|"^^bilqsq|q
GUÐMUNDAR
Bergþóruqötu 3
Símar: 19032 — 20070
0 „Eins og barn til móður“
„Heill og sæll, Velvakandi!
Mig langar að biðja um rúm
íyrir þessa leiðréttingu:
í kvöld voru nokkur kvæði
flutt í útvarpið. Þau voru vel
flutt og fallega, en síðasta vísu
orð hins fagra kvæðis: „Hátt
ég kalla," eftir meistarann
Matthías Jochumsson, var ekki
rétt með farið, og það svo að
merkingu orðanna var alveg
snúið öfugt. Sagt var ranglega.
„Til þín hljóður, Guð minn
góður,
græt ég eins og barn hjá
móður.“
Rétt er það svona:
„Til þín hljóður, Guð minn
góður,
græt ég eins og barn til
móður“
Barn grætur sízt hjá móður
sinni, en sé það hindrað í að
ná til hennar, þá grætur það
hvað sárast. Þá grætur það tit
móður sinnar.
Það er þetta, sem skáldið
meinar, það grætur til Guðs
líkt og barn, sem fær ekki að
koma til móður sinnar, og græt
ur því sárt.
Því leiðrétti ég þetta, að ég
hef oft heyrt farið með ljóðið
á sama hátt og í útvarpinu.
Villan virðist því víðfleyg.
Þakka birtinguna.
26. marz 1971.
Jón Sigtryggsson."
0 Dreifbýlisstyrkir
Hór er bréf frá ungum
manni:
„Á siðastliðnu hausti var
svokölluðum dreifbýlisstyrkj-
um fyrst úthlutað til skólafólks
í hinum „æðri“ skólum.
Menntamálaráðuneytið á
hrós skilið fyrir þetta fram-
tak til hjálpar námfúsum
einstaklingum í dreifbýlinu.
Þetta kærkomna spor ráðu-
peytisins er án efa í rétta átt
og gerir, veg þeirra til mennt-
unar. mun greiðfærari en áð
ur var. Nú eru það því ekki
lengur sérréttindi rikra borg-
ara að menntast, heldur eiga
allir greiðan aðgang að „æðri“
skólum landsins. Það er að
segja, jafnrétti til sams konar
Hef kaupanda
að góðri sérhæð með 3—4 svefnherb.
Útborgun allt að 2% milljón.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
KRISTINN EINARSSON, HRL..
Búnaðarbankahúsinu við Hlemm.
LUXO
er ljósgjafinn,
verndið sjónina,
varist eftiiiíkingar
Heimilistæki sf.
Hafnarstrœti 3 — Sími 20455
menntunar, hvort sem I hlut
eiga borgarbúar, dreifbýlis-
menn, rikir eða fátækir. En
hvernig er með þetta jafnrétti í
þjóðfélagi okkar?“
§ Jafnréttí eða misrétti?
„Mjög margt hefur verið vel
gjört og skal það ekki lasta,
en oft vill brenna við, að ein-
hver hópur þeirra, sem nýtur
sérréttinda umfram aðra, not-
færir sér góðsemina út í yztu
æsar. Svo er um þessa ágætu
lilreifbýlisstyrki. Misnotkun á
þeim er l'íklega nokkuð algeng.
Tökum dæmi: Ung stúlka, sem
á lögheimili í afskekktu þorpi
úti á landi, stundar nám við
einhvern hinna „æðri“ skóla
á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Hún er það vel í sveit sett, að
afi hennar og amma búa í
Reykjavík og bjóða henni fæði
og húsnæði, henni að öllu leyti
að kostnaðarlausu. Hvað um
þessa stúlku? Hún sendir inn
umsókn um dreifbýlisstyrk og
tekur með þökkum móti ávis-
uninni, sem að henni er rétt,
án þess að þurfa að gefa nauð-
synlegar upplýsingar til sönn-
unar því, að hún hafi í raun
rétt til að hljóta styrk. Svo
einfalt er nú það.
Þetta dæmi á að sýna, að til
eru dreifbýlisnemendur, sem fá
ókeypis fæði og húsnæði hjá
venzlamönnum og vinum. Fyr-
ir þessa nemendur eru styrk-
irnir eingöngu vasapeningar.
Þetta dæmi á ekki að rýra gildi
styrkjanna, heldur að sýna að
fylgjast verður með eins ná-
kvæmlega og mögulegt er, að
þeir einir njóti styrkja, sem
nauðsynlega þurfa á þeim að
halda. Það er að segja,
menntamálaráðuneyitið verður
að krefjast mun nákvæmari
upplýsinga um styrkþega.
Einnig langar mig að minn-
ast á aðra hlið á þessu
„styrkjamáli." Tökum dæmi:
Piltur hér á Reykjavíkursvæð-
inu, sem t.d. hefur lokið lands-
prófi, missir föður sinn, og því
getur fjölskylda hans ekki
veitt honum f járhagslegan
stuðning til frekara náms.
Menntun hans er eingöngu háð
efnahag heimilisins, en þessi
piltur fær engan styrk, þótt
hann þurfi miklu fremur á hon
um að halda en margur dreif-
býlismaðurinn. Er þetta jafn
réttið?“
0 Atvinnuvandamálið
„Einnig mætti benda mennta-
málaráðuneytinu á að beita sér
fyrir, áð þeim nemendum, sem
ekki hafa fengið atvinnu um
sumartímann, sé gefinn kostur
á styrk, ef fjárhagsgeta þeirra
hindrar áframhaldandi nám. í
þessum hópi eru ýfirleitt nem
endur í fjölbýli, því dreifbýlis
nemendur hafa í flestum tilvik
um betri atvinnumöguleika.
Hvað þessu viðvíkur þyrfti áð
ganga fullkomlega úr skuggá
um, að styrkhafár hefðu ekki
fengið atvinnu þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir í þá átt
þannig að letidýr þjóðfélagsins
gætu ekki gengið að styrkjun-
um, sem sjálfsögðum hlut.
Eitthvað verður að gerast og
það sem fyrst. Það er von min
að menntamálaráðuneytið taki
vel á móti vinsamlegum ábend
ingum í stað þess að frysta þær.
Með fyrirfram þökk fyrir birt
inguna.
Gunnar Salvarsson."
Aðventkirkjan Reykjavik
Sigurður Bjarnason flytur er-
indi í Aðventkirkjunni sunnu
daginn 26. apríl kl. 5.
Óvenju fjölbreyttur söngur.
Allir velkomnir.
VILJUM RÁÐA
vana loftpressumenn, gröfumenn,
ýtumenn og vélskóflumann.
Upplýsingar á Dalshrauni 4 í Hafnarfirði.
t