Morgunblaðið - 24.04.1971, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 24.04.1971, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. APRlL 1971 17 i Ég er sterkasti skákmeistari heims Bent Larsen. — Heldur þú, að þú munir sigra Friðrik? — Éfg muíi reyna það. Ann- ars er erfitt að segja fyrir um þessi úrsiit, því að þetta er sú tegund af skák, sem efcki er oft tefld. Það er ekki það, að við teflum í sjón- varpi. Slíkt truflar ekki svo mjög, heldur hitt að við höf- um aðeins 15 mínútur til um- ráða hvor. Ég tefli mjög sjald an hraðskák. Ég er ekki van- ur þessum tíma, en ég vona að ég venjist honum, þannig að ég tefli ekki of hratt né heldur of hægt. Þannig komst danski skák- meistarinn Bent Larsen að orði í viðtali við Morgun- blaðið, áður en skákkeppnin milli hans og Friðriks Ólafs- sonar hófst. Þetta eru tiltölu- lega mild ummseli, því að þegar daniski stórmeistarinn var spurður að því, hver myndi sigra í svonefndu áskorendamóti, sem framund an er, en þar verður teflt um, hver fá skuili áskorunar- heimi'ld á heimsmeistarann, Boris Spasskí, svaraði Lar- sen: — Ég mun sigra. Ég byrja á því að vinna einvígið við Uhimann, en síðan mun ég einnlg vinna Fischer. Ég er sterkasti skiákmeistari heims. Ef ég væri það ekki, hvers vegna skyldi ég þá reyna að verða heimsmeist- ari? Og það er það, sem ég ætla mér að verða. Skákeinvígið milli þeirra Friðriks Ólafssonar og Bent Larsens fór fram á miðviku- dag og fimmitudag. Þeir tefldu als sex skákir, þar sem hvor um sig hafði 15 mín. á sfcák. Fyrsta sfcáikin var sýnd í gærkvöldi og lauk henni með sigri Bent Larsens. Á næstunni verða svo hinar sbákirnar úr einvíginu sýnd- ar hver af annarri, en úrslit þeirra verða efcki sögð, held- ur fæst vifneskja um þau jafnóðum og skákirnar verða sýndar í sjónvarpinu. — Já, ég mun vimna einvígið við Uhlmanin, fyrsta andstæðing minn í áskorendamótinu. Og ég mun vinna Fischer og áskorenda- mótið. Ég er sterkasti skákmeist ari heims. Ef ég væri það ekki, hvers vegna skyldi ég þá reyna að verða heimsmeistari? Og það er það, sem ég ætla mér að verða. Ef ég áliti, að Fischer myndi vinna ásfcorendamót.ið, þá myndi ég ekki taka þátt í því, sökum þess að það köstar blátt áfram fé að taka þátt í þessu móti, segir Bent Larsen í upphafi samtaisins. I>etta eru stór orð og maður furðar sig á þVí, hvað þessi greindarlegi, geð- ugi og vingjarnlegi Dani er að fara. Er þetta kokhreysti, er hann að tala kjark í sjálfan sig eða að gera að gamni sínu. En hann virðist einlægur, lætur engan bilbug á sér finna og held- ur áfram: — Ég held, að það sé mjög slæm hindrun fyrir Bobby Fisch- er, að hann hefur ekki tekið þátt t þessum einvígismótum áður, sem áskorendamótin eru nú orð- in. — Og ég er sannarlega ekki hræddur við Uhlmann. Hann er mjög venjulegur skákmaður með fremur litlu byrjanavali, sem veldur því, að það er auð- velt að undirbúa sig gegn hon um. En þetta þýðir ekki það sama og að hann verði auðveld- ur andstæðingur. Sumir búast við því, að Fischer sigri Taman- ov, fyrsta andstæðing sintn á- Skorendamótinu, með yfirburð- um og ég Uhlmann einnig með yfirburðum. Það er engin ástæða til þess að reikna með slíku. Ein- vígi sem þau, er tefld eru í áskor endamótinu, verða fremur jöfn því að það er engin þörf á því að hætta á neitt til þess að reyna að gera út um einvígin í skyndi. Þessi einvígi eru dálítið sénstök og ég hef meiri reynslu í þeim en menn eins og Eischer og Uhlmann hafa. Sem dæmi get ég nefnt, að á síðasta ári tefldi ég skákeinvígi við tékkneska skákmeistaranin Kavalek. Þetta var 8 skáka ein- vigi, en ég hafði unnið það eft- ir 5 skákir. Kavalek var tais- vert sleginn, þegar hann í tíma- þröng tapaði fyrstu skákinni, sem var mjög erfið skák. Eftir það tefldi hann illa. Hanin hefði sennilega getað teflt miklu bet- ur, ef hann hefði getað teflt við einhvern annan næsta dag. En þetta var einvígi og hann varð að gera svo vel og tefla við mig aftur. Unidir svona kringum- stæðum er slíkt hræðilegt, Hanni horfir á sama andlitið yfir skák- borðið og daginn áður og hugs- ar sem svo: — Hann veit mis- tökin, sem ég gerði í gær. Strax eftir þetta einvígi fór Kavalek til Venesúela og vann skákmótið í Caracas, mjög öfl- ugt skákmót. Þetta sýnir, að það var ekki það, að Kavalek væri illa fyrirkallaður í einvíginu við mig, heldur miklu fremur hitt, að hann er ekki einvígismaður. Flestir þátttakendur í áskor- endamótinu fyrir heimsmeistara titilinn eru ekki hrifnir af því, að það skuli haft með því fyrir- komulagi, að þátttakendurnir tefli einvígi sín á milli upp á svo og svo margar skákir. Þrátt fyrir það er þetta fyrirkomulag á sinn hátt sanngjarnt og það eima, sem unmt er að gera, ef menn óttast, að keppendurnir frá sama landi, t.d. Sovétríkj- unum vinni saman, ef teflt yrði venjulegt mót. Einvlgin sem slík eru eðlileg lausn á því vanda- máli, en ef maður spyrr þátt- takendurna — ja, sovézki skák- meistarinn Korchnoi hefur sagt, að honum líki einvigin — ég er hálfpartinn með og hálfpartinn á móti — en allir hinir þátttak- endurnir í komandi áskorenda- móti segja, að einvígisfyrirkomu lagið sé mjög slæmt og að venju- legt skákmót, þar sem allir tefldu við alla, væri miklu betra. Ég tel hins vegar, að einvig- isfyrirkomulagið henti vel fyrir það takmark að finna áskorand- ann. Það eina, sem þar skiptir máli, er að finna þann bezta. Það skiptir ekki svo miklu máli, hver verður í öðru eða þriðja sæti. Það þarf aðeins að finna þennan eina mann, áskorandann og einvígisfyrirkomulagið er mjög gott í þvi skyni. Ég er ekki hrifinn af aðstoð- armönnum (seconds). Þeir hjálpa stundum, en stundum held ég jafnvel, að þeir geri það gagnstæða. Sjálfur hef ég aldrei aðstoðarmann og myndi ekki vilja það. Aðstoðarmaðurinn er eins og óábyrgur stjórnmálamaður í stjórnarandstöðu. Hann getur sagt, hvað sem honum sýnist. Það gerir honum ekkert, efhann hefur á röngu að standa. Og þess vegna eru ráðleggingar hans oft eins og ráð lélegs stjóm- málamanns. Ég held, að sumir skákmeistarar vinni þó vel með aðstoðarimanni. Þannig var sá tími, að Spasski vann vel með Bondarevskí. Ég veit ekki, hvem ég ætti að hafa fyrir aðstoðar- mann og ég vil ekki hafa neinn, ég er vanur þvi að vinna einn. í einvígjum i áskorendamót- inu kemur það ekki heldur eins að sök að vera án aðstoðar- manns. Það er i skákmótum eins og Olympíumótinu og öðrum slíkum erfiðum mótum, þegar skák fer í bið að kvöldi og mað- ur verður að tefla hana áfram næsta morgun, sem gott getur verið að hafa aðstoðarmann. Þetta gerist ekki í áskorenda- mótunum. Þar teflir maður skák sina og fari hún i bið, þá tefl- ir maður hana næ3ta dag á sama tíma en ekki um morgun- inn. Þannig gefst því tími til þess að sofa. Skákirnar við Fischer? Ég hef tapað fjórum, unnið þrjár og auk þess höfum við gert jafn- tefli í tveimur eða þremur. Ég man ekki nákvæmlega, hve margar þær eru. Af andstæðingum mínum tel ég Spasskí þann erfiðasta í ein- vígi. Spasislkí vinmur hins vegar ekki endilega miargar skákir í s'kákmótum. Fischer vimnur mörg skákmót, eins er með Korchnoi og eins er með mig, en í ein- vigi held ég, að erfiðasti and- stæðingurinn yrði Spasski. Spasskí er betri einvígismað- ur en Fischer. Sem keppandi í skákmótum er ég ekki viss um, hvor þeirra er betri. En ef Fisch er og Spasskí tefldu saman ein- Vigi, þá er ég viss um, að Spasskí myndi vinna. Hann er mjög góð ur einvigismaður og Fischer hef ur aldrei sigrað hann, heldur tapað fyrir honum þrisvar. Þegar Bent Larsen er spurð- ur að því, hverja hann telji 10 beztu skákmeistarana, sem nokkru sínni hafi verið uppi, svarar hann: — Ég held, að 10 beztu skák- meistararnir, sem nokkru sinni hafi lifað, séu uppi nú. Ég veit, að þetta er ekki það svar, sem venjulega er gefið. Fólk nefn- ir mjög oft Aljekine eða Capa- blanca. En ég tel, að margir skákmeistarar nú tefli betur en Aljekine. Þanni.g er ungverski skákmeistarinn Portisch t.d. betri en Aljekine var að minu áliti. Margar af frægustu skák- um Aljekines og sömuleiðis margir af stærstu sigrum hans í skákmótum voru unnir gegn til tölulega veikum andstæðingum. Hins vegar tél ég þó Aljekine vera mestan skákmeistara for- tíðarinnar. En ég held, að margir skák- meistarar nú' á dögum séu betri en Aljekine var, einfaldlega sök um þess að við kunnum meira. Aljekine tefldi fremur mikið miðað við hans tirna en ekki eins mikið og skákmeistarar gera nú. Capablanca tefldi frem ur litið og á öllum skákferli sínum tefldi hann ekki meira en sumir skákmeistarar nú á dög- um tefla á fimm árum. — Hvað er skák, er hún list, vísindi, íþrótt eða eitthvað enn annað? — Hún er eitthvað af þessu öllu þrennu. Ef umint væri að reikna skák fullkomlega visinda lega út stærðfræðiiega með tölvu, þá myndi rnikið af hinni listrænu hlið hennar hverfa. En mikið af íhugun og útreikningi skákarinnar er sjálfstjáning og þá er hún list. Ef til viil er auð- veldasta svarið við þessari spurn- ingu það, sem Petrosjan, fyrr- verandi heimsmeistari ijefur gef ið. Hann svaraði: — Skák er skák. En Petrosjan er líka mjög skarpur maður, segir Larsen og hlær. — En Botvinnik, fyrrverandi heimsmeistari hefur sagt, að hann muni finna upp vél, sem tefla skuli betur en nokkur skák- meistari og gera skák úrelta. — Hann segir það ekki leng- ur, segir Larsen og heldur áfram: — Á sinum tima var Botvinnik mjög bjartsýnn í þessu efni. Hann taldi, að hann myndi ljúka slíkri vél mjög fljótlega. Nú virðist hann hafa misst móð- inn. Kjarni málsins er sá, að Botvinnik er sjálfur ekki vls- indamaður á þessu sviði. Hann starfar hins vegar með mönn um, sem vinma að töluvuútreilkn- ingum. En hann hefur ekki gert sér grein fyrir erfiðleikunum og er nú vonsvikinn gagnvart þess- ari skákvél sinni. Ég er ekki tölvuvís'indamað- ur og þvi er það kannski mjög heimskulegt af mér að koma fram með slíkar spár, en ég tel, að á næstu 15 árum að minnsta kosti, muni ekki verða fundin upp véi, sem nái einu sinni sama styrkleika og meistaraflokksmað ur, hvað þá sama styrkleika og stórmeistari. Það er þegar búið að vinna mikið að þessu verk- efni, en framfarirnar hafa ver- ið hægar. Þær skákir, sem tefld- ar hafa verið af þessum vél- um, eru lélegar. Ég hef sjálfur teflt á móti einni slíkri og vann i 11 leikjum. —| Hvernig leið þér á meðan? — Það var svo sem engin sér stök tilfinning, sem fylgdi þessu .Vélin var aðeins lélegur skák- maður. Því var alls ekki þann- ig farið, að ég yrði fyrir áhrif- um af einhverri vél, sem gerði engin mistök, því að þessar vél- ar geta ekki reiknað nógu langt fyrir fram. Vélin reiknar aðvísu út öll afbrigði vissan fjölda leikja fram i tímann, en hún veit ekki, hvernig hún á að velja þegar hún á að kjósa á milli vandasamra afbrigða. Þá yrði hún að reikna marga leiki fram í tímann og það getur hún ekki. — Hvernig geðjast þér að helztu andstæðingum þínum eins og Spasskí og Fischer? — Spasskí er mjög geðþekk- ur maður. Fyrir nokkrum ár- um fannst mér samt sem hið innra með honum væri svolít- ið þunglytndi, en hann virðist nú vera í meira jafnvægi og hamingjusamari nú. Víst er hann hamingjusamur yfir því að vera heimsmeistari, en ég held þó ekki, að það sé ástæð- an. Bobby Fischer er að sjálf- sögðu afar sérstakur maður. Ég er ekki hrifinn af því að sál greina Fischer of nákvæmlega. Hann getur verið mjög vingjarn legur og það kemur fólki á ó- vart, sem svo oft hefur heyrt getið þessa hræðilega manns, sem alltaf er að skapa vand- ræði á alþjóðaskákmótum. En þegar kemur út fyrir skákina, þá er hann oft ekki of örugg- ur með sjálfan sig. Ég heldþað stafi einfaldlega af skorti á menntun. — En hvað álítur þú um Frið rik Ólafsson. Telur þú, aðhann búi yfir miklum hæfileikum? — Hann hefur vissulega mikla hæfileika, en á sínum tíma tók hann þá ákvörðun, ef það mætti nefna það svo, að einbeita sér ekki að skák. Það er ekkert rangt við þessa ákvörðun, kannski helzt frá sjónarhólí þeirra, sem eru brennandi áhuga menn um skák. Hvers vegna hann ákvað að einbeita sér ekki að skák, því er erfitt að gera sér grein fyrir. Ég er þeirrar skoðunar, að fyrir mörgum ár- um hafi hanm gert það upp við sig, að hann vildi ekki verða þjóðhetja. Slíkt hlutverk er auð velt að fá en sennilega samtím- is örðugt að gegna í litlu landi, vegna þess að ef maður er þjóð hetja í litlu landi, þá er maður miklu meira en þjóðhetja í stóru landi. Og mér virtist svo fyrir mörgum árum, að Friðrik geðjaðist ekki að þessu, og ég tel, að það hafi verið ástæðan fyrir því, að hann ákvað að halda áfram námi sinu og tefla þá ekki skák nerna lítið í nokk- ur ár. En nú er Friðrik aftur byrjað ur að tefla og teflir enn mjög vel, en ég veit ekki, hvort hann muni nokkru sinni reyna að ná. því að tefla I áksorendamótinu. Ég held líka, að honum myndi ekki takast það, því að það, sem hann hefur misst á þessum ár- um, þegar hann hefði átt að vera að efla allan tímann, ef Framhald á bls. 2L

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.