Morgunblaðið - 24.04.1971, Page 7
MORGUNBLAÐK), LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1971
7
Hverfisgata III hluti
Bjarnaborg.
Að ganga um hinar eldri
götur borgarinnar — það er
að lesa sögu hennar í stórum
dráttum. Svo er t.d. hér á
innsta hluta Hverfisgötunn-
ar. Hér hefur gerst sagan:
ÍJr timbrinu í steinsteypuna.
Norðan götunnar innan við
Vatnsstiginn stendur samfelld
röð snoturra timburhúsa. Um
hvert og eitt þeirra mætti
skrifa heila sögu. En við
þekkjum hana ekki. Þess er
heldur varla von. — Þetta
er allt að því einkamál, sem
ekki á að opinberast þar sem
friðhelgi heimilanna er í
heiðri höfð. Af tilvikjun
i barst eitt af þessum húsum í
1 ta! um daginn við einn af hin
um eldri mönnum, sem hafa
„smíðað þessa borg.“ Það er
Sæmundur Tómasson smiður
á Spítalastíg 5. Hann fluttist
hingað til bæjarins þegar
hann kom í smíðalæri hjá Er-
lendi Ámasyni vorið 1905 og
byrjaði námið með því að
reisa hús uppi á Geitháisi.
Þegar smíði þess var lokið,
tóku þeir til við að reisa hús,
sem enn stendur og er nr. 53
við Hverfisgötu. Það var
byggt fyrir Emil Jensen
bakara og frú hans 5 Austur
stræti 17. Þess minnist Sæ-
mundur, að eftir að húsið var
orðið fokhelt kom frú Jensen
inneftir á hverjum laugardags
eftirmiðdegi. Til hvers? Til að
vita hvernig verkið gengi?
Já, sjálfsagt í og með. En
hún kom með kaffi og kökur
og trakteraði allan mannskap
inn. Það var ekki litil hugul
semi af hinni dönsku frú.
Vissulega hefði hún getað
látið það vera. „En þá var
líka unnið á laugardögum,"
bætir Sæmundur við.
Við vesturenda hússins eru
breiðar tröppur, sem ná með-
fram öllum gaflinum. Upphaf
1 lega voru á honum tvennar
dyr, aðrar inn í íbúðina, hin-
ar inn i bakarísbúðina. Þetta
er ekkert merkilegt, en það
er táknrænt fyrir Hverfisgöt
una því hún sameinar það i
, hæfilegri blöndu að vera
bæði gata fólksins og forretn
inganna.
Aðalhúsið við innanverða
Hverfisgötu er Bjarnaborg.
Við það kanna^t allir eldri
Reykvíkingar, þótt þeir séu
nú sjálfsagt fáir orðnir, sem
kunna að rekja sögu þess.
Sá, sem byggði þetta mikla
hús var Bjami Jónsson, Árn
esingur að ætt, alinn upp i
Það er dýrt að kaupa hús og
lóðir til að breikka gamlar
götur.
fátækt, fluttist til Reykjavík
ur, lærði húsa- og mublu-
smiði, byggði um 150 hús,
flest í Reykjavík. Bjarnaborg
reisti hann fyrir eigin reikn-
ing, hafði fjölda manns í
vinnu og lauk húsinu á tveim
árum. Grjótið í grunnin var
höggvið uppi í holti, en timbr
ið fékk Bjarni mikið úr göml
um húsum, sem voru rifin
niðri í Austurstræti. 1 þeim
voru góðir viðir. Þeir hafa
enzt vel i Bjarnaborg til
þessa dags.
Árið 1904 keypti einn auð
ugasti bóndi Islands þetta
mikla hús. Það var Þorvald-
ur á Þorvaldseyri. Kaupverð-
ið var 43 þús. kr. Þorvaldur
lét fyrir það höfuðból sitt og
15 þús. kr. í peningum. Það
var mikið fé. Nú um langa
hríð hefur Bjarnaborg verið i
eigu borgarsjóðs.
Bjarnaborg er mikið hús |
hvemig sem á það er litið,
stórt í sniðum og höfðinglegt
þegar horft er til baka allt til
aldamóta, þegar það var
byggt, og allur stórhugur i
húsnæðismálum var næsta
sjaldgæfur. Framhlið þess
blasir við handan bílabreið-
unnar á Vitatorginu, fagur-
rauð með reglusemi symme-
tríunnar mótaða í virðuleg-
um svip sínum og ártalið 1902
-— byggingarárið — yfir mið-
dyrum.
Hverfisgatan er aðalum-
ferðaræðin í austurbæinn, neð
an frá Lækjartorgi og inn á
Hlemm. Óteljandi farartæki
allt frá skellinöðrum upp í
strætisvagna bruna þar um
allan liðlangan daginn. Það
er alveg furða hvað þessi
gamla gata, sem byrjaði sem
krókóttur gangstigur milli
kotanna i Skuggahverfinu,
getur flutt af umferð þessar-
ar miklu bílaborgar. Þeg-
ar umferðarljósin loka henni
við Snorrabraut myndast lang
ar bílaraðir á augabragði. Um
leið og kemur grænt fossar
bilaflóðið af stað með marg-
breytilegum gný. Þannig er
synfonia Hverfisgötunnar
endurtekin með margskonar
tilbrigðum frá morgni til
kvölds.
Það er aðeins á sunnudags-
morgnana, sem okkar morgun
svæfa borg veitir Hverfisgöt t
unni næði til að rifja upp }
minningamar frá hinum J
gömlu, rólegu dögum. Þá eru j
hér aðeins fáir bílar á ferð t
og nokkrir árrisulir vegfarend J
ur, flestir á leið i næstu J
sjoppu til að ná sér í kók eða ')
eitthvað, sem hefur gleymzt k
í gær að kaupa í hádegismat J
inn. J
HÉR
ÁÐIJR
FYRRI
ÓSKUM EFTIR 2ja—4ra herbergja íbúð í Reykjavik eða Kópavogi strax. Fátt í heimiii. Uppl. í síma 38733. ER EKKI EINHVER kona eða stúlka, sem getur gætt 4 ára telpu 2 tíma á dag kl. 12.00—14.00? Barnið er í nágr. Grettisg. Uppl. í s. 37883 eftir kl 13.00.
TIL SðLU Trader sendiferðabílll '64. Stöðvarleyfi gettir fyIgt. — Upplýsbigar í sima 41259. EINBÝLISHÚS í Smáibúðahverfi til leigu í eitt ár frá miðjum júní nk. Upplýsingar í sima 34800.
FORD CUSTOM 500 árgerð 1966 til sölu. Upplýs- ingar í síma 41933. HÚSBYGGJENDUR Framleiðum milliveggjaplötur 5, 7, 10, sm, inniþurrkaðar. Nákvæm lögnu og þykkt. Góðar plötur spara múrhúð- un. Steypustöðin hf.
HEST AEIGEIMDUR Gott beitiland fyrir hesta til leigu. Möguleikar á túni til heyskapar. Veiðiieyfi geta komið til greina. Uppl. í sima 3-20-72 og 3-63-53. UNG STÚLKA með gagnfræðapróf og sex mán. námsk. frá Verzlunarsk. Isl., óskar eftir vinnu hálfan eða alfan daginn, helzt sim- vörzlu og vélritun. Uppl. i s. 30952 e. kl. 17 i dag og næstu daga.
HAFNARFJÖRÐUR Óskum að ráða bifvélavirkja. Upplýsingar i síma 52139. ÞBR ER EITTHUB0 FVRIR RLLB yj
Til sölu JARÐÝTA
Caterpillar D.6 B. með ripper.
Upplýsingar í síma 82005.
LaxveiÖimenn
Tilboð óskast í veiði í ánum Laxá og Bakkaá í Heigafellssveit.
Sleppt hefur verið miklu af laxaseiðum i árnar síðastliðin
10 ár, með mjög góðum árangri.
Tilboð sendist blaðinu fyrir 7. maí merkt: „7486 — Landeig-
endur".
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í að byggja og fullgera starfsmannahús að
Skálatúni í Mosfellssveit.
Tilboðsgögn verða afhent á teiknistofunni Óðinstorgi s/f,
Óðinsgötu 7, Reykjavik gegn 5.000.— kr. skilatryggingu.
Félagsráðgjafi
Starf félagsráðgjafa er laust til umsóknar við Landsspítalann,
geðdeild Barnaspítala Hringsins, Da.braut 12. Yfirlæknir stofn-
unarinnar veitir nánari upplýsingar.
Umsóknir sendist Skrifstofu ríkisspítalanna, Eiríksgötu 5, með
upplýsingum um aldur, nám og fyrri störf. Umsóknarfrestur
er til 20. maí n.k.
Reykjavík, 20. apríl 1971
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Spakmæli dagsins
— Hvað er skáld? Vansæll
maður, sem þolir hræðilegar
kvalir. En variir hans eru þann-
ig myndaðar, að þegar andvörp
og óp brjótast út um þær, hljóm
ar slíkt sem fegursti söngur í
annarra eyrum. Honum fer líkt
og vesalingunum, sem byrgðir
voru inni í uxa Phalarisar og
steiktir við hægan eld. Harð-
stjórinn skelfdist ekki við óp
þeirra, heldur hljómuðu þau
sem sætur söngur i eyrum hans.
Og fólk þyrpist um skáldið og
segir: „Syngdu sem fyirst aft
ur!" Með öðrum orðum: Ó, að
nýjar þjáningar kveðji sál þína
og varir þínar séu eins mynd-
aðar og áður, þvi að öskur þín
mundu hræða oss, en söngurinn
lætur oss vel í eyrum. — Svo
koma l'íka ritdómararnir og
segja: „Þetta er rétt, það fylg
ir reglum fagurfræðinnar." En
svo sem kunnugt er, eru rit-
dómararnir að kalla má alveg
eins og skáldið. Það eitt skilur,
að þeir líða engar iijartakvalir
né hafa neinn söng á vörum.
Sjá, fyrir þessar sakir vil ég
heldur vera svinahirðir á Amag
erbro og vera skilinn af svín-
unum en vera skáld, sem er ,mis
skilið af mönnunum.
VÍSUKORN
VOR
Vorsins geislar glampa skærir,
gyllir sólin fold og mar.
Vorsins fuglar koma kasrir,
kvaka þeir til skemmtunar.
Fyrsta sumarsólin.
Fyrsta sumarsólin skín,
signir jarðarblómin.
Ég sé þegar æfin dvin
aðeins himinljómann.
Eysteinn Eymundsson.
CUDQ
Tómar glerkistur til sölu.
Upplýsingar hjá verkstjórum.
CUDOGLER HF.
Skúlagötu 26 — Símar 26556 og 20456.
S. Kierkegaard.