Morgunblaðið - 24.04.1971, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐEÐ, LAUGARDAUUR 24. APRÍL 1971
15
Gera eftirlíkingu af
bæ norrænna manna
á Grænlandi
Kaupmannahöfn.
TILRAUNASTÖÐ í sögtt og
fornleifafraeði í Lejre nálægt
Roskilde áformar að byggja upp
bæ norrænna manna á Græn-
landi frá þvi um 1300. Forust-
una í þessari tilraunastöð hefur
sonur rithöfundarins Martins
A. Hansens, Hans-Ole Hansen
magister, sem hefur áður vakið
athygii fyrir vísindalega ná-
kvæmni í uppbyggingu stein-
aldar- og járnaldarbústaða. Auk
þess sem þama fer fram vís-
indaleg vinna, þá gerir tilrauna-
stöðin sitt gagn sem „lifandi
sögubók" fyrir dönsk skólaböm,
sem hafa dvalið þar í viku og
lært mannkynssögu á þann hátt
að sjá og vera með í að endur-
skapa lífshætti fólks á viðkom-
andi timabili sögunnar.
Nú er ætlunin að leita í til-
raunastöSipni lengra fram í sög
unni, til upphafs miðalda. Lifs-
hættir norrænna manna og
bóndabæir þeirra eru almennt
bezt þekktu bústaðirnir frá
fyrsta tímabili miðalda. Til-
raunastöðin mun þó ekki láta
sér nægja að byggja upp bæi
norrænna manna. Jafnframt er
áformað að reyna að byggja
upp eskimóabústaði — bæði
sumar-, og vetrarhús — frá
sama tíma, og menn vænta
þess að fá m.a. svar við því,
hvers vegna eskimóamenningin
í Grænlandi liíði en norræn
menning hvarf.
Það er ekki hugmyndin með
þessari tilraunastöð í sögu og
fornleifafræði, að hún sé safn,
eins og Frilandsmusæet við
Kaupmannahöfn með sínum
gömlu bæjum og húsum, þar
sem gestir sjá ekkert annað en
dauða hluti, segir Hans-Ole
Hansen. Hér á að standa fólk
að baki. Gestir, bæði börn og
fuiiorðnir, munu t.d. fá að sjá
roann sveifla steinaldaröxi á ná-
kvæmlega sama hátt og gert
Var í gamla daga.
Tilraunastöðin er mikið sótt
yfir sumarmánuðina.' Þá koma
reglulegir safngestir, sem eru
mjög hrifnir af þesisu lifandi
safni. Auk þess koma allt sum-
arið skólabekkir — 15000 börn
á sl. ári — og þau dvelja í þess-
um skólabúðum og taka þátt í
starfinu. Fyrir nokkrum árum
var byggður upp járnaldarbær,
sem: bömin hafa búið í og rækt
að jörðina með sömu aðferðum
og þá voru notaðar, og með verk
færum, sem eru nákvæm eftir-
líking af járnaldartækjum. Þá
var jámaldarbær brenndur, til
að athuga hvOrt það sem fynd-
i9t i brunarústunum samsvaraði
þeim fomleifafundum, sem
fræðimenn hafa unnið úr bruna
rústum frá járnöld.
Þessi lifandi sögukennsla hef-
ur vakið athygli, einkum í Eng-
landi og Ameriku, og skólafólk
þaðan hefur tekið þátt í rann-
póknastörfum í Tilraunastöðinmi.
Þar er nú ráðgert að byggja
heilan bamabæ með járnaldar-
húsum, til að fá verkefni fyrir
ivaxandi fjölda skólanema, og
geta hÖrnin þá stöðugt tekið
þátt í að byggja slík hús. Fá
þau byggingarsvæði til þessara
framkvæmda. Ekki þarf því
lemgur að draga úr bygginga-
framkvæmdum, sem takmark-
ast af sjálfu sér vegna þess að
höggva þarf viðinn til með hand
afli eins og járnaldarmenn
gérðu og skrúfur og naglar eru
aiger bannvara.
— Hver liður þessa „kennslu
leiks“ skal vera vísindalega upp
byggður, segir Hans-Ole Han-
sen. Þess vegná er nauðsynlegt
að haldið verði áfram vísindaleg
um störfum og augun höfð á
markmiðinu. Annara verður
þetta bara skemmtun og fúsk.
Vandinn er bara sá, að þrátt
fyirir fjárhagslegan stuðning
opinberra aðiia við kennsluna,
þá slnrtir fé tii rannsóknarstarf
anna, sem sækja þarf í vísinda-
sjóði.
Vonir standa til að takast
megi að fá 200.000 danskar krón
ur til þessara nýju rannsókna á
upphafi miðalda. Bústaður norr-
ænna manna á Grænlandi frá
því um 1300 er talinin bezt varð
veitti miðaldabúsitáðurinn frá
upphafi þeirra. Hægt er að end-
urbyggja húsið mjög nákvæm-
lega og sama er að segja um
fatnaðinn. Fundizt hafa mjög
vönduð og vel varSveitt eintök
af honum í frosinni jörðu í
byggðum norrænna' manria á
Grænlandi, eins og kunnugt er.
Tilraunastöðin hefur þegar
gert nokkrar eftirlíkingar af
þeim, og á að nota fatnaðinn á
sýniinguná „Fötiri skapa mann-
inn“ í Þjóðminjasafninu í sum-
ar. Hún verður í útibúi safns-
ins í Brede fyrir norðan Kaup-
mannahöfn.
— Við þekkjum verkfærin
frá þessum tíma frá fornleifa-
grefti og við höfum líka ágæta
þekkingu á skipunum, sem
norrænir menn sigldu á frá
Grænlandi frá Skuldelev-fund-
inum (skip sem fannst í Ros-
kildefirði). Þar við bætist, að
íslendingasögurnar fræða okk-
ur um ótrúlega mörg smáatriði
í daglegum lifnaðarháttum
fóiksins, segir Hans-Ole Han-
sen. Á þessari undirstöðu reikn
um við með að geta gert mjög
nákvæma vísindalega tilraun í
líkingu við tilraunina' með járn-
aldarhúsin. Uppbyggingarstarf-
ið mun taka 2—3 ár, og í sam-
bandi við það er ætlunin að
reisa jafnframt vetrar- og sum-
arbústaði eskimóa, til að freista
þess að fá svar við spurning-
unni um það. hvers vegna
menning eskimóanna lifði af, en
menning norrænna manna dó
út.
Annars ætlar Tilraunastöðin
ekki að láta sér nægja að end-
urbyggja bústaði norrænna
manna og e9kimóa í sjálfu
Lejre, heldur verða einnig gerð
ar eftirlíkingar, sem senda má
til Grænlands, svo að Grænlend
ingar megi nú í fyrsta skipti fá
að sjá sína gömlu menningu,
segir Hans-Ole Hansen.
Gunnar Rytgaard.
Atvinna
Vanar saumakonur óskast strax í verksmiðju vora.
Upplýsingar hjá verksmiðjustjóranum Þverholti 17.
VINNUFATAGERÐ ÍSLANDS HF.
Staða ritara
á bæjarfógetaskrifstofunni í Kópavogi er laus til umsóknar.
Aðalstarf vé|ritun.
Nánari upptýsingar á skrifstofu minni daglega kl. 10—12.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Lokoð frú klukkon 10 í dug
vegna jarðarfarar Ama Guðmundssonar verzlunarmanns.
KJARTAN JÓNSSON
byggingavöruverzlun.
Tilboð óskast
í nokkrar fólksbifreiðar, sjúkrabifreið og Pick-Up bifreið fyrir
framdrif, er verða sýndar að Grensásvegi 9 miðvikudaginn
28. april kl. 12—3.
Titboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5.
SÖLUNEFND VARNARLIÐSEK3NA.
SKÓSEL selur skónu
Vorum að fá nýja sendingu af CLARK-skóm. Ýmsar gerðir.
Einnig reimaðir RÚSKINNSSKÓR fyrir táninga.
SKÓSEL, Laugavegi 60.
Fiskihátar til sölu
150 lesta stálskip til sölu, einnig eikarbátar 67, 55, 26,
20, 10, 8 lesta.
Höfum kaupendur að öllum stærðum fiskiskipa.
TRYGGINGAR & FASTEIGNIR Austurstræti 10 A.
Sími 26560, kvöld og helgidagasími 13742.
BERKLAVÖRN
minnir á síðasta skemmti- og spiiakvöld vetrarins í dag
laugardaginn 24. þ.m. kl. 8.30. að SKIPHOLTI 70.
Ljós myndanámskeið unglinga
Framhaldsflokkur hefst mánudaginn 26. apríl kl. 7 e.h.
Innritun og upplýsingar að Fríkirkjuvegi 11 kl. 2—8
virka daga.
ÆSKULÝÐSRÁÐ REYKJAVÍKUR.
Laghentur maður
óskast til verksmiðjustarfa.
Timburverzlunrn VÖLUNDUR HF„
Klapparstíg 1 —- Sími 18430.
TÉKKNESKIR
striguskór
CZECHOSV0
SKÓVERZLUN
PÉTURS ANDRÉSSONAR
fágir og uppreimaðir með hrágúmmí-
sólum. Hvrtir — svartir — bláir.
SANDALAR allar stærðir nýkomnir.
Laugavegi 96,
Framnesvegi 2,
Laugavegi 17.
BIFREIÐASKOÐUN
Aðalskoðun bifreiða í Kópavogskaupstað 1971 fer fram sem
hér segir:
Mánud. 3. maí Y- 1 til Y- 100
Þriðjud. 4. — Y- 101 — Y- 200
Miðvikud. 5. — Y- 201 — Y- 300
Fimmtud. 6. — Y- 301 — Y- 400
Föstud. 7. — Y- 401 — Y- 500
Mánud. 10. — Y- 501 — Y- 600
Þriðjud. 11. — Y- 601 — Y- 700
Miðvikud. 12. — Y- 701 — Y- 800
Fimmtud. 13. — Y- 801 — Y- 900
Föstud. 14. — Y- 901 — Y-1000
Márrud. 17. — Y-1001 — Y-1100
Þriðjud. 18. — Y-1101 — Y-1200
Miðvikud. 19. — Y-1201 — Y-1300
Föstud. 21. — Y-1301 — Y-1400
Mánud. 24. — Y-1401 — Y-1500
Þriðjud. 25. — Y-1501 —. Y-1600
Miðvikud. 26. — Y-1601 — Y-1700
Fimmtud. 27. — Y-1701 — Y-1800
Föstud. 28. — Y-1801 — Y-1900
Þriðjud. 1. júní Y-1901 — Y-2000
Miðvikud. 2 — Y-2001 — Y-2100
Fimmtud. 3. — Y-2101 — Y-2200
Föstud. 4 — Y-2201 — Y-2300
Mánud. 7. — Y-2301 — Y-2400
Þriðjud. 8. — Y-2401 — Y-2500
Miðvikud. 9. — Y-2501 — Y-2600
Fimmtud. 10. — Y-2601 — Y-2700
Föstud. 11. — Y-2701 — Y-2800
Mánud. 14. — Y-2801 — Y-2900
Þriðjud. 15. — Y-2901 — Y-3000
Miðvikud. 16. — Y-3001 þar yfir.
Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðir sínar að Félags-
heimili Kópavogs, og verður skoðun framkvæmd þar dag-
lega kl. 8.45—12 og 13—17.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild
ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir því, að Ijósatæki hafi verið
stillt, að bifreiðaskattur og vátryggingariðgjald ökumanná fyrir
árið 1971 séu greidd, og lögboðin vátrygging fyrir hverja
bifreið sé í gildi. Hafi gjöld þessi ekki verið greidd eða Ijósa-
tæki stillt verður skoðun ekki framkvæmd og bifreiðin
stöðvuð. þar til gjöldin eru greidd. Gjöld af viðtækjum í bif-
reiðum skulu greidd við skoðun.
Vanræki einhver að koma með bifreið sina til skoðunar á
réttum degi, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt um-
ferðarlögum og lögum um bifreiðaskatt og bifreiðin tekin úr
umferð, hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynnist öllum, sem
hlut eiga að málí.
Bæjarfógetinn í Kópavogi,
Sigurgeir Jónsson.