Morgunblaðið - 24.04.1971, Qupperneq 20
í 20
MORGUNBLAÐH), LAUGARDAGUR 24. APRlL 1971
/
Vöruskemmur
Tilboð óskast í tvær vöruskemmur við Kleppsveg.
Stærð 300 fermetrar hvor skemma, lausar í maí.
Hegri hf.
Laus staða
Viljum ráða röskan og ábyggilegan mann til bilstjórastarfa á
8 tonna vörubíl. — Þarf að hafa meirapróf.
Nánari upplýsingar gefnar á skrifstofum okkar að Sætúni 8.
O. JOHNSON & KAABER H/F.
AÐALFUNDUR
Húseigendafélags Reykjavikur verður haldinn föstudaginn 30.
apríl n.k. kl. 17,30 í húsakynnum félagsins að Bergstaða-
stræti 11 A.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÖRNIN.
Textohöiundur óskust
Auglýsingastofa vill ná sambandi við góðan textahöfund.
Frilance-vinna fyrir orðhagan mann með góðan skilning á
sölu- og markaðsmálum.
Svar óskast sent Morgunblaðinu fyrir n.k. mánaðarmót merkt:
„Auglýsingar — 7441".
Tilboð óskast
í tvö stálgrindarhús í herstöð varnarliðsins i Hvalfirði.
Stærð húsanna er 12 x 18 m og 12.24 m. Vegghæð 4.60 m.
Sigurbergur Árnason, fulltrúi hjá Islenzkum Aðalverktökum,
Hvalfirði sýnir húsin.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri 4. maí n.k. kl. 11
árdegis.
SÖLUNEFND VARNARLIÐSEIGNA.
Góð sérhæð óskust keypt
Fullfrágengin eða ófullfrágengin.
Upplýsingar í síma 35942.
HAFNARFJÖRÐUR
Einstakt tœkifœri
Ibúð til sölu 4ra herb. íbúð. ibúðin er öll í mjög góðu
ástandi, laus 1. júní. Verð aðeins kr. 880 þús.
Til sýnis í dag.
Upplýsingar í síma 52844.
Samtök Heilbrigðisstétta efna til
almenns fundar
í Domus Medica sunnudaginn 25/4 1971 kl. 14—17.
Fundarefni:
ÞJÓNUSTA A SJÚKRAHÚSUM
OG HJÚKRUNARKVENNASKORTURINN.
Frummælendur verða Ingibjörg Magnúsdóttir for-
stöðukona, Sigmundur Magnússon læknir, Haukur
Þ. Benediktsson framkvæmdastjóri.
Að loknum framsöguerindum verða frjálsar umræður og fyrir-
spurnum svarað. — Félagar fjölmennið.
Ahugamönnum um heilbrigðismál er heimill aðgangur.
STJÓRNIN.
- Skák
Framhald af bls. 19
21. Hxc5, Dxd6
22. Hc3, Db4
23. Hxd3, exd3
24. 25. Bxa8, Re-c4 Hxa8
(Æskilegt hefði verið fyrir hvít
an að geta leikið hinum riddar-
anum til c4, en því mundi svart
ur svara með hinum snaggara-
lega leik: 25. — Rg4l).
25. — Bhfi
26. He5
(Leikirnir fara nú nokkuð að
einkennast af tímahraki. Eink-
um lenti hvítur brátt í miklu
tímahraki. Hins vegar er heldur
ólíklegt, að hvítur fengi, með
beztu taflmennsku beggja, hald-
ið taflinu, þegar hér er komið).
26. — Hd8
27. Hb5 De7
28. He5, Dc7
29. b3, Hf8
(Hótar mannsvinningi).
30. Rbl, Bc5
31. h3
(Ljótur leikur, en erfitt er að
benda á fullnægjandi áfram-
haid).
31. — Rd7
32. Hg5, h6
33. Hg4, Re5
34. Rxe5, Dxe5
35. Kg2, De2
36. Dd2, axb3
37. axb3, He8
(Nú á hvítur enga vörn gegn
þeirri hótun, sem yfir vofir).
38. Hc4 Be3
og hér gafst hvítur upp, enda
missir hann verður mát. drottninguna eða
MEÐ UNGU FÓLKI
AÐ SKIPH0LTI 70 KL. 14
HVAÐ VILL UNGA FÓLKIÐ?
- ALLT ER Á DAGSKRÁ
„Valdið í
hcndur fólkinu‘‘
fRALEUT M>
BANNA
S,A huhoa"n1-0
ðasfa sýning á
Hannibal
VERDSTÖÐVUN
víxill til 1. sept.
v afV
,\ö“
s\»
BVV'
e\
. *
OFRÍKISHNEIGÐ
s*
Ágæti samborgari.
Hversvegna sinnir unga fólkið ekki stjórnmálum sem skyldi?
Eru stjórnmálaumræður í raun og veru ekki þess virði,
að með þeim sé fylgst? Og um hvað snýst svo pólitíkin, þegar
'allt kemur til alls? Metorð og bitlinga, fánýta orðaleiki,
yfirboð í ábyrgðarleysi. Eða hvað?
Nei, reyndar ekki. •
Hvort sem okkur líkar betur eða ver, eru stjórnmálin sá
vettvangur, þar sem úrslitin eru ráðin í flestum þeim málum,
sem að okkur snúa daglega; fræðslukerfi, launakjör, löggjöf,
boð og bönn í lífi og starfi. Jafnvel hundarnir fá ekki að
vera í friði fyrir stjórnmálunum!
1 mörgu er ábótavant og oft erum við óánægð með
ákvarðanir og aðgerðir stjórnvalda. En hvernig getur fólk
vænzt breytinga, ef það lætur ekki í sér heyra, kemur ekki
skoðunum sínum á framfæri? Hvernig geta stjórnmálamenn
bætt úr göllunum, ef þeim ekki er sagt frá þeim?
Ef til vill sækir þú ekki pólitíska fundi; þykir þeir
leiðinlegir? En því ekki að slá til eina dagstund,
jafnvel þó ekki væri til annars en að fylgjast með, kynnast
þankaganginum?
Við getum borið saman bækur okkar, spurt spuminga, Ieitað
svara — allt er á dagskrá. bví ekki að mæta og sjá
hvemig þér finnst? _— .— r— .
HrtrtA /S < a
EÐA JAFNAÐAR- ^
STEFNA?
B^rátta stúdenta
jSSS’ beinist að
betra þjóðfélagi
i