Morgunblaðið - 24.04.1971, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐEÐ, LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1971
31
Reykjavíkurmótið hafið:
Vorbragur á
f yrsta leiknum
— er Fram sigraði Víking 1-0
ÞAÐ var sannarlvsra vorbragur
á knattspyrnunni sem Fram og
Víkingur léku I fyrsta Ieik
Reykjavíkurmótsins, sem fram
fór á sl, fimmtudag — sumar-
daginn fyrsta. Langtimunum
saman gekk boltinn milli mót-
herja, og oft á tiðum virtist það
aðalkeppikefli leikmannanna að
sparka hátt og langt. En þótt
þetta vjeru aðaleinkenni leiks-
ins, brá þó fyrir betri köflum
hjá báðum liðunum, og vist er
að knattspyrnan í þessum leik
var sízt verri en hún hefur oft
verið hérlendis í byrjun keppn-
istímabilsins. Framarar voru
betri aðilinn i leiknum og verð-
skulduðu 1:0 sigur, en það eru
söniu úrslit og urðu í leik þess-
ara liða i Reykjavikurmótinu í
fyrra.
Mark sitt skoruðu Framarar
á síðustu mínútum fyrri hálf-
leiks, og bar það þannig að, að
annar bakvörður Víkinga sendi
boltann til Framara, sem stadd-
ur var framundir miðlíiiu. Ás-
geir Elíaisson lék síðan upp með
knöttinn og komst sjálfur í gott
skotfæri innan vítateigs, en í
stað þess að reyna markskot
renndi hann boltanum til Krist-
ins Jörundssonar, sem síðan
renndi boltanum fram hjá Dið-
UL-landsliðið
LANDSLIÐIÐ leikur við UL 21
árs og yngri á sunnudaginn kem
ur og fer leikurinn fram á Mela-
vellinum að leik Þróttar og Ár-
manns í Reykjavíkurmótinu
loknum.
Unglinganefndin hefur valið
lið sitt, en þess skal getið að
ekki var hægt að velja leikmenn
frá Val og KR, vegna þess að
þessi félög leika í Reykjavikur-
mótinu á mánudag.
IJL. 21. árs og yngri:
1. Ómar Karlsson, Haukum
2. Magnús Þorvaldsson, Víkingi
3. Vilhjálmur Karlsson, ÍBK
4. Jón Pétursson, Fram, fyrir-
liði
5. Marteinn Geirsson, Fram
6. Dýri Guðmundsson, F.H.
7. Hélgi Ragnarsson, F.H.
8. Þór Hreiðarsson, UBK
9. Eiríkur Þorsteinsson, Víkingi
10. Pálmi Sveinbjörnss., Haukum
11. Ólafur Danivalsson, F.H.
12. Hörður Helgason Fram
13. Steinþór Steínþórsson, UBK
14. Friðrik Ragnarsson, iBK
15. Steinar Jóhannsson, ÍBK
16. Helgi Helgason, UBK.
riki Ólafssyni, Víkingsmark-
manni og í netið. Varla lék á
tveim tungum að Kristinn var
rangstæður þegar hann fékk
boltann, en dómarinn gerði enga
athugasemd, enda flaggaði línu-
vörðurinn ekki á rangstæðu.
Annars var lítið um opin tæki-
færi í þessum leik. 1 fyrri hálf-
leiknum meðan leikurinn var
nokkuð jafn fengu Víkingar þó
einu sinni gullið tækifæri til
þess að skora, er einn leikmaður
liðsins var frír inn undir mark-
teigi, en hreinlega gleymdi að
skjóta. Rétt áður en Framar-
ar skoruðu mark sitt fengu þeir
ágætt tækifæri, er boltinn var
sendur fyrir markið til Jóns
Péturssonar, sem hafði nógan
tíma til athafna, en i stað þess
að taka boltann niður, reyndi
hann að skjóta viðstöðulaust, en
það skot lenti langt framhjá.
1 síðari hálfleik sóttu Fram-
arar til muna meira, en Víkings-
vömin var vel á verði og eng-
in umtalsverð tækifæri gáfust.
Því varð Fram, sem nýlega er
búið að leika við beztu liðin frá
i fyrra, ÍA og Keflavík, að sætta
sig við 1:0 sigur gegn II. deild-
ar liði Víkings.
Framarar sækja að marki Vikings, en Diðriki markverði te kst að slá boltann frá.
Mikið má annars vera ef
Framarar verða ekki í fremstu
víglinu í sumar. Vörn liðsins
virðist vera mjög sterk með þá
Jóhannes og Sigurberg sem
beztu menn, og einhvern veg-
inn hefur maður það á tilfinn-
ingunni að framlína liðsins verði
beitt í sumar, þótt hún hefði
ekki erindi sem erfiði í þessum
leik. 1 Vikingsliðinu virtist Guð-
geib Leifsson vera í sérklassa,
en Diðrik Ólafsson markvörður
sýndi einnig skemmtileg tilþrif,
einkum i síðari hálfleik.
Stjl.
IA-UBK jafntefli 1:1
Á SUMARDAGINN fyrsta fór
fram á Akranesi fyrri leikur
Akurnesinga og Breiðabliks á
Litlu-bikarkeppninni. Lauk leikn-
um með jafntefli, 1:1 og voru
úrslitin samvgjöm eftir gangi
leiksins, sem var í heild fremur
lélegur.
Það var Þór Hreiðarasom, sem
færði Breiðabliki forystuna þeg-
ar á 2. mím. fyrri hálfleika. Skall-
aði hamm knötiinn í netið af
stutbu færi. Akumesiogar fengu
ágætt tækifæri til að jafna um
miðjan hálfleilkimn, en skot
André.sar Ólafssonar hafnaði í
stöng.
Um miðjan sdðari hálfleik áttu
Eyieifur og Björn Lárusson
ágæt tækifæri, sem ekki nýtt-
u«st.
Á 30. min. tóksit svo Haraldi
að skora■ fyrir Akurnesinga, em
hann tók homspyrmu og semdi
knöttinn i netið beirnt úr hom-
spymunmi.
Það var vorbragur á þessum
leik íslandsmoistarama og nýíið-
anma í 1. deild. Samleikur var
Þór Hreiðarsson, Breiðabliki franikvæmir aukaspyrnu rétt fyrir
lelkslok. Einar er tilbúinn I markinu og vamamienn ÍA, Steinn,
Haraldur og Jón Alfreðsson, mynda vamarvegg. (Mynd: Friðþj.).
í molum og skot að marki fá og
Iéleg.
Akumesingar hafa átt í erf-
iðleikum að undanfömu, eins og
úrslitin í leikjum þeirra að und-
amförnu bera með sér. Mikil for-
föll eru í liði þeirra, þar sem
Matthías og Teitur eru forfaMað-
iirir vegma meiðsla og er því
framilinan hvorki fugl né fiskur
um þessar mundir. Vömin hefur
eimmig verið slök að umdamfömu
sérstaklega þó mairkvarzlan, þótt
ekki kæmi það verulega að sök
í þesisum leik.
Þó átti Einar að geta komið
í veg fyrir mark Kópavogs að
þessu simmi með úthlaupi.
Haraldur Sturlaugsson og Jóm
Alfreðsson léku betur að þessu
simmi en áður og sömuleiðis
Þröstur og Jón Gunnl&ugsson.
Steimm Helgasom lék simn fyrsta
leik með lA, en hamm er 17 ára
og stóð sig ágæflega.
Lið Breiðabliks er ungt og
mum áreiðaunlega ekkl gefa sig
fyrr ein i fulla hnefana í 1. deild
i suimar.
Þór Hreiðarsson er þar bezti
maðurimm, en einnig áttu þeir
Guðmundur Jónason og Ri'karð-
ur Pálssom góðam leik. Nokkur
forföll voru í liðinu í þessum
leik og vamtaði m. a. Guðmund
Þórðarsom, sem hefur verið
bezti maður liðsins undanfarim
ár.
Leikinn dæmdi Guðjóm Finn-
bogason og skilaði þvi hlutverki
vel.
6. Breiðholtshlaupið
6. OG síðasta Breiðholtshlaup IR.,
að sinni, fer fram 1. sunnudag í
sumri, 25. apríl n.k.
Alls hafa nú 315 unglingar tek
ið þátt í Breiðholtshlaupum lR-
inga i vetur og af þeim eru
nokkrir, sem hafa hlaupið öll
hlaupin. Keppnin um heildarverð
launin í aldurflokkunum er mjög
hörð i flestum flokkunum, og
það eru margir, sem til greina
koma til sigurs í hverjum flokki.
Því verður spennandi að sjá
hvernig fer, sérstaklega ef allir
þeir, sem eiga aðeins eitt hlaup
eftir í heildartöluna f jögur hlaup,
mæta til keppninnar nú í síðasta
hlaupið.
Vonandi er að sumarið fagnl
hinum ungu hlaupurum með
góðu veðri, um leið og nýr hátt
ur verður tekinn upp til reynslu,
sem er fólginn i því að láta fleiri
hefja hlaupið samtímis en áður
hefur verið gert í vetur.
Hlaupið hefst eins og venju-
lega kl. 14.00. Númeraúthlutun
hefst hins vegar kl. 13.30.
SJÓNMPS LEIKURIN
Wolves — Southampton
Fram - IBK
I DAG fer fram á Melavellinum
úrslitaleikurinn i meistarakeppni
KSl og mætast þá Fram og IBK.
Nægir Fram jafntefli til sigurs í
keppninni, en liðið hefur náð
mjög góðum árangri í þessari
keppni og unnið stórsigra yfir
lA og iBK á þeirra heimavöll-
um. Leikurinn i dag hefst kl. 3.
Sjónvarpið sýnir í dag leik
Wolves og Southampton, sem
leikinn var á leikvelli Úlfanna,
Molineux, sl. laugard&g.
Wolverhampton Wanderers
var stofnað árið 1877 og hefur
átt sæti í deildakeppninni frá upp
hafi. Félagið hefur átt sæti í
1. deild siðan 1932 utan tveggja
ára í 2. deild. Olfamir hafa unn-
ið 1. deild þrisvar sinnum, ár-
in 1954, 1958 og 1959, en fimm
sinnum hafa þeir hafnað í 2.
sæti. Úlfamir hafa fjórum sinn
um unnið bikarkeppnina, árin
1893, 1908, 1949 og 1960, en alls
hafa þeir átta sinnum leikið til
úrslita. Framkvæmdastjóri Úlf-
anna er Bill McGarry, en at-
hyglisverðustu leikmenn þeirra
eru nú Bailey, Parkin, Munro,
McCalliog, Could (sem hér lék
með Arsenal) og Derek Dougan,
formaður stéttarfélags knatt-
spyrnumanna, en hann getur
ekki leikið í dag vegna meiðsla.
Úlfamir leika í gulum peysum og
svörtum buxum.
Southampton var stofnað ár-
ið 1885, en félagið hóf feril sinn
1 deildakeppninni í 3. deild árið
1920. Félagið vann sér sæti I
1. deild árið 1966 og hefur leik-
ið þar síðan. Southampton hefur
aldrei borið sigur úr býtum í 1.
deild og félagið hefur aldrei náð
betri árangri i keppninni, en á
þessu keppnistímabili. South-
ampton hefur aldrei unnið bikar
keppnina, en félagið lék til úr-
slita árin 1900 og 1902. Fram-
kvæmdastjóri Southampton er
Ted Bates, en athyglisverðustu
leikmenn liðsins eru Terry
Paine, fyrirliði liðsins og kunn-
ur enskur landsliðsmaður, mið-
framvörðurinn McGrath, sem
lék á Islandi með Bury árið
1958, miðherjinn Ron Davies
sem talinn er bezti miðherji á
Bretlandi um þessar mundir, svo
og innherjarnir Channon og O'
Neil. Southampton leikur í rönd
óttum peysum, rauðum og hvít-
um, og svörtum buxum.
Úlfarnir eru nú í 3. sæti í 1.
deild, en Southampton er i 7.
sæti og bæði liðin keppa að því
að vinna sér rétt til þátttöku 1
UEFA-Cup næsta haust. Þegar
liðin mættust í Southampton
unnu Úlfamir og hefur ekkert
lið nema Úlfarnir og Arsenal
hrifsað bæði stigin frá heima-
mönnum.
Liðin, sem leika í dag, eru
þannig skipuð:
WOLVES
1. Parkes
2. Shaw
3. Parkin
4. Bailey
5. Munro
6. McAlle
7. MeCalliog
8. O’Grady
9. Gould
10. Curran
11. Wagstaffe
og
12. Hibbitt
SOTTHAMPTON ]
1. Martin ’
2. Kirkup *
3. Hollywood
4. Fisher *
5. McGrath
/
6. Gabriel
7. Paine
8. Channon I
9. Davies
10. O’Neil
11. Jenkins
og
12. Stokes
Dómari í leiknum er A. P. Ol-
iver og stendur hann oft I
ströngu i þessum leik.
BL.