Morgunblaðið - 28.04.1971, Page 2
f
2
MORGUNBLAÐHÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. APRIL 1971
Brezkur miðill
væntanleffur
BRKZKI miftillinn frú Kathleen
St. Georje er væntanleg: til Is-
Iands næstkomandi þriðjudagf á
vegum Sálarrannsóknafélagfs ís-
Forseta-
kosningar
— í S-Kóreu
Seul, Suður-Kóreu,
27. apríl. AP.
FORSETAKOSNINGAR fóru
fram I Suður-Kóreu í dag og
greiddu atkvæði um 80 prósent
þeirra 15.5 milljóna, sem voru
á kjörskrá. Samkvæmt fyrstu
tölum hefur núverandi forseti,
Park Chung-Hee, örugga for-
ystu yfir keppinauta sína. All-
miklar ráðstafanir höfðu verið
gerðar af hálfu yfirvalda til að
grípa í taumana, ef til óeirða
kæmi, en þær urðu ekki um-
talsverðar. Ekki er húizt við, að
atkvæðatöiur liggi fyrir fyrr en
á morgun,
Park sækist eftir endurkjöri
þriðja sinni nú, en aðaland-
stæðingur hans er Kim-Dae-
Jung, sem er fulltrúi hins ný-
stofnaða demókrataflokks Suð-
ur-Kóreu.
Olíuvið-
ræður
París, 27. apríl — NTB
FULLTRÚAR frá ríkisolíufélag-
inu Lef-Erap halda á morgun,
miðvikudag, til Alsír til að ræða
við þarlenda fulltrúa um deil-
urnar, sem eru komnar upp milli
Iandanna vegna verðlagningar
Alsírstjórnar á olíu. Komið hef-
ur tíl tals að hætta að kaupa
oliu frá Alsír I Frakkiandi, en
áður en til slíkra ráða verður
gripið hefur verið ákveðið að
fulltrúar franskra og alsírskra
hittist og freisti þess að komast
að samkomulagi.
lands og mun halda hér miðils-
fundi næstkomandi mánuð fyrir
félaga og gesti þeirra. Frú Kathl
een St. George hefur starfað mik
ið á vegum Brezka sálarrann-
sóknafélagsins og er þekktur
miðiil i heimalandi sínu og við-
ar. Hingað hefur frúin komið
einu sinni áður, árið 1968 og
kynntust þá margir hæfileikum
hennar sem miðils.
Frúin mun að þessu sinni
halda talsvert af einsmannsfund
um, en auk þess 6 manna fundi
og skyggnilýsingafundi. Verða
túlkar frúnni til aðstoðar, svo
að allir megi njóta. Sálarrann-
sóknafélagið hefur gefið út leið-
beiningar fyrir þá er hyggjast
sækja fundina. Eflaust munu
margir hafa áhuga á að sækja
fundi frúarinnar að þessu sinni.
Sovézkur teiknari dró upp þessa mynd, sem á að sýna tengingu Sojusar 10 og Saljutfarsins á
braut umhverfis jörðu. ,
Utanríkisráðherrafundi Noröurlanda lokiö;
Styðja Max Jacobson
Vilja bann við frekari mengun hafsins
Stokkhólmi, 27. april — NTB
Utanríkisráðherrafundi Norður-
landa lauk í Stokkhólmi í dag
og gáfu ráðherrarnir út sameig-
inlega yfirlýsingu. Þar tjá þeir
stuðning sinn við framboð Finn-
ans Max Jacobson sem eftir-
mann U Thants, framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna. Þá
hvetja ráðherrarnir til þess, að
tilmælum verði beint til tíu
Evrópulanda um að banni verði
komið á til að varna þvi, að
sökkt verði í sæ eiturefnum og
úrgangi á siglingasvæðum og
sömuleiðis að Norðursjó verði
forðað frá frekari mengun. Er
fulitrúiim þessara Ianda boðið til
ráðstefnu, sem verður haldin i
Osló um málið í september næst-
komandi.
Ýmsum þáttum alþjóðamála
eru gerð nokkur skil í yfirlýs-
ingu ráðherranna og m.a. sagt að
nauðsynlegt sé að áfram verði
unnið að því að draga úr spennu
milli austurs og vesturs og já-
kvæður árangur Berlínarviðræðn
anna gæti orðið eitt skref i þá
átt. Áherzla var lögð á, að i Indó-
kína kæmi vart önnur lausn til
greina en sú, sem væri af póli-
tískum toga, og gæfi öllum þjóð-
um rétt til að ráða sjálfar sín-
um málefnum. Um afvopnunar-
mál var sagt, að utanríkisráð-
herrarnir vonuðu að bann yrði
lagt við framleiðslu gereyðingar-
og kjamorkuvopna, eins og þeg-
ar hefði verið komið á varðandi
sýkla- og eiturefnavopn.
Ráðherrarnir voru sammála
um að aðildarlönd S.Þ. ættu að
fara að tilmælum Öryggisráðs-
ins og selja ekki vopn, hvorki til
Suður-Afríku né Portúgals. Varð-
andi Efnahagsbandalag Evrópu
var tekið fram, að áfram myndu
þau láta fylgjast með þeirri þró-
un, sem yrði í þeim málum og
aðstöðu hvers Norðurlandanna
Afmæli
Kvenna-
deildar
KVENNADEILD Slysavarnafé-
lagsins í Reýkjavík ætlar að
fagnia afmæli sínu með sameigin
legu borðhaldi í Slysavamafélags
húsiíiu þanin 29. apríl.
Aðgöngumiða verður hægt að
fá í Skóskemmunmi að Þing-
holtsstræti 1.
fyrir sig gagnvart Efnahags-
bandalaginu.
Þá lýstu ráðherramir fylgi
sínu við þá tillögu að Norður-
löndin tækju þátt i mannúðar-
og uppbyggingarstarfi þvi, sem
þyrfti að vinna i Austur-Pakist-
an.
Á blaðamannafundi sagði Capp
elen, utanríkisráðherra Noregs,
að yfirlýsing stjórnar sinnar um
að hún ætlaði að viðurkenna
stjórn N-Vietnam væri ekki and-
bandarísk og ekki mætti túlka
hana sem slíka.
JVilja syipta Nix-
U>n doktorstitli
Whittier, Kalifomíu, 27. aprii'
— AP
STÚDENTARÁÐ Whittier-
háskólans í Kalifomíu sam-
þykkti í dag með þrettán1
samhljóða atkvæðum að |
leggja til, að Nixon, forseti j
Bandaríkjanna, yrði sviptur,
heiðursdoktorstitli þeim, sem'
háskólinn sæmdi hann árið)
1959. Nixon fékk nafnbótina |
fyrir vel unnin störf í vara-
forsetatíð sinni, en stúdent-
arnir segja nú, að stefna!
hans í Vietnamstríðinu sé |
slík, að hann sé ekki þess (
verður að bera doktorsnafn-
bót.
Byggt við Skúlagötu 4
FBAMKVÆMDIB eru hafnar
við stækkun húss Hafrannsóknar
stofnunarinnar að Skúlagötu 4,
en ríkisútvarpið leigir helming
hússins sem kunnugt er. Reist-
ar verða tvær hæðir ofan á bak-
hús hússins og verður hvor hæð
um 300 fermetrar. Á neðri hæð
verða rannsóknarstofur, en á
hinni efri verða til húsa bóka-
söfn Hafrannsóknarstofnunarinn
ar og Rannsóknarstofnunar fisk-
iðnaðarins og kaffistofiur.
Samkvæmt upplýsmgum Þórð- 1
ar Þorbjarnarsonar er hér um að
ræða mjög brýna stækkun hús-
næðis fyrir þessar tvær stofnan-
ir. Áætlaður byggingakostnaður
er um 9 millj. króna og verða
innréttaðar rannsóknarstofur að
auki í því húsrými, sem losnar
í aðalbyggingunni. Búizt er við
að byggingarframkvæmdum
ljúki snemma á næsta árL
Von á boðskap
Duvaliers
Port au-Prince, Haiti,
27. apríl. AP.
JEAN CLAUÐE Duvalier, sem
tók við af föður sínum, Papa
Doc, sem stjómandi Haiti, sagði
dag, að hann myndi gera
stefnuskrá sína heyrinkumia
á þinginu næstkomandi fimmtu
dag. Hann lét þó að því liggja,
að hann myndi í fáu breyta
þeirri stefnu, sem faðir hans
hefði fylgt í valdatíð sinni.
Happdrætti Hringsins
aðeins 50 krónur. Upplag miða
er takmarkað.
— Ávarp Geirs
Framhald af bls. 1
Benediktssonar, Gunnar Thor-
oddsens og Jóhanns Hafsteins.
Ég vona, að með stuðningi ykk-
ar megi mér auðnast að standa
í þeirri stöðu. Mér þykir vænt
um að mega starfa með Jóhanni
Hafstein, sem hefur verið kjör-
inn formaður með slikum ein-
hug.
Eg miinmist þess, að fyrstu sam
Skipti ökkar Jóhanns voru ekki
ánægjuleg fyrir mig. Ég hringdi
í hanm og óskaði eftir imngöngu
í Heimdall. Hann spurði mig
hvað gamall ég væri' og sagði
svo að ég vseri of ungur en bað
mig að koma eftir eitt ár. Ég
vonast til að sem varafonmáður
megi ég gegna því hlutverki að
Iétta störfum af formanni.
Myndabrengl
1 SÍÐUSTU viku birti Morgun-
blaðið grein eftir Eirík Stefáhs-
son, kennara, er nefndist: Er
lestrarkennslan í lagi? Því mið-
ur var birt röng mynd með greih
inni. Myndin, sem birtist var af
öðrum ágætum kennara er einn-
ig heitir Eirikur Stefánsson en
hér birtist mynd af greinarhöf-
undi. Biður Mbl. velvirðingar á
þéssum mistökum.
Kennslubíllinn á slysstað. S.já má af strikinn á götunni að hjól-
barðinn hefur festst og bíllinn mnnið áfram drjúgan spöl —
Ljósm. Sv. Þorm.
Tvennt slasast
í árekstri
MJÖG harður árekstur og slys
varð á gatnamótum Langholts-
vegar og Skeiðarvogar á laugar-
dag, er vörubifreið ók viðstöðu-
laust ínn á Langholtsveg og á
Volkswagen-bíl, sem þar var ek-
Ið í suðaustur. Vörubíllinn var
á leið austur Skeiðarvog — en
Uangholtsvegur er að sjálfsögðu
aðaibraut.
Volkswagenbillinn var kennslu
bifreið og ók henni ung stúlka.
Skemmdist bíllinn mikið, stúlk-
an kjálkabrotnaði og hlaut önn-
ur meiðsl, en ökukennarinn
skarst á höfði og fékk mikið
höfuðhögg og slæman heilahrist
ing. Bíll þeirra rann stjómlaust
um 80 metra suður fyrir gatna-
mótin. I aftursæti kennslubíls-
ins var unglingur, sem meiddist
ekki að ráði.
Fólkið í kennslubUnum var
flutt í slysavarðstofuna og liggja
sitúlkan og kennarinn nú í
Borgarspítalanum.
FJÁRÖFLUNARDEILD Hringa-
iims fer nú á næstunni aif stað
með ferðahappdrætiti sitit. Verða
þar í þnír vimnimgar: Eerð til
New York með Loftleiðuim, ferð
með Ekígfélaigi tsilands eftir eig-
iin vali og Öræfaferð með Úifari
Jacobsen.
Al'hir ágóði af þessu happ-
drætti reomir til geðdeildar
Bamaspítala Hrinigsins við Dal-
braut, sem nýlega var opnuð.
Hringuri rm hefur eims og
kunmugt er gefið alllt innbú til
geðdeildarinnar ásamt lækniinga-
tækjum, en kostnaðurinn við
Slik kaup er gifurliegu r og sagði
frú Siigþrúður Guðjónsdóttir, for-
maður Hringsins, að miikið átak
þyrfti til að koma sllku til leið-
ar. Kvaðst frúin vonasit fastlega
til þess, að ferðahappdrætti ð
fengi góðar undirtektir eins og
fleiri mál Hriragsinis a/llt fram að
þessu.
Dregið verður í happdræittinu
í byrjun júní og kostar miðinn
e