Morgunblaðið - 30.04.1971, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.04.1971, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1971 Skógræktarfélag Kópavogs; Vill hefja fiskirækt í Kópavogslæknum SKÓGRÆKTARFELAG Kópa- vogs hefur farið þess á leit við bæjarstjórn Kópavogs að fá Kópavogslækinn til umráða með fegrun lækjar og umhverfis fyrir augum. Einnig hefur fé- lagið áhuga á að kanna mögu- leika á fiskirækt í læknum. í bréfi, dagsettu 27. apríl sl., sem skógræktarfélagið skrifaði til bæjarstjórnar kemur fram að félagið h^fur mikinn áhuga á því að samvinna takist við bæinn um hreinsun á læknum og vill félagið efna til skipu- lagssamkeppni um fyrirkomu- lag og fegrun lækjar og um- hverfis. Vonast félagsmenn til að hægt verði að koma upfi tjörnum til fiskiræktar og trjá* gróðri og runnagróðri við læk- inn. Skógræktarfélag Kópavogs vinnur að landgræðslu og skóg ræktarmálum, svo og að nátt- úru- og útivistarmálum. Innan skamms hefjast félagsmenn handa við að græða upp 18 hektara lands á Vatnsenda- hverfi. í kvöld verður fundur hjá fé- laginu og þar mun skógarvörð- urinn í Gullbringu- og Kjósar- sýslu flytja erindi um skógrækt í sýslunni með litskuggamynd- um. Einnig mun Jakob Haf- stein flytja erindi um laxarækt og sýnir hann litkvikmynd um laxarækt. Hið nýja skipulag Hveragerðis. Eldur í skipi Lítill eldur en eitraður reykur myndaðist Skipulag Hveragerðis Tillaga um skipulagið 25 ára gömul I GÆR voru liðin 25 ár síðan úti á landsbyggðinni skipulögð ELDUR korn upp í skipi, sem er í smíðum i Stálsmiðjunni hf., Austurbakka við Briuinstíg, Norð- menn fá síld frá Japan Stavanger, 29. apríl, NTB. j NORÐMENN hafa nú fengið . simn fyrsta síldarfarm frá J Japan, og eru mjög hrifnir af( gæðum síldarinnar. Það er j norskur heildsali, sem hefur] keypt samtals 100 tonn af síld ' frá Japan og tíu toanum var I landað í Stavanger á mið-1 vikudag. Fiskiíræðmgar. sem . skoðuðu síldina, voru mjög' hrifnir af henni. Hún er álí-ka ( stór og nor3ka stórsíidin svo-1 neínda, en fitumagn hennar, er 20 prósent, sem er helm-' ing; meira en þeirrar norsku. I Um 30 tonn af japönsku síld-j inni verðá flutt til Noregs, en ( hitt hefur heildsalinn selt á- fram til ýmissa annarra | landa. snemma í gærmorgun. Hafði kviknað í plasteinangrun í káetn, er verið var að logsjóða gat á síðu skipsins. Mikill reykur gaus upp, en eldurinn varð hins vegar ekki mikili. Var að mestu biiið að ráða niðnrlögiim hans þegar slökkviliðið kom á staðinn. Tveir af starfsmönnum Stálsmiðjunn- ar hf. brenndust lítils háttar í andliti og voru þeir fluttir í Slysavarðstofuna. Þegar slökkviliðið kom á stað- inn voru f jórir reykkafarar send- ir inn í húsið. Opnuðu þeir allar útihurðir hússins og viftur voru settar í gang til þess að hleypa reyknum út, en eiturloft mynd- ast við bruna plasts af þeirri gerð, sem riotuð var i einangrun káetunnar. nýkjörin hreppsnefnd hins nýja Hveragerðishrepps hélt fyrsta fund sinn í þinghúsi hreppsins. Fyrstn hreppsnefndina skipuðu Gunnar Benediktsson, Haukur Baldvinsson, Helgi Geirsson, Jóhannes Þorsteinsson og Sigur jón Jónsson. Á fundi þessum samþykkti hreppsnefndin að fela nýskipuðum oddvita, Helga Geirssyni skólastjóra, að tala við skipulagsstjóra ríkisins um að fullkominn skipulagsuppdrátt ur yrði fullgerður sem allra fyrst, og lagður fram almenningi til sýnis. Fyrir rúmu ári leitaði Hreppsnefnd Hveragerðis til Gests Ólafssonar skipulagsfræð- ings um heiidarskipulag fyrir Hveragerði og var það staðfest nú á þessum 25 ára afmælis- fundi. Það hefur virzt nokkrum ann- mörkum háð að fá kauptúnin að minnsta kosti hefur skipulag Hveragerðis verið lengi á leið- inni. Þar sem fyrsta oddvita hreppsnefndar Hveragerðis var falið að tala við skipulagsstjóra ríkisins 29. apríl 1946 og skipu- lagið hefur þvi verið 25 ár á leið inni. Á þessu tímabili hefur íbú- um Hveragerðis fjölgað úr 390 í 820. Á s.l. 25 árum hafa verið haldnir 518 fundir hjá hrepps- nefndinni. Núverandi hrepps- nefnd skipa; Ólafur Steinsson, Stefán Magnússon, Georg Miehel sen, Þorkell Guðbjartsson og Þórgunnur Björnsdótttr. íslandskynning í Færeyjum FERDASKRIFSTOFA ríkisins i unarferðum i sumar milli Fær- og Flugfélag íslands efndu til eyja og íslands. íslandskynningar í Færeyjum1 Á kynningunni var sýnd kvik 14._16. apríl sl. Kynninguna mynd um ísland og gerð grein fyrir möguleikum til ferðalaga á íslandi. Blöð í Færeyjum skrif sóttu um 1500 manns, Markmiðið með kynningunni var að vekja áhuga Færeyinga á ferðalögum til íslanda, en F.í. mun halda uppi tveimur áætl- Sigluf jörður: FUNDUR UM BYGGÐAÞRÓUN — og atvinnumál Siglufjarðar Almennur fundur verður hald inn i Sjálftsæðishúsinu á Siglu- Bíða með að sökkva úrgangsefnum Ósló, 29. apríl, NTB. BREZKUM úrgangsefnum verð- nr væntanlega ekki sökkt í Norð- ursjó fyrr en í iok næstu viku, að því er brezkir fuiltrúar skýrðu frá á fundi, sem haidinn var í norska utanríkisráðuneyt- inu í dag. Norðmenn hafa tekið fram að þeir ætli að leggja til að Bretar fresti að sökkva úr- gangsefnunum þar til fjaiiað befur verið um málið í Alþjóða- hafrannsóknaráðinu. Fundurinn í Ósió var haldinn að frumkvæði Breta. firði, mánudaginn 3. maí kl. 8.30. Frummælendur á fundinum lærða Geir Hall- grímsson, borg- arstjóri, varafor maður Sjálfstæð isflokksins, og Eyjólfur Konráð Jónsson rit- stjóri. Á fundinum verður fjallað um byggðaþró- unarmál og at- vinnumál Siglu- fjarðar. Að loknum fram söguræðum verða frjálsar umræður og frummælendur svara fyrírspurn um. öllum er heimill aðgangur. uðu mikið um íslandsferðir þá daga sem kynningin stóð yfir og gætti mikillar vinsemdar í garð íslendinga í skrifum þeirra. Kemur þetta fram í fréttatilkynningu frá Ferða- skrifstofu ríkisins og F.í. Af hálfu Ferðaskrifstofu ríkis ins sá Markús Örn Antonsson um framkvæmd þessarar kynn- i ingar en fulltrúi Flugfélags ís- lands í ferðinni var Haraldur Jóhannsson. Nutu þeir prýðilegr ar fyrirgreiðslu Föroya Ferða- mannaféiags við undirbúning þessarar íslandskynningar í Færeyjum. Skólatónleikar í Garðakirkju SJÖUNDA starfsári Tónlistar- skóla Garðahrepps er nú að ijúka. Um 100 nemendnr stund- nðu nám í skólanum í vetur, en kennarar voru 8 auk skólastjór- ans Guðmundar Norðdahl. Starfsárinu lýkur með þrenn- um tónieikum. Píanótónleikar voru haldnir i samkomusal Barnaskólans í gærkveldi. Á sunnudaginn verða tónleikar í Garðakirkju. Hefjast þeir kl. 8.00 e.h. og loks verða lokatónleikar og skólaslit fimmtudaginn 6. maí ki. 8.00 síðdegis í samkomu sal Barnaskólans. Þá mun m.a. koma fram hljómsveit skólans en hún er skipuð 30 hljóðfæra- leikurum. Lenging skólaskyldu erfið landsbyggðinni segir frú Valgerður Agústsdóttir f VIÐTALI við frú Valgerði Ágústsdóttur frá Geitaskarði, sem birtist í blaðinu í gær, er ranglega haft eftir henni, að til- finnanlegur skortur sé á ungum, duglegum mönnum í flokks- og félagsstarf. Það, sem frú Val- gerður átti við, er, að f jöldi ungs fólks verður að leita til Reykja- víkur til náms og þar af leiðandi er erfiðara að halda uppi félags- starfi fyrir þá, sem heima eru. Það sé fjarri sanni, að skortur sé á efnilegu ungu fólki í Húna- vatnssýslum, en það sé hin mis- jafna námsaðstaða úti á lands- byggðinni, sem dragi unga fólkið til Reykjavikur. Frú Valgerður telur, að leng- ing skólaskyldunnar sé mjög erfið úti á landsbyggðinni, þvi þá sé skemmri tími fyrir nemendur til starfs, en flestir verða að Eldur í gömlum sumarbústað Um kl. 18.55 í gær kom upp eldur í gömlum sumarbústað að Selásbletti 14. Húsið var alelda þegar slökkviliðið kom á staðinn. Enginn bjó í húsinu. Slökkviliðinu tókst að ráða nið urlögum eldsins á klukkutíma. Húsið mun vera ónýtt. Eldsupp- tök eru ókunn. \ Flýgur SAS til Kína ? Stokkhólmi, 29. marz, NTB.' SENDINEFND frá SAS fer( 1 til Kína í lok maímánaðar til j að ræða við stjómvöld þar! I um flug milli Skandinavíu og ( Kína, eftir að SAS hefur ( fengið leyfi fyrÍT flugleiðinni j I yfir Síberíu til Japans. Ekk-, I ert hefur verið látið uppi um' hvaða atriði verði helzt tekin( fyrir, en talsmaður SAS segir j að ef áhugi sé fyrir hendi í! Kína, muni SAS leggja mikla' áherzlu á málið. vinna fyrir sér að sumrinu. Frú Valgerður telur nauðsynlegt að auðvelda nemendum , utan af landi að afla sér mennunar, en auk þess beri að verðlauná góða og áhugasama nemendur sér- staklega, t.d. með námsstyrkjum. Þá lét frú Valgerður Ágústs- dóttir þess getið, að í Sjálfstæð- iskvennafélagi Austúr-Húna-} vatnssýslu ríkti mikill áhugi á félagsstarfsemi og konurnar hefðu margvísleg áhugamál, t.d. heilbrigðis- og menntamál. Hæst, bæri þó áhuga félagskvenna á ýmsum þjóðmálum og þá sér- staklega eflingu Sjálfstæðis- flokksins. Ekki til Danmerkur 1 FYRIRSÖGN um för forseta- hjónanna í baksíðufrétt i gær misritaðist annað þjóðlandið er þau heimsækja. 1 fyrirsögninni var sagt að iandið væri Dan- mörk en átti að vera Svíþjóð eins og kemur fram annars stað- ar i fréttinni. LEIÐRETTING f MORGUNBLAÐINU í gær birt- ist athugasemd á bls. 24 við grein dómsmálaráðuneytisins, en höfundarnafn féll niður. Höfund- ur athugasemdarinnar er Helga Tryggvadóttir. Hermann ekki í framboði EINS og Morgunblaðið Skýrði frá fyrir nokkru hafði verið á- kveðið að Hermann Guðmunds- son, formaður Hlífar í Hafnar- firði, skipaði efsta sæti á franv boðslista SFV í Reykjaneskjör- dæmi. Nú hefur blaðið fregmað, að Hermanin Guðmundsson hafi breytt ákvörðun sinni og verði eklki í framboði fyrir þessi stjórn málasamtök í vor. Ekki er vitað hvað veldur þessari breytingu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.