Morgunblaðið - 30.04.1971, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.04.1971, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1971 Mæðraheimilið f ormlega opnað Sex stúlkur í einu geta dvalizt þar í allt að sex mánuði Geir Hallgrímsson, ásamt þeim Eddu Bachmann (t.v.), sem verður matráðskona á mæðraheimil- inu, og Höllu Bachmann, forstöðukonu. — (Ljósm. Mbl.: K. Ben.) MÆÐRAHEIMILIÐ að Sólvalla- götu 10, var formlega tekið í notkun í gær, en starfsemin hófst fyrir nokkru. 1 stuttu ávarpi fjallaði Geir HaUgrims- son, borgarstjóri nokkuð um til- drög þess að heimUið var stofn- að og undirbúning undir það. Borgarstjóri sagði meðal ann- ars: Þegar nú formlega er tekið í notkun þetta nýja heimili, þyk- ir til hlýða að rekja nokkuð for- sögu málsins og gera grein fyr- ir hlutverki heimilisins. Að vísu hafa áður komið fram tillögur um rekstur mæðra- heimilis á vegum Reykjavikur- borgar en fyrsta raunhæfa skref ið til framkvæmda var stigið í fé lagsmálaráði 9. maí 1968, þegar samþykkt var að láta fara fram könnun á félagslegum aðstæðum ógiftra barnshafandi kvenna i Reykjavik. Undirbúningur og framkvæmd þessa verks var fal- in þeim dr. Birni Björnssyni og Margréti Margeirsdóttur, félags- ráðgjafa. Könnunin fór fram á Mæðra- deild Heilsuverndarstöðvarinnar í nánu samstarfi við yfirlækni og annað starfslið deildarinnEir. Söfnun upplýsinga fór fram timabilið nóvember 1968 — janú- ar 1969 og náði til 200 ógiftra barnshafandi kvenna. Niðurstöð- ur könnunar lágu fyrir í júní 1969. Á grundvelli niðurstaðna þess- arar könnunar voru svo lagðar fram í félagsmálaráði hinn 18. september 1969 tillögur ásamt greinargerð um stofnun mæðra- heimilis i borginni. Þar var lagt til, að Reykjavík- urborg stofnaði og ræki mæðra- heimili i tengslum við Félags- málastofnun Reykjavíkurborgar. Markmið með sliku heimili er að veita ógiftum mæðrum öruggan samastað nokkrar síðustu vikur meðgöngutíma og fyrstu mánuð- ina eftir fæðingu barns, sam- tals aHt að 6 mánuði. Meðan mæðumar dvelja á heim Uinu er stefnt að því að veita þeim fræðslu um meðferð ung- bama og uppeldi barna. Jafn- framt er stefnt að því, með til- sögn á heimilishaldi, persónuleg- um ráðleggingum og félagslegrl aðstoð, að búa I haginn fyrir framtíðina og tryggja hag móð- ur og barns eftir að dvöl er lok- ið á heimUinu. Borgarráð Reykjavikur festi, 30. aprU 1970, kaup á húseign- inni SólvaHagötu 10 í því skyni að reka þar mæðraheimili. Heimili það, sem hér er sýnt í dag, og hefur fyrir nokkru haf- ið starfsemi, er ætlað 6 stúlkum, þar af 4 með börn og 2 barns- hafandi. Hver móðir hefur eig- ið herbergi, en bamshafandi stúlkur verða tvær um herbergi. Þótt hér væri um mjög góða eign að ræða, þurfti að breyta henni talsvert og lagfæra miðað við hið nýja hlutverk. Önnuð- ust starfsmenn Félagsmálastofn- unar Reykjavíkurborgar aUan undirbúning að breytingum í samráði við yfirlækna barna- og mæðradeildar Heilsuverndar- stöðvarinnar og starfsfólk þeirra. Leifur Blumenstein, bygg- ingafræðingur hefur verið tækni legur ráðunautur, teiknað allar breytingar og haft umsjón með verkinu, sem Trésmíðavinnu- stofa Áhaldahúss Reykjavikur- borgar hefur framkvæmt. Félagsmálastofnun Reykjavik- urborgar mun annast .vistun á heimUið í náinni samvinnu við mæðradeild Heilsuverndarstöðv- ar. Jafnframt munu starfsmenn Félagsmálastofnunarinnar ann- ast persónulegar ráðleggingar tU mæðranna og veita félagslega aðstoð i samráði við forstöðu- konu. Forstöðukona hefur verið ráð- in Halla Bachmann, sem áður veitti forstöðu skólaheimili fyr- ir stúlkur á vegum Reykjavik- urborgar. Hefur hún, í því sam- bandi, kynnt sér starfsemi mæðraheimila í Englandi. Trún- aðarlæknar verða læknar barna- og mæðradeildar Heilsuverndar- stöðvarinnar. Verk 14 kvenna kynnt Á bókmenntakynningu í Lind- arbæ 5. maí n.k. kl. 20.30 verða kynnt bókmenntaverk 14 ís- lenzkra kvenna á vegum Menn- ingar- og friðarsamtaka ísl. kvenna. Þessir 14 höfundar eru: Ás- laug á Heygum, Drifa Viðar, Gréta Sigfúsdóttir, Guðrún Guð- jónsdóttir, Margrét Friðjónsdótt ir, Nína Björk Árnadóttir, Ólöf Jónsdóttir, Sigríður Einars frá Munaðarnesi, Steinunn Eyjólfs- dóttir, Svava Jakobsdóttir, Unn- ur Eiríksdóttir, Vilborg Dag- bjartsdóttir, Þórunn Elva Magnús dóttir og Þuríður Guðmunds- dóttir. Stefnt er að náinni samvinnu við Húsmæðraskóla Reykjavikur og Heilsuverndarstöð um kennslu og fræðslu i heilsuvernd og húshaldi. Ýmsir aðilar hafa sýnt þessari stofnun áhuga og velvild. Ber þar sérstaklega að geta Hvíta- bandsins, sem hefur gefið fjár- upphæð til þess að búa upp rúm í mæðraheimUinu, og Mæðrafé- lagsins, sem gefið hefur öU barnarúm til heimUisins. Sveinn Ragnarsson, félags- UM 10 bátar hafa sótt um und- anþágu tll síldveiða og hefur sjávarútvegsráðuneytið veitt ein- um þeirra leyfi, Höfrungi III. frá Akranesi. Tveir bátar, Hafrún og Örfirisey, höfðu áður fengið leyfi til síldveiða. Eru þeir báðir á miðunum vestur af Vestmanna eyjum og hafa samtals landað um 313 tonnum og hafa rúmlcga 200 tonn af því farið til Norður- stjömunnar. f gærkvöldi hafði ekki frétzt af frökari síldarafla á svæðinii vestur af Eyjum. Höfrungur III. mun fara af stað ininan skamms en samkvæmt Hátíð í ísrael Tel Aviv, 29. apríl, NTB. ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGS fsraels var minnzt í dag um allt landið með hersýningum, og voru meðal annars sýndir þrír þeirra fimm fallbyssubáta, sem var smyglað úr höfninni í Cherbourg um jól- in 1969. 80 orrustuþotur af Sky- hawk-gerð og 64 af Phantom- gerð flugu í fylkingum yfir helztu borgir landsins, en engar af franskri gerð, eins og á und- anförnum ámm. málafulltrúi, lýsti síðan húsa- kynnum. Á efri hæð hússins eru fimm herbergi. Fjögur eru eins manns, fyrir þær sem þegar hafa aUð börn sín, en eitt er tveggja manna, fyrir tvær barnshafandi stúlkur. Á neðri hæðinni er borð- stofa og setustofa og þriðja stof- an sem fljótlega verður fullfrá- gengin verður notuð sem vinnu- og kennslustofa. 1 kjaHara er svo íbúð forstöðukonunnar og þvottahús og geymslur. upplýsingum Sturlaug? Böðvars- sonar á Akranesi fer Höfrungur III. ekki á miðin vestur af Eyj- um heldur á miðin við Hraunáð í Faxaflóa. Hefur Höfrungur III. veitt þar á undanfönnum vorum góða síld til beitu og niðursuðu. Mál Vcstra og Gullþóris tekið fyrir MÁL Vestra BA, 63 og Gull- þóris SH. 115, sem teknir voru að meintum ólöglegum neta- veiðum á svæði í Breiðafirði, þar sem þessi veiðarfæri eru ekki leyfð, voru tekin fyrir í gær. Mál Gullþóri3 var tekið fyrir í Stykkishólmi. Viðurkenndi skipstjórinn brot sitt við yfir- heyrslur og lauk málinu með dómssátt. Var skipstjóranum gert að greiða 20 þúsund kr. í sekt til landhelgissjóðs. Mál Vestra var tekið fyrir á Patreksfirði. Fór fram rann- sókn í málinu, en dómsúrskurð- ar er að vænta fljótlega. Bátur- inn fór á veiðar í gær. Atvinna Okkur vantar 4 stúlkur og 2 karlmenn til starfa í verksmiðjunni. Upplýsingar í síma 66300 eða 66303. ÁLAFOSS H/F. SVFB Veiðivarzla Stangaveiðifélag Reykjavíkur óskar eftir að ráða veiðivörð við Elliðaár í vor- og sumar. _ Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: „Veiðivörður — 4167". Höf rungur III f ær leyfi NEMENDASÝN ING DANSSKÖLA HERMANNS RAGNARS í AUSTURBÆJARBÍÓI LAUGAR- DAGINN 1. MAÍ KLUKKAN 2,30 EFTIR HÁDEGI Fjöldi nemenda á ölium aldri sýnir gamla og nýja samkvœmis- dansa og tízkudansa liðinna ára Aðgöngumiðasala er r Austurbœjarbí ói frá klukkan 4 í dag Verð aðgöngumiða er krónur 100,oo fyrir fullorðna og krónur 50,oo fyrir börn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.