Morgunblaðið - 30.04.1971, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGIJR 30. APRlL 1971
15
*
Fuglaverndarfélag Islands:
Haftyrðill að hverfa
og keldusvínið í hættu
AÐALFUNDUR Fuglaverndarfé
lags íslands var haldinn í Norr
æna húsinu 26. marz sl,
Formaður félagsins Magnús
Magnússon prófessor flutti
skýrslu um starfsemina síðast-
liðið starfsár. Eins og und-
anfarin ár hefur félagið fylgzt
með sjaldgæfum fuglategundum
og þá einkum haferninum, en
einnig öðrum tegundum sem í
hættu eru að verði útrýmt hér
lendis af manna völdum.
Formaður las upp skrá fugla
í Evrópu frá Alþjóða Náttúru
verndarráðinu um fugla þá sem
eru í mestri hættu. Þar er haf-
tyrðill efstur en síðan haföm
inn. Noregur er eina landið í
Evrópu, þar sem örninn er ekki í
biáðri haettu, en sl. ár var hann
þar alfriðaður, en á íslandi var
hann alfriðaður 1916. Örfá pör
eru hérlendis af haftyrðli og er
r«ík>rðut
m i nrsvix
Keldusvín
V«l» (IM IVBWll
Haftyrðill
nauðsynlegt að varpsvæði hans
sé algerlega friðað og lokað. —
Örninn er hér enn í mikilli
hættu og má í engu til slaka
næstu áratugi ef takast á að ná
stofninum upp, þar eð hann
hefur komizt í mjög hættulegt
lágmark.
Þá skýrði formaður frá því
að athugun hefði verið gerð á
keldusvíni en það er miklum erf
iðleikum bundið að fylgjast með
því. Þó er augljóst að það er
horfið úr vissum landshlutum,
og má fullyrða að þar sé mink
ur valdur nr. 1, á eftir því má
telja þurrkun áveituland-
svæða. Fræðslufundir voru
haldnir mánaðarlega og voru
þeir yfirleitt mjög vel sóttir.
Rætt hefur verið um að félagið
hefji útgáfu. fræðslurits um
fugla og verndun þeirra og er
mál það í athugun.
Tala félaga er nú 259.
Reynir Armannsson las reikn
inga félagsins og voru aðalút-
gjaldaliðir kostnaður við fundar
höld og gæzla á varpsvæðum
arnarins. Til þess að félagið
geti starfað þarf það að hafa
miklu meira fjármagn til ráð-
stöfunar og háir þetta mjög
starfsemi þess. Aðeins tveir að
ilar hafa styrkt félagið með
fjárframlögum: Frú Ásta Egg-
ertsdóttir Fjeldsteð, ísafirðd og
dönsk hjón sem hér voru á
ferð og gáfu upphæð sem svar
aði gæzlukostnaði eins arnar-
hreiðurs. Færir félagið þeim
þakkir sínar og virðingu.
Stjórnin var endurkjörin, en
hana skipa: Magnús Magnús-
son, prófessor, formaður, Jón
Baldur Sigurðsson, kennari, rit
ari og Reynir Ármannsson full
trúi, gjaldkeri.
FRYDENBO
Hydrapilot
STÝRISVÉLAR.
Sjálfvirk, rafknúin
vökvastýrisvél fyrir
fiskibáta og stærri
skip.
Kynnið yður
kosti og kjör
FRYDENBÖ
stýrisvélanna.
Hverfisgötu 6, sími 20000.
Klapparstíg 26, sími 19800, Bvk. og
N Brekkugötu 9, Akureyri, sími 21630.
Það þarf talsvert til að standa
fremst á þýzkum sjónvarps-
markaði.
Tæknileg fullkomnun, glæsi-
bragur og úrval ólíkra gerða
segja sitt.
Nordmende þýðir að njóta þess
bezta.
Óskirnar fá menn uppfylltar þar
sem úrvalið er mest.
Verð frá kr/18.500.00
Útborgun kr. 5.000.00
Eftirstöðvar á 10 mán.
MARKAÐSKYNNING
Hluthafar í Loðdýr hf.
Munið eftir markaðskynningunni
í Tjarnarbúð sunnudaginn 2. maí
kl. 10 fyrir hádegi til 5 eftir hádegi
Stjórn Loðdýrs hf.
<z pAifyiuteý
NÚ ERU
HÚSIN TVÖ I
Aðalumboð opið laugard. til kl. 6 og sunnud. 2-6
Sala á lausum miðum stendur yfir