Morgunblaðið - 30.04.1971, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRtL 1971
19
Óx viður af V í si
Drög að sögu dagblaðsins Vísis
ef tir Axel Thorsteinsson komin út
í DAG kemur í bókaverzlanir í
Reykjavík og nágrenni bókin
„Óx viður af Vísi' með undir-
titlinum „Dagblað í sextíu ár“.
Höfundur er Axel Thorsteinsson
rithöfundur og blaðamaður og
setur hann þar fram drög að sögu
dagblaðsins Vísis.
í eftirmála segir höfundur að
Jóna-s Kristjánsson ritstjóri Vísíb
hafi átt hugmynd að verkinu og
viljað fá samda sögu Vísis. Síð-
an segir höfundur:
„ . . . Mér var ekki stætt á öðru
sem gömlum Vísismanni en
reyna þetta, gera það, sem ég
taldí mér fært, eða að ganga frá
bók, sem yrði drög að sögu blaðs
iinis, frásögn, lýsing á liðnum
tíma, að meginefni um stofnun
blaðsims og frumbýlingsár og rit
stjórnarár þeirra Jafcobs Möilers
og Páls Steingrímssonar, ásamt
ágripi, sem næði til þess tíma,
sem erm er eigi f jær en svo, að
hann er ógleymdur. Af framan-
Olíu-
fundur
— Jakobson
Framhald af bls. 1
stjómir Arabaríkjanina leggist
gegn tilnefningu finnska fulltrú-
ains, séu litlir sem engir mögu-
leifcar á að hann taki við emb-
ættinu, þar sem Sovétríkin og þá
væntanlega öninur kommúniista-
ríki, muni styðja Arabastjómim-
ar,
Jakobson hefur hingað til ver-
ið talinn einn líklegasti eftirmað-
ur U Thants, en þó eru ýmsir
aðrir nefndir, til dæmis fulltrú-
ar frá Eþíópíu, Ceylon, Ghana og
íran. Mörgum Arabarfkj um
fiinnst að nú sé röðin komin að
þeim að eiga aðalritara, en ef
Jákobson fengi embættið yrði
hann þriðji Skandinavinn sem
gegndi því. Hinir tveir voru
Trygve Lie og Dag Hammar-
skjöld.
— Fjórtán bátar
Framhald af bls. 32
ur RE 65 en hann var með 7
tonn, sem fóru til vininslu í Bæj-
arútgerð Reykjavíkur. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Granda-
radíói mun vera erfiðleifcum
bundið fyrir utanbæjarbátana
að fá löndun í Reykjavík, þar
sem frystihúsin hafa nóg verk-
efni fyrir það starfsfólk sem fyr-
ir hendi er, og erfiðleikum er
bundið að fá nægjanlega margt
starfsfólk til frystihúsavinnu.
Einn hásetanna af bátunum,
sem komu til Reykjavíkur tjáði
Morgunblaðinu að þeir hefðu
ekki gert sér grein fyrir því, að
bátarnir væru að veiðum á svæði
ætluðu línubátum, enda eng-
inn linubátur verið á þessum
slóðum. Skipstjórarnir vildu
ekkert um málið segja.
— Holland
Framhald af bls. 1
urnar eftir kosningarnar, sem
hafa valdið mikilli óvissu og er
óttazt að margir mánuðir líði áð-
ur en línurnar skýrast og unnt
verður að mynda nýja sam-
steypustjórn. Fréttamenn benda
á, að kosningaúrslitin virðist
benda til þess að kjósendur séu
hættir að kjósa samkvæmt trúar-
skoðunum heldur ráði nú félags-
leg og pólitísk afstaða þeirra
hvernig þeir kjósi. 1 kosningun-
um að þessu sinni voru kjósend-
ur ekki skuldbundnir að kjósa í
fyrsta skipti og kann það að hafa
haft áhrif á úrslitin. Um átta
milljónir kjósenda neyttu at-
kvæðisréttar síns eða um 78%.
Nýkjörið þing kemur saman
11. maí til þess að ræða stjórn-
málaástandið og stjórnarmynd-
un. Stjórnarflokkarnir hlutu um
45% atkvæða miðað við 56% ár-
Ið 1967, en fylgi vinstri flokk-
anna jókst úr 28 í 34%. Verð-
bólgan var aðalmál kosninganna.
Bankastjóri landsbankans, Jelle
Zijlstra, varaði við því rétt fyrir
kosningarnar að efnahagsástand-
Ið væri stórhættulegt og hvatti
til þess að endir yrði bundinn á
tilgangslausar verð- og kaup-
hækkanir.
á landgrunni
Danmerkur
FÉLAGIÐ „Dansk Under-
grunds Konsortium", sem tek-
ið hefur að sér að leita að olíu
á danska landgrunninu í
Norðursjó, hefur nú fundið
stærsta olíu- og gassvæðið,
sem fundizt hefur til þessa í
þeim hluta landgrunnsins, er
tilheyrir Danmörk. Samanbor-
ið við olíufundina á svonefndu
Ekofisksvæði, sem tilheyrir
Norðmönnum, þykir þetta þó
ekki mikið magn.
Olía sú, sem þarna hefur
fundizt, hefur brennisteins-
innihald, sem er undir 1%.
Samsvarar það brennisteins-
innihaldinu í þeirri oliu, sem
fundizt hefur á norska land-
grunninu. Brennisteinsmagn-
ið er því mun minna í þessari
olíu en þeirri, sem unnin er
í Arabalöndunum. Brenni-
steinsinnihaldið í olíunni þar
er víða 3—4%.
Olíufundurinn nú átti sér
stað á suðvestursvæði danska
landgrunnsins í Norðursjó,
sem áður hafði verið deilt um
milli Vestur-Þjóðverja og
Dana.
— Landgrunnið
Framhald af bls. 32
5. Til fulls ber að hagnýta við
undirbúning hafréttarráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna 1973 hag-
stæða þróun 1 vi! Islendingum
varðandi rétt strandríkis til fisk
veiðilögsögu á hafsvæðum þess,
6. Gera ber öðrum þjóðum
ljóst að tímasetning útfærslu
fiskveiðilögsögunnar kann að
ákvarðast fyrirvaralaust fyrir
hafréttarráðstefnuna 1973 t.d. ei
sókn erlendra fiskiskipa eykst
verulega á Islandsmið.
7. Nú þegar verði unidirbúnai
tímabundnar friðunaraðgerðir til
vemdar ungfiski á landgrunns-
svæðinu, þar sem viðurkennt er,
að um helztu uppeldisstöðvar
ungfisks og hrygningarsvæði
nytjafisks sé að ræða.
8. Gerðar verði ráðstafainir
nægjanlega viðtækar til þess at
tryggja eftirlit og vamir af ls-
lands hálfu gegn því, að hafií
kringum Island geti orðið fyrii
skaðlegum mengunaráhrifum.
9. Landhelgisgæzlan verði stói
aukin með nýjum flugvélum og
skipum og starfsaðstaða í landi
bætt til að mæta auknum verk
efnum vegna væntanlegrar frið
unar. Eftirlit með erlendum fiski
skipum á landgrunnsmiðunum
verði aukið og sókn þeirra skráð
Að lokum leggur iandsfundur-
inn sérstaka áherzlu á, að sam
staða og einhugur einkenni bar
áttu íslendinga í þessu mikla lífs
hagsmunamáli, sem hafið ei
langt yfir dægurþras og flokks
pólitíska togstreitu.
iesio
ovöuni
DRGIECR
Kynnisferð Gerhardsons:
Vill þrýsting
USA á Grikki
Axel Thorsteinsson.
greindum ástæðum og vegna
þess, að mér varð því hugstæð-
ara því lengur sem ég hugieiddi
hlutverk mitt, að gera gamla
tímanum sem bezt skil nær frá-
sögn mán aðeins til ioka þess
tknabils, sem Hersteinn Pálsson
var einn ritstjóri."
Höfundur segir ennfremur að
verikið hafi tekið allan hans frí-
tíma síðan hann hætti ritstörf-
um á Vísi haustið 1969.
Bókin, sem er rúmar 200 blað-
síður, sfciptist í eftirfarandi
'kafla: Inngang, Frumbýlingsárin,
kafla um ritstjóratíð Gunnars
Sigurðissonar frá Selalæk, kiafla
um ritstjóratíð Hjartar Hjart-
arsonar og Andrésar Bjömisson-
ar 1915, kafla um ritstjóratíð
Jákobs Möllers 1915—1924, kafla
um ritstjóratíð Páls Steingríms-
sonar 1924 til 1938, Minninga-
brot frá starfsárunum 1924—
1938, Ritstjóratímabil Kristjánis
Guðlaugssonar og Hersteins Páls
sonar og loks kaflann „Konan
við hlið baráttumaninsiin3“; frá-
sögn Margrétar Hjartardóttur
Líndal um „fortíð og fyrstu daga
Vísis“.
Bókin er mikið mynds'kreytt.
Osló, 29. apríl. NTB.
EINAR Gerhardsen, fyrrverandi
forsætisráðherra Noregs, sagði
á blaðamannafundi í Osló i dag
að lokinni fjögurra daga kynnis
ferð til Grikklands, að hann væri
ekki viss um að bezta leiðin til
að leysa Grikklands-málið væri
að taka það fyrir á vettvangi
Atlantshafsbandalagsins. Hann
taldi vænlegra til árangurs að
hefja óformlegar viðræður við
bandaríska forystumenn. Hann
lagði áherzlu á að til lengdar
mundu Bandaríkjamenn vinna
hagsmunum sínum tjón með
stuðningi við grísku herforingja
stjórnina.
Gerhardsen fór til Aþenu
ásamt Knut Frydenlund þing-
manni til þess að viða að sér
upplýsingum um ástandið í land
inu fyrir norsku Grikklands-
nefndina. Hann ræddi við starf-
andi utanríkisráðherra, Pala-
mos, og fulltrúa stjórnmála-
flokka landsins, sem eru bann-
aðir. ■ Grísku stjórninni var
skýrt nákvæmlega frá því sem
hann tók sér fyrir hendur og
við hverja hann talaði. Gerhard
sen furðaði sig á því að and-
stæðingar stjórnarinnar hefðu
verið óhræddir við að láta í
ljós skoðanir sínar, en benti á
að þeir væru kunnir stjómmála
menn.
Að sögn Gerhardsenis óttast
stjórnmálamennirnir ekki of-
sóknir þar sem Bándaríkj amenn
viti að fangelsanir kunnra
stjómmálamanna muni aðeins
baka þeim óþægindi. Gerhard-
sen sagði hins vegar að ástand-
ið væri miklu verra en hann
hefði búizt við. Hann kvað
stjórnmálaforingjana hafa um
þessar mundir hugann mest við
áskorun um lýðræði og 'mann-
réttindi, sem var birt á 150 ára
afmæli sjálfstæðis Grikklands
23. marz og undirrituð var af
150 kunnum Grikkjum. Tveir
stærstu stjórnmálaflokkamir
hafa síðan lýst yfir stuðningi
við yfirlýsinguna og telja marg-
ir að hún geti orðið grundvöll-
ur samstöðu allra stjórnmála-
flokka og myndunar nýrrar
stjórnar eftir daga herforingja-
stjórnarinnar.
Gerhardsen lét í ljós undrun
á árásum Andreasar Papan-
dreous á meinta þátttöku
Bandaríkjamanna í byltingu her
foringjanna 1967. Hann kvað
það skoðun grískra stjórnmála-
manna að vinsemd meirihluta
Grikkja _ frá dögum borgara-
styrjaldarinnar hefði horfið eft-
ir valdatöku herforingjastjómar
innar, og væri einkum íhalds-
menn gramir. Gerhardsen sagði,
að þótt Bandaríkjamenn hefðu
ekki komið herforingjastjórn-
inni til valda, héldu þeir henni
við völd. Hann kvað stjómmála
mennina ekki hafa áhuga á því
að Grikkland segði sig úr
NATO, en sagði að aðildarlönd
bandalagsins yrðu að gera
Bandaríkjunum grein fyrir því
að NATO mundi glata Grikk-
landi ef herforingjastjóminni
yrði leyft að vera áfram við
völd.
SriSGÖTV) A6 SI
Dömur!
Nýkomið!
• STUTTBUXUR ÚR RÚSKINNI
• STUTBUXUR ÚR FLAUELl
• PILSBUXUR MEÐ VESTI
• POKABUXUR MEÐ PEYSU
• PILS ÚR RÚSKINNI • KJÚLAR
• DRAGTIR • RÖNDÓTT VESTI
• KAPUR • BLÚSSUR
• PEYSUR • DERHÚFUR ^
• HALSBÖND
• BELTI
Opið til kl. 4
á laugardag