Morgunblaðið - 30.04.1971, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1971
21
Jón Pálsson:
Opið bréf
— til 11. þingmanns Reykja-
víkur, Ólafs Björnssonar
Háttvirti alþingismaður og
prófessor, Ólafur Björnsson.
Liljur vallarins og fuglar him
insins bera ekki kvíðboga fyrir
morgundeginum, og vissulega
gerum við það ekki heldur. En
dagar koma eftir morgundaginn,
sem eru öllu kviðvænlegri. Ég
skil ekki fyllilega hvers vegna
yður er kvíði í brjósti, því það
hefir sýnt sig að okkar ágæta
stjórn kann ráð við öllu.
Það sem gæti gerzt, í haust
að lokinni verðstöðvuninni, er
að launþegasamtökunum takist
að knýja fram töluverðar kaup-
hækkanir, langt um fram það
sem aukning framleiðslunnar
nemur, og auðvitað með fullri
visitölubindingu, með þeim af-
leiðingum að útflutningsatvinnu
vegirnir yrðu reknir með tapi,
viðskiptajöfnuðurinn yrði sífellt
óhagstæðari, og verulega myndi
halla undan fæti fyrir islenzk-
um iðnaði á erlendum og inn-
lendum markaði. Þessi vand-
ræði eru allt gartilir kunningj-
ar, sem við höfum glímt við oft
áður.
Okkar hagrænu hælkrókar og
sniðglímur á lofti hafa verið
innflutningshöft, tollahækkanir,
ba:ði til fjáröflunar og vernd-
ar. Ýmis önnur brögð eru til-
tæk eins og sérstakt yfirfærslu
gjald, gjaldeyrisskömmtun, inn-
flutningshöft og fjárfestingareft
irlit.
Við könnumst báðir við lyfseð
ilinn sem hljóðaði upp á að ausa
uppbótafé í atvinnuvegina og
loka kaupgetuna inni.
Það eru dómarar að þessum
leik okkar, sem segja að þetta
séu bolabrögð, þetta gangi
ekki, við verðum að halda okk-
ur við leikreglurnar. Þessir dóm
arar heita GATT og EFTA. Lík-
legt er að brátt verði þriðji dóm
arinn kallaður til leiks. Sá heit-
ir EBE.
Getum við þá engum brögðum
beitt? Eitt bragð er eftir sem hef
ir reynzt okkur notadrjúgt til
skamms tima. Þetta bragð heitir
gengisbreyting, nánar tiltekið
gengislækkun. Það er afar mis-
jafnt hvernig orðið gengislækk-
un virkar á menn. Þeir sem eru
skuldugir núa saman höndum af
ánægju, vegna þess að þeir vita
Hugsum okkur að Jón Jóns-
son hafi lánað Pétri Pálssyni kr.
100.000,- árið 1960 með 9V2%
vöxtum til 10 ára, sem skyldu
endurgreiðast með jöfnum af
bor.gunum. Sérhver greiðsla yrði
þá kr. 15.927.-.
Tafla 1 sýnir hvernig verð-
bólgan vinnur.
Eins og fram kemur í töflu
II er greiðslubyrðin léttari fyrir
Pétur þegar litið er á öll árin í
heild. Greiðslubyrðin er að með
altali 2,3% léttari heldur en árið
sem lánið er tekið, þrátt fyrir
fulla vísitölubindingu. Lög um
verðtryggingu fjárskuldbindinga
voru gefin út sem lög nr. 71 6.
maí 1966, en vegna áhugaleysis
Seðlabankans og jafnvel nei
kvæðrar afstöðu til sparifjáreig
enda hefir minna orðið um fram
kvæmd en skyldi.
Fyrir nokkrum árum var
J.N. inntur eftir því á fundi í
Hagfræðafélaginu, hvað liði
verðtryggingu sparifjár. Svaraði
J.N. því til að hann sæi ekki
ástæðu til að beita sér fyrir
TAFLA I.
0.9001 15.927,—- 14.336.— 13.092—
0.8052 15.927,— 12.824.— 10.695—
0.7148 15.927. — 11.385. 8.672.
0.5984 15.927.— 9.531 — 6.630—
0.5571 15.927.— 8.873,— 5.637 -
0.4943 15.927.— 7873. 4.567.
0.4751 19.927.— 7.567— 4.009.
0.4174 15.927.— 6.648. 3.216—
0.3364 15.927,— 5358— 2.367—
0.2947 15.927.— 4694— 1.894—
Samtals 60.779.-
Kaiipmáttiir
ÁR krónnnnar Afborgun
1961
1962
1963
1964
1965
1966
1967
1968
1969
1970
Niðurstaðan er sú að verðbóig
an hefir greitt niður tæplega
40% af láninu fyrir Pétur Pét-
ursson, nánar tiltekið kr.
39.221.-.
Ef Pétur hefði brotizt inn til
Jóns árið 1960 og stolið frá hon-
um kr. 40.000.—, þá hefði það
verið talið glæpur, Pétur flekk-
að mannorð sitt ogTilotið sina
refsingu. Ef Jón hefði lagt þess
ar kr. 100.000.— á 9%% vexti ár-
ið 1960 og látið þær standa
óhreyfðar í 10 ár hefði höfuð-
stóllinn rýrnað um 27%.
Fyllumst við ekki réttlátri
reiði gagnvart þessu óréttlæti.
Getum við komið í veg fyrir að
verðbólgan hygli sumum á
kostnað annarra, einkum þeirra
sem mega sin lítils? Við vitum
báðir að lausnin er fyrir hendi.
Það er hægt að stöðva ósómann
með vísitölubindingu fjár-
skuldbindinga.
Hefði það ekki komið sér illa
fyrir skuldunautinn og íþyngt
honum um of? Við skulum nú
athuga það nánar. Einfaldast er
að bera saman vísitölu verðlags
og kaupgjalds.
Hugsum okkur að Pétur sé
ófaglærður verkamaður.
Raunvirði
afborgunar
Núvirði
Raunvirðis
verðtryggingu sparifjár meðan
laun væru óverðtryggð. Auk
þess væru tæknilegir annmark-
ar á þvi. Báðar röksemdirnar
eru gersamlega út í hött.
Sú fyrri fellur á því að verka
lýðshreyfingin getur bætt sér
upp verðhækkanir með tíðum
grunnkaupshækkunum. Siðari
röksemdin er einnig barnalega
vanhugsuð. Verðtryggingu er
einfaldast að framkvæma með
því að taka upp þunga krónu
eins og um erlendan gjaldeyri
væri að ræða.
Mér er ljúft að skýra hug-
mynd mína aðeins nánar fyrir
yður. Hugsum okkur að A. leggi
inn kr. 1.000.— þegar vísitalan
er 181 stig. Þá margfaldar bók-
arinn innleggið með 100/181
sama sem 0.5525 og bókar inn-
leggiö þungár krónur 552.50. Síð
an eru reiknaðir dagvextir af
þessum þkr. 552.50 á sama hátt
og núna eru reiknaðir dagvext-
ir af kr. 1000. . Nokkru seinna,
þegar visitalan er komin í 195
stig tekur A. út kr. 500.— þá
margfaldar bókarinn úttekt-
ina með 0.5128 og bókar þkr.
256.40 sem úttekt. Eftir standa
þá þkr. 296.10 sem jafngilda kr.
577.40.
Við skulum taka annað dæmi,
dæmi um víxil til þriggja mán-
aða. B. tekur 10.000. — króna víx
il þegar vísitalan er 131 stig.
Hann samþykkir þá víxil fyrir
þkr. 7633.60. Þremur mánuðum
seinna þegar vísitalan er orðin
135 stig greiðir B. þessar þungu
krónur með krónum 10.305.40.
Svona einfalt er þetta.
Innleiðsla þungu krónunnar
táknar að vexti mætti lækka
töluvert frá því sem nú er. Eins
og við báðir vitum þá er verð-
bólga bölvaldur sem verður að
uppræta. Takist ekki að upp-
ræta hana, þá verðum við að
berjast gegn siðspillandi áhrif-
um hennar með kjafti og klóm
og til þess tel ég að nota mætti
þungu krónuna.
Höfuðástæða verðbólguþró-
unar undanfarandi ára er að
okkur hefir skort fastan punkt
í hagkerfið. Þá á ég við að i
tekjusveiflu undanfarandi ára
var um tvær skynsamlegar leið-
ir að ræða til að forðast verð-
bólgu. 1. Halda genginu föstu
en láta kaupgjaldið lækka þeg-
ar þjóðarframleiðslan minnkaði
og viðskiptakjör versnuðu (Um
þessa leið hafði, að ég hefi
heyrt, náðst samkomulag haust-
ið 1967, en horfið var frá henni
þegar pundið féll). 2. Halda
kaupgjaldi föstu, lækka gengið,
en hækka það aftur með batn-
andi viðskiptaárferði. Þessi leið
var til umræðu fyrir tæpu ári,
en vegna kenja aðila vinnumark
aðarins var verðbólgan valin.
Sú stefna var þvi valin að láta
verðbólguna jafna tekjunum um
þjóðarlíkaman, en dýrtið tapinu.
Ég álít að þunga krónan sé sá
fasti punktur, sem okkur vant-
ar í hagkerfið. Þunga krónan
leysir ekki allan vanda, en hún
kemur i veg fyrir að hægt sé að
hagnast á verðbólgunni eins og
í rúllettu, þar sem aðeins kem-
ur upp annar liturinn, og að-
gangur er takmarkaður. Erum
við ekki báðir sammála um að
nógu lengi höfum við búið í hag-
rænu spilavíti.
Mestu máli skiptir að menn
skilji samhengi kjarabaráttunn-
ar og geri sér grein fyrir að
annars vegar stendur deilan um
tekjuskiptingu milli fjármagns
og vinnuafls og hins vegar um
tekjuskiptinguna milli launþega
innbyrðis. Það er miklu rökrét.t
ara að sjómenn semji við
trésmiði og lækna heldur en út-
gerðarmenn, vegna þess að þeir
fyrr nefndu bitast um 70% af
kökunni, en þeir síðarnefndu
um 30%. Heildarsamningar yrðu
því mikilvægt spor í rétta átt.
Nýlega hafa náðst heildar
samningar milli B.S.R.B.' og
hins opinbera. Mörgum fannst
sinn hlutur fyrir borð borinn,
en samningsgerðin hefir þó tek-
izt þolanlega í heild. Það er
vissulega langt stökk frá samn-
ingum sem ná til nokkurra þús-
unda opinberra starfsmanna til
samninga sem næðu til 80.000
manns. Slíkir samningar eru
ekki neitt einsdæmi.
Hjá Almennum vélum h.f. læt-
ur nærri að starfi um 800.000
manns. Hingað til hafa samning-
ar hjá A.V. að mestu gengið
stórslysalaust.
Til þess að ná samkomulagi á
sómasamlegum tíma tel ég að að
ferðir þær sem tíðkast við páfa-
kjör komi vel til greina.
Enn fremur verðum við að
gera þá kröfu til Seðlabankans
sem honum er falið samkvæmt 3.
grein laga nr. 10 frá 1961, að
annast seðlaútgáfu og vinna að
þvi að peningamagn í umferð og
framboð lánsfjár sé hæfilegt mið
að við það að verðlag haldist
stöðugt og framleiðslugeta at-
vinnuveganna sé hagnýtt á sem
beztan og hagkvæmastan hátt.
Með þetta í huga og ósk um
að þér munið bera gæfu til að
berjast fyrir smælingjann í þjóð
félaginu og taka upp hanzkann
gegn göngunni fram af brúninni,
kveð ég yður með vinsemd og
virðingu.
Reykjavik á þorraþræl,
Anno Domini 1971
flón Pálsson.
S.Ó.-BÚÐIN
Drengjafatnaður, kuldaúlpur. anorakkar, útsniðnar buxur,
nærfatnaður, skyrtur mislitar, rósótt bindi, sokkar í skærum
litum, dralonpeysur, sportsokkar og tl.
Fyrir herra nærföt og sokkar.
S.Ó.búðin, Njáisgötu 23, sími 11455.
TAFLA II.
af gamalli reynslu að þótt fyrstu áhrif gengislækkunar séu dýr- Ár Verð- visitala Kaupgjalds- vísitala Greiðslu byrði
tið, þá fylgir verðbólgan i kjöl- farið og hún léttir skuldabyrð- 1960 100.0 100.0 1.0000
ina. En þeir sem trúðu því að 1961 111.1 106.1 1.0471
sparnaður væri undirstaða fjár- 1962 124.2 118.5 1.0481
festingar," fjárfesting undirstaða 1963 139.9 134.9 1.0371
hagvaxtar, 'og sparnaður þar af 1964 167.1 166.2 1.0054
leiðandi dyggð, sérstaklega á 1965 179.5 191.1 0.9393
þenslútímum, og allir smælingj- 1966 202.3 228.5 0.8853
arnir (vil ég í þessu sambandi 1967 210.5 241.1 0.8731
vitna i grein sem Lúðvik Krist- 1968 239.6 255.8 0.9367
jánsson, rithöfundur skrifaði í 1969 297.3 288.7 1.0297
Mbl. fyrir tveimur til þremur ár 1970 339.3 351.1 0.9664
LÍTIÐ INN
Hálsfestar úr tré, leðri, litlum perlum, kókóshnetum, skeijum
og málmi.
Hálsmen margskonar, hringar, armbönd, hnakkaspennur úr
leðri, rússkinnsbindi, töskur og belti, ennisbönd og margt fleira.
EITTHVAD FYRIR ÞIG?
Verzlunin ÆSA, Skólavörðustíg 13.
um) sjá nú ávöxt blóðs og svita
brenna upp í eldi verðbólgunn-
ar.
Það er ekki vist að allir hafi
gert sér grein fyrir því hversu
stórfelld eignatilfærsla hefur átt
sér stað á liðnum áratug frá
þeim sem trúðu helgisögunni um
græddu aurana, til þeirra sem
veðjuðu á verðbólguna í okkar
hagræna spilaviti.
Skrifstofustúlka
Stúlka með Verzlunarskólapróf, vön skrifstofustörfum hefur
m. a. unnið eitt ár á skrifstofu í Englandi og með enskt próf
á I8M götunarvélar óskár eftir atvinnu strax.
Tilboð öskast send á afgreiðslu Morgunbl. fyrir 5. maí
merkt: „7247".
Mœðrabúðin
Mæörabúöina vantar verzlunarhúsnæði
sem fyrst.
Upplýsingar í síma 12505 og 35140.
ÝJAR KÁPUR í DAG
Bernharð Laxdal, Kiörgarði