Morgunblaðið - 30.04.1971, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRlL 1971
Islandsmót í badminton um helgina
Fleiri keppendur en nokkru sinni fyrr
fSLANDSMEISTARAMÓTIÐ í
badniinton fer fram í Reykja-
vik nú um helgina og verður
það langf jölmennasta badmin-
tonmót sem haldið hefur verið
hérlendis. Keppendur i því verða
85 — flestir frá Tennis- og bad-
mintonfélagi Reykjavíkur. 48.
Má búast við mörgum jöfnum
og skemmtilegum leikjum i
mótinu að þessu sinni, þar sem
breiddin í þessari íþróttagrein
hefur farið mjög vaxandi, ekki
sízt eftir að fram á sjónarsviðið
komu ungir og mjög efnilegir
piltar.
Mótið hefst kl. 2 á morgun í
Laugardalshöllinni, en úrslita-
leikirnir fara fram á sama stað
á sunnudaginn og þá hefst
keppnin einnig kl. 2.
Sem fyrr segir verða 85 kepp-
andur í mótinu, 48 frá T.B.R.,
16 frá K.R., 4 frá Val, 6 frá
Tennis- og badmintonfélagi
Siglufjarðar, 7 frá Iþróttabanda-
lagi Akraness og 4 frá Iþrótta-
bandalagi Vestmannaeyja. Alls
verða leiknir um 100 leikir í
mótinu. Má búast við því að
þekktustu leikmennirnir í iþrótta
greininni verði nú að hafa tölu-
Reykjavíkurmótið:
Víkingur vann
Ármann 4-0
Guðgeir og Eiríkur skoruðu mörkin
MARGUR hafði búizt við því,
eftir ágæta frammistöðu Ár-
mannsUðsins í leik þess við
Þrótt á dögunum, þá myndi það
veita Víking harða keppni i leik
liðanna sem fram fór í fyrra-
kvöld. En Ármannsliðið brást
þeim vonum. I»að átti nú til
muna lélegri leik, og varð að
sætta sig við að Víkingar hefðu
töglin og hagldirnar i leiknum
allt frá fyrstu mínútunni til
hinnar síðustu. I>rátt fyrir góðan
Bigur Víkings í þessum leik 4:0,
var knattspyma þeirra ekki
mikils hróss verð. Hún var
oftast nokkuð stórkarlaleg og
ónákvæm. Til þess að ná veru-
legum árangri þurfa Víkingarn-
ir að fínpússa lið sitt, og láta
af þeim vonlausu tilraunum til
markskota, sem þeir sýndu í
þessum leik.
Ármenningar urðu fyrir áfalli
þegar á fyrstu mínútu leiksins,
en þá tókst Guðgeiri Leiíssyni
að skora úr, að því er virtist,
fremur hættulitlu tækifæri.
Komst hann inn að vitateig Ár-
menninga, og þegar markvörður
þeirra hljóp út, vippaði Guðgeir
yfir hann og í netið 1:0.
Á 10. mínútu skoraði svo Eirík
ur Þorsteinsson annað mark
Víkinganna, er hann fékk
skyndilega boltann í góðu færi.
Var staðan þar með orðin 2:0.
Fleiri mörk voru ekki skoruð i
fyrri hálfleik, og bar þá mest á
þófi, sem gaf sjaldan góð tæki-
íæri. Áberandi var einnig hvað
einstakir leikmenn Víkings
reyndu að gera mikið sjálfir og
skjóta langskotum að marki Ár-
manns, sem ýmist fóru fram
hjá eða markvörðurinn átti auð-
velt með að verja.
Bezti leikkafli Ármenninga í
þessum leik var upphaf síðari
hálfleiks, en þá sóttu þeir mjög
stíft og fengu marktækifæri,
sem þó nýttust ekki. Þegar líða
tók á leikinn náðu svo Viking-
amir aftur yfirtökunum og skor-
uðu tvö mörk. Voru þar enn
Eiríkur Þorsteinsson og Guð-
geir Leifsson á ferðinni, og voru
bæði mörkin skoruð úr góðum
færum, sérstaklega þó mark
Guðgeirs.
Áberandi bezti maður vallar-
ins í þessum leik var Guðgeir
Leifsson, og er sannarlega eng-
in tilviljun að hann skuli nú
vera valinn í landsliðshópinn.
Guðgeir er mjög laginn leik-
maður, og þegar hann hættir að
skjóta úr jafn vonlitlum færum
og hann gerði í þessum leik, og
reynir frekar að spila samherja
sína uppi, þá verður hann kom-
inn í allra fremstu röð íslenzkra
knattspyrnumanna. 1 Víkings-
liðinu sýndi hin ungi piltur,
Eiríkur Þorsteinsson, einnig at-
hyglisverðan leik, en í Ármanns-
liðinu var Sigurður Leifsson
einna beztur, en fékk þó lítið
ráðrúm til athafna, þar sem
Vikingsvörnin var jafnan á varð-
bergi er hann fékk boltann.
vert fyrir því að komast í úr-
slitakeppnina á sunnudaginn, og
verður fróðlegt að fylgjast með
því hvernig viðureign hinna
ungu meistara og eldri mann-
anna lyktar. Meðal keppendanna
eru t.d. Haraldur Korneliusson,
sem varð þrefaldur Reykjavíkur-
meistari á dögunum, og Öskar
Guðmundsson, K.R., sem verið
hefur Islandsmeistari í einliða-
leik átta sinnum á sl. 11 árum.
Auk meistaraflokks karla
verður keppt í nokkrum öðrum
flokkum, svo sem 1. flokki og
„Olds boys“-flokki, og er þetta
x fyrsta skipti sem keppni fer
fram í honum á íslandsmóti hér-
lendis. Einnig verður keppt í
kvennaflokki og má þar búast
við skemmtilegri keppni, ekki
síður en í karlaflokkunum.
Á síðasta meistaramóti vann
Óskar Guðmundsson, KR, til
eignar bikar sem Jón Jóhannes-
son hafði gefið til keppni í ein-
liðaleik karla. Nú hafa verið
gefnir tveir forkunnarfagrir bik-
arar, sem keppa skal um í þess-
um flokki. Hinn kunni badmin-
tonleikmaður, Einar Jónsson,
gaf annan, og verður nú keppt
um hann í fyrsta sinn. Hinn bik-
arinn gáfu Anderson og Lauth
h.f., en beðið verður með keppni
um hann, unz bikarinn sem
Einar gaf hefur unnizt til eign-
ar.
Bikarar þessir hafa verið gefnir sem sigurlaun í einliðaleik
karla. Bikarinn t.v. gaf Einar Jónsson og verður nú keppt um
hann í fyrsta sinn, Hinn bikarinn var gefinn af Anderson og
Lauth h.f.
Tvö héraðsmet
— á innanhússmóti Breiðabliks
KÓP A V OGSMEIST ARAMÓTIÐ
i frjálsum Sþróttum innanhúss,
var háð sunnudaginn 28. marz
sl. Þáttaka var góð í mótinu,
enda mildll áhugi á frjálsum
íþróttum í Kópavogi. Tvö héraðs
met voru sett, Hafdís Ingimars-
dóttir stökk 2.54 í langstökki án
atrennu og Kristin Bjömsdóttir
stökk 1,55 m i hástökki, gott af-
rek miðað við aðstæður og má
ætla að þess sé skammt að biða
að hún bæti fslandsmetið i þess-
ari grein.
Árangur i einstökum greinum
var sem hér segir:
KARLAR:
25 m hlaup
Trausti Sveinbjörnsson
Karl West Fredriksen
Birgir Hauksson
Framhald á bls. 20
íslandsmót í
borðtennis
fslandsmeistaramót í borðtenn
is verður haldið 8j—9. maí n.k
í Laugardalshöllinni.
Keppt verður í öllum grein-
um karla, kvenna og unglinga.
Ef þátttaka verður mikil er
nauðsyn að keppa í undanrásum
í viltunni áður.
Er því nauðsynlegt að menn
tilkynni þátttöku fyrir mánu-
dagskvöld 3. maí til skrifstofu
ÍSÍ, simi 30955. Þátttökugjald er
100 krónur.
Borðtennisnefnd ISf
sek.
Fram
sigraði
Kristín Bjömsdóttir.
Staðan
STAÐAN í Reykjavíkurmótinu
í knattspyrnu er nú þessá:
Fram 2 2 0 0 3:0 4
KR 2 1 0 1 3:4 2
Víkingar sækja að marki Ármanns i leiknum í fyrrakvöld.
FRAM sigraði KR í Reykjavik-
urmótinu í knattspyrnu í gær-
kvöldi með 2 mörkum gegn engu.
Staðan í hálfleik var 1:0.
Vikingur 2 1 0 1 4:1
Ármann 2 1 0 1 3:5
Valur 1 0 0 1 2:3
Þróttur 1 0 0 1 1:3
Sumargolfhefst
SUMARSTARFSEMI Golfklúbbs
Ness hefst formlega á morgun,
laugardaginn 1. maí. Verður þá
skálinn og völlurinn opnaðir
formlega, en leikið hefur verið
á honum allmikið að undan-
förnu. Vetrarreglur munu þó
gilda á veliinum til 1. júní.
Á morgun, laugardag, verður
fyrsta keppni klúbbsins á sum-
ardagskránni. Er það svonefnd
Flaggkeppni, 18 holu höggleik-
ur með forgjöf. Kappleikjaskrá
klúbbsins er í pósti á leið til
félaga.