Morgunblaðið - 09.05.1971, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAl 1971
Smurt brauð og ölglas
SARDÍNUBRAUÐ
Sardínur, 3—4 stykki (bein-
lausar), 2 tómatar hýðislausir, 1
harðsoðið egg, hakkað saman. 1
matsk. smjör sett saman við,
bragðbætt með salti, pipar og
sitrónusafa. Þessu er smurt á
franskbrauð (ristað ef vill) sem
sett er á salatblöð.
HKITT SKINKUBRAUÐ
Franskbrauð, smjör, lifrakæfa
skinkusneiðar, tómatsósa, steikt
egg.
Franskbrauðið smurt, lifrar-
kæfa sett á, þá skinkusneið og
tómatsósuklessa á. Brauðið sett
inn í heitan ofn í 7—8 min.
Steikt egg sett ofan á þegar bor
ið er fram.
rjóma. Brauðið smurt og snögg-
steikt á pönnu. Tómatsneiðar
settar á sneiðainar, kryddað
með salti og pipar. Sveppajafn
ingurinn settur yfir og bacon bit
arnir brúnaðir, notaðir til að
skreyta með ásamt steinselju.
FYLLT RÚNDSTYKKI I
Lok skorið af rundstykki, tek
ið innan úr því miðju og fyllt í
staðinn með jafningi með t.d.
sveppum i. Rifinn ostur settur
GÓDUR SMÁBITI
Vi rúndstykki eða brauðsneið
með smjöri, skinkusneið lögð á,
þá ostsneið, salatblað, tómat-
sneið, hráar rifnar gulrætur of-
an á, sítrónusafi látinn drjúpa
yfir og steinselja sett efst
HUMAR MEÐ
„PORCHERUÐU"EGGI
Humarjafningur settur yfir
eggið á ristuðu brauði, humar-
biti og dill til skrauts.
CHILE BIíAUD
8 þunnar brauðsneiðar
(franskbrauð), smjör, ansjósu-
smjör, 8 hreinsaðar ansjósur eða
gaffalbitar, 50 gr. smjör, 1 lítili
laukur, 75 gr valhnetukjarnar,
1 matsk sítrónusafi, % tsk
franskt sinnep.
Ansjósurnar eða gaffalbitarn-
ir stappaðir og hrært saman við
smjörið. Laukur og valhnetur
saxað smátt og hrært saman við
smjörið. Brauðið ristað, smjöri
smurt á, sitrónusneið sett til
skrauts.
EGGIABRAUD
1. 4 þykkar franskbrauðsneið
ar steiktar báðum megin á
pönnu. Rifnum osti stráð yfir.
2. 4 egg þeytt með 1 dl mjólk.
1-2 sneiðar skinku smátt skorn-
ar. 14 tsk. salt, 14 tsk. mint.
3. Eggjahræran sett á pönnu,
hrært i með skeið.
4. Eggjahræran sett yfir heitt
brauðið. Þarf að borðast strax.
OSTGRATINKRAÐAR
PÚRRUSNEIÐAR
4 sneiðar franskbrauð, 4 púrr
ur, 4 sneiðar skinka, ostasósa
úr: 1 matsk. smjörllki, 2—3
matsk. hveiti 2-3 dl.rjómi 1 eggja
rauða, 50 gr rifinn ostur, pip-
ar.
Smjörl. og hveiti sett i pott,
rjóminn notaður tii að þynna
út með, eggjarauða, ostur, salt
og pipar sett út í. Brauðið steikt
í smjörlíkinu, sett á eldfast fat,
púrrubitarnir ofan á, skinkan
sett yfir og efst ostasósan, sem
á að vera þykk. Fatið sett i ofn
smástund, áður en bera á fram.
SVEPPABRAUÐ II
4—8 sneiðar franskbrauð,
smjörl. 500 gr sveppir, 30 gr
smjörl. 2 matsk. hveiti, 2 dl
rjómi, salt 150 gr bacon í sneið-
um eða teningum. Sneiðarnar
steikar í smjörl., sveppirnir
sömuleiðis, hveiti stráð á rjóma
og vatni hellt yfir. Jafningurinn
bragðbættur að smekk og settur
yfir sneiðarnar.
HROGN MED ASPAS
Franskbrauðsneiðar, hrogn, 1
ds. aspas, ostasósa, tómatar.
Hrognin skorin í sneiðar, sem
velt er upp úr þeyttu eggi og
raspi með satti í, steikt á pönnu
báðum megin. Sneiðarnar ristað
ar og hrognin sett ofan á, heitt
aspas sett ofan á, ostasósa látin
yfir. (Uppbökuð sósa með rifn-
um osti í). Tómatbitar til að
skreyta með.
FYLLT RÚNDSTYKKI II
4 rundstykki, mjólk, 150 gr
skinka, 2 matsk. rifinn ostur,
salt, pipar, steinselja, smjör.
Lok skorið af rundstykkjunum,
biti tekinn úr. Heit mjólk
hrærð út í brauðbitana sem
teknir eru úr rundstykkjunum,
smátt söxuð skinka, rifinn ost-
ur sett saman við, krydd-
að, jafningurinn settur í rund
stykkin, penslað með smjöri og
sett í ofn í 15 20 mín.
RISTAÐ BRAUÐ MEÐ FISKI
1 2 bollar soðinn fiskur, 1/4 1
bechamelsósa, 1 eggjarauða,
sítrónusafi, karrý, salt ög pip-
ar. Franskbrauðssneiðar steikt-
ar í smjörl. sósan IVtuð, eggja-
rauðan sett út í ásamt kryddi.
Fiskbitarnir látnir út í sósuna
og hitaðir, sett á brauðsneiðarn
ar, skreytt með tómötum og olíf
um.
IÍISTAÐ BRAUÐ MEÐ
SARDÍNUM OG TÓMÖTUM
1—2 dósir sardínur i olíu, 2
tómatar, smjörlíki, salt, hvit-
laukssalat, múskat, 2 matsk. rif-
inn ostur.
Hýðið tekið af tómötunum
skorið í sneiðar og settir á létt-
ristaðar franskbrauðssneiðar
smurðar smjöri. Tómatarnir
kryddaðir, sardínurnar lagðar
ofan á, efst settur rifinn ost-
ur.
Eins fyrir
bæöi kynin
ftalski tízkuteiknarinn
Guci hefur teiknað eins föt
fyrir bæði kynin. Mynztrið
er nokkuð sérstakt og er i
dökkgrænum, bleikum og
svörtum litum í kjólnum.
Kjóllinn er með viðum erm-
um og skörðum í hliðunum.
Hvítir leðursandalar með
gylltum spennum fullkomna
útlitið. Til hægri eru föt fyr-
ir karlmenn, sem vilja fylgj-
ast með tízkunni. Skyrtan og
buxurnar eru úr livítu silki-
shantung, mynztrið er hið
sama og á kjólnum en hér
eru litirnir blágrænir og
svartir.
Hárkollur
Undanfarin sjö ár hefur fram
leiðsla á hárkollum verið vax
andi iðnaður í Hong Kong. Efn-
ið í þessar hárkollur er ýmist
ekta hár eða hár úr alls kyns
gerviefnum. En nú bregður svo
við, að útflutningur þaðan hefur
minnkað og stórar sem smáar
verksmiðjur hafa gengið verr.
Framleiðendur þar álíta hins
vegar, að aðeins sé um tíma-
bundna erfiðleika að ræða, og
verði þeir e.t.v. þess valdandi,
að auka gæði hárkollanna.
Aðal hárkolluframleiðsla
heimsins hefur verið í Hong
Kong í allmörg ár, enda þótt
mikið af hárinu hafi þar til ný-
lega komið frá vestrænum lönd-
um eins og ftaiiu og Spáni. Nú
orðið kemur minna af hári frá
þessum löndum og markaðurinn
hefur færzt austar.
Asiu-hár innflutt frá Indó-
nesíu og Kóreu hefur alltaf ver
ið mikið og ódýrt. En það er
einnig mun grófara að gerð, og
vegna þess að hárkolluframleið-
endur vilja heldur fíngert hár,
var það ekki eins eftirsótt og
hár frá yestrænum löndum. Nú
er farið að vinna Asíu-hár á
þann hátt, að það er gert eins
fíngert og Evrópu-hár, og enda
þótt hinn eðlilegi litur þess sé
dökkbrúnn eða svartur, er
Gaman er að breyta til og
bjóða upp á ölglas og brauðsneið
eitthvert kvöldið, eða koma með
gesti með sér heim úr leikhúsi
eða úr bíó. Er ekki að efa, að
það yrði kærkomin tilbreyting
frá öllu kaffinu og tertunum.
BRAUÐ MEÐ FISKI í
MAJONNAISE
Franskbrauðsneiðar smurðar,
á þær lögð salatblöð, afgangur
af soðnum fiski settur á. Sítrónu
safi settur yfir majonnaise (með
karry, salti, pipar og ef til vill
borðedik;), sett ofan á.
sett ofan á. Látið inn í ofn og
yfir, smjörbiti og hvítlauksduft
hitað í gegn.
SVEPPABRAUD
250 gr. nýir sveppir, 1 matsk.
smjörllki, 1 matsk. hveiti, rjómi,
salt, pipar, lauksalt, tómatar,
bacon (ef vill), steinselja.
Rúndstykki eða franskbrauðs
sneiðar.
Sveppirnir brúnaðir í smjörl.,
hveiti stráð yfir, þynnt með