Morgunblaðið - 09.05.1971, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.05.1971, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAl 1971 ÍO Það eru lifandi draugar á sviðinu með honum Rabbað við Karl Einarsson, með ýmsum röddum Með tveim barna sinna, Ingrveldi Láru O" Einari. Einar er hið eina barnanna sem sýnt hefur einhverja hæfileika til að keppa við pabba gamla þegar fram i sækir. Myndir Kr. Ben. Hvell rödd Árna Tryggvason ar, leikara, berst út í saldnn, og „sjálfur" spígsporar hann um sviðið, með þessum snöggu hreyfingum sem við þekkjum svo vel. Allt í einu teygist úr honum, röddin verður djúp og virðuleg, og Gunnar Thoroddsen flytur ræðustúf um ástandið á Islandi. Halldór Laxness, Stefán Jóns- son, Helgi Sæmundsson, Guð- laugur Rósinkranz, og fleiri góðir menn, slást í hópinn og áheyrendur veltast um af hlátri. Þegar fagnaðarlátunum loks linnir eru þessir mektarmenn horfnir eins og dögg fyrir sólu, en eftir stendur ungur þéttvax inn náungi sem hneigir sig, og brosir glettnislega. Tjaldið fell ur. 1 öðrum þætti, erum við stödd í vistlegri íbúð að Hraun- bæ númer fjörutíu, og í þægi- legum húsbóndastól andspænis okkur sitja allir fyrrnefndir mektarmenn og margir fleiri, sameinaðir í eina persónu sem heitir Karl Einarsson. Karl læt- ur fara vel um sig, hann star- ir upp í loft, og togar hugsi í axlabandið vinstramegin, með- an hann reynir að rifja upp hvernig það atvikaðist að hann fór að tala með annarra manna röddum. Axlabandið smeiíur á sinn stað og hann segir: — Ég var sjö ára. Svo fer axlabandið aftur af stað og það er enn þögn nokkra stund, þar til í því smellur á nýjan leik. — Ég var sjö ára. Við vorum I sveit á Austfjörðum tveir bræðurn- ir. Hinn heitir Valdimar, hann var eldri en ég. Hann var í sveit i Mjóafirði en ég í Beru- firði, og við höfðum mælt okk- ur mót á Djúpavogi um haust- ið — þetta var 1945 — og ætl- uðutn að taka Esjuna til Reykjavíkur. — Einhverra hiuta vegna urðum við að bíða í sóiarhring eftir skipinu, og eins og strák- um er tamt vorum við á fleygi- ferð um plássið meðan við bið- um. Ég man nú ekki mikið eft- ir þessu, en bróðir minn hefur sagt mér að við faerum irun í kaupfélagið til að litast þar um. Það var einhver galsi í mér, og ég byrjaði allt í einu að herma eftir dýrunum á bænum sem ég hafði verið á, kúm, kindum, hestum, hænsnum og öðrum bú stofni. Mér hefuir líklega tekízt vel upp, því að kaupfélagsmean urðu hrifnir, og leystu okkur út með gosdrykkjum og gotterii. Það smeliur mjög ákveðið í axalbandinu, og Kalli segir brosandi: — Það var þá í fyrsta skipti sem ég fékk laun fyrir eftirhermur. — Og hefur haldið áfram sið an? — Nei, blessaður vertu. Eft- ir þetta fengu raddböndin fri í mörg ár nema hvað þau gegndu venjulegum skyldu- störfum við að koma á fram- færi þeim hljóðum sem mín eig- in auma persóna vildi miðla umheiminum. En svo byrjaði ég á þessu aftur þegar ég gekk í flotann og barðist fyrir ættjörðina i þorskastríðinu, um borð í Þór. Raunar hafa sumir vinir mín- ir haldið því fram að frænd- rækni hafi ráðið því að ég tók þátt í átökunum, en það er sagt að menn megi þekkja á fólk- inu sem þeir umgangast, svo þú getur imyndað þér hva/1 mínir vinir eru áreiðanlegar persónur. Nú, hvað um það, Stefán Jónsson, fréttamaður, kom um borð til að fyigjast með því þeg ar tólf mílna fiskveiðilögsagan tók glldi, og ég byrjaði strax að herma eftir honum fyr- ir skipsfélaga mína. Stefán vissi nú ekki af því þá, en frétti það seinna, en ekki varð honum svo mikið um að ég fengi neinar ákúrur enda hefur hans djúpa og sér- stæða rödd, löngum verið vin- sæl meðal þeirra sem herma eft ir fólki. En það var ekki fyrr en 196-4 sem ég fékk mitt stóra „debút“ og það ekki af ómerki legra tilefni en einkaþjóðhátíð Vestmannaeyja. Ég var þá skipvérji á Herjólfi, og farinn að gera miklu meira ai því að herma eftir, þótt það væri nú einkum mér sjálfum og vinum mínum til ánægju. Þjóðhátíðar- nefndin hafði pata af þvi að um borð i Herjólfi væri pilt- ungur nokkur sem hægt vært að stilla upp og láta hlæja að, og bað mig þvi að koma fram á þjóðhátíðinni. Ég varð að sjáifsögðu við því, þótt ég væri mjög taugaóstyrkur. En það gekk allt saman slysalaust, og þar með hafði ég komið fram opinberlega í fyrsta skipti. Fr&mhald á bls. 15 Góðir ís-lendingar © það er svo yyyyynnndis- Haa. Sko. (Laxness). (Gumiar Thoroddsen). leggt (Séra Jón). ISLAND ÖLYMPÍUKEPPNIN K.S.Í, RAKKLAND fer fram á íþróttaleikvanginum í Laugardal mið- vikudaginn 12. maí kl. 20.00. Skólahljórasveit Kópavogs leikur frá kl. 19,30. Dómari: Kaare Sirevang frá Moregi. Vcrð aðgöngumiða: Sæti kr. 200.00 Stæði — 125.00 Barnamiðar — 50.00 Sala aðgöngumiða hefst á morgun mánudag kl. 13.00 úr sölutjaldi við Útvegshankann. Forðist þrengsli — Kaupið miða tímanlega. • Sjáið fyrsta landsleik ársins. Knattspyrnusamband íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.