Morgunblaðið - 09.05.1971, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.05.1971, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1971 ?uraaÁH ÁSTHILDUR INGA HARALDSDÓTTIR OG HELGI ODDSSON Okkur finnst þau hafa mikið til sins máls, og er það mjög eðlilegt að unga fólkið skuli hræðast stríð og vilja ekki fara í herinn. Þetta hefur tekizt stór- kostlega vel hjá þessum krökk- um sem leika í þessu hér miðað við þær aðstæður sem hér eru. SIGFRÍÐ ÞÓRISDÓTTIR. Ég er eiginlega hvorki með né á móti þessu unga fólki. Ég er hlynnt því frjálsræði, sem það vill, og eins er ég á móti pen- ingaæðinu, sem þarna er gagn- rýnt. En hins vegar vil ég ekki mæla með hippalífi og mótmæli algerlega sterkari lyfjum. Þó gæti ég alveg hugsað mér að prófa þetta líf í svona eitt til tvö ár en ekki lengur. Við höfum séð leikinn í London í stóru leikhúsi og urðuim við ekki fyrir neinum vonbrigðum með hann hér heima nema hvað húsið er of litið. Okkur finnst leikurinn vera þess virði að eft- ir honum verði tekið og fólk sjái hann. Skemmtilegt var hvernig fléttað var inn í íslenzk um atriðum s.s. víkingaþættin- um. SIGUR.IÓN JÓNSSON Ég fylgdist satt að segja ekki alveg nógu vel með þessu til að tjá mig um þetta að einhverju leyti. En þetta voru fyrst og fremst mótmæli gegn banda- rísku þjóðfélagi, sem snertu mig ekki neitt sérlega. Mér finnst ekkert sérstakt athugavert við þessa lífsskoðun, sem þarna kom fram, og get fallizt á hana að vissu marki, en ég mundi þó aldrei segja mig úr þjóðfélag inu eins og þetta unga fólk ger- ir. DÓRA EINARSDÓTTIR. Ég skil þau vel, ég er sjálf mikið á móti striði og tel að bæta mætti ástandið í heiminum mikið. Fólk er ekki nægilega hamingjusamt og nýtur lífsins ekki sem skyldi. Mér finnst sum ar persónurnar vera sóðalegar enda margar undir áhrifum sterkra lyfja sem ég er mikið á móti en ég sé ekkert að þessum veikari lyf jum þó. INGÓLFUR JÓNSSON. Mér finnst lífsviðhorf þeirra ekki alveg fulilkomlega rétt, en kannski er það bara vegna þess að ég er sjálfur þvingaður. En þetta stefnir þó að sumu leyti í þá átt, sem ég vil fara. Ég veit ekki hvort ég á að vera að deila á eiturlyfin, því að menn geta eyðilagt líf sitt á svo margvíslegan hátt, að það er kannski ekkert unnið við það að taka eitt atriðið út úr og deila á það sérstaklega. SÆVAR JÓHANNESSON. Ég er nú ekki að öllu leyti hrifinn af þessu liifsviðhorfi. Til dæmis er ég mikið á móti þess- um „abnormal“heitum. Friðar- barátta þessi finnst mér mjög jákvæð. Mér finnst ieikurinn hjá unglingunum sem taka þátt í þessu hér vera mjög góður og hef ég nú séð leikimn þrisvar sinnum. Þá kann ég vel við þessi húsakynni og tel húsið vera mjög vel til leiksýninga fallið. RAGNHEIDUR GUNNARSDÓTTIR. Þetta er svolitið ofsalegt. Frjálslyndi er ágætt, en þetta var einum um of ofsalegt. En það er margt athyglisvert í þessu og ég þyrfti að sjá þetta aftur til að geta áttað mig betur á þessu. En mér finnst þó eins og unga fólkið sé e'kki nógu ánægt með þetta Mf. Það vill frelsi og frið en virð- ist þó ekki nógu ánægt og ég skil ekki almennilega hvemig á þvi stendur. Þá finnst mér af- staða þess til eiturlyfjanna ekki nógu skýr, hvort það vffl þau eða ekki. GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR. Mér finnst þetta mjög gott leikrit, en ég er algerlega á móti þessum lifnaði og sterku lyfjun- um. Ég er þó ekki á móti frjáls- ræði, það á fullan rétt á sér, en mér finnst þau ganga of langt og hegðunin vera á 'köflum ósiðleg. Þó er tilbreyting í að sjá þetta og allt í lagi meðan það er sýnt á leiksviði, en annars staðar á það ekki að sjást. GARY ALEWINE. Ég hef séð leikinn i Frakk- landi og er nokkuð ánægður með hann hér. Ég skil tilfinn- ingarnar þegar maður er kall- aður í herinn, ég hef nú verið i herþjónustu i 3% ár. Þegar ég fékk kvaðningu, vildi ég ekki fara og vissi vart hvað ég átti að gera en áleit það betra að fara, því ég átti ekki annarra kosta völ, og mótmæla síðan eftir að þjónustu lyki. Ég er viss um að leikurinn í ís- lenzku útgáfunni myndi slá í í gegn suður á „Velli“, þau ættu að sýna hann þar. HVERS VEGNfl... Ferðast fólk frekar með KLUB 32? VEGNA ÞESS að ferðir KLUB 32 eru sérstaklega skipulagðar við hæfi ungs fólks að ferðir KLUB 32 eru miklu ódýrari að KLUB 32 tryggir yður skemmtilegasta ferðalagið. ÞAÐ er því engin tilviljun að ferðir KLUB 32 skulu einmitt vera vin- sælustu ferðir unga fólksins. Hollensku MAXIS brjóstahaldararnir og teygjubuxurnar fyrirligjandi. Ódýr gæðavara. Haraldur Árnason, heildverzlun hf. 15583, 13255.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.